Þjóðmenningarhúsið er friðað og tekur notkun hússins mið af friðun þess og sögulegu verðmæti.
Þjóðmenningarhúsið er vettvangur til að kynna íslenska sögu og menningararf.
Aðstaða er fyrir sýningar, fundi, samkomur, fyrirlestra, listviðburði, opinberar athafnir og aðra viðburði.
Á neðstu hæð Þjóðmenningarhússins er veitingastofa og verslun.