Fjölskyldudagur
síðasta sunnudag í aðventu
21. desember 2008
Boðið
var uppá fjölbreytta og notalega afþreyingu fyrir
alla fjölskylduna hér í Þjóðmenningarhúsinu
síðasta sunnudaginn í aðventunni. Dagskráin
var ókeypis og hófst kl. 14 með brúðuleiksýningu.
Sögusvuntan sýndi Jesúbarnið; verk sem byggt
er á rússnesku jólaævintýri eftir
Leo Tolstoj. Þetta er hlý og hugljúf saga með
hinum sanna jólaboðskap og við flutninginn er blandað
saman lifandi hörputónlist og brúðuleik.
Það er Hallveig Thorlacius sem er sögumaður og
brúðuleikari en Marion Herrera leikur á hörpu.
Kl. 15 kynnti Jón Baldur Hlíðberg, teiknari, yfirstandandi
sýningu sína Kynjaskepnur í íslenskum
þjóðsögum. Þetta var eins konar leiðsögn
hans um þessa sýningu á teikningum sem birtast
í bókinni Íslenskar kynjaskepnur. Jón
Baldur myndskreytir bókina en Sigurður Ægisson
ritar textann. Jón Baldur útskýrði aðferðafræðina
á bak við útfærslu myndanna og jós
af viskubrunni sínum varðandi kynjaskepnurnar sem þjóðsagnaarfurinn
geymir.
Kl. 16 lék Marion Herrera hugljúf jólalög
á hörpu svo tónarnir ómuðu um húsið.
Ókeypis aðgangur var að sýningum í
húsinu og dagskrárliðum þennan dag og veitingastofan
hafði á boðstólum kaffi og vöfflur.
|
Gissur
Páll Gissurarson og félagar hans í Nýja-Kvartettinum
héldu hátíðartónleika
20. desember 2008
Tenórsöngvarinn
Gissur Páll Gissurarson og félagar hans í Nýja-Kvartettinum
héldu hátíðartónleika hér
í Þjóðmenningarhúsinu laugardaginn
20. desember. Tónleikarnir voru haldnir til að fagna
útgáfu á fyrsta geisladiski kvartettsins, en
hann nefnist Fegursta rósin og hefur að geyma
sígild jólalög í nýjum útsetningum.
Aðgangur var ókeypis og þéttskipað í
sæti.
Meðlimir Nýja-Kvartettsins eru þeir Gissur Páll
Gissurarson, tenór, Hjörleifur Valsson, fiðluleikari,
Örnólfur Kristjánsson, sellóleikari, og
Árni Heiðar Karlsson, píanóleikari. Þeir
heilluðu viðstadda með einstaklega fögrum flutningi
á lögum tileinkuðum jólahátíðinni.
Nýi-Kvartettinn er með Facebook síðu á
slóðinni: http://www.facebook.com/pages/Nyi-Kvartettinn/46111088078
og þar er m.a. hægt að hlýða á
lög af diskinum.
|
Brúðuleiksýning
fyrir leikskólabörn
16. – 18. desember
2008
Þjóðmenningarhúsið
bauð elstu börnum leikskóla að koma og sjá
jólasýningu brúðuleikhússins Sögusvuntunnar;
Jesúbarnið. Sagan er byggð á rússnesku
jólaævintýri eftir Leo Tolstoj. Þetta
er hlý og hugljúf saga með hinum sanna jólaboðskap
og við flutninginn er blandað saman lifandi hörputónlist
og brúðuleik. Það er Hallveig Thorlacius sem
er sögumaður og brúðuleikari en Marion Herrera
leikur á hörpu.
Þjóðmenningarhúsið bauð uppá
þrjár sýningar og voru um 50 börn á
hverri sýningu. Færri komust þó að
en vildu enda sýningafjöldinn takmarkaður. Á
sunnudaginn 21. desember verður opin sýning á
Jesúbarninu kl. 14. Allir velkomnir og enginn aðgangseyrir.
|
Paul
Hawken hélt fyrirlestur í bókasal
13. desember 2008
Einn
atkvæðamesti fræði- og athafnamaður á
sviði sjálfbærrar þróunar, tengslamyndunar
og sprotavaxtar, hinn bandaríski Paul Hawken, hélt
fyrirlestur í bókasal Þjóðmenningarhússins
um stöðu mála á Íslandi. Hann var
hér á landi ásamt öðrum heimsþekktum
umhverfisverndarsinna, John Picard, ráðgjafa um grænkun
athafnalífsins, í boði Bjarkar Guðmundsdóttur,
tónlistarmanns. Hingað komu þeir til þess
að taka þátt í samræðu um kosti
í atvinnumálum og fyrirtækjarekstri og gefa
góð ráð um samfélagslega þróun
í átt að sjálfbærni.
Fyrirlesturinn var öllum opinn og afar vel sóttur. Að
honum loknum svaraði Hawken spurningum úr sal svo mynduðust
líflegar umræður um stöðu Íslands.
Hawken var síðan í viðtali við Egil Helgason
í sjónvarpsþættinum Silfri Egils daginn
eftir. Sjá nánar á www.nattura.info.
|
Bókakynningar
í hádeginu
8. - 11. desember 2008
Kynningar
á nýjum bókum voru haldnar í Þjóðmenningarhúsinu
í hádeginu 8. – 11. desember. Höfundar
komu í heimsókn og lesið var úr verkum
þeirra. Bækurnar sem kynntar voru eru á þjóðlegum
nótum. Þær fjalla ýmist um sögufræga
einstaklinga eða viðburði.
Mánudaginn 8. desember kynnti Úlfar
Þormóðsson bók sína Hallgrímur,
sögulega skáldsögu um ævi sálmaskáldsins
Hallgríms Péturssonar, sem þjóðin
hefur elskað og dáð um aldaraðir.
Þriðjudaginn 9. desember fjölluðu
þeir Kristján B. Jónasson og Sölvi Sveinsson
um bókina Amtmaðurinn á einbúasetrinu
eftir Kristmund Bjarnason. Þetta er ævisaga Gríms
Jónssonar amtmanns, sem var einn æðsti valdsmaður
á Íslandi á fyrri hluta 19. aldar.
Miðvikudaginn 10. desember las Kristín
Bragadóttir úr bók sinni Willard Fiske
– vinur Íslands og velgjörðamaður.
Um miðja 19. öld fékk Bandaríkjaðurinn
Willard Fiske geysilegan áhuga á Íslandi og
íslenskum bókum. Hann vildi auðga líf landsmanna
og bæta hag þeirra.
Fimmtudaginn 11. desember kom Gísli Helgason
og kynnti bók Óttars Sveinssonar Útkall,
flóttinn frá Heimaey. Gísli gerði
jafnframt grein fyrir hljóðbókarútgáfu
hennar. Í bókinni segir frá gosinu í
Vestmannaeyjum, ógnum þess og hetjulegri baráttu
Eyjamanna. Við sama tækifæri las Herdís Egilsdóttir
úr barnabók sinni Edda týnist í
eldgosinu en í þeirri sögu segir frá
raunverulegum atburðum sem áttu sér stað sólarhringana
eftir að gosið hófst; Edda og þrjú systkini
hennar urðu viðskila við foreldra sína og eldri
systkini.
Ýmsir lögðu leið sína í Þjóðmenningarhúsið
til að hlýða á kynningarnar og fengu þeir
sér gjarnan hádegisverð á veitingastofunni.
|
Kómedíuleikhúsið
sýndi Dimmalimm og Jólasveina Grýlusyni
í bókasal
7. desember 2008
Kómedíuleikhúsið
á Ísafirði kom í aðventuheimsókn
í Þjóðmenningarhúsið sunnudaginn
7. desember og sýndi tvo brúðuleiki. Annars vegar
Dimmalimm um prinsessuna góðu og prinsinn hennar,
sem nornin breytti í svan og hins vegar Jólasveinar
Grýlusynir um gömlu íslensku jólasveinanna.
Dimmalimm byggir á samnefndu ævintýri
eftir Mugg (Guðmund Thorsteinsson) og hefur notið gífurlegra
vinsælda allt frá því ævintýrið
kom fyrst út á bók árið 1942. Jólasveinar
Grýlusynir varpar upp ýmsum áleitnum spurningum
um hina hrekkjóttu jólasveina. Hvers vegna er Stúfur
þeirra minnstur? Af hverju er Stekkjastaur svona hár
til hnésins? Var fjórtándi jólasveinninn
til? Eru Askasleikir og Bjúgnakrækir tvíburar?
Inn í þennan bráðfjöruga jólaleik
fléttast allt annað ævintýri um nútíma
unglingspilt sem hefur verið sendur til fjalla að leita
að kúnni Búkollu.
Elfar Logi Hannesson flutti bæði verkin og gerði leikgerðina
ásamt samstarfsmönnum sínum vestra.
Aðgangur að sýningunum var ókeypis og kunnu
fjölskyldur vel að meta það og var vel mætt
á sýningarnar.
|
Alnæmissamtökin,
nú HIV-Ísland, fagna afmæli í bókasal
5. desember 2008
Þann
5. desember sl. voru liðin 20 ár frá stofnun alnæmissamtakanna
sem nú starfa undir nýju nafni; HIV-Ísland.
Tímamótanna var minnst með stuttri dagskrá
fyrir félagsfólk, heilbrigðisstarfsmenn og velunnara
þennan sama dag hér í Þjóðmenningarhúsinu.
Fulltrúar viðstaddra fluttu ávörp auk þess
sem Lay Low flutti nokkur lög. Guðlaugur Þór
Þórðarson, heilbrigðisráðherra,
opnaði formlega nýja heimasíðu félagsins:
www.hiv-island.is. Samhliða dagskrárflutningi voru veitingar
bornar fram.
|
Styrkveitingar
Þjóðhátíðarsjóðs fóru
fram í bókasal
1. desember 2008
Sérstök
athöfn var haldin í Þjóðmenningarhúsinu
vegna úthlutunar styrkja úr Þjóðhátíðarsjóði
2008 vegna ársins 2009. Sjóðurinn veitir styrki
til stofnana og annarra aðila sem hafa það verkefni
að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta
lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur
tekið í arf. Alls bárust 161 umsókn um
styrki að fjárhæð um 229 millj. kr. Úthlutað
var að þessu sinni 56 styrkjum að fjárhæð
samtals kr. 30.400.000.- og hlutu eftirtaldir aðilar hæstu
styrkina:
Félag um endurreisn Listasafns Samúels í Selárdal.
Kr. 2.000.000
Stofnun Árna Magnússonar, orðfræðisvið.
Kr. 1.500.000.
Ljósmyndasafn Íslands, Þjóðminjasafni.
Kr. 1.500.000.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Kr. 1.000.000.
Skriðuklaustursrannsóknir, félag. Kr. 1.000.000.
Í stjórn sjóðsins sitja nú: Margrét
Bóasdóttir, söngkona, formaður skipuð
af forsætisráðherra. Eiríkur Guðnason,
seðlabankastjóri, varaformaður, tilnefndur af Seðlabanka
Íslands. Jónína Michaelsdóttir, rithöfundur,
Margrét K. Sverrisdóttir, varaborgarfulltrúi
og Björn Teitsson, magister, sem kjörin eru af Alþingi.
Ritari sjóðsstjórnar er Sigfús Gauti Þórðarson,
lögfræðingur.
|
Styrkveiting
í bókasal
24. nóvember 2008
Félagsmálaráðuneytið
hélt blaðamannafund 24. nóvember í bókasal
Þjóðmenningarhússins þar sem félags-
og tryggingamálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir,
afhenti styrki til atvinnumála kvenna. Vinnumálastofnun
heldur utan um styrkveitingarnar og að þessu sinni var
50 milljónum króna úthlutað til kvenna
í atvinnurekstri. Á fundinum afhenti ráðherra
tíu hæstu styrkina. Alls hlutu 56 konur styrki en 264
umsóknir bárust.
|
Slagverkstónleikar
í tónleikaröðinni Kristallinn
22. nóvember 2008
Aðrir
tónleikarnir í tónleikaröðinni Kristallinn
þennan vetur voru haldnir laugardaginn 22. nóvember
sl. Á tónleikunum komu fram sex slagverksleikarar
Sinfóníuhljómsveitar Íslands; Árni
Áskelsson, Eggert Pálsson, Frank Aarnink, Kjartan
Guðnason, Pétur Grétarsson og Steef van Oosterhout,
og léku þeir verk eftir tónskáld sem
hafa sótt innblástur m.a. í tónlist
frumbyggja Suður-Ameríku. Yfirskrift tónleikanna
var Á indjánaslóðum. Á
efnisskrá voru Tokkata fyrir slagverk eftir mexíkóska
tónskáldið Carlos Chaves (1899 - 1978) og þrjú
verk eftir Bandaríkjamanninn Lou Harrison (1917 – 2003),
þ.e. Lofsöngur nr. 3, Svíta fyrir slagverk
og Söngur Quetzalcoatl.
Verkin, jafnt sem flutningur, voru bæði blæbrigðarík
og kraftmikil og fyllti ómurinn húsið. Uppselt
var á tónleikana.
|
Utanríkisráðherra
Færeyja hefur viðdvöl í Þjóðmenningarhúsinu
18. nóvember 2008
Jørgen
Niclasen, utanríkisráðherra Færeyja, kom
ásamt eiginkonu sinni í opinbera heimsókn til
Íslands mánudaginn 17. nóvember í boði
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra.
Daginn eftir kom Niclasen í Þjóðmenningarhúsið,
þar sem Markús Örn Antonsson, forstöðumaður,
tók á móti honum. Síðan skoðaði
ráðherrann sýninguna Handritin með
leiðsögn Vésteins Ólasonar forstöðumanns
Árnastofnunar. Að því búnu áttu
utanríkisráðherrar Færeyja og Íslands
fund hér í húsinu þar sem samstarf landanna
var rætt. Að hádegisverði loknum var boðað
til blaðamannafundar um efni fundarins.
|
Velheppnuð
dagskrá á degi íslenskrar tungu
16. nóvember 2008
Á
degi íslenskrar tungu sunnudaginn 16. nóvember sl.
var opið hús og fjölbreytt dagskrá í
Þjóðmenningarhúsinu. Stöðugur straumur
var af fólki í húsið yfir daginn til þess
að njóta dagskrárinnar og sjá sýningarnar.
Tryggvi Gíslason, magister, flutti fyrirlestur sem hann kallaði
Myndin af Jónasi Hallgrímssyni. Tryggvi fjallaði
um þá mynd sem þjóðin hefur gert sér
af skáldinu og náttúrufræðingnum
Jónasi Hallgrímssyni. Einnig fjallaði hann um
teikningar, málverk og ýmis önnur myndverk sem
gerð hafa verið af Jónasi. Hann færði rök
fyrir því að tekin hafi verið mynd af Jónasi
Hallgrímssyni með frumstæðri ljósmyndunartækni
og að teikning eftir þeirri mynd hafi varðveist. Fyrirlesturinn
var haldinn af Menningarfélaginu Hrauni í Öxnadal
sem einn árlegra Jónasarfyrirlestra félagsins.
Lárusar Pálssonar, leikara og leikstjóra, var
minnst við bókarkynningu í tilefni af útkomu
ævisögu hans, sem Þorvaldur Kristinsson hefur ritað.
Lárus Pálsson var snillingur í flutningi móðurmálsins
á sviði og við hljóðnemann, m.a. er rómaður
upplestur hans á ljóðum Jónasar Hallgrímssonar.
Í upphafi athafnarinnar flutti Markús Örn Antonsson,
forstöðumaður Þjóðmenningarhússins,
ávarpsorð. Fluttar voru hljóðritanir með
upplestri Lárusar á nokkrum ljóðum Jónasar
en síðan kynnti Þorvaldur Kristinsson ritverk sitt;
Lárus Pálsson leikari, og Sigurður Skúlason,
leikari, las kafla að eigin vali úr bókinni. María
Jóhanna, dóttir Lárusar Pálssonar, kynnti
aðdragandann að útgáfu á safni geisladiska
með hljóðritunum af upplestri Lárusar og leiknum
atriðum. Viðar Eggertsson, verkefnisstjóri leiklistar
hjá Ríkisútvarpinu, fjallaði um störf
Lárusar Pálssonar í útvarpi og hlutverk
Útvarpsleikhússins í erindi sem hann kallaði
Rödd Lárusar. Í lok dagskrárinnar
minntist Gunnar Eyjólfsson, leikari, Lárusar. Gunnar
var lengi samstarfsmaður hans og gekk auk þess í
leiklistarskóla Lárusar Pálssonar á
sínum tíma.
Eins og sjá má af ofansögðu tengdust dagskráratriðin
Jónasi Hallgrímssyni, sem dagur íslenskrar
tungu er tileinkaður, hvort með sínum hætti.
Auk þessa var í boði sérstök fjölskylduleiðsögn
um handritasýningu Árnastofnunar í Þjóðmenningarhúsinu.
Ókeypis aðgangur var að sýningum og á
dagskrána í tilefni dagsins. Helstu sýningar
auk Handritanna eru Surtsey – jörð úr
ægi og Síðbúin sýn,
sýning á ljósmyndum sem Halldór Laxness
tók sjálfur sem áhugaljósmyndari.
Efri mynd:
Markús Örn Antonsson flytur ávarpsorð við
setningu dagskrár um Lárus Pálsson. Í
fremstu röð sitja auk annarra Þorvaldur Kristinsson,
María Jóhanna Lárusdóttir og Viðar
Eggertsson sem stigu í pontu auk Sigurðar Skúlasonar
og Gunnars Eyjólfssonar.
Neðri
mynd: Tryggvi Gíslason magister flytur erindi sitt. |
Kynjaskepnur
úr íslenskum þjóðsögum,
sýning á myndskreytingum Jóns Baldurs Hlíðberg
14. nóvember 2008
Á
nýrri sýningu í sýningarröð
í verslun og veitingastofu Þjóðmenningarhússins
eru teikningar eftir Jón Baldur Hlíðberg (f. 1957)
af kynjaskepnum úr íslenskum þjóðsögum.
Teikningarnar birtust í bókinni Íslenskar
kynjaskepnur sem Forlagið gaf út fyrr á árinu.
Í bókinni er fjallað á skemmtilegan hátt
um náttúrufræði kynjaskepna úr íslenskum
þjóðsögum sem forfeður okkar og mæður
trúðu um aldir að tilheyrðu raunveruleikanum.
Höfundur texta er Sigurður Ægisson, þjóðfræðingur.
Dæmi um kynjaverur sem Jón Baldur gæðir lífi
með teikningum sínum eru; múshveli, skeljungur,
skuggabaldur, skötumóðir og hrosshvalur.
Jón Baldur sameinar áhuga sinn á náttúrufræði
og myndlýsingum í starfi sínu sem teiknari.
Hann stundaði nám við Myndlistaskóla Reykjavíkur
og Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1982-1985.
Strax að námi loknu hóf Jón Baldur störf
við myndlýsingar meðfram öðrum störfum
en hin síðari ár hefur hann helgað sig algerlega
teiknarastarfinu.
Jón Baldur hefur myndskreytt fjölda bóka og má
þar nefna stórvirkin Íslenskir fuglar, Íslensk
spendýr og Íslenskir fiskar í
ritröðinni Alfræði Vöku-Helgafells. Bækur
sem Jón Baldur hefur myndskreytt hafa hlotið fjölda
tilnefninga og viðurkenninga. Þá hefur Jón
hlotið Verðlaun Hagþenkis fyrir vinnu sína.
Teikningar og vatnslitamyndir eftir Jón hafa einnig birst
í ýmsum útgáfum svo sem í bæklingum,
á fræðsluskiltum, frímerkjum, kennslubókum,
tímaritum og vefsíðum.
Á heimasíðu Jóns Baldurs www.fauna.is
er að finna myndabanka.
Sýningin stendur frá 14. nóvember og um óákveðinn
tíma fram á nýárið.
|
Afmælisfagnaður
Hagþenkis haldinn í bókasal
13. nóvember 2008
Hagþenkir,
félag höfunda kennslugagna og fræðirita, hélt
25 ára afmæli félagsins hátíðlegt
með athöfn í bókasal Þjómenningarhússins.
Við þetta tækifæri voru tveir brautryðjendur
í starfi félagsins gerðir að heiðursfélögum,
þeim fyrstu sem félagið útnefnir. Þeir
eru Hörður Bergmann og Ágúst H. Bjarnason
sem stóðu í ströngu við samningsgerðir
félagsins við önnur hagsmunasamtök og ríki
og borg. Auk þeirra flutti formaður félagsins,
Jón Yngvi Jóhannesson, tölu. Menntamálaráðherra,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, var viðstödd
athöfnina og ávarpaði gesti eftir að formlegri
dagskrá lauk.
|
Utanríkisráðherra
Noregs skoðar Handritin
3. nóvember 2008
Jonas
Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, kom
í opinbera heimsókn til Íslands í boði
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra,
þann 3. nóvember. Liður í dagskrá
heimsóknarinnar var skoðun sýningar Stofnunar
Árna Magnússonar í íslenskum fræðum,
Handritin, með leiðsögn forstöðumanns stofnunarinnar,
Vésteins Ólasonar.
Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs,
og James Murphy, Skotlandsmálaráðherra bresku
ríkisstjórnarinnar, ræddust við hér
í Þjóðmenningarhúsinu við þetta
tækifæri. Markús Örn Antonsson, forstöðumaður
Þjóðmenningarhússins, bauð ráðherrana
velkomna við komuna í húsið.
|
Afmæli
Barnahúss fagnað í bókasal
1. nóvember 2008
Barnahús
fagnaði 10 ára afmæli laugardaginn 1. nóvember
sl. með athöfn í bókasal Þjóðmenningarhússins.
Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson
flutti opnunarávarp og Hrannar Björn Arnarsson, aðstoðarmaður
félags- og tryggingamálaráðherra, flutti
ávarp fyrir hönd Jóhönnu Sigurðardóttur
félags- og tryggingamálaráðherra. Samkomuna
ávörpuðu einnig Carl Göran Svedin, barnageðlæknir
og prófessor við Háskólann í Linköping,
og Chris Newlin, framkvæmdastjóri The National Children´s
Advocacy Center í Bandaríkjunum. Bragi Guðbrandsson,
forstjóri Barnaverndarstofu, lauk dagskrá afmælishátíðarinnar
með því að minnast með þakklæti
framlags þeirra Vigdísar Erlendsdóttur, fyrrv.
forstöðumanns Barnahúss, Jóns Kristinssonar,
barnalæknis, og Ólafar Pétursdóttur,
dómstjóra, sem lést fyrr á árinu,
til Barnahússins á starfstíma þess.
|
Erlendir
skólahópar heimsækja sýningar
21. október 2008
Talsvert
er um að erlendir skólahópar, einkum frá
Norðurlöndunum, heimsæki sýningar í
Þjóðmenningarhúsinu. Hefð er fyrir því
að þessir skólahópar skoði handritasýningu
Árnastofnunar með leiðsögn safnkennarans, Svanhildar
Gunnarsdóttur, en nokkrir hópar hafa komið sérstaklega
til þess að skoða sýninguna um Surtsey enda
verið hér á landi til þess að kynna
sér jarðfræði.
Að sögn Svanhildar, safnkennara Árnastofnunar, hófust
heimsóknir erlendra skólahópa þá
þegar að fyrstu handritin komu heim og voru höfð
almenningi til sýnis í sýningarherbergi stofnunarinnar
í Árnagarði. Undanfarin ár hefur fjöldi
nemenda og kennara í þessum heimsóknum erlendis
frá verið í kringum 500 á ári en
það er hvorki meira né minna en tíundi hluti
skólaheimsókna á sýningar í Þjóðmenningarhúsinu.
Erlendir skólahópar fá ókeypis aðgang
og fræðslu líkt og þeir íslensku.
Flestir nemendanna eru í framhaldsskólum en nokkrir
hópar tilheyra efsta þrepi grunnskóla eða
háskólum. Hóparnir eru ýmist á
eigin vegum eða eru hér í samvinnu við íslenska
skóla.
|
Bleikur
október
14. október 2008
Í
októbermánuði er vakin athygli á brjóstakrabbameini
hér á landi níunda árið í
röð. Þetta tengist alþjóðlegu árveknisátaki
og er bleik slaufa tákn átaksins.
Þjóðmenningarhúsið verður flóðlýst
í einkennislit árveknisátaksins út októbermánuð.
Í fyrra var Þjóðmenningarhúsið
í fyrsta sinn lýst með bleiku ljósi en
farið var að lýsa þekkt mannvirki erlendis
í bleikum lit í októbermánuði árið
2000 og árið eftir var þessi siður tekinn upp
hér á landi.
|
Tónleikar
Kammersveitar Reykjavíkur
14. október 2008
Kammersveit
Reykjavíkur hóf 35. starfsár sitt með tónleikum
í bókasal Þjóðmenningarhússins
undir yfirskriftinni Þjóðernisvitundin vaknar.
Þema vetrarins hjá Kammersveitinni er Tékkland
og á efnisskrá tónleikanna voru verk eftir
tvö fremstu tónskáld Tékka á síðari
hluta nítjándu aldar:
Bedrich Smetana Strengjakvartett nr. 1 í
c-moll, Úr lífi mínu
Antonin Dvorak Serenaða fyrir 10 blásara,
selló og kontrabassa í d-moll op. 44
Smetana og Dvorak snéru báðir aftur til heimalands
síns eftir frægðarár á erlendri grund
og tóku þátt í uppbyggingu tónlistarlífs
Tékklands. Borgarastyrjaldir höfðu geisað víða
um Evrópu með vaxandi þjóðerniskennd
og uppreisn þjóðlegs arfs í tali og tónum.
Húsfyllir var á tónleikunum og var hljóðfæraleikurunum
ákaflega vel fagnað í lokin af þakklátum
áheyrendum.
|
Heimsókn
frá Eistlandi
9. október 2008
Fulltrúar
eistneska svæðisráðsins sem fjallar um menningarstefnu
voru á Íslandi í opinberri heimsókn
sem menntamálaráðuneytið skipulagði dagana
7. – 11. október. Hið fjölskipaða ráð
kynntist fyrirkomulagi menningarmála hjá ríki
og borg og heimsótti menningarstofnanir í höfuðborginni
og á Suðurlandi, þar á meðal Þjóðmenningarhúsið.
Markús Örn Antonsson, forstöðumaður Þjóðmenningarhússins,
tók á móti hópnum og kynnti honum sögu
Þjóðmenningarhússins og starfsemina. Að
því búnu gekk leiðsögumaður hússins,
Jóhanna Bergmann, með gestunum um sýningar í
húsinu og veitti leiðsögn um efni þeirra.
Eistlendingarnir voru áhugasamir um bæði starfsemina
sem rekin er í Þjóðmenningarhúsinu
jafnt sem umfjöllunarefni yfirstandandi sýninga sem
varpa ljósi á menningararf þjóðarinnar
sem og náttúrufar landsins.
|
Ný
myndlistarsýning í verslun og veitingastofu
10. október 2008
Myndverk
án titils nefnist sýning Ólafs Lárussonar
(f. 1951) í verslun og veitingastofu Þjóðmenningarhússins.
Verkin vann Ólafur á undanförnum 2-3 árum
með blandaðri tækni á pappír. Sýning
Ólafs er sjötta sýningin í myndlistarsýningaröð
sem verið hefur í verslun Þjóðmenningarhússins
en teygir sig nú í fyrsta sinn einnig yfir á
veggi veitingastofunnar við hliðina.
Ólafur Lárusson nam myndlist á árunum
1971-1976, fyrst hér á Íslandi og svo í
Hollandi. Hann hefur sýnt verk sín á fjölda
einkasýninga allt frá árinu 1974 og jöfnum
höndum tekið þátt í samsýningum,
bæði hér á landi og erlendis. Upplýsingar
varðandi kaup á verkum veitir Davíð Óskar
Ólafsson, s. 696-7642, david@mystery.is.
Sýningin er opin á afgreiðslutíma Þjóðmenningarhússins,
þ.e. alla daga vikunnar frá kl. 11 til 17. Hún
stendur yfir til miðs nóvembermánaðar.
|
Tónleikaröðin
Kristallinn er hafin
27. september 2008
Kristallinn,
kammertónleikaröð listamanna úr Sinfóníuhljómsveit
Íslands, hófst með málmblásaratónleikum
laugardaginn 27. september. Þá kom fram blásarakvintettinn
Sönglúðrar lýðveldisins sem
skipaður er Eiríki Erni Pálssyni á trompet,
Einari St. Jónssyni á trompet, Emil Friðfinnssyni
á horn, Sigurði Þorbergssyni á básúnu
og Tim Buzbee á túbu. Yfirskrift tónleikanna
var Bandarískt brass og tengdust verkin öll
Bandaríkjunum á einn eða annan hátt. Verkin
voru ólík og sýndu vel möguleika þessarar
skemmtilegu hljóðfærasamsetningar.
Verkin voru: Mini Overture eftir Witold Lutoslawski, Music
for Brass Quintett sem Áskell Másson samdi fyrir
Sönglúðra lýðveldisins, stutt
og snarpt Scherzo eftir Jon Cheetham, málmblásarakvintett
eftir James Grant og Exhibition eftir Fisher Tull. Tónleikunum
lauk síðan á hinu sívinsæla verki
Gershwins, Ameríkumaður í París
í útsetningu fyrir lúðra.
Tónleikaröðin Kristallinn fór vel af stað
með kraftmiklum og vel sóttum tónleikum.
Næstu tónleikar verða svo laugardaginn 22. nóvember
og þá verður þemað Á indjánaslóðum.
|
Umhverfisráðherra
Ungverjalands heimsótti Þjóðmenningarhúsið
25. - 26. september 2008
Á
dagskrá opinberrar heimsóknar Imre Szabó umhverfis-
og vatnsmálaráðherra Ungverjalands hér
á landi var fundur með Þórunni Sveinbjarnardóttur
umhverfisráðherra hér í Þjóðmenningarhúsinu
og skoðun sýningar Náttúrufræðistofnunar
Íslands, Surtsey – jörð úr ægi.
Markús Örn Antonsson forstöðumaður Þjóðmenningarhússins
tók á móti ráðherranum og fylgdarliði
hans við komuna í húsið en leiðsögn
um Surtseyjarsýninguna veitti Jóhanna Bergmann leiðsögumaður
hússins.
|
Tónleikaröð
Nordic Affect er hafin
24. september 2008
Miðvikudagskvöldið
24. september hélt kammerhópurinn Nordic Affect fyrstu
tónleikana í vetrartónleikaröð sinni
í Þjóðmenningarhúsinu. Yfirskrift
tónleikanna var Fram og til baka og á efnisskrá
var teflt saman gömlum tónlistarformum barokksins og
nútímatónsmíðum. Hópurinn
frumflutti m.a. verk eftir Gunnar Andreas Kristinsson (f. 1976),
samið sérstaklega fyrir Nordic Affect, en elstu tónsmíðarnar
voru aftur á móti um 400 ára gamlar. Þema
kvöldsins var tilbrigðatónsmíðar, en
þá er brugðið út af þekktri laglínu.
Nordic Affect skipa þau Halla Steinunn Stefánsdóttir,
barokkfiðla, Georgia Browne, barokkþverflauta, Guðrún
Hrund Harðardóttir, barokkvíóla, Hanna
Loftsdóttir, barokkselló, Karl Nyhlin, þeorba
og Guðrún Óskarsdóttir, semball.
Nánari upplýsingar um kammerhópinn og flytjendur
má finna á heimasíðunni:
www.nordicaffect.com.
|
Ráðstefna
um evruvæðingu
23. september 2008
Þriðjudaginn
23. september stóð viðskiptaráðuneytið,
í samstarfi við Háskólann í Reykjavík
og Háskólann á Bifröst, fyrir ráðstefnu
í bókasal Þjóðmenningarhússins
með yfirskriftinni Evra á Íslandi. Hvort,
hvernig, hvenær? Fjallað var um áhrif tengingar
við evru á viðskipti, fjármálastöðugleika,
samfélag og lagalegt umhverfi. Einnig voru margvísleg
áhrif svokallaðrar evruvæðingar rædd,
s.s. síaukin notkun á evru samhliða krónunni,
og bornar voru saman mismunandi leiðir til tengingar við
evru. Umræðuefnið tengdist rannsóknum sem fjórar
háskólastofnanir hafa gert með styrk frá
viðskiptaráðuneytinu. Þessir fluttu framsöguerindi:
Peter Dyrberg, Evrópuréttarstofnun
Háskólans í Reykjavík, fjallaði
um mismunandi leiðir til að tengjast evru út frá
lagalegu sjónarmiði.
Eiríkur Bergmann Einarsson, Evrópufræðasetri
við Háskólann á Bifröst, fjallaði
um sjálfkrafa innleiðingu evru, hversu umfangsmikil hún
er og hvaða áhrif hún mun hafa á efnahag
og samfélag.
Friðrík Már Baldursson, Rannsóknastofnun
í fjármálum við Háskólann
í Reykjavík, fjallaði um mismunandi gerðir
evruvæðingar og helstu efnahagslegu áhrif með
sérstakri áherslu á fjármálastöðugleika.
Emil Karlsson, Rannsóknasetri verslunarinnar
við Háskólann á Bifröst, fjallaði
um horfur um notkun evru og annarra erlendra mynta í verslun
á Íslandi.
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra
flutti stutt inngangserindi.
Ráðstefnan var öllum opin og var hún vel
sótt.
|
Ljóðatónleikar
í hádeginu
25. ágúst
2008
Júlía
Traustadóttir sópran og Birna Hallgrímsdóttir
píanóleikari héldu ljóðatónleika
í bókasal í hádeginu á mánudag
25. ágúst. Á efnisskrá var sönglagaflokkurinn
Frauenliebe und Leben op. 42 eftir Robert Schumann (1810
– 1856) og Sex sönglög op. 48 eftir Edvard Grieg
(1843 – 1907). Tónlistarkonunum ungu var afar vel fagnað
að tónleikum loknum enda flutningur þeirra vandaður
og fallegur. Tónleikarnir voru hljóðritaðir
fyrir útvarp.
Þær Júlía og Birna stunda báðar
framhaldsnám í tónlist við Royal College
of Music í Lundúnum.
|
Hundadagahátíð
á menningarnótt, úrslit getraunar
23. ágúst
2008
Þjóðmenningarhúsið
tók þátt í menningarnótt með
hundadagahátíð í tilefni af því
að 23. ágúst var síðasti dagur hundadaga.
Hundaþemað fléttaðist um sýningarnar
í húsinu með fróðleik, myndum og getraun.
Mjög góð aðsókn var að húsinu
yfir daginn og um kvöldið fylltist bókasalurinn
af gestum sem komnir voru til þess að hlýða
á hljómsveitina Hundur í óskilum
flytja þjóðþekkta tónlist á
sinn einstaka hátt þar sem endurnýting í
ýmsum myndum er í hávegum höfð og
grín og glens ræður för. Tónleikagestir
voru með á nótunum og kusu margir að standa
aftast eða setjast á gólfið fremst fremur
er frá að hverfa, enda myndaðist strax einstök
stemmning í salnum. Sumir gerðu sér jafnvel að
góðu að standa frammi á gangi og hlýða
á þá Hjörleif Hjartarson og Eirík
G. Stephensen sem skipa þessa kostulegu hljómsveit.
Fjölmörg
svör bárust við hundagetraun á ljósmyndasýningu
Ara Sigvaldasonar í verslun hússins. Ljósmyndirnar
tók hann í miðborg Reykjavíkur undanfarin
fjögur ár og svo vildi til að á tveimur þeirra
sáust hundar. Getraunin fólst í því
að finna hundana. Flestir skiluðu réttum lausnum
og úr þeirra hópi voru dregin þrjú
nöfn: Ásta Þórarinsdóttir, Birna
F. Björnsdóttir og Patrik Írisarson. Vinningshafar
hafa verið látnir vita en þeir hlutu í verðlaun
hljómdisk með hljómsveitinni Hundur í
óskilum.
Til gamans má láta þennan fróðleik
um hundadaga fljóta með í lokin: Um hásumar
skín Síríus eða hundastjarnan skært,
og kenndu Forn-Grikkir heitustu sumarvikurnar því við
þá stjörnu. Íslenskar þjóðskýringingar
á heitinu tengjast helst því að hundar bíti
gras á hundadögum, að smáhveli eða hundfiskar
hegði sér undarlega um þetta leyti, og loks valdatíma
Jörundar hundadagakonungs sumarið 1809.
|
Umhverfisráðherrar
Íslands og Suður-Afríku skoðuðu Surtseyjarsýninguna
18. ágúst
2008
Þórunn
Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra átti
fund með Marthinus van Schalkwyk umhverfisráðherra
Suður-Afríku hér í Þjóðmenningarhúsinu
mánudaginn 18. ágúst. Meginefni fundarins voru
loftslagsbreytingar og alþjóðlegar samningaviðræður
um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda.
Í lok fundarins hittu umhverfisráðherrarnir að
máli Buyelwa Patience Sonjica, orkumálaráðherra
Suður-Afríku. Markmið heimsóknar suður-afrísku
ráðherranna var að kynna sér umhverfis- og
orkumál hér á landi.
Að fundi loknum skoðuðu umhverfisráðherrarnir
sýningu Náttúrufræðistofnunar Íslands;
Surtsey – jörð úr ægi, með leiðsögn
Sveins Jakobssonar og Guðmundar Guðmundssonar sérfræðinga
hjá Náttúrufræðistofnun. Að því
búnu fóru ráðherrarnir til Vestmannaeyja
þar sem þeir hittu m.a. Elliða Vignisson bæjarstjóra
í Vestmannaeyjum að máli og ræddu m.a. um
Surtsey og heimsminjaskrá UNESCO, en Surtsey hlaut nýverið
sess á heimsminjaskrá sem einstakar náttúruminjar.
|
Ljósmyndasýning
Ara Sigvaldasonar í versluninni
11. júlí
2008
Yfirstandi
sýning í sýningaröð í verslun
Þjóðmenningarhússins er ljósmyndasýning
Ara Sigvaldasonar. Myndirnar tók Ari allar í miðborg
Reykjavíkur síðastliðin fjögur ár.
Þær sýna mannlíf á götum úti
og á opinberum stöðum. Ljósmyndarinn leitast
við að ná litlum augnablikum sem segja sögu.
Hann tekur myndirnar yfirleitt án þess að fólkið
á þeim viti af því svo það hafi
ekki tækifæri til að stilla sér upp.
Myndirnar eru stækkaðar með gamla laginu á
svokallaðan fíber-pappír sem kalla má ekta
ljósmyndapappír. Hver mynd kostar 20.000 krónur.
Áhugasömum er bent á að snúa sér
til gallerísins Fótógrafí, Skólavörðustíg
4, eða hringja í Ara Sigvaldason í síma
821-5600.
Umsjónarmaður með sýningaröðinni
er myndlistarmaðurinn Helga Egilsdóttir sem jafnframt
er móttökufulltrúi í Þjóðmenningarhúsinu.
|
Tónleikar
í júlí
1., 3., 8. og 15. júlí
2008
Tvennir
aðilar héldu tónleika í bókasal
í júlímánuði á vegum Hins
hússins sem styrkir ungt fólk til að lífga
upp á borgarlífið með list sinni. Annars vegar
tríóið Glingur, skipað þeim Sólborgu
Valdimarsdóttur á píanó, Karli Jóhanni
Bjarnasyni á selló og Maríu Konráðsdóttur
sem syngur og spilar á klarínettu, og hins vegar Hafdís
Vigfúsdóttir flautuleikari. Tríóið
Glingur hélt þrenna hádegistónleika;
þriðjudagana 1., 8. og 15.júlí, en Hafdís
lék á kaffitónleikum síðdegis þann
3. júlí. Aðgangur var ókeypis og allir
boðnir velkomnir.
|
Sólstöðutónleikar
Páls Óskars og Moniku
21. júní
2008
Páll
Óskar söngvari og Monika Abendroth hörpuleikari
héldu sína árvissu sólstöðutónleika
í bókasal Þjóðmenningarhússins
þann 21. júní sl. kl. 22.00. Tónleikarnir
hafa síðan 2001 farið fram í Grasagarðinum
í Laugardal en voru nú í fyrsta sinn haldnir
í Þjóðmenningarhúsinu. Einstök
stemmning myndaðist á tónleikunum, miðnætursólin
skein innum gluggana á salnum og hörputónarnir
og söngurinn ómuðu um húsið. Þau
fluttu lög úr ýmsum áttum, m.a. eftir
Hreiðar Inga Þorsteinsson, Magnús Þór
og uppáhaldstónskáld Páls Óskars;
Burt Bacharach. Auk þess fluttu þau lög sem Páll
Óskar syngur á nýjustu plötu sinni, Allt
fyrir ástina, sérstaklega útsett fyrir hörpu.
|
Síðbúin
sýn – ljósmyndir Halldórs Laxness
– sýningin opnuð
17. júní
2008
Síðbúin
sýn - ljósmyndir úr fórum Nóbelsverðlaunahafans
og heimsborgarans Halldórs Laxness – er yfirskrift
sýningar sem opnuð var við hátíðlega
athöfn í sýningarrýmum á 2. hæð
hússins á þjóðhátíðardaginn
17. júní. Forseti Íslands Herra Ólafur
Ragnar Grímsson opnaði sýninguna. Til máls
tóku við opnun auk hans: Guðrún Garðarsdóttir
settur forstöðumaður Þjóðmenningarhússins,
Matthias Wagner K sýningarstjóri og Guðný
Dóra Gestsdóttir forstöðumaður Gljúfrasteins.
Hjörleifur Valsson lék á fiðlu.
Á sýningunni
eru ljósmyndir sem Halldór Laxness tók á
ferðum sínum innanland og utan og heima á Gljúfrasteini.
Myndefnið er samferðafólk hans, bæði fjölskylda
og vinir, og svipmyndir af fólki og umhverfi þess á
ýmsum slóðum. Segja má að ljósmyndirnar
séu tækifærismyndir ferðalangsins, eiginmannsins,
fjölskylduföðurins og vinarins - Halldórs Laxness.
Sýningin stendur til 16. 2. 2009. Hún var fyrst sett
upp í Köln 2007. Sýningarstjóri er Matthias
Wagner K. |
Athöfn
á vegum Umferðarráðs í tilefni 40 ára
afmælis hægri umferðar
26. maí 2008
Umferðarráð
bauð til hátíðarsamkomu í bókasal
til að minnast þess að 40 ár eru liðin
frá því að hægri umferð var innleidd
hér á landi. Kjartan Magnússon formaður
Umferðarráðs stýrði samkomunni en ávörp
fluttu Geir H. Haarde forsætisráðherra, Kristján
L. Möller samgönguráðherra og Valgarð Briem,
formaður hægri nefndarinnar sem stýrði framkvæmd
breytingarinnar.
Við athöfnina afhenti samgönguráðherra
gullmerki Umferðarráðs. Að þessu sinni
voru tvær konur sæmdar merkinu, þær Margrét
Hrefna Sæmundsdóttir og Guðný María
Finnsdóttir sem um árabil sáu um umferðarskólann
Ungir vegfarendur og umferðarfræðslu leik- og grunnskólabarna.
Jafnframt opnaði samgönguráðherra formlega nýja
vefsíðu Umferðarráðs.
|
Ásta
Ólafsdóttir sýnir í verslun Þjóðmenningarhússins
23. maí 2008
Ásta
Ólafsdóttir (f. 1948) sýnir málverk
og bronsstyttu af sólinni í verslun Þjóðmenningarhússins
frá og með 23. maí til júníloka.
Málverkin eru máluð með gvasslitum á
vatnslitaðan pappír og eru öll gerð árið
2003. Hvert málverk er hugsað sem ævintýri
um form og liti. Þau hafa áður verið sýnd
á sýningum í Reykjavík og í Danmörku
en bronsstyttan af sólinni hefur ekki verið sýnd
áður opinberlega. Hún var gerð árið
2006.
Ásta Ólafsdóttir lærði myndlist í
Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Jan
van Eyck Akademiunni í Hollandi. Hún hefur á
ferli sínum unnið myndlist í ýmsa miðla.
Verk hennar hafa verið sýnd víða hér
heima og erlendis. Sjá nánar um feril Ástu
(Ástríðar) Ólafsdóttur á
síðunni www.umm.is
|
Foreldraverðalun
Heimilis og skóla afhent í bókasal
15. maí 2008
Foreldraverðlaun
Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra voru afhent
í 13. sinn við athöfn í bókasal. Geir
H. Haarde forsætisráðherra afhenti verðlaunin
í forföllum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur
menntamálaráðherra.
Starfsfólk Tjarnarsels hlaut Foreldraverðlaunin 2008
fyrir verkefnið Lestrar- og skriftarhvetjandi umhverfi í
leikskólanum Tjarnarseli. Inga María Ingvarsdóttir
leikskólastjóri veitti verðlaununum viðtöku
fyrir hönd skólans. Auk Foreldraverðlaunanna voru
veitt tvenn hvatningarverðlaun og ein dugnaðarforkaverðlaun.
Hvatningarverðlaunin hlutu Grunnskóli Siglufjarðar
fyrir verkefnið Átak gegn einelti og Foreldrafélag
Svalbarðsskóla fyrir starfsemi sína og sjást
fulltrúar þess ásamt forsætisráðherra
á myndinni. Dugnaðarforksverðlaunin komu í
hlut Ingibjargar Baldursdóttur og Svanhvítar Guðbjartsdóttur
fyrir verkefnið Þjóðardagur – Börnin
okkar í Flataskóla.
Verðlaunin hafa unnið sér fastan sess í samfélaginu
og að þessu sinni bárust 35 tilnefningar alls staðar
að af landinu.
|
Dönsku
krónprinshjónin skoða handritin
5. maí 2008
Á
fyrsta degi opinberrar heimsóknar Friðriks krónprins
Danmerkur og Mary krónprinsessu skoðuðu þau
Handritin - sýningu Stofnunar Árna Magnússonar
í íslenskum fræðum hér í Þjóðmenningarhúsinu,
ásamt gestgjöfum sínum forseta Íslands
Ólafi Ragnari Grímssyni og frú Dorrit Moussaieff.
Dr. Vésteinn Ólason forstöðumaður Árnastofnunar
gekk með gestunum um sýninguna og kynnti þeim efni
hennar. Guðrún Garðarsdóttir settur forstöðumaður
Þjóðmenningarhússins tók á
móti hinum tignu gestum og sagði þeim frá
sögu hússins sem nú spannar heila öld.
Hin opinbera heimsókn varir til 8. maí og heimsækja
krónprinshjónin ýmsa staði sem forfeður
prinsins heimsóttu á liðinni öld en Þjóðmenningarhúsið,
áður Landsbókasafnið, er einmitt einn þeirra.
Myndin sýnir þau Friðrik og Mary virða fyrir
sér ljósmynd sem tekin var í lestrarsal Landsbókasafnins
árið 1933 af þáverandi krónprinsi,
sem síðar varð Friðrik IX danakonungur. Á
milli þeirra stendur Vésteinn Ólason forstöðumaður
Árnastofnunar.
|
Minningarathöfn
um Harald Sigurðsson bókavörð
4. maí 2008
Sunnudaginn
fjórða maí bauð Sigrún Á. Sigurðardóttir,
ekkja Dr. phil. Haraldar Sigurðssonar bókavarðar
við Landsbókasafn Íslands, til minningarathafnar
um mann sinn í bókasal, áður lestrarsal
Landsbókasafnsins, en þennan dag voru 100 ár
liðin frá fæðingu hans.
Til athafnarinnar var
boðið fjölskyldu, vinum og samstarfsfólki Haraldar
og þeirra hjóna og tóku ýmsir úr
þessum hópi til máls og minntust ferils og verka
hans en Haraldur er e. t. v. þekktastur fyrir útgáfu
sína á kortasögu Íslands. Hann starfaði
í 32 ár við Landsbókasafnið, eða
frá 1946 til 1978. Haraldur lést árið 1995. |
100
ár frá fæðingu Bjarna Benediktssonar, athöfn
og úthlutun styrkja
30. apríl 2008
Þann
30. apríl 2008 voru liðin 100 ár frá fæðingu
Bjarna Benediktssonar fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins
og forsætisráðherra. Af því tilefni
var haldin athöfn í Þjóðmenningarhúsinu.
Jónas H. Haralz fyrrverandi seðlabandastjóri,
dr. Þór Whitehead prófessor og Ragna Árnadóttir
settur ráðuneytisstjóri fluttu ræður
en Ragnhildur Helgadóttir fyrrverandi ráðherra
stýrði athöfninni. Við þetta tækifæri
voru í fyrsta sinn veittir styrkir úr sjóði
sem nefnist Rannsóknarstyrkir Bjarna Benediktssonar.
Sjóðurinn veitir árlega í fimm ár
sex styrki til lögfræði- og sagnfræðirannsókna:
Þrjá á sviði stjórnsýslu-
og stjórnskipunarréttar og þrjá á
sviði hag- og stjórnmálasögu 20. aldar til
okkar daga. Markmiðið með styrkveitingunum er að
efla rannsóknir á þeim sviðum lögfræðinnar
sem snerta innviði stjórnskipunarinnar og réttaröryggi
borgaranna gagnvart leyfisvaldi og eftirliti stjórnvalda
og að efla rannsóknir og dýpka skilning á
umbreytingum í íslensku efnahagslífi, stjórnmálum
og utanríkismálum á 20. öld. Að þessu
sinni uppfylltu tveir umsækjendur um styrk til rannsókna
á hag- og stjórnmálasögu sett skilyrði
en báðir eru þeir nemendur við Háskóla
Íslands. Styrkirnir til lögfræðirannsókna
gengu til doktorsnema við Háskóla Íslands
og lektors og prófessors við Háskólann
í Reykjavík.
Við athöfnina var jafnframt opnuð heimasíða
um Bjarna Benediktsson: www.bjarnibenediktsson.is.
|
Menntamálaráðuneytið
heldur athafnir í bókasal
22. og 25. apríl
2008
Menntamálaráðherra
bauð til athafna í bókasal Þjóðmenningarhússins
af tvennu tilefni þessa viku á mótum vetrar
og sumars. Annars vegar til að gera opinbera niðurstöðu
viðurkenningaferlis háskóla á Íslandi
og hins vegar vegna undirritunar samkomulags um að Ísland
verði heiðursgestur á bókakaupstefnunni í
Frankfurt árið 2011.
Viðurkenning á háskóla felur í sér
að menntamálaráðuneytið vottar að
viðkomandi háskóli uppfylli þær lágmarkskröfur
sem gerðar eru til hans á grundvelli laga um háskóla.
Ferlið felur í sér umsókn háskóla
um viðurkenningu á tilteknu fræðasviði,
úttekt sérfræðinefndar á háskólanum
og skýrslu þar sem niðurstöður matsins
koma fram. Alls hlutu átta háskólar viðurkenningu
við athöfnina.
Stjórn bókakaupstefnunnar í Frankfurt (Frankfurter
Buchmesse) býður Íslandi að vera heiðursgestur
á sýningunni haustið 2011 í kjölfar
þess að ríkisstjórn Íslands sóttist
eftir þeim sessi. Bókakaupstefnan í Frankfurt
er sú stærsta í heimi. Frá árinu
1988 hefur eitt land eða málsvæði jafnan verið
heiðursgestur sýningarinnar. Viðkomandi land fær
tækifæri til að kynna rækilega bækur
sínar, höfunda og menningu í heild. Íslensk
stjórnvöld, í samvinnu við rithöfunda
og útgefendur og aðra sem að málinu koma,
hyggjast nota þetta einstaka tækifæri til að
styrkja sem best þýðingar á íslenskum
bókmenntum. Ennfremur er hugmyndin að standa fyrir öflugri
menningardagskrá í tengslum við sýninguna
og nota hana jafnframt sem stökkpall yfir í önnur
málsvæði.
|
Fjölmenni
á málþingi um söfn og sögusýningar
10. apríl 2008
Söguslóðir
2008 - Getið í eyðurnar var yfirskrift málþings
sem Samtök um sögutengda ferðaþjónustu
(SSF) héldu hér í Þjóðmenningarhúsinu
fimmtudaginn 10. apríl í samvinnu við Iðnaðarráðuneytið
og hagnýta menningarmiðlun við Háskóla
Íslands. Frummælendur skoðuðu umfjöllunarefnið;
söfn og sögusýningar á Íslandi og
þá túlkun sem þar kemur fram á
sögu lands og þjóðar, út frá
ýmsum sjónarhornum eins og titlar erinda þeirra
bera með sér. Auk þess miðluðu danskir
sérfræðingar við Lejre Forsøgscenter
af reynslu sinni, en þar er 10.000 ára byggðarsögu
komið á framfæri á lifandi hátt með
einskonar hlutverkaleik í endurgerðum húsakynnum.
Fjölmenni sótti málþingið, hvaðanæva
að af landinu, enda víða verið að vinna að
því að gera sagnaarfinn sýnilegan á
einhvern hátt fyrir ferðamenn. Hér á eftir
fer dagskrá málþingsins:
Samtök í sóknarhug. Rögnvaldur
Guðmundsson, formaður SSF.
Ávarp. Ólöf Ýrr Atladóttir,
ferðamálastjóri.
Gæði og miðlun. Eggert Þór Bernharðsson,
sagnfræðingur.
With or without written evidence, how do we and our guests get
closer to everyday life aspects and know-how from the past? Laurent
Mazet-Harhoff, fornleifafræðingur, Lejre Forsøgscenter
í Danmörku.
Teaching with roles: some examples of daily dialogues i.e. about
“unwritten” everyday life aspects with guests visiting
our Viking market place. Jutta Eberhards, leikstjórnandi,
Lejre Forsøgscenter í Danmörku.
„Ísland, best í heimi.“ Steinunn
Kristjánsdóttir, fornleifafræðingur, lektor
við HÍ og stjórnandi Skriðuklaustursrannsókna.
„Vinsamlegast snertið munina!“ Helmut Lugmayr,
leiðsögumaður og ferðaskipuleggjandi.
Drýpur saga af hverju strái? Már Jónsson,
sagnfræðingur.
Gamalt og nýtt, satt og logið. Brynhildur Guðjónsdóttir,
leikari og höfundur. (Erindið féll niður vegna
veikinda Brynhildar, Kjartan Ragnarsson kynnti þess í
stað tilurð verksins Brákar með nokkrum orðum).
Má gera söguna sýnilega? Björn
G. Björnsson, sýningahönnuður.
Óljósar sögur. Þór Vigfússon,
sagnamaður og fyrrverandi skólameistari.
Samantekt: Skúli Björn Gunnarsson.
|
Húbert
Nói sýnir í verslun Þjóðmenningarhússins
17. mars 2008
Húbert
Nói Jóhannesson (f. 1961) sýnir málverk
í verslun Þjóðmenningarhússins frá
og með deginum í dag og út aprílmánuð.
Verkin eru máluð með kolum og olíu á
pappír og viðfangsefnið er landslag og borgarlandslag.
Verkin vann Húbert öll á árinu 1988 en
nú eru þau sýnd í fyrsta sinn.
Ferill Húberts Nóa sem myndlistarmanns er samtvinnaður
bakgrunni hans í náttúruvísindum. Viðfangsefnið
er jafnan landslag, tjáningin byggir á upplifun og
tilfinningahrifum um leið og mælitækjum vísindanna
er beitt, eða til þeirra vísað, við sköpun
verksins. Húbert Nói stundaði myndlistarnám
frá 1982 til 1987 og hefur tekið þátt í
fjölda samsýninga og sett upp fjölmargar einkasýningar
allt frá árinu 1986.
|
Hátíðardagskrá
Skáksambands Íslands á afmælisdegi Fischers
10. mars 2008
Sunnudaginn
9. mars hefði Fischer orðið 65 ára gamall og
af því tilefni efndi Skáksamband Íslands
til sérstakrar hátíðardagskrár í
Þjóðmenningarhúsinu. Merkir stórmeistarar
og samferðamenn Fischers komu til landsins til að minnast
hins látna meistara, þar á meðal Boris Spassky
fyrrverandi heimsmeistari í skák og William Lombardy
aðstoðarmaður Fischers í einvígi aldarinnar
í Reykjavík árið 1972. Forsætisráðherra
Geir H. Haarde flutti tölu þar sem hann rifjaði upp
einvígi Spasskys og Fischers árið 1972 og þau
jákvæðu áhrif sem það hefur haft
fyrir land og þjóð. Stórmeistararnir Lajos
Portisch, Pal Benko, Vlastimil Hort og Friðrik Ólafsson
voru einnig viðstaddir hátíðardagskránna
og ávörpuðu sumir hverjir samkomuna. Í dag,
mánudag, etja þeir hins vegar kappi á sérstöku
minningarskákmóti um Fischer í ráðhúsi
Reykjavíkur þar sem Spassky og Lombardy skýra
skákirnar. Jafnhliða fer fram lokaumferð alþjóðlegs
skákmóts í Reykjavík sem helgað
er minningu skákmeistarans Bobby Fischers.
(Ljósmynd Gunnar
Finnlaugsson; Boris Spassky og frú standa utast, Guðrún
Garðarsdóttir staðgengill forstöðumanns
Þjóðmenningarhússins stendur á milli
þeirra ásamt bróður Sæmundar Pálsssonar).
Auk
þess sem að framan er talið var við dagskránna
frumflutt á Íslandi stutt tónverk eftir franska
18. aldar tónskáldið og skákmeistarann
François-André Danican Philidor. Jafnframt voru til
sýnis minjar og myndir frá einvíginu 1972,
þar á meðal taflborðið sem Fischer og Spassky
tefldu við, en það verður áfram til sýnis
hér í Þjóðmenningarhúsinu
um óákveðinn tíma. Borðið var sérsmíðað
fyrir einvígið af Ragnari Haraldssyni eftir hönnun
Gunnars Magnússonar húsgagnaarkitekts.
Það má með sanni segja að góður
andi hafi ríkt á meðal vina og félaga Fischers
og annarra gesta þessa hátíðlegu stund hér
í Þjóðmenningarhúsinu. Að dagskránni
lokinni bauð Skáksamband Íslands viðstöddum
uppá léttar veitingar.
(Stórmeistararnir
Pal Benko, William Lombardy og Wlastimil Hort)
|
Alþjóðleg
ráðstefna um hátíða- og viðburðahald
haldin í Reykjavík
28. - 29. febrúar
2008
Nokkrar
málstofur á ráðstefnu IFEA samtakanna -
International Festivals and Events Association voru haldnar
hér í Þjóðmenningarhúsinu
en hin árlega ráðstefna samtakanna var að
þessu sinni haldin á Íslandi í fyrsta
skipti. Skipuleggjandi ráðstefnunnar hér á
landi var Höfuðborgarstofa. Á annað hundrað
manns komu á ráðstefnuna víðs vegar
að úr heiminum.
|
Samfélagsverðlaun
Fréttablaðsins afhent
26. febrúar 2008
Samfélagsverðlaun
Fréttablaðsins voru veitt í þriðja sinn
og fór athöfnin að þessu sinni fram í
Þjóðmenningarhúsinu. Markmiðið með
Samfélagsverðlaununum er að beina kastljósinu
að þeim góðu verkum sem unnin eru í
samfélaginu og því fjölmarga fólki
sem leggur áþreifanlegan skerf af mörkum til þess
að bæta samfélag okkar.
Forseti Íslands Hr. Ólafur Ragnar Grímsson
afhenti verðlaunin sem féllu Hjálpræðishernum
í skaut. Auk Hjálpræðishersins hlutu verðlaunin
Guðrún Halldórsdóttir menntafrömuður,
Hörður Torfason tónlistarmaður, Þorsteinn
Bjarni Einarson og Sigríður Steingrímsdóttir
sem fóstrað hafa fjölda barna og Ragna Marinósdóttir
sem unnið hefur ötullega að málefnum fatlaðra
barna og fjölskyldna þeirra. Verðlaun voru því
veitt í fjórum flokkum auk heiðursverðlauna.
Ljósmynd: Fréttablaðið,
Anton. |
Vel
heppnað málþing um þýðingar og
frumsamin ritverk Helga Hálfdanarsonar
23. febrúar 2008
Þjóðmenningarhúsið
efndi til málþings í tengslum við sýninguna
Handan um höf – þýðingar og frumsamin
ritverk Helga Hálfdanarsonar í bókasal
hússins laugardaginn 23. febrúar. Á málþinginu
vörpuðu frummælendur hver sínu ljósi
á verk Helga, þeir fjölluðu um fræðiskrif
hans og skáldskaparrýni, jafnt sem þýðingar
hans á ólíkum verkum. Frummælendur voru
Eysteinn Þorvaldsson, Ástráður Eysteinsson,
Ásdís Sigmundsdóttir og Sveinn Einarsson. Auk
þess las Borgar Garðarsson leikari einræðu úr
leikritinu Prómeþeifur eftir Æskílos
sem Helgi þýddi. Gauti Kristmannsson stýrði
málþinginu. Málþingið var með
kaffihúsasniði svo gestir gátu notið hressingar
á meðan þeir hlýddu á erindin. Í
lok umræðna steig Vilborg Dagbjartsdóttir skáldkona
í pontu og fór með tvær hækur eftir
sig en hún glímir daglega við þetta ljóðform
sem Helgi Hálfdanarson færði okkur frá Japan.
Dagskráin
var á þessa leið:
Guðríður Sigurðardóttir,
forstöðumaður Þjóðmenningarhússins,
bauð gesti velkomna
Gauti Kristmannsson, stjórnandi málþingsins,
setti þingið
Borgar Garðarsson leikari las fyrstu einræðu
Prómeþeifs úr leikritinu Prómeþeifur
eftir Æskílos
Eysteinn Þorvaldsson: Skrafað um
skáldskap að fornu og nýju
Ástráður Eysteinsson: Tign
yfir tindum og dauðinn á kránni. Um ljóðaþýðingar
Helga Hálfdanarsonar
Hlé
Ásdís Sigmundsdóttir: Soule
of the Age! Shakespeare og enska endurreisnin
Sveinn Einarsson: Bókstafurinn og leiksviðið
Gauti Kristmannsson stýrði umræðum
og sleit þinginu
Léttar veitingar
|
Kammertónleikahelgi
16. - 17. febrúar
2008
Tvær
kammertónleikaraðir standa yfir í bókasal
Þjóðmenningarhússins í vetur og svo
vildi til að tónleikar úr báðum röðum
voru haldnir þessa helgi. Hljóðfæraleikarar
úr Sinfóníuhljómsveit Íslands
léku á tónleikum sem kölluðust Fransk-rússneskur
kammersirkus, verk eftir Debussy, Prokofiev og Ravel. Um var
að ræða tvö meistaraverk eftir forsprakka franska
impressjónismans og sjaldheyrðan kvintett Prokofievs,
sem átti upphaflega að vera tónlist við sirkusballett.
Næstu tónleikar í kammertónleikaröð
Sinfóníuhljómsveitarinnar verða laugardaginn
15. mars kl. 17. Myndin sýnir tónleikagesti bíða
þess að tónleikarnir hefjist.
Hinir tónleikarnir nefndust Áskrift í London
en þar voru á ferðinni hljóðfæraleikarar
úr kammerhópnum Nordic Affect sem léku verk
úr tónleikaröð sem tónskáldin
Abel og J. C. Bach héldu í London á seinni
hluta 18. aldar og heldra fólk í London sótti.
Nordic Affect er skipaður innlendum og erlendum hljóðfæraleikurum
sem allir hafa lokið námi í flutningi tónlistar
á upprunaleg hljóðfæri. Tónleikarnir
voru styrktir af Tónlistarsjóði, Menningarsjóði
Reykjavíkurborgar og Menningarsjóði FÍH.
|
Forstöðumannaskipti
við Þjóðmenningarhúsið
13. febrúar 2008
Forsætisráðherra
hefur veitt Guðríði Sigurðardóttur lausn
frá embætti forstöðumanns Þjóðmenningarhússins
frá 1. maí nk. að eigin ósk. Þá
hefur forsætisráðherra flutt Markús Örn
Antonsson úr starfi sendiherra í Kanada með samþykki
utanríkisráðuneytisins og skipað hann í
embætti forstöðumanns Þjóðmenningarhúss
frá og með 1. september nk., með vísan til
1. mgr. 36. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna
ríkisins.
Guðrún Garðarsdóttir skrifstofustjóri
og staðgengill forstöðumanns er settur forstöðumaður
frá og með 1. maí til 1. september n.k.
Markús Örn hefur starfað sem sendiherra Íslands
í Kanada frá 1. september 2005. Hann á fjölbreyttan
starfsferil að baki. Meðal starfa sem Markús Örn
hefur gengt má nefna að hann var útvarpsstjóri
Ríkisútvarpsins 1985-1991 og svo aftur 1998-2005,
borgarstjóri í Reykjavík 1991-1994, borgarfulltrúi
í Reykjavík 1970-1985, ritstjóri tímaritsins
Frjáls verzlun og fleiri tímarita hjá útgáfufélaginu
Frjálst framtak hf. 1972-1983 og fréttamaður og
dagskrárgerðarmaður við Sjónvarpið
í árdaga þess. Markús Örn Antonsson
er kvæntur Steinunni Ármannsdóttur fv. skólastjóra.
|
Afhending
verðlauna í safnanæturgetraun Þjóðmenningarhússins
12. febrúar 2008
Eins
og tilkynnt hefur verið hér í fréttadálki
Þjóðmenningarhússins var Jónína
Lárusdóttir dregin út sem vinningshafi getraunar
út frá málverkum Erlu Þórarinsdóttur
sem nú eru á sýningu í verslun hússins.
Getraunin var haldin á safnanótt og fólst í
því að finna svarið við spurningunni; hver
er byggingin?, en málverk Erlu eru af grunnfleti nokkurra
opinberra bygginga í Reykjavík. Aðeins Jónína
og eiginmaður hennar, Sigurður Traustason, gátu gefið
rétt svar við öll fimm málverkin sem spurningin
snérist um, enda ekki alltaf augljóst hver byggingin
er þegar aðeins skal dæma út frá grunnfletinum.
Þau Jónína og Sigurður tóku þátt
í getrauninni af einlægum áhuga og höfðu
gaman af, þau fengu sér jafnvel göngutúr
um borgina daginn eftir til þess að kanna hvort svör
þeirra hefðu verið rétt. Svo reyndist vera
og á myndinni sést Jónína taka við
verðlaununum úr hendi Guðrúnar Garðarsdóttur,
staðgengils forstöðumanns. Verðlaunin voru ekki
af verri endanum: ritið Handritin sem Árnastofnun gaf
út í tengslum við samnefnda sýningu sína
hér í húsinu, líkan af Þjóðmenningarhúsinu,
bók um feril Erlu Þórarinsdóttur og gjafakort
fyrir hádegisverði fyrir fjóra í boði
matstofu hússins, Matar og menningar.
|
Minningarbók
um Robert J. Fischer
12. febrúar 2008
Minningarbók
um hinn látna skáksnilling Robert J. Fischer hefur
verið komið fyrir í anddyri Þjóðmenningarhússins.
Í tvær vikur, eða til 26. febrúar, mun bókin
liggja frammi opin öllum þeim sem vilja votta meistaranum
virðingu sína með því að rita nafn
sitt í bókina. Vinir og velvildarmenn hins látna,
hinn svokallaði RJF baráttu- og stuðningshópur,
stendur að minningarbókinni. Á laugardag 16. febrúar
gengst hópurinn fyrir minningarathöfn í Laugardælakirkju
í Hraungerðisprestakalli í Árnesprófastsdæmi
þar sem Fischer er jarðsettur. Þann dag verður
minningarbókin ekki í Þjóðmenningarhúsinu
heldur við athöfnina í kirkjunni.
Myndin sýnir Sæmund
Pálsson við minningarbókina hér í
anddyrinu. |
Sönglúðrar
hljómuðu á myrkum músíkdögum
10. febrúar 2008
Málmblásarakvintettinn
Sönglúðrar kom fram á tónleikum í
bókasal sunnudaginn 10. febrúar. Sönglúðra
skipa þekktir tónlistarmenn sem allir eru fastráðnir
við Sinfóníuhljómsveit Íslands og
leika auk þess með ýmsum kammerhópum og
í Íslensku óperunni og víðar. Tónlistarmennirnir
eru: Eiríkur Örn Pálsson á trompet, Einar
Jónsson á trompet, Emil Friðfinnsson á
horn, Sigurður Þorbergsson á básúnu
og Tim Buzbee á túbu.
Á efnisskrá voru verk eftir íslensk nútímatónskáld,
þá Jón Ásgeirsson, Herbert H. Ágústsson,
Tryggva M. Baldvinsson, Áskel Másson og Pál
P. Pálsson. Tónleikarnir heppnuðust vel og voru
ágætlega sóttir.
|
Safnanótt
/ úrslit getraunar
8. febrúar 2008
Safnanótt
var haldin föstudagskvöldið 8. febrúar þrátt
fyrir óvægna veðurspá. Veðurguðirnir
báru hátíðina að endingu ofurliði
og var safnanótt slitið kl. 22 í stað eitt
eftir miðnætti. Þó nokkrir einarðir áhugamenn
um viðburði safnanna þetta kvöld létu
sjá sig þó að lögreglan hefði gefið
út þau tilmæli að fólk héldi
sig heima.
Hér í Þjóðmenningarhúsinu
lifnuðu sýningar og öðluðust nýja
vídd eins og til stóð: Brynhildur Þorgeirsdóttir
sýndi eldfjöll sín og eldsprettur í 101
Gallery handan götunnar, Svanhildur Gunnarsdóttir opnaði
skrifarastofuna á handritasýningunni, raddir Helga
Hálfdanarsonar og Arnars Jónssonar ómuðu
um hljóðkerfi á sýningunum um Helga annars
vegar og Jónas Hallgrímsson hins vegar og getraunin
Hver er byggingin? – út frá málverkum
Erlu Þórarinsdóttur kryddaði sýningu
hennar í verslun hússins. Dregið hefur verið
úr réttum lausnum og er vinningshafinn Jónína
Lárusdóttir. Vinningurinn er ekki af verri endanum
en Jónína hlýtur að launum ritið Handritin,
líkan af Þjóðmenningarhúsinu, bók
um feril Erlu Þórarinsdóttur og gjafakort fyrir
hádegisverði fyrir fjóra í boði matstofu
hússins, Matar og menningar.
Þjóðmenningarhúsið þakkar öllum
sem lögðu leið sína í húsið
þetta kvöld og tóku þátt í
getrauninni eða skinnskrifunum og nutu sýninganna. Myndin
sýnir einbeitta bræður munda fjaðurstafinn
í skrifarastofu handritasýningarinnar.
|
|