Safnanótt
10. febrúar 2012
Þjóðmenningarhúsið verður opið frá kl. 19 til 24 á safnanótt sem að þessu sinni er helguð mögnuðu myrkri. Fjölbreyttar sýningar um list og menningu standa opnar allan tímann. Boðið verður uppá myrka tónleika, vatnslitasmiðju um vofur og vætti, upplestur á draugasögum og skrifarastofu frá miðöldum með kálfskinnsbókfelli, fjaðrapennum og sortubleki. Einnig verður leiðsögn um listsýninguna Þúsund ár. Ókeypis aðgangur.
Vestfirskar myrkraverur - upplestur
Sigurður Skúlason leikari les upp frásagnir af vestfirskum myrkraverum í þjóðsögum Jóns Árnasonar inni á sýningunni Óskabarn - æskan og Jón Sigurðsson kl 20 og 21. Eins og önnur börn fyrr á öldum ólst Jón Sigurðsson upp við krassandi sögur af draugum og drýslum. Heyrið sögurnar í upplestri Sigurðar Skúlasonar og skoðið svo sýninguna.
Skrifarastofa frá miðöldum
Skrifarastofan á sýningu Árnastofnunar, Handritin, verður opin frá kl. 19:30 – 22:30: Prufið að dýfa fjaðurpenna í sortublek og draga til stafs á kálfskinnsbókfell. Svanhildur Gunnarsdóttir, safnkennari Árnastofnunar, aðstoðar og fræðir gesti um skinnaverkunina, pennaskurðinn, bleksuðuna, gerð lita til skreytinga o.fl.
Skrímslasögur í leiðsagnarhandriti
Leiðsagnarhandrit fyrir fjölskyldur um sýninguna Handritin – saga handrita og hlutverk um aldir, með sögum af skrímslunum Fáfni og Miðgarðsormi, liggja frammi í móttökunni. Þeir fullorðnu segja börnunum sögurnar og hjálpa þeim að finna persónurnar á myndum á sýningunni og fleira skemmtilegt.
Vatnslistasmiðja: Vofur og vættir
Vatnslitasmiðjan verður opin frá kl. 20 – 22 inni á sýningunni Sjáðu svarta rassinn minn – sem er byggð á samnefndri barnabók eftir systurnar Brynhildi og Þórey Mjallhvíti Heiðar- og Ómarsdætur. Brynhildur endursegir nokkrar þjóðsögur þar sem stelpur og konur eru í hetjuhlutverkinu og glíma við hin myrku öfl og hafa sigur. Þórey Mjallhvít málaði myndirnar í bókinni og sér hún um vatnslitasmiðjuna. Þar geta allir spreytt sig á að mála sem ógurlegasta ófreskju undir hennar leiðsögn. Myndirnar verða hengdar jafnóðum upp og verða til sýnis alla helgina. Á mánudeginum verður ferlegasta forynjan valin og vinningshafi fær bókina í verðlaun! Brynhildur verður einnig á staðnum og styttir listamönnunum stundir með upplestri af og til.
Magnað myrkur - tónleikar
Myrkir músíkdagar 2012 – eftirmáli. Tónleikar með Önnu Jónsdóttur, sópran, Sophie Schoonjans á hörpu og Örnólfi Kristjánssyni á selló. Tónleikarnir hefjast kl. 22 í bókasal og eru haldnir undir merkjum tónlistarhátíðarinnar Myrkir múskíkdagar.
Leiðsögn um sýninguna Þúsund ár
Þúsund ár - 1. áfangi er yfirlitssýning Listasafns Íslands um íslenska myndlist og spannar hún frá lokum 19. aldar til nútímans. Halldór Björn Runólfsson, forstöðumaður Listasafns Íslands, verður með leiðsögn um sýninguna kl. 21.
Lítill náttúruleiðangur um sýninguna Þúsund ár
Börn geta farið í leiðangur um sýninguna út frá blaði með nokkrum náttúruþráðum sem rekja má um verkin.
Spóinn – sýning á munnmáluðum vatnslitamyndum og olíumálverkum eftir Eddu Heiðrúnu Backman. Á sýningunni er spóinn í aðalhlutverki en fuglar hafa alltaf verið Eddu Heiðrúnu hugleiknir. Þeir eru hluti sköpunarverksins alls, en ekki síst himinsins, og þeir eru táknmynd frelsis og sjálfstæðis. Sýningin er í verslun og veitingastofu.
Þjóðin og náttúran er 30 mín. náttúrulífsmynd eftir Pál Steingrímsson kvikmyndagerðarmann. Sögupersónur myndarinnar eru, auk mannsins, íslenski hundurinn, hesturinn, lundinn, æðarfuglinn, gæsin og selurinn. Myndin verður sýnd viðstöðulaust og hentar jafnt börnum sem fullorðnum.
Bókasalurinn – fundarstofur. Gamli lestrarsalur Landsbókasafnsins stendur opinn ásamt sex fundarstofum í vesturálmu með sýningum um leiðtoga og listir.

Veitingastofan verður opin allan tímann og býður gestum að ganga inn og velja sér heita eða kalda rétti auk drykkja af ýmsum toga.
Vert er að geta þess að á laugardeginum, 11. febrúar, verður ókeypis aðgangur fyrir ungt fólk 25 ára og yngra.
|