Jólavörur
í versluninni
Desember 2007
Það
er margt áhugavert að skoða í versluninni
í Þjóðmenningarhúsinu á aðventunni.
Þar eru til dæmis til sölu bækur á
ýmsum tungumálum um fróðleg efni, gjarnan
tengd sýningum í húsinu. Auk þess hefur
Þjóðmenningarhúsið haft til sölu
Kærleikskúlu Styrktarfélags lamaðra
og fatlaðra. Kúlan hefur verið tekin úr sölu
þar sem sölutímabil er einungis 5. - 19. desember
ár hvert. Fyrir jólin býður verslunin glæsileg
handgerð kóngakerti til sölu eins og undanfarin
ár. Einnig fæst sígild og þjóðleg
tónlist, jólakort, póstkort, konfekt frá
Hafliða í Mosfellsbakaríi og fleira í verslunni.
Opið alla daga frá kl. 11 til 17.
|
Ný
sýning í sýningaröðinni í verslun
Þjóðmenningarhússins
3. desember 2007
Ný
myndlistarsýning hefur verið sett upp í versluninni
í Þjóðmenningarhúsinu. Að þessu
sinni sýnir Erla Þórarinsdóttir verk
sem hún kallar Sameign; opinber rými.
Hegningarhúsið, Alþingishúsið, Hnitbjörg,
Kristskirkja, Háskólinn og Hallgrímskirkja
eru sameignleg rými, viðmið okkar á önnur
rými, hegðun okkar, verðmætamat og sjálfsímynd.
Verkið samanstendur af sex málverkum af grunnflötum
þessara opinberu bygginga í Reykjavík, máluð
í skalanum 1:50. Erla tileinkar sýninguna Birgi Andréssyni
sem til stóð að sýndi einnig í myndlistarsýningaröðinni
í verslun Þjóðmenningarhússins en
er nú fallinn frá.
Erla Þórarinsdóttir (f. 1955) á að
baki glæsilegan feril sem myndlistarmaður. Hún
hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir verk sín
og sýnt á fjölda einka- og samsýninga
hérlendis og víða um lönd.
Umsjónarmaður með sýningaröðinni
er myndlistarmaðurinn Helga Egilsdóttir sem jafnframt
er móttökufulltrúi í Þjóðmenningarhúsinu.
|
Móttaka
í tilefni útkomu rits um síldarsögu Íslendinga
26. nóvember 2007
Út
er komið ritið Silfur hafsins – Gull Íslands
– Síldarsaga Íslendinga. Í verkinu
er rakin saga síldveiða og vinnslu frá fyrstu
tíð, sagt frá frumkvæði Norðmanna
á 19. öld og síldarævintýrum Íslendinga
á síðustu öld. Sagan er þriggja binda
stórvirki í veglegri öskju, 1.104 blaðsíður
í stóru broti með um 800 myndum og teikningum.
Höfundar texta eru Benedikt Sigurðsson, Birgir Sigurðsson,
Guðni Th. Jóhannesson, Hjörtur Gíslason,
Hreinn Ragnarsson, Jakob Jakobsson, Jón Þ. Þór
og Steinar J. Lúðvíksson. Ritstjórar eru
tveir, Hreinn Ragnarsson og Steinar J. Lúðvíksson.
Í tilefni af útkomu ritsins bauð sjávarútvegsráðherra
Einar Kristinn Guðfinnsson til móttöku í
bókasal Þjóðmenningarhússins og veitti
fyrsta eintaki bókanna viðtöku úr hendi Ernu
Sörensen og Einars Matthíassonar eigenda Nesútgáfunnar
sem gefur ritið út. Myndina tók Steingrímur
Kristinsson.
|
Ráðstefna
um Íslenska efnahagsundrið
16. nóvember 2007
Félagsvísindastofnun
Háskóla Íslands, Samtök atvinnulífsins
og Morgunblaðið ásamt fleiri aðilum stóðu
að dagskrá undir yfirskriftinni Íslenska efnahagsundrið
í bókasal Þjóðmenningarhússins
16. nóvember 2007.
Ráðstefnan var vel sótt enda var einn kunnasti
hagfræðingur heims, prófessor Arthur B. Laffer,
sem Laffer-boginn svonefndi er kenndur við, frummælandi
á ráðstefnunni. Laffer setti ungur fram þá
djarflegu kenningu að skattalækkanir gætu leitt
til aukinna skatttekna ríkisins og fjallaði erindi hans
um kosti skattalækkana. Setningarávarp flutti Árni
M. Mathiesen fjármálaráðherra en prófessor
Guðmundur Magnússon brást við erindi Laffers.
Að því búnu fóru fram umræður
og fyrirspurnir en lokaorð átti Ágúst Ólafur
Ágústsson alþingismaður. Fundarstjóri
var Ingimundur Sigurpálsson formaður SA.
Sjá nánar á slóðinni:
http://skattamal.is/miracle/index.php?gluggi=forsida
|
Opnun
sýningarinnar Ferðalok - um Jónas Hallgrímsson
15. nóvember 2007
Þess
er minnst með ýmsum hætti um allt land að í
ár eru liðin 200 ár frá fæðingu
Jónasar Hallgrímssonar (1807 – 1845). Hér
í Þjóðmenningarhúsinu var opnuð
sýning kvöldið fyrir afmælisdaginn, dag íslenskrar
tungu, og er þar fjallað um manninn, skáldið
og náttúrufræðinginn Jónas.
Halldór Blöndal f.v. forseti Alþingis opnaði
sýninguna og flutti ávarp. Fífilbrekkuhópurinn
flutti þrjú lög Atla Heimis Sveinssonar við
ljóð eftir Jónas og leikkonan Ragnheiður Steindórsdóttir
las tvö ljóð eftir hann. Við opnunina afhenti
einnig Sigurður Líndal, forseti Hins íslenska
bókmenntafélags, Þorgerði Katrínu
Gunnarsdóttur menntamálaráðherra og Halldóri
Blöndal, formanni nefndar menntamálaráðuneytisins
um 200 ára afmæli Jónasar Hallgrímssonar,
eintök af bókinni Undir hraundranga, safn ritgerða
um Jónas Hallgrímsson sem Sveinn Yngvi Egilsson ritstýrði.
Sýningunni var vel tekið af gestum við opnun hennar.
Auk ágæts yfirlits um líf og störf Jónasar
eru á sýningunni ýmsir fágætir
munir sem sumir hverjir hafa ekki komið fyrir almenningssjónir
áður. Má þar nefna safn steinasýna
sem Jónas safnaði, með litlum handskrifuðum merkimiðum,
og varðveitt er í Geologisk Museum í Kaupmannahöfn.
Einnig talsvert af skjölum frá Japetusi Steenstrup sem
var vinur og samverkamaður Jónasar um tíma. Handrit,
teikningar og önnur gögn frá ferðum hans og
Jónasar um Ísland eru á sýningunni og
hafa ekki áður verið til sýnis hér
á landi. Gögnin koma frá Zoologisk museum í
Kaupmannahöfn. Einnig eru til sýnis frumteikningar sem
dregnar voru upp að Jónasi látnum og þekktar
teikningar af honum byggja á.
Sýningin er opin alla daga frá kl. 11 til 17 og stendur
fram í júnímánuð 2008.
|
Händel
á Ítalíu – kammertónleikar
14. nóvember 2007
Händel
á Ítalíu var yfirskrift tónleika
kammerhópsins Nordic Affect í Þjóðmenningarhúsinu
þann 14. nóvember sl. Á tónleikunum kom
hin þekkta sópransöngkona Susanne Rydén
fram með NoA og fluttar voru m.a. veraldlegar kantötur
eftir Händel auk óperuaría eftir Alessandro Scarlatti
sem sjaldan hafa heyrst hér á landi. Susanne Rydén
hefur á síðustu árum skipað sér
í fremstu röð túlkenda barokk og klassískrar
tónlistar og unnið með stjórnendum á
borð við Nikolaus Harnoncourt, Joshua Rifkin og Christhopher
Hogwood.
Tónleikarnir voru styrktir af Menningarjóði Reykjavíkurborgar,
GLITNI og Radison SAS Saga hotel og eru liður í vetrartónleikaröð
Nordic Affect í Þjóðmenningarhúsinu.
Hópurinn er skipaður innlendum og erlendum hljóðfæraleikurum
sem allir hafa lokið námi í flutningi tónlistar
á upprunaleg hljóðfæri og hafa þau
komið fram við mjög góðar móttökur
á Íslandi og í Danmörku og Hollandi. Að
þessu sinni skipuðu Nordic Affect þau Halla Steinunn
Stefánsdóttir og Julia Fredersdorff barokkfiðluleikarar,
Hanna Loftsdóttir barokksellóleikari, Karl Nyhlin
lútuleikari og Guðrún Óskarsdóttir,
semballeikari.
|
Réttarstaða
Norður-Íshafsins rædd
9. nóvember 2007
Hafréttarstofnun
Íslands hélt málstofu um réttarstöðu
Norður-Íshafsins í bókasal Þjóðmenningarhússins
föstudaginn 9. nóvember sl. Yfirskrift málstofunnar
var Hver á Norðurpólinn? og var hún öllum
opin meðan húsrúm leyfði. Málstofan
hófs með ávarpi Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur utanríkisráðherra en
að því búnu tóku eftirfarandi til
máls um tilgreint efni: Ron Macnab, meðlimur Norðurskautsnefndar
Kanada: The Central Arctic Ocean – Shrinking Ice and Expanding
Jurisdiction. Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunarinnar: Fiskveiðar á norðurslóð
við breyttar aðstæður. Douglas Brubaker, Fridtjof
Nansen-stofnuninni: The Northern Sea Routes – Legal Considerations.
Að lokum fóru fram pallborðsumræður og
fyrirspurnum var svarað. Þátttakandi í pallborði
ásamt frummælendum var Trausti Valsson, prófessor
í skipulagsfræði við Háskóla
Íslands. Málstofustjóri var Tómas H.
Heiðar, þjóðréttarfræðingur
í utanríkisráðuneytinu, forstöðumaður
Hafréttarstofnunar Íslands.
|
Opnun
sýningarinnar Handan um höf
31. október 2007
Miðvikudaginn
31. október bauð Þjóðmenningarhúsið
til opnunarhátíðar í tilefni nýrrar
sýningar í bókasal, gamla lestrarsal Landsbókasafnsins.
Sýningin nefnist Handan um höf – þýðingar
og frumsamin ritverk Helga Hálfdanarsonar. Á
sýningunni ber hæst þýðingar hans
á sígildum bókmenntum; leikverkum, sögum
og ljóðum, en einnig er sjónum beint að frumsömdum
verkum þar sem hann túlkar forna texta og hugar að
málrækt og öðrum mikilvægum málum.
Sýningin leiðir í ljós hve víða
þýðingar hans hafa ratað um leiksvið og
ljósvaka og hve fjölmargir þeir eru sem hafa komið
að uppsetningu, flutningi og útgáfu verka sem
Helgi hefur þýtt.
Dagskráin við opnun var vegleg. Guðríður
Sigurðardóttir forstöðumaður Þjóðmenningarhússins
flutti ávarp um feril Helga, Dr. Gauti Kristmannsson flutti
erindi sem hann nefndi Helgi Hálfdanarson - þýðandi
þjóðarinnar og listamennirnir Arnbjörg
Hlíf Valsdóttir, Ívar Örn Sverrisson,
Bergþór Pálsson og Kristinn H. Árnason
fluttu texta og tónlist úr verkum Helga. Dr. Sveinn
Einarsson hafði umsjón með dagskránni og valdi
texta til leiklesturs og upplesturs ásamt sönglögunum.
Þess má geta að erindi Gauta birtist í Lesbók
Morgunblaðsins laugardaginn 3. nóvember.
|
Bleikur
október
Október 2007
Í
októbermánuði er vakin athygli á brjóstakrabbameini
hér á landi, áttunda árið í
röð. Þetta er hluti af alþjóðlegu
árveknisátaki og er bleik slaufa tákn átaksins.
Farið var að lýsa þekkt mannvirki erlendis
í bleikum lit í októbermánuði árið
2000. Árið eftir tók Orkuveita Reykjavíkur
að sér að kosta lýsingu á einu mannvirki
á höfuðborgarsvæðinu, og árið
2007 lýsir Orkuveitan Viðeyjarstofu upp. Fleiri taka
þátt í þessu átaki og nú
í ár er Þjóðmenningarhúsið,
meðal annarra bygginga, lýst með bleiku ljósi
í október. Að auki bera allir starfsmenn Þjóðmenningarhússins
bleika slaufu á barmi.
|
Þjóðræknisþing
haldið í bókasal
3. október 2007
Þjóðræknisfélag
Íslands hélt árlegt þjóðræknisþing
sitt í bókasal Þjóðmenningarhússins
í tengslum við aðalfund félagsins. Boðið
var uppá vandaða dagskrá fyrir áhugafólk
um samstarf milli Íslendinga heima og erlendis, og tengsl
við fólk af íslenskum ættum utan Íslands.
Á aðalfundinum var Guðríður Sigurðardóttir
forstöðumaður Þjóðmenningarhússins
kosin í stjórn félagsins. Formennska er áfram
í höndum Almars Grímssonar sem setti þingið
og kynnti þá sem fram komu.
Garry Oddleifson forseti Icelandic National League of North
America flutti ávarp um störf félagsins.
Bjarki Sveinbjörnsson flutti fróðlegt erindi um
tónskáld af íslenskum ættum í
Vesturheimi og í framhaldi af því stigu Erna
Kirstín Blöndal söngkona og Örn Arnarson gítarleikari
á stokk og fluttu nokkur lög. Því næst
kynntu Ásta Sól Kristjánsdóttir, Ragnheiður
Diljá Gunnarsdóttir og Hrafnhildur Sigmarsdóttir
Snorraverkefnið. David Gislason minntist Jónasar Hallgrímssonar
í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli
hans nú í nóvember. Að lokum flutti Neil
Bardal ávarp.
Forsætisráðherra stóð fyrir móttöku
fyrir þinggesti að dagskránni lokinni en auk þess
bauð Þjóðmenningarhúsið gestunum
að skoða sýningar hússins.
|
Kammertónleikaröðin
Kristallinn hófst 22. september
24. september 2007
Hljóðfæraleikarar
úr Sinfóníuhljómsveit Íslands
hófu tónleikaröðina Kristalinn laugardaginn
22. september í bókasal Þjóðmenningarhússins.
Fyrstu tónleikarnir í röðinni nefndust Brassbotninn
og þar léku básúnu- og túbuleikarar
listir sínar og spiluðu bæði verk sem samin
eru fyrir þessa óvenjulegu og spennandi hljóðfæraskipan
og alþekkta tónlist sem útsett er fyrir þennan
dýpri enda málmblástursdeildarinnar. Brössurunum
til halds og trausts var einn slagverksleikari.
Meðal verka sem flutt voru má nefna tokkötu og fúgu
eftir Bach, kafla úr sjöundu sinfóníu
Bruckner, Yesterday eftir þá Lennon og McCartney og
Queen-smellinn Bohemian Rhapsody.
Kammertónleikaröðin fór vel af stað og
næstu tónleikar verða haldnir 13. október
og nefnast einfaldlega Hápunktur kammertónlistar.
Leikinn verður oktett í F-dúr op. 166 eftir Franz
Peter Schubert.
|
Myndlist
á veggjum verslunarinnar í Þjóðmenningarhúsinu
13. september 2007
Í
sumar var sett upp myndlistarsýning í versluninni
í Þjóðmenningarhúsinu. Sýningin
er sú fyrsta í röð myndlistarsýninga
sem fyrirhugaðar eru og gera heimsókn í verslunina
enn áhugaverðari en ella. Sýningin nefnist Manifesto
– Momento: Benda og stendur hún fram í
nóvember. Um er að ræða úrval svokallaðra
Vísirósa sem listamennirnir Bjarni H. Þórarinsson
(f. 1947) og Guðmundur Oddur (f. 1955) vinna saman.
Bjarni hefur langar myndlistarferil að baki sem frá árinu
1988 hefur tengst fræðum sem Bjarni fann upp og kallar
sjónháttafræði. Um er að ræða
nýstárlega aðferðafræði við
myndgerð sem byggist á forni arfleifð, handritagerðinni.
Að sögn Bjarna eru verkin rökrétt framhald
þróunar þessarar arfleifðar; hann býr
til myndrit en Vísirósirnar á sýningunni
teljast allar til myndrita. Fyrst um sinn vann Bjarni allar Vísirósirnar
í höndunum en frá árinu 1996 hefur Guðmundur
Oddur unnið með honum að gerð þeirra með
hjálp tölvu.
Þess má geta að í tengslum við sýningar
á verkum sínum hefur Bjarni staðið fyrir fjölda
sjónþinga.
Þeim sem hafa áhuga hafa á að eignast verk
eða fræðast meira um þau vísindi sem
Bjarni leggur þeim til grundvallar er bent á að
hafa samband við listamanninn í síma 846-0933.
|
Menningarnótt:
Stofutónleikar og opið hús
18. ágúst
2007
Aðalsteinn
Ásberg Sigurðsson, skáld og tónlistarmaður,
hélt árlega stofutónleika sína í
bókasal Þjóðmenningarhússins á
menningarnótt og var það í sjöunda
sinn sem boðið er til slíkra tónleika, þar
af fimmta árið í Þjóðmenningarhúsinu.
Í ár var efnisskráin fjölbreytt að
vanda og fluttir voru sagnadansar, þjóðlög,
ljóð og vísnatónlist á þrennum
tónleikum.
Að þessu sinni komu fram ásamt Aðalsteini Ásberg
valinkunnir tónlistarmenn, þau Guðrún Gunnarsdóttir
söngkona og sænska þjóðlagatríóið
Draupner (sjá mynd), sem hefur í tvígang
áður komið fram á menningarnótt í
Reykjavík. Eins og nærri má geta voru tónleikarnir
fjölskylduvænir og notaleg stofustemmning í fyrirrúmi.
Sýningar í húsinu voru fjölsóttar
þann hálfa sólarhring sem þær stóðu
opnar á afmælisdegi Reykjavíkur; menningarnótt
2007.
|
Tónaregn
í Þjóðmenningarhúsinu
29. júní
2007
Dúóið
para-Dís hélt hádegistónleika í
bókasal Þjóðmenningarhússins föstudaginn
29. júní. Á efnisskránni var létt
og sumarleg frönsk tónlist við allra hæfi.
Enginn aðgangseyrir var að tónleikunum og nutu viðstaddir
tónlistarinnar heilshugar.
Dúóið para-Dís skipa Hafdís Vigfúsdóttir
flautuleikari og Kristján Karl Bragason píanóleikari.
Þau starfa saman hjá Hinu húsinu í sumar
sem skapandi hópur og kalla þau verkefni sitt Tónaregn
í Reykjavík. Þau leitast við að
koma fram á sem flestum og ólíkustum stöðum
í borginni og eru tónleikarnir í Þjóðmenningarhúsinu
liður í því. Fræðast má
betur um tónleikaröðina á slóðinni
www.blog.central.is/flautarinn.
|
Skólastjórar
funda í Þjóðmenningarhúsinu
18. maí 2007
Menntasvið
Reykjavíkurborgar hélt lokafund skólaársins
með skólastjórum grunnskóla, skólastjórum
tónlistarskóla, stjórnendum skólahljómsveita
og aðstoðarskólastjórum í grunnskólum
Reykjavíkur föstudaginn 18. maí í bókasal
Þjóðmenningarhússins. Í lok dagskrár
þáðu skólastjórarnir kynningu leiðsögumanns
Þjóðmenningarhússins á nýrri
sýningu Náttúrufræðistofnunar Íslands;
Surtsey – jörð úr ægi og skoðuðu
því næst sýninguna. Hún hefur fallið
í góðan jarðveg hjá kennurum í
grunnskólum sem hafa margir nú þegar komið
að sjá sýninguna með sínum nemendum.
Það var því kærkomið tækifæri
að kynna Surtsey – jörð úr ægi
skólastjórnendum og væntir Þjóðmenningarhúsið
mikillar aðsóknar skólahópa á sýninguna.
|
Verðlaunaveiting
Heimilis og skóla í bókasal
15. maí 2007
Foreldraverðlaun
Heimilis og skóla 2007 voru afhent við hátíðlega
athöfn í bókasal þriðjudaginn 15. maí
sl.
Íþróttafélagið Grótta á
Seltjarnarnesi hlaut verðlaunin að þessu sinni fyrir
samræmingu skóladags og æfingatíma í
samvinnu við bæjaryfirvöld og Grunnskóla Seltjarnarness.
Auk Foreldraverðlaunanna sjálfra voru veitt tvenn hvatningarverðlaun
og ein dugnaðarforkaverðlaun.
Aðalmarkmiðið með veitingu Foreldraverðlaunanna
er að vekja athygli á því gróskumikla
starfi sem unnið er á fjölmörgum sviðum
í grunnskólum landsins. Við veitingu verðlaunanna
er sérstaklega litið til verkefna sem hafa eflt samstarf
foreldra og skólastarfsmanna og komið á uppbyggjandi
hefðum í samstarfi þessara aðila.
|
Sýningin
Surtsey – jörð úr ægi opnuð
við hátíðlega athöfn
6. maí 2007
Sýning
Náttúrufræðistofnunar Íslands Surtsey
- jörð úr ægi var opnuð við hátíðlega
athöfn sunnudaginn 6. maí. Guðríður Sigurðardóttir
forstöðumaður Þjóðmenningarhússins
og Jón Gunnar Ottóson forstjóri Náttúrufræðistofnunar
ávörpuðu gesti við opnunina ásamt umhverfisráðherra
Jónínu Bjartmarz sem lýsti sýninguna
opna. Tónlistarflutningur var í höndum tríós
Jóels Pálssonar.
Sýningin Surtsey – jörð úr ægi
rekur myndunar- og þróunarsögu Surtseyjar fram
til dagsins í dag og spáir fyrir um framtíð
eyjarinnar og þróun lífríkis hennar næstu
120 árin. Á sýningunni er beitt nýjustu
sýningartækni og margmiðlun við kynningu á
ómetanlegum niðurstöðum vísindarannsókna
í Surtsey. Henni er ætlað að höfða
jafnt til forvitinna barna sem fræðimanna og þess
er vænst að gestir skynji kraft eldsumbrotanna um leið
og þeir fræðast um eðli þeirra og sköpunarverk.
Þann 5. júní nk. eru liðin 40 ár
frá því eldgosi lauk í Surtsey en það
braust upp á yfirborð sjávar 14. nóvember
1963. Íslensk stjórnvöld hafa tilnefnt Surtsey
á heimsminjaskrá UNESCO og er niðurstöðu
að vænta á árinu 2008.
Fjölmargir vísindamenn, hönnuðir, hugbúnaðarsmiðir
og tæknimenn komu að undirbúningi sýningarinnar.
Hún styðst m.a. við einstakar ljósmyndir og
kvikmyndir sem teknar voru af Surtseyjareldum og í eynni
frá upphafi og fram á þennan dag. Náttúrufræðistofnun
Íslands stendur að sýningunni og hefur notið
stuðnings fjölda stofnana og fyrirtækja til þess
að ógleymdum ráðuneytum umhverfis- og menntamála.
Gert er ráð fyrir að sýningin verði síðar
flutt til Vestmannaeyja.
Meira um Surtsey á vef NÍ:
Surtsey
tilnefnd á heimsminjaskrá UNESCO
Líffræðileiðangur
til Surtseyjar 2006
40
ára vöktun eldfjalleyjar
|
Fjölskyldugaman
á sumardaginn fyrsta
19. apríl 2007
Opið
hús var í Þjóðmenningarhúsinu
á sumardaginn fyrsta undir formerkjum Ferðalangs á
heimaslóð:
Náttúrulífsmyndir
Páls Steingrímssonar Þjóðin
og náttúran voru sýndar viðstöðulaust
allan daginn. Þessar hrífandi og nærgætnu
stuttmyndir um hestinn, hundinn, selinn, gæsina, lundann og
æðarfuglinn og sambúð þeirra við
manninn ná til stórra og smáa og fjölmargir
heimsóttu húsið til að njóta þeirra.
Kvikmyndin verður sýnd áfram um tíma á
afgreiðslutíma hússins, eða daglega frá
kl. 11 til 17.
Auk kvikmyndasýningarinnar
voru sýningarnar Handritin, Fyrirheitna landið
og Berlin Excursion opnar öllum án aðgangseyris.
|
Þjóðskjalasafn
Íslands 125 ára
3. apríl 2007
Safnið
var stofnað með bréfi Hilmars Finsen landshöfðingja
3. apríl 1882 sem landsskjalasafn, en árið 1915
var nafni þessi breytt í Þjóðskjalasafn
Íslands og um leið urðu breytingar á hlutverki
þess. Í tilefni dagsins hélt Þjóðskjalasafnið
alþjóðlega ráðstefnu í bókasal
Þjóðmenningarhússins um starfsemi og vettvang
þjóðskjalasafna. Ráðstefnan var öllum
opin.
|
Tvennir
tónleikar kvennakórsins Vox feminae
21. og 22. mars 2007
Kvennakórinn
Vox feminae flutti íslensk söng- og þjóðlög
á tvennum tónleikum í Þjóðmenningarhúsinu;
miðvikudagskvöldið 21. og fimmtudagskvöldið
22. mars sl. Tónleikarnir voru all sérstæðir
því söngperlurnar sem lifað hafa með þjóðinni
gegnum aldirnar voru sungnar með leikrænni framsetningu.
Útkoman var sönggjörningur og fylgdu áheyrendur
kórnum eftir um ris og ganga hússins þar sem
hinn einstaki hljómburður nýtur sín hvað
best.
Á síðari tónleikum kom sænski dansarinn
Ivonne Kral fram ásamt konum úr kórnum og stúlknakór
Reykjavíkur og flutti frumsamið dansverk við tónlist
sem maður hennar samdi að stærstum hluta. Sænski
sendiherrann á Íslandi frú Madeleine Ströje-Wilkens
var viðstödd við það tækifæri.
Kórinn hreif áheyrendur með sér og skapaðist
bæði hátíðlegt og innilegt andrúmsloft
á tónleikunum sem helgaðir voru formæðrum
okkar.
|
Sýningin
Icelandic Fashion and Design – inspired by nature
var opnuð í Berlín
14. mars 2007
Sendiherra
Íslands í Þýskalandi, Ólafur Davíðsson,
opnaði sýninguna Icelandic Fashion and Design –
inspired by nature í Felleshus, sameiginlegum
sýningarsal norrænu sendiráðanna í
Berlín, að viðstöddu fjölmenni þann
14. mars sl. Á sýningunni er meðal annars sýndur
fatnaður eftir nokkra íslenska hönnuði sem einnig
áttu föt á nýlega yfirstaðinni sýningu
Þjóðmenningarhússins; Íslensk
tískuhönnun. Þjóðverjinn Matthias
Wagner K er sýningarstjóri sýninganna og dregur
hann í uppsetningu sinni fram þau áhrif frá
náttúru Íslands sem hann sér að
endurspeglast í hönnuninni.
Við opnunina flutti Guðríður Sigurðardóttir
forstöðumaður Þjóðmenningarhússins
ávarp. Guðríður nefndi sérstaklega
að sýningin Íslensk tískuhönnun
hefði brotið blað í sýningahaldi Þjóðmenningarhússins
með nýstárlegri og listrænni nálgun
á afmörkuðum þætti íslenskrar
nútímamenningar sem ekki hafði sést fyrr
í sölum hússins og trúlega ekki annars
staðar innanlands með þeim hætti sem þar
var gert.
Þess má geta að Matthias Wagner K var einnig sýningarstjóri
listahátíðarinnar Islandbilder sem íslensk
stjórnvöld stóðu að í Köln
í nóvember 2005 og voru verk íslensku fatahönnuðanna
sýnd þar. Því má segja að þessi
sýningaröð brúi bil milli menningarborganna
Kölnar, Reykjavíkur og Berlínar og veiti ferskri
og frumlegri íslenskri fatahönnun farveg um opinberar
sýningargáttir hér heima og á meginlandi
Evrópu.
|
Sýningar
um Jónas Hallgrímsson
16. mars 2007
Miðvikudaginn
21. mars verður opnuð á Akureyri fyrsta sýningin
af þremur um skáldið og náttúrufræðinginn
Jónas Hallgrímsson í tilefni af 200 ára
fæðingarafmæli hans en Jónas fæddist
á Hrauni í Öxnadal 16. nóvember árið
1807.
Fyrsta sýningin verður í Amtsbókasafninu
á Akureyri. Önnur sýningin um Jónas Hallgrímsson
með áherslu á náttúru Íslands
verður svo opnuð á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn
3. ágúst n.k. og sú þriðja og síðasta
hér í Þjóðmenningarhúsinu
í nóvember.
Menntamálaráðherra skipaði nefnd til að
undirbúa afmælishald á árinu 2007. Formaður
hennar er Halldór Blöndal alþingismaður og
aðrir í nefndinni eru Sigrún Jakobsdóttir
bæjarstjóri, Páll Valsson rithöfundur,
Margrét Eggertsdóttir prófessor og Jón
G. Friðjónsson prófessor. Umsjónarmaður
með dagskrá afmælisársins er Sveinn Einarsson
en dagskráin er fjölbreytt með viðburðum
hér heima og á slóðum Jónasar Hallgrímssonar
í Kaupmannahöfn.
List og Saga ehf sér um hönnun, framleiðslu og uppsetningu
sýninganna fyrir menntamálaráðuneytið.
Sýningarhönnuður er Björn G. Björnsson.
Meðal sýningarmuna í Amtsbókasafninu á
Akureyri eru allmörg eiginhandarrit Jónasar að ljóðum
hans og ritsmíðum á sviði náttúrufræði
og steinasýni sem Jónas safnaði á rannsóknarferðum
sínum um Ísland á árunum 1837-42. Þar
af eru fjögur sýni úr nágrenni Hrauns
í Öxnadal sem voru sérstaklega fengin að
láni frá Kaupmannahöfn. Sigrún Björk
Jakobsdóttir bæjarstjóri opnar sýninguna,
ávörp verða flutt og boðið upp á
tónlistaratriði og léttar veitingar á eftir.
Sýningin stendur fram í maí.
Bent er á vef Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns
um Jónas Hallgrímsson http://www.jonashallgrimsson.is/
|
Dómnefnd
bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs skoðar
handritin
5. mars 2007
Dómnefnd
bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs tilkynnti
um val á höfundi þeim er verðlaunin hlýtur
í Norræna húsinu mánudaginn 5. mars.
Nefndin kom síðar sama dag hingað í Þjóðmenningarhúsið
og þáði leiðsögn um sýningu Árnastofnunar,
Handritin. Á myndinni sést hópurinn ásamt
fulltrúa alþjóðasviðs Alþingis
sem skipuleggur heimsókn nefndarinnar hér á
landi.
Þess má geta að verðlaunin falla að þessu
sinni sænsku skáldkonunni Sara Stridsberg í
skaut.
|
Tónleikar
kammerhópsins Nordic Affect í bókasal
3. mars 2007
Laugardaginn
3. mars hélt kammerhópurinn Nordic Affect
tónleika í bókasal, þá fyrstu
í fyrirhugaðri tónleikaröð hópsins
í Þjóðmenningarhúsinu.
Tónleikarnir báru yfirskriftina Girni og viður.
Leikin var hljóðfæratónlist frá barokktímabilinu,
allt frá hinum framúrstefnulegu strengjaverkum Marini
og Merula til eins frægasta flautuverks sögunnar, h-moll
svítunnar eftir J. S. Bach. Kammertónlist á
sína tryggu aðdáendur hér á landi
og var aðsókn að tónleikunum góð
og flutningur tónlistarmannanna vandaður og líflegur.
Þess má geta að Nordic Affect eða
NOA er fyrsti hérlendi kammerhópurinn skipaður
fólki sem hefur sérhæft sig í flutningi
tónlistar á upprunaleg hljóðfæri.
Hópurinn var stofnaður árið 2005 af Höllu
Steinunni Stefánsdóttur barokkfiðluleikara og
Karl Nyhlin lútuleikara en telur í dag níu
meðlimi. Hópurinn hefur komið fram á Norðurlöndunum,
þ.m.t. á Sumartónleikum í Skálholti
og Renaissance Musik Festival í Kaupmannahöfn
og fengið góðar móttökur.
Reykjavíkurborg, Glitnir, Minningarsjóður Margrétar
Björgólfsdóttur, Tónlistarsjóður
og Menningarsjóður FÍH hafa veitt styrki til tónleikaraðarinnar.
|
Sýning
Þjóðmenningarhússins -Íslensk
tískuhönnun- brúar bil milli borga: Köln-Reykjavík-Berlín
26. febrúar 2007
Á
sýningunni Íslensk tískuhönnun
sem opnuð var í Þjóðmenningarhúsinu
af forsætisráðherra Geir H. Haarde 29. júní
2006 sést að íslensku hönnuðurnir tíu,
sem þar sýndu verk sín, sækja innblástur
í náttúruna og andstæður hennar.
Mýkt og harka, birta og myrkur, fínleiki og grófleiki
endurspeglast í ögrandi og sjálfstæðri
hönnun sem að margra mati er með því flottasta
sem sést í heiminum í dag. Sýningin
stóð til 27. febrúar.
Sýningin kom hingað til Reykjavíkur frá
Köln þar sem hún hafði verið á
listahátíðinni Islandsbilder í
nóvember 2005, sem íslensk stjórnvöld
stóðu að. Sýningin flyst aftur til Þýskalands,
í þetta skipti til Berlínar. Þar ríkir
nýsköpun í lista- og menningarlífi og
ólgandi sköpunarkraftur íslenskra hönnuða
mun eflaust njóta sín þar í borg.
Sýningarstjórinn Matthias Wagner K brúar bilið
milli borganna og setur sýninguna upp á hverjum stað.
Síðustu daga sýningarinnar hér í
Þjóðmenningarhúsinu settu hönnuðurnir
upp nýja fatalínu sem fylgdi sýningunni yfir
brúna til Berlínar.
Sýningin verður opnuð í Felleshus,
sameiginlegum sýningarsal sendiráða Norðurlandanna
í Berlín þann 14. mars nk. og stendur til 3.
maí. Þar verður hún hluti sýningar
um íslenska tísku og hönnun því
auk fatnaðar verða sýnd húsgögn og munir
eftir íslenska hönnuði.
Sýningin braut blað í sýningarsögu
Þjóðmenningarhússins því hún
var fyrsta sýningin sem hér var sett upp og fjallaði
eingöngu um afmarkaðan þátt í nútímamenningu
á Íslandi. Óhætt er að segja að
sýningunni hafi verið vel tekið. Bæði jók
hún breidd gestahópsins sem leggur leið sína
á sýningar hússins og textílmenntakennarar
tóku henni opnum örmum og komu með nemendur sína
til þess að skoða fatnaðinn, huga að því
samhengi sem hann er sprottinn úr og vinna viðfangsefni
út frá sýningunni í samvinnu við
leiðsögumann hússins.
Þjóðmenningarhúsið gaf út einstaklega
veglega sýningarbók með ljósmyndum af fatnaðinum
sem sýndur var auk texta á þremur tungumálum,
íslensku, ensku og þýsku. Fjallað er um
fatnaðinn, hönnuðina og hugmyndina að baki uppsetningunni.
Áhugafólki um tísku og hönnun er bent
á að sýningarbókin verður áfram
til sölu í verslun hússins á kostakjörum.
Þjóðmenningarhúsið þakkar sýningarstjóranum
Matthiasi Wagner K og Sabine Schirdewahn hjá Agentur
für Gute Gestaltung, Ruth Bobrich viðskiptafulltrúa
hjá íslenska sendiráðinu í Berlín,
Helgu I. Stefánsdóttur leikmynda- og búningahönnuði
og bakhjörlum sýningarinnar Moch Figuren, Icelandair
og Faco. Hönnuðunum tíu er þakkað
fyrir þátttökuna og sitt framlag en þeir
eru: Björg Ingadóttir og Vala Torfadóttir frá
Spaksmannsspjörum, Ásta Guðmundsdóttir með
ásta créative clothes, Þorbjörg Valdimarsdóttir,
Rósa Helgadóttir, Anna Guðmundsdóttir,
Dóra Emilsdóttir, Ragna Fróða, Jóna
Björg Jónsdóttir með jbj design og Steinunn
Sigurðardóttir með STEiNUNN merkið.
|
Safnanótt
í Þjóðmenningarhúsinu
23. febrúar 2007
Safnanótt
var haldin föstudagskvöldið 23. febrúar kl.
19 - 24 og Þjóðmenningarhúsið tók
þátt með opnu húsi og ókeypis aðgangi
ásamt skemmtilegri dagskrá við allra hæfi.
Fjölbreytileikinn var í fyrirrúmi því
dagskráin innihélt tísku, tónlistarflutning,
náttúrulífskvikmynd og skriftir á kálfskinn
að hætti miðaldaklaustra.
Nánar til tekið var um að ræða endurnýjun
sýningarinnar Íslensk tískuhönnun
– rétt áður en hún syngur sinn svanasöng,
en hönnuðurnir færðu sýningargínurnar
í það nýjasta, sumir þeirra fyrir
opnum tjöldum á sjálfa safnanóttina. Sýningin
verður svo tekin niður þann 27. febrúar. Ólöf
Arnalds er upprennandi tónskáld, söngkona og
hljóðfæraleikari og hún flutti verk af nýútkominni
sólóplötu sinni á tvennum tónleikum
um kvöldið. Framan af kvöldi gátu gestir reynt
sig við skriftir í skrifarastofunni á sýningunni
Handritin og allt til miðnættis gat öll fjölskyldan
notið einlægrar og hrífandi nálgunar kvikmyndagerðarmannsins
Páls Steingrímssonar á sambúð manns
og dýra í íslenskri náttúru.
Safnanótt fór vel fram að vanda og kunnu gestir
að meta það sem í boði var.
|
|