Sígild sönglög og sónata
22. desember 2010
Miðvikudagskvöldið 22. desember héldu þrjár ungar tónlistarkonur tónleika í sal Þjóðmenningarhússins; Júlía Traustadóttir, sópran, Sólrún Gunnarsdóttir, fiðluleikari, og Matthildur Gísladóttir, píanóleikari. Á efnisskránni var sönglagaflokkur Claude Debussy, Ariettes oubliées, við ljóð eftir Paul Verlaine, Sónata fyrir fiðlu og píanó eftir Maurice Ravel, lög úr sönglagaflokki Ralphs Vaughan-Williams, Eight Housman Songs, fyrir rödd og fiðlu og þrjú sönglög eftir Richard Strauss, Schlagende Herzen, Allerseelen og Zueignung.
Allar hafa listakonurnar stundað tónlistarnám í Lundúnum á undanförnum árum, Júlía lýkur BMus (Hons) prófi frá Royal College of Music á vori komanda, Sólrún hefur lokið meistaraprófi í fiðluleik frá Trinity College og Matthildur hefur numið píanómeðleik í Royal Academy of Music.
Aðgangur var ókeypis og þáðu margir þetta góða boð.
Ljósmynd: Sárka Veronika
|
Jólatónleikar hljómsveitarinnar ADHD í Þjóðmenningarhúsinu
19. desember 2010
Í tilefni af komu jólanna héldu ADHD-liðar tónleika í Þjóðmenningarhúsinu, rétt eins og þeir gerðu í fyrra þegar fyrsti geisladiskur hljómsveitarinnar kom út. ADHD-liðar eru allir þekktir og virtir hljóðfæraleikarar; Óskar Guðjónsson á saxófón, Ómar Guðjónsson á gítar og bassa, Davíð Þór Jónsson á hljómborð og píanó og Magnús Trygvason Eliassen á trommur. Auk þeirra heiðraði Rúnar Georgsson samkomuna með nærveru sinni og spilaði eins og engill. Leynigestur tónleikanna var Eyþór Gunnarsson sem vissi ekki sjálfur að hann ætti að spila með drengjunum. Eins og alltaf spilaði hann líka eins og engill. Mikil ánægja var með tónleikana jafnt hjá gestum sem og hljómsveitarmeðlimum sem eru ákveðnir í því að gera jólatónleika í Þjóðmenningarhúsinu að árvissri hefð.
|
Sjáðu svarta rassinn minn – útgáfuteiti og sýning opnuð
11. desember 2010
Í tilefni af útgáfu þjóðsagnasafnsins Sjáðu svarta rassinn minn, eftir systurnar Brynhildi og Þórey Mjallhvíti Heiðar- og Ómarsdætur, efndi bókaútgáfan Æskan til veislu í bókasal Þjóðmenningarhússins laugardaginn 11. desember. Í bókinni endursegir Brynhildur nokkrar þjóðsögur þar sem stelpur og konur eru í hetjuhlutverkinu og glíma við hin myrku öfl og hafa sigur. Þórey Mjallhvít málaði myndirnar í bókinni.
Í veislunni var boðið uppá jólagraut og smákökur og tónlistarmaðurinn Markús Bjarnason söng nokkur frumsamin lög og lék undir á gítar. Brynhildur las nokkra stutta kafla úr bókinni. Við sama tækifæri var opnuð sýning, sem þær systur settu upp hér í Þjóðmenningarhúsinu, með myndum úr bókinni og gripum og góssi úr íslenska þjóðsagnaarfinum.
Í tengslum við sýninguna er börnum boðið að taka þátt í teiknisamkeppni um bestu myndirnar af fjöreggi. Úrslit verða tilkynnt 16. desember og í verðlaun er eintak af Sjáðu svarta rassinn minn og aðrar bækur frá Æskunni.
|
Hausttónleikar Listaháskóla Íslands í Þjóðmenningarhúsinu
30. nóv. – 10. desember 2010
Tónlistardeild Listaháskólans hélt hausttónleika nemenda annað árið í röð hérna í Þjóðmenningarhúsinu. Tónleikarnir eru haustpróf þeirra sem stunda nám í hljóðfæraleik eða söng og var efnisskrá þeirra afar fjölbreytt. Fram komu nemendur af öllum námsárum og fluttu hver um sig um það bil 20 mínútna langa efnisskrá. Þrír til fjórir nemendur komu fram á hverjum tónleikum.
Tónleikunum var nú í fyrsta sinn varpað beint bæði í hljóð og mynd á vef Listaháskóla Íslands.
|
Umbrot í Þjóðmenningarhúsinu – sýningin framlengd
3. / 8. desember 2010
Umbrot, samsýning nemenda í Textíl, Teikningu og Mótun við Myndlistaskólann í Reykjavík var opnuð föstudaginn 3. desember. Sýningin, sem átti að standa yfir í aðeins fjóra daga, hefur verið framlengd til 17. desember. Hluti hennar víkur fyrir annarri sýningu en verk í gangi í kjallara og á veggjum veitingastofunnar verða til sýnis til og með föstudagsins 17. desember.
Námið í Textíl, Teikningu eða Mótun er tveggja ára diplomanám í samstarfi við Tækniskólann – skóla atvinnulífsins sem jafnframt getur verið hluti af BA-gráðu við evrópska samstarfsskóla. Í náminu er lögð áhersla á þá sérstöðu sem felst í menningu, sögu og náttúru landsins. Allar deildirnar eru í samstarfi við innlend og erlend fyrirtæki og unnið er út frá því að nemendur afli sér þekkingar á framleiðslumöguleikum í alþjóðlegu samhengi iðnaðar og samfélags.
Sýningin Umbrot endurspeglar fjölbreytileika þeirra efna, aðferða og hugmynda sem nemendur hafa fengist við á þessari önn, allt frá keltneskum vafningi til innyfla og damaskvefnaðar.
Sjá nánar á heimasíðu Myndlistaskólans í Reykjavík, www.myndlistaskolinn.is.
|
Gnótt - Gunnar Gunnarsson og félagar á tónleikum
2. desember 2010
Fimmtudagskvöldið 2. desember hélt Gunnar Gunnarsson, píanóleikari og organisti, útgáfutónleika í Bókasal vegna nýútkomins geisladisks síns; Gnótt. Tómas R. Einarsson, bassaleikari, og Ómar Guðjónsson, gítarleikari, spiluðu með Gunnari á tónleikunum.
Gunnar hefur sent frá sér fjölmarga geisladiska og hefur getið sér gott orð fyrir útsetningar sínar á þekktum lögum og fyrir vandaðan og listfengan flutning.
Á tónleikunum hljómuðu lög af nýja geisladiskinum í bland við eldra efni.
|
Ekki skamma mig séra Tumi – leik- og söngdagskrá
1. desember 2010
Hópur listamanna sem starfar saman undir heitinu Sagan og fólkið sýndi leik- og söngdagskrá hér í Þjóðmenningarhúsinu að kvöldi fullveldisdagsins 1. desember. Hópurinn sýndi dagskrá um vinina Jónas Hallgrímsson og Tómas Sæmundsson og kallaði uppákomuna Ekki skamma mig séra Tumi.
Alexandra Chernishova söng íslensk lög við texta Jónasar en einnig aríur og sönglög víðsvegar að úr Evrópu. Höfundur og sögumaður var Guðrún Ásmundsdóttir en leikarar með henni voru Þorlákur Einarsson, Leifur Jónsson og Jón Símon Gunnarsson. Auk þess tók leikarinn og listakonan Arna Valsdóttir þátt í flutningnum en hún gerði vídeoverk sem varpað var á vegg.
|
Úthlutun styrkja úr Þjóðhátíðarsjóði fór fram í Bókasal
1. desember 2010
Þjóðhátíðarsjóður veitir styrki til stofnana og annarra aðila, sem hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf. Alls bárust að þessu sinni 259 umsóknir um styrki að fjárhæð samtals um 350 millj. kr. Úthlutað var 65 styrkjum að fjárhæð samtals kr. 33,9 millj. kr. og hlutu eftirtaldir aðilar hæstu styrkina:
Málvísindastofnun Háskóla Íslands.
Víkin – Sjóminjasafnið í Reykjavík.
Ólafsdalsfélagið.
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, tvo styrki.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Félag áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar.
Þetta var lokaúthlutun styrkja úr sjóðnum en hann verður nú lagður niður.
|
Tónleikar Tónlistarskólans í Reykjavík
27. nóvember 2010
Tónlistarskólinn í Reykjavík stendur fyrir fjölda tónleika á hverju ári og er engin undantekning á því á yfirstandandi 80 ára afmælisári hans. Laugardaginn 27. nóvember voru aðrir tónleikarnir í tónleikaröð nemenda við skólann í Þjóðmenningarhúsinu. Þessir tónleikar báru yfirskriftina Rómantík og voru þar flutt verk eftir meistara frá rómantíska tímabilinu. Efnisskráin var afar fjölbreytt og má t.d. nefna virtúósaverk fyrir fiðlu eftir Paganini, söngdúetta eftir Mendelssohn og Brahms og sönglög eftir Grieg og Spohr. Loks var fluttur píanókvintett eftir Schumann og hinn sívinsæli Silungakvintett eftir Schubert.
Enginn aðgangseyrir var að tónleikunum sem voru ágætlega sóttir.
|
Svavar Knútur og Amma í Þjóðmenningarhúsinu
25. nóvember 2010
Söngvaskáldið Svavar Knútur hélt útgáfutónleika í Þjóðmenningarhúsinu 25. nóvember. Tilefnið var nýr geisladiskur sem hann hefur sent frá sér og ber heitið Amma. Diskurinn var hljóðritaður á stofutónleikum í október síðastliðnum. Á dagskránni voru ýmis lög sem Svavar Knútur hefur tekið ástfóstri við í gegnum tíðina, en plötuna tileinkar hann ömmum sínum enda lögin flest komin til ára sinna og hafa verið sungin af eldri kynslóðum. Öll lögin nema eitt útsetur söngvaskáldið sjálft og leikur ýmist undir á gítar eða ukulele. Meðal söngva á diskinum eru Kvöldið er fagurt, Draumalandið, Sofðu unga ástin mín, Næturljóð úr Fjörðum og nýtt lag Svavars við Álfareiðina.
Ókeypis aðgangur var að tónleikunum fyrir allar ömmur!
|
Ljósaganga UNIFEM hófst frá Þjóðmenningarhúsinu
25. nóvember 2010
Fimmtudaginn 25. nóvember stóð UNIFEM á Íslandi, í samvinnu við mannréttindasamtök og kvennahreyfinguna á Íslandi, fyrir Ljósagöngu í tilefni af alþjóðlegum degi gegn kynbundnu ofbeldi og 16 daga átaki gegn ofbeldi gegn konum sem hófst í kjölfarið.
Þjóðmenningarhúsið er lýst í appelsínugulum lit á meðan á átakinu stendur.
Farið var í Ljósagönguna héðan frá Þjóðmenningarhúsinu og gengið var að Sólfarinu við Sæbraut. Báru göngumenn logandi kyndla. Bæði fyrir og eftir gönguna lásu konur af ýmsum þjóðernum ljóð sem tengjast baráttumálum kvenna. Að því loknu var friðarsúlan tendruð.
Tilgangur Ljósagöngunnar er að vekja athygli á stöðu þeirra milljóna kvenna sem verða fyrir ofbeldi, bæði hér heima og erlendis.
|
Viðurkenning Barnaheilla veitt í Þjóðmenningarhúsinu
19. nóvember 2010
Barnaheill – Save the Children á Íslandi veita árlega viðurkenningu fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra í tengslum við afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þann 20. nóvember. Þórunn Ólý Óskarsdóttir hlaut verðlaunin í ár og tók á móti þeim úr hendi Eddu Kristjánsdóttur, nema í Snælandsskóla, við hátíðlega athöfn hér í Þjóðmenningarhúsinu. Þórunn Ólý er forstöðukona unglingasmiðjanna Stígur og Tröð sem reknar eru af Reykjavíkurborg. Auk Þórunnar tóku til máls við athöfnina Helgi Ágústsson, formaður Barnaheilla – Save the Children á Íslandi, Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra og Jón Gnarr, borgarstjóri. Birkir Bjarnason, Hrefna Björg Gylfadóttir og Ingunn Kristjánsdóttir, nemendur frá Tónskóla Sigursveins, léku á hljóðfæri og Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri samtakanna stýrði athöfninni.
|
Jónasarvaka í Þjóðmenningarhúsinu á degi íslenskrar tungu
16. nóvember 2010
Á degi íslenskrar tungu hélt félagið Hraun í Öxnadal hina árlegu Jónasarvöku í Bókasal í samvinnu við Þjóðmenningarhúsið. Á vökunni er Jónasar Hallgrímssonar, skálds og náttúruvísindamanns, minnst á fjölbreyttan hátt. Tryggvi Gíslason, formaður félagsins Hraun í Öxnadal kynnti dagskrána:
Markús Örn Antonsson, forstöðumaður Þjóðmenningarhússins, setti samkomuna
Vilborg Dagbjartsdóttir, rithöfundur, las nokkur eftirlætisljóða sinna eftir Jónas
Karlakór Reykjavíkur, eldri félagar, sungu nokkur lög. Stjórnandi: Friðrik S. Kristinsson
Jón Karl Helgason, dósent, flutti erindið: Bjarni eða Jónas? Kanónísering þjóðskálds á 19du öld
Í lokin stjórnaði Friðrik fjöldasöng. Vísur Íslendinga, Heylóarvísa og Álfareiðin voru sungin við raust af fullum sal samkomugesta.
|
Hátíðartónleikar Tónlistarskólans í Reykjavík
7. og 14. nóvember 2010
Tónlistarskólinn í Reykjavík er 80 ára um þessar mundir og er ýmislegt gert til hátíðabrigða af því tilefni. Skólinn efndi til tvennra hátíðartónleika í Þjóðmenningarhúsinu í tilefni af afmælinu og voru þeir fyrri haldnir sunnudaginn 7. nóvember en þeir síðari viku seinna.
Efnisskráin var fjölbreytt og tengdist sögu skólans. Þannig voru verkin á fyrri tónleikunum eftir tónskáld sem ýmist kenndu eða námu við skólann á árunum 1930-1970. Seinni tónleikarnir tengdust svo árunum 1970-2010. Flestir flytjendanna eru kennarar við Tónlistarskólann.
Meðal verka á tónleikunum voru píanóverk eftir Pál Ísólfsson, Snorra Sigfús Birgisson og Þorkel Sigurbjörnsson, verk fyrir fiðlu eftir Jón Nordal, klarinettusónata eftir Jón Þórarinsson og sönglög eftir Árna Björnsson, Jón Ásgeirsson og Gunnstein Ólafsson.
Kynnir á tónleikunum var Arndís Björk Ásgeirsdóttir. Hún kynnti verkin á efnisskránni og stiklaði á stóru í sögu skólans.
Aðgangur var ókeypis og öllum heimill.
|
Sigrún Pálsdóttir kynnti verk sitt: Þóra biskups
31. október 2010
Í tilefni af útkomu ævisögunnar Þóra biskups eftir Sigrúnu Pálsdóttur sagnfræðing bauð bókaútgáfan Forlagið til kynningarfundar í Bókasal sunnudaginn 31. október. Á fundinum kynnti höfundurinn verkið og las upp valda kafla. Hér að neðan er texti frá bókaútgefanda um verkið:
„Ævi og örlög Þóru Pétursdóttur Péturssonar biskups yfir Íslandi og eiginkonu Þorvaldar Thoroddsen náttúrufræðings eru líklega mátulega stór fyrir samtíma okkar. Saga hennar segir frá kjólum og karlmönnum, draumum og glæstum vonum; grátbroslegum stundum í lífi lítillar þjóðar. Þetta er saga um tungumál og tjáningu, um þörf og hæfileika kvenna á síðari hluta nítjándu aldar til að búa til margradda frásögn um umhverfi sitt og þetta tímabil sögunnar sem þrátt fyrir allar ljósmyndirnar og textana er hljóðlaust og frosið.“
|
Ný sýning opnuð; Guðmundur og Samarnir
30. október 2010
Sýningin Guðmundur og Samarnir var opnuð laugardaginn 30. október. Markús Örn Antonsson, forstöðumaður Þjóðmenningarhússins, bauð gesti velkomna og Aldís Yngvadóttir, barnabarn Guðmundar, opnaði sýninguna og hélt stutta tölu.
Á sýningunni Guðmundur og Samarnir eru einkum vatnslitaverk eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal en einnig olíumálverk og krítarverk eftir hann og ýmsir munir tengdir Sömum. Myndirnar eru afrakstur ferðalaga Guðmundar um Lappland um miðja síðustu öld. Sýningin er opin alla daga frá kl. 11 til 17 til og með sunnudagsins 28. nóvember 2010.
Sýningin er liður í norrænni listahátið; ting, sem hófst fimmtudaginn 28. október. Sjá má yfirlit yfir viðburði á listahátíðinni á slóðinni: http://www.norraenahusid.is/ting.
Sjá nánari upplýsingar um sýninguna undir sýningalið hér á heimasíðunni.
|
Tónleikar nemenda Tónlistarskólans í Reykjavík
30. október 2010
Tónlistarskólinn í Reykjavík stendur fyrir fjölda tónleika á hverju ári og er engin undantekning á því í ár á 80 ára afmælisári hans. Á þessari önn verður Tónlistarskólinn með ferna tónleikar í Þjóðmenningarhúsinu og voru þeir fyrstu haldnir laugardaginn 30. október. Yfirskrift tónleikanna var Klassík og voru þar flutt kammerverk eftir klassísku meistarana Haydn, Beethoven og Mozart. Einnig var einleiksverk fyrir píanó eftir Mozart á dagskránni og tvö Scherzo eftir Chopin, en árið 2010 er einmitt 200 ára afmælisár hans.
Allir flytjendur eru nemendur við Tónlistarskólann í Reykjavík. Tónleikarnir voru opnir öllum og enginn aðgangseyrir er innheimtur að tónleikum í þessari tónleikaröð. Næstu tónleikar verða sunnudagana 7. og 14. nóvember og laugardaginn 27. nóvember.
|
Fyrirlestur Arnars Pálssonar líffræðings í fundaröð Vísindafélags Íslendinga
27. október 2010
Miðvikudagskvöldið 27. október kl. 20 flutti Arnar Pálsson, dósent í erfðafræði, þróunarfræði og skyldum greinum við Líf- og umhverfisvísindadeild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands, fyrirlestur í Bókasal Þjóðmenningarhússins á vegum Vísindafélags Íslendinga. Yfirskrift fyrirlestursins var; Fjölbreytileiki lífvera: samspil þroskunar og þróunar og fjallaði hann um þróun þroskunargena og genastjórnunar. Efnið fellur undir þroskunarfræði og ræddi Arnar meðal annars um það hvernig ný tengsl myndast á milli stjórnraða og stjórnþátta, með sérstaka áherslu á tilurð þróunarlegra nýjunga.
Fyrirlesturinn var öllum opinn og enginn aðgangseyrir innheimtur.
|
Allt nema Bach; einleikstónleikar Höllu Steinunnar Stefánsdóttur
26. október 2010
Halla Steinunn Stefánsdóttir, barokkfiðluleikari, hélt einleikstónleika í Bókasal Þjóðmenningarhússins þriðjudaginn 26. október. Yfirskrift tónleikanna var Allt nema Bach og flutti Halla Steinunn verk eftir m.a. Telemann, Biber, Vilsmayr og Baltzar og sagði hlustendum jafnframt sitthvað frá verkunum og tónskáldunum. Einnig frumflutti hún á tónleikunum nýtt verk sem hún pantaði hjá Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur sem er einna þekktust fyrir starf sitt með hljómsveitinni amiina. Verk Maríu Huldar nefnist Sofandi pendúll og er samið fyrir barokkfiðlu og rafhljóð.
Halla Steinunn er listrænn stjórnandi kammerhópsins Nordic Affect og voru tónleikarnir liður í starfi hópsins innan veggja Þjóðmenningarhússins.
|
Málþing: Dante á nýrri öld
23. október 2010
Laugardaginn 23. október var haldið málþing um Dante Alighieri hér í Þjóðmenningarhúsinu. Tilefnið var útgáfa þýðingar Erlings E. Halldórssonar á Gleðileiknum guðdómlega. Að málþinginu stóðu ítalska sendiráðið í Osló og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur. Fjögur erindi voru flutt á málþinginu:
Hjalti Snær Ægisson flutti erindi sem hann nefndi Dante á íslensku. Rakti hann viðtökusögu Dante Alighieri á Íslandi frá miðri 19. öld til okkar tíma. Því næst flutti Claudio di Felice erindi á ensku en í íslenskri þýðingu nefndist það Ísland lesið út úr Gleðileiknum. Velti di Felice vöngum yfir því hvort Gleðileikurinn kunni að vera vitnisburður um raunverulegt ferðalag til Íslands fremur en eingöngu skáldlegt hugarflug, út frá orðunum tu le sem tvisvar koma fyrir í frásögninni. Halla Margrét Jóhannesdóttir talaði því næst um tilurð leiksýningarinnar Dauðasyndirnar, sem sett var upp í Borgarleikhúsinu vorið 2008, en sýningin var frjálsleg túlkun á Gleðileik Dantes. Halla nefndi erindi sitt: Frá Dauðasyndum til Gleðileiks. Að endingu var annað erindi flutt á ensku en íslenskur titill þess var Nýjar skýringar við verk Dante. Claudio Giunta velti þar upp ýmsum hliðum á þeim vanda sem fylgir því að semja nýjar skýringar við verk Dante fyrir nútímalesendur.
Málþingsstjóri var Stefano Rosatti, aðjúnkt við ítölskudeild Háskóla Íslands.
Málþingið var án aðgangseyris og allir voru velkomnir.
|
Endurútgáfu Sturlungu fagnað
21. október 2010
Í tilefni af endurútgáfu Sturlungu efndi bókaútgáfan Forlagið til hátíðardagskrár í Bókasal fimmtudaginn 21. október. Sérlegur hátíðarstjóri var rithöfundurinn Einar Kárason en auk hans tóku til máls Örnólfur Thorsson og Óskar Guðmundsson en allir eru þeir þaulkunnugir þessu öndvegisverki. Skáldið Þorsteinn frá Hamri las upp nokkur sýnishorn af þeim kveðskap sem Sturlunga geymir.
Í lokin þáðu gestir veitingar í boði Forlagsins.
|
Óvissuferð um hljóðheima Kammersveitar
16. – 17. október 2010
Kammersveit Reykjavíkur hélt námskeið í tónsmíðum fyrir 8 til 12 ára börn hérna í Þjóðmenningarhúsinu helgina 16. – 17. október. Börnin sömdu nýja tóna og nýja hljóma fyrir kammersveit sem leiknir voru á tónleikum í lok námskeiðsins.
Um handleiðslu á námskeiðinu sáu Guðrún Hrund Harðardóttir, víóluleikari, og Ingi Garðars Erlendsson, tónskáld. Börnin kynntust hljómi og eiginleikum einstakra hljóðfæra betur og völdu sér hljóðfæri til að skrifa fyrir. Þau fylgdust með æfingum og komust að raun um hvort skrifaðar nótur þeirra hljómuðu líkt og þau ímynduðu sér. Þau fylgdust líka með almennum undirbúningi tónleikanna; hvað þarf að gera til að tónleikarnir geti orðið að veruleika og foreldrar og vinir ungu tónskáldanna komið og notið þess að hlusta.
Fullbókað var á námskeiðið og mjög vel mætt á tónleikana. Hljóðfæraleikarar voru þau Una Sveinbjarnardóttir og Pálína Árnadóttir á fiðlu, Guðrún Hrund Harðardóttir á víólu, Hrafnkell Orri Egilsson á selló, Richard Korn á kontrabassa, Melkorka Ólafsdóttir á flautu og Matthías Nardeau á enskt horn. Auk frumflutnings á verkum tónskáldanna ungu lék Kammersveitin verk gamalla meistara.
Tónskáld, flytjendur og gestir upplifðu sannkallað ævintýri og skemmtu sér allir konunglega.
|
Utanríkisráðherra Singapúr skoðaði handritasýninguna
5. október 2010
George Yeo, utanríkisráðherra Singapúr, heimsótti Ísland í byrjun október ásamt eiginkonu sinni og öðru föruneyti. Var gestunum boðið að skoða handritin á sýningu Árnastofnunar hér í Þjóðmenningarhúsinu. Markús Örn Antonsson, forstöðumaður Þjóðmenningarhússins tók á móti gestunum og Gísli Sigurðsson, rannsóknarprófessor við stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, leiddi gestina um sýninguna og fræddi um efni hennar.
Utanríkisráðherrar Íslands og Singapúr eru ásamt utanríkisráðherrum fjögurra annarra ríkja í svokölluðum grænum hópi um vatn og vatnsstjórnun. Í hópnum eru auk Íslands og Singapúr, Grænhöfðaeyjar, Kostaríka, Sameinuðu arabísku furstadæmin og Slóvenía.
|
Málverk eftir Þránd Þórarinsson í veitingasal
29. september 2010
Þrándur Þórarinsson er fæddur 1978 og nam málaralistina hjá hinum kunna norska listmálara Odd Nerdrum sem búsettur var hér á landi um skeið. Áður hafði Þrándur sótt fornámsdeild Listaháskóla Íslands og jafnframt stundað nám við málardeild Myndlistarskólans á Akureyri og málaradeild Listaháskóla Íslands.
Þrándur sækir meðal annars viðfangsefni í íslenska sögu, þjóðsögurnar og Íslendingasögurnar og er undir áhrifum þjóðernisrómantíkur, barokks og endurreisnar.
Sýning Þrándar stendur út nóvembermánuð og er hún liður í myndlistarsýningaröð í verslun og veitingasal Þjóðmenningarhússins. |
Dr. Úlfar Bragason fjallaði um frásagnarviðhorf í Sturlungu – Vísindafélag Íslendinga
29. september 2010
Vísindafélag Íslendinga hélt opinn fund í Þjóðmenningarhúsinu miðvikudagskvöldið 29. september. Þá flutti Dr. Úlfar Bragason, rannsóknarprófessor við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum erindi sem hann nefndi „Hann vissa eg alvitrastan og hófsamastan.“ - Um frásagnarviðhorf í Sturlungu.
Sturlunga saga er samsteypa svonefndra veraldlegra samtíðarsagna sem segja frá atburðum hér á landi á 12. og 13. öld. Talið er að samsteypan hafi verið sett saman um 1300 en elstu handrit hennar, sem varðveitt eru, munu vera frá síðari hluta 14. aldar. Veraldlegar samtíðarsögur hafa verið notaðar sem heimildir í sagnfræði en fáir hafa fengist við frásagnarhátt sagnanna og sjónarhorn.
Frásagnarháttur veraldlegra samtíðarsagna hefur stundum leitt menn til að halda fram þeirri skoðun að þær segðu hlutlægt og blátt áfram frá mannlífinu eins og það hafi verið. Engu síður hafa verið kveðnir upp þungir dómar yfir aldarfarinu á 13. öld með því að vitna í Sturlungu. Í fyrirlestrinum verður fjallað um hvernig sögurnar eru sagðar, hvernig viðhorfum til manna og málefna er komið á framfæri og hvaða sjónarmið koma þar fram.
Aðgangur var ókeypis og öllum heimill.
|
Hið árlega Þjóðræknisþing Þjóðræknisfélags Íslendinga
17. september 2010
Þjóðræknisfélag Íslendinga (ÞFÍ) hélt sitt árlega Þjóðræknisþing hér í Þjóðmenningarhúsinu föstudaginn 17. september. Þjóðræknisfélagið starfar að eflingu samhygðar og samstarfs milli Íslendinga heima og erlendis, og tengsla við fólk af íslenskum ættum utan Íslands, fyrst og fremst afkomendur landnemanna í Íslendingabyggðum vestanhafs. Dagskrá þingsins endurspeglaði þetta:
• Almar Grímsson, stjórnarformaður ÞFÍ, setti þingið og kynnti gesti
• Hrannar Björn Arnarson flutti ávarp Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, í forföllum hennar
• Sólveig Pétursdóttir, formaður nefndar um 200 ára afmæli Jóns Sigurðssonar forseta, sagði frá dagskránni 2011
• Gail Einarson McCleery, forseti INL (Icelandic National League) of North America, flutti ávarp
• Eric Stefanson fyrrv. ráðherra í Manitoba-fylki í Kanada og fulltrúi í stjórn ÞFÍ sagði frá reynslunni af starfinu frá því ÞFÍ var endurvakið 1997
• David Gislason flutti efni úr bók sinni „The Fifth Dimension“ sem inniheldur ljóðaþýðingar hans á þekktum íslenskum ljóðum ásamt frumsömdum ljóðum
• Drengjakór Reykjavíkur söng nokkur lög undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar
Í hléi var íslenski þjóðbúningurinn sýndur með þeim hætti að nokkrar konur, ásamt einum karli og barni, gengu á meðal gesta íklædd hinum ýmsu gerðum búnings. Sýningin var á vegum Þjóðbúningastofu í samvinnu við Heimilisiðnaðarfélag Íslands.
• Pam Olafson Furstenau flutti erindi um íslensku arfleifðina í Norður Dakóta
• Sr. Bragi Skúlason sagði frá starfi sínu í Norður Dakóta
• Æskulýðsstarf þjóðræknisfélagsins:
Snorraverkefnið: Alexía Björg Jóhannesdóttir
Sumarbúðir við Gimli: Brad Hirst
Að lokum var Steinþóri Guðbjartssyni, blaðamanni á Morgunblaðinu og fyrrv. ritstjóra Lögbergs-Heimskringlu veitt heiðursviðurkenning. Að því búnu þáðu gestir kaffiveitingar í boði forsætisráðuneytisins.
Þingið var vel sótt að venju. |
Útgáfutónleikar MIRI, ásamt Bergi Ebba, Loja og Snorra Helgasyni
27. ágúst 2010
Útgáfutónleikar Miri fóru fram í Þjóðmenningarhúsinu föstudagskvöldið 27. ágúst. Þetta voru aðrir útgáfutónleikar hljómsveitarinnar í tilefni útgáfu hennar á breiðskífunni Okkar. Þeir fyrri fóru fram á Seyðisfirði þar sem fólk á öllum aldri fyllti húsakynni Herðubreiðar.
Í höfuðborginni voru útgáfutónleikarnir ekki síður veglegir því ásamt Miri stigu á stokk Bergur Ebbi Benediktsson, Snorri Helgason og Loji Höskuldsson og upptökustjórinn sjálfur, Curver Thoroddsen, kom fram með hljómsveitinni ásamt fleiri gestaleikurum.
Þetta voru síðustu tónleikar Miri í bili en trommuleikari sveitarinnar heldur til Danmerkur í byrjun september.
|
Jazzhátíð Reykjavíkur í Þjóðmenningarhúsinu
14./18./20./22. ágúst 2010
Jazzhátíð Reykjavíkur fór fram á fjölda tónleikastaða en hér í Þjóðmenningarhúsinu voru haldnir fernir tónleikar, auk opnunarhátíðarinnar. Þeir sem komu fram á tónleikum hér í Þjóðmenningarhúsinu voru:
Agnar Már Magnússon píanóleikari, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson bassaleikari og Magnús Trygvason Eliassen trommuleikari með þakkargjörð til Bill Evans jazzpíanista. Sérstakir gestir voru söngvararnir Kristjana Stefánsdóttir, Ragnheiður Gröndal og Ragnar Bjarnason.
Django Bates einleikari á píanó lék eigið efni.
Píanistinn Jean Marie Machado lék einleik og leiddi auk þess íslenska kollega sína í gegnum hluta verkaskrár sinnar.
Ástvaldur Zenki Traustason píanóleikari frumflutti efni af nýjum geisladiski sem ber nafnið Hymnasýn. Meðreiðarsveinar voru þeir Scott McLemore á trommur og Þorgrímur Jónsson á bassa.
Heimasíða jazzhátíðar er á þessari slóð: http://www.reykjavikjazz.is/wp/
|
Skemmtileg Menningarnótt að baki
21. ágúst 2010
Þjóðmenningarhúsið iðaði af lífi á Menningarnótt. Gestir flykktust á fjölbreytta tónlistardagskrá sem stóð yfir frá kl. 14 og langt fram á kvöld. Ekkert lát varð á heimsóknum í húsið fyrr en flugeldasýningin hófst kl. 23. Að vanda var enginn aðgangseyrir að tónleikum eða sýningum og fjölskyldufólk nýtti sér barna- og fjölskyldunálgun sem útbúin hefur verið fyrir flestar sýningar í húsinu.
Fyrstur á svið var dægurlagahópurinn Blikandi stjörnur sem söng þekkt íslensk dægurlög af sannkallaðri innlifun. Blikandi stjörnur hafa starfað á vegum Hins hússins síðan árið 2000 undir stjórn Ingveldar Ýrar Jónsdóttur og komið víða fram. Þvínæst lék Mosana gítardúóið, skipað klassísku gítarleikurunum Svani Vilbergssyni og Priska Weibel, nokkur verk frá barokk, klassíska og rómantíska tímabilinu auk samtímatónlistar. Sönghópurinn Spectrum og Ingveldur Ýr flutti útsetningar við þekkt dægur- og söngleikjalög, auk íslenskra sönglaga, við píanóundirleik fyrir troðfullum sal. Poppararnir í hljómsveit Gísla Helgasonar, Föruneytið, stigu því næst á stokk og flutti eigin lög í bland við alþekkt lög, þar á meðal sígild lög úr Eyjum. Lokatónleikarnir voru svo með söngkonunni Ragnheiði Gröndal ásamt hljómsveit og fluttu þau íslensk þjóðlög í spennandi og ferskum heimstónlistarbúningi.
Veitingastofan var vel nýtt enda veitir hún rólegt afdrep mitt í öllum skarkalanum. Þjóðmenningarhúsið þakkar fyrir innlitið. |
Halldór Laxness og hinir Síðari-daga heilögu: staðreyndir á bak við skrif Paradísarheimtar
17. ágúst 2010
Í tilefni af því að í ár eru 50 ár liðin frá því að skáldsaga Halldórs Laxness, Paradísarheimt, kom út, flutti Fred E. Woods prófessor fyrirlestur um heimsóknir Halldórs til Vesturheims, tengsl hans við Mormónatrúna og skrif skáldsögunnar Paradísarheimt í í Bókasal Þjóðmenningarhússins þann 17. ágúst 2010.
Fred E. Woods vinnur að rannsóknum á mormónunum sem fluttust héðan til vesturheims og hefur frætt nemendur á sumarnámskeiðum við Háskóla Íslands um þetta efni frá ýmsum sjónarhornum. Fred E. Woods er með B.S. gráðu í sálfræði (1981) og M.S. gráðu í alþjóðasamskiptum (1985) frá Brigham Young University. Árið 1991 lauk hann doktorsgráðu í miðausturlandafræðum frá University of Utah þar sem hann lagði áherslu á hebresku biblíuna. Hann kenndi við Rick College (sem nú heitir BYU-Idaho) frá 1993-1998 og síðasta áratuginn hefur hann verið prófessor við Brigham Young University við deild þeirra um trúarsögu og kennisetningar Mormónakirkjunnar. Fred E. Woods hefur haldið fyrirlestra við fjölmarga háskóla í Bandaríkjunum sem og annars staðar í heiminum. Bók Woods, Eldur á ís: Saga hinna íslensku Síðari daga heilögu heima og að heiman kom út í þýðingu Friðriks Rafns Guðmundssonar hjá Háskólaútgáfunni árið 2007.
Fred sló botninn í fyrirlestur sinn með því að frumflytja eigið lag og texta út frá hugleiðingum sínum um hvað heillaði Halldór Laxness við mórmónatrúna og fólkið sem snerist til hennar og varð til þess að hann ritaði skáldsögu um efnið. Lagið nefnir Fred Paradísarheimt og á myndinni sést hann munda gítarinn og búa sig undir sönginn.
|
Íslenski safnadagurinn í Þjóðmenningarhúsinu – fyrir fjölskyldur
11. júlí 2010
Íslenski safnadagurinn er haldinn árlega annan sunnudag í júlí. Fjölmörg söfn og sýningasetur tóku þátt í deginum í ár eins og endranær og yfirskrift dagsins var sem fyrr: – fyrir fjölskyldur. Þjóðmenningarhúsið bauð íslenskar barnafjölskyldur sérstaklega velkomnar þennan dag. Enginn aðgangseyrir var að sýningum og gestir gátu nýtt sér barna- og fjölskyldunálgun sem útbúin hefur verið fyrir flestar sýningar í húsinu.
Efni yfirstandandi sýninga er fjölbreytt; íslenskar kvikmyndir, ljósmyndasýningin Íslendingar, handritin frá miðöldum, kúla úr þæfðri ull í ýmsum myndum og fleira.
Barnahorn er á kvikmyndasýningunni, spæjaraleikur á ljósmyndasýningunni og leiðsagnarhandrit um goðsögulega dreka og fleira á handritasýningunni. Einnig er hægt að leika sér með orðapúsl á ísskápsseglum.
Undirtektir voru með miklum ágætum því talsverður fjöldi fólks, fjölskyldur og einstaklingar, skoðuðu húsið og sýningar þennan dag.
|
Hymnodia sacra – útgáfutónleikar
8. júlí 2010
Kammerkórinn Carmina hélt ókeypis útgáfutónleika í Þjóðmenningarhúsinu fimmtudaginn 8. júlí. Carmina hélt svo til Þýskalands með efnisskrána en hún samanstóð af lögum úr Melódíu og Hymnodia sacra.
Geisladiskurinn Hymnodia sacra hefur að geyma lög úr samnefndu handriti frá árinu 1742. Flytjendur á diskinum eru, ásamt kammerkórnum Carmina, kammerhópurinn Nordic Affect. Carmina hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2008 fyrir geisladisk sinn með tónlist úr íslenska handritinu Melódía, auk þess sem sá diskur var valinn ein af útgáfum mánaðarins hjá hinu virta breska tónlistartímariti Gramophone.
Hymnodia sacra byggir á rannsóknum Árna Heimis Ingólfssonar, tónlistarfræðings, sem jafnframt stjórnar Carminu og ritar formála í bæklingi. Með þessum diski lýkur þriggja diska verkefni sem Árni Heimir hefur haft veg og vanda af í samvinnu við Smekkleysu og var ætlað að kynna tónlist úr íslenskum handritum. Fyrsti diskurinn, Tvísöngur, kom á markað 2004 og Melódía árið 2007.
Handritið Hymnodia sacra var ritað af sr. Guðmundi Högnasyni árið 1742 og hefur að geyma 101 nóterað lag. Það er stærsta nótnahandrit sem varðveist hefur hér á landi frá 18. öld og er því dýrmæt heimild um tónlistarlíf landsmanna á þeim tíma.
Tónleikunum var vel tekið og þakkar Þjóðmenningarhúsið kammerkórnum Carmina fyrir framtakið.
|
Sex skáld – tvær tungur: Upplestur á slóvensku og íslensku
25. júní 2010
Þrír slóvenskir rithöfundar heimsóttu Ísland í lok júní með styrk frá Miðstöð slóvenskra bókmennta og Bókastofu Slóvena. Heimsóknin kom í kjölfar samstarfs hérlendra og þarlendra höfunda um þýðingar á ljóðum og textum sem stofnun á vegum Evrópusambandsins, Literature Across Frontiers (LAF), hefur veitt fjármagn. Hér í Þjóðmenningarhúsinu hittu Slóvensku höfundarnir fyrir þrjá íslenska rithöfunda sem þeir hafa þýtt á sína tungu og sem jafnframt hafa þýtt verk Slóvensku skáldanna yfir á íslensku. Fundurinn fór þannig fram að höfundarnir sex lásu upp nokkra texta eftir sig sem síðan voru lesnir í þýðingu á hinu tungumálinu.
Slóvensku höfundarnir voru: Brane Mozetic, Suzana Tratnik og Marjana Moskric. Íslensku höfundarnir voru: Þórunn Valdimarsdóttir, Sigurður Pálsson og Böðvar Björnsson. Upplesturinn var öllum opinn og Kristín Ómarsdóttir stjórnaði fundinum.
Spjallað var við Sigurð Pálsson og Brane Mozetic í þættinum Víðsjá þann 29. júní: http://dagskra.ruv.is/ras1/4517068/2010/06/29/
|
da capo – tónleikar og sýning Vox feminae
19. júní 2010
Kvennakórinn Vox feminae kom saman í Þjóðmenningarhúsinu á kvenréttindadaginn þann 19. júní og hélt tónleika og opnaði sýningu með ágripi af sögu kórsins. Tilefnið var útgáfa kórsins á ljósmyndabókinni da capo. Meginstef hennar er portrettmyndir af kórkonum í Vox feminae ásamt minningabrotum úr kórstarfinu og hugleiðingar kórfélaga um hlutverk söngsins í lífi þeirra. Að auki hefur bókin að geyma sögu Vox feminae í máli og myndum, erindi um sögu kvennasöngs á Íslandi og erindi frá listamönnum um samstarfið við Vox feminae. Henni fylgir geisladiskur sem hefur að geyma tvö lög af hverjum þeirra þriggja geisladiska sem kórinn hefur gefið út. Bókin er til sölu í verslun Þjóðmenningarhússins.
Stjórnandi kórsins frá upphafi og stjórnandi á tónleikunum var Margrét J. Pálmadóttir. Kórinn söng í stigahúsinu, þar sem hljómarnir magnast upp svo tónlistin fyllir húsið, og í Bókasal þar sem hljómburðurinn er einnig einkar fagur.
|
Opinn fundur um mannréttindi
16. júní 2010
Í tilefni af komu fr. Navanethem Pillay, mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, til Íslands stóð utanríkisráðuneytið, í samvinnu við Mannréttindaskrifstofu Íslands og Mannréttindastofnun Háskóla Íslands, fyrir opnum fundi um eflingu og verndun mannréttinda, miðvikudaginn 16. júní, hér í Þjóðmenningarhúsinu.
Dagskrá fundarins var á þá leið að Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, ávarpaði fundargesti og að því búnu steig heiðursgestur fundarins; Navanethem Pillay, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, í pontu og flutti erindi um hlutverk Sameinuðu þjóðanna við að efla og vernda mannréttindi. Þá tóku frummælendur við fyrirspurnum og opnað var fyrir umræður með þátttöku viðstaddra. Fundarstjóri var Þóra Arnórsdóttir, fréttamaður.
Navanethem Pillay hefur gegnt stöðu mannréttindafulltrúa SÞ í rétt tvö ár. Hún er frá Suður-Afríku og er lögfræðingur að mennt. Á dögum aðskilnaðarstefnunnar tók Pillay að sér að verja baráttumenn gegn aðskilnaðarstefnunni og félaga í verkalýðsfélögum og þekkir því viðfangsefni sín af eigin raun. Hún hefur verið öflugur málsvari kvenréttinda og einn af stofnendum hinna alþjóðlegu félagasamtaka "Equality Now", sem berjast fyrir réttindum kvenna. Þá hefur Pillay starfað með fjölda félagasamtaka sem vinna m.a. að málefnum barna, fanga, fórnarlamba pyntinga og heimilisofbeldis, sem og margskonar efnahagslegum, félagslegum og menningarlegum réttindum.
Pillay hefur verið dómari við tvo af helstu stríðsglæpadómstólum heims. Hún var dómari í Alþjóðastríðsglæpadómstólnum vegna Rúanda í 8 ár og dómari í Alþjóðasakamáladómstólnum í Haag í 5 ár.
|
Hádegisfundur Framtíðarlandins
16. júní 2010
Framtíðarlandið - félag áhugafólks um framtíð Íslands hélt afmælisfund í veitingastofu Þjóðmenningarhússins en félagið var stofnað á 17. júní fyrir fjórum árum. Yfirskrift fundarins var spurningin: Er Náttúrubanki Íslands í öruggum höndum?
Framtíðarlandið er þverpólitískt þrýstiafl og hugmyndaveita sem styður stjórnvöld, atvinnulífið og stofnanir til að móta framsýnt samfélag í sátt við náttúru landsins. Félagar eru 3000 talsins og byggir starfið á víðtækri þátttöku frumkvöðla, fræðimanna, listamanna og einstaklinga af öllum sviðum atvinnulífsins.
Félagsmenn og aðrir áhugasamir mættu á fundinn, fengu sér súpu og tóku þátt í umræðum um hugmyndir fyrir næsta starfsár félagsins.
|
Forseti Eistlands í Þjóðmenningarhúsinu
10. júní 2010
Forseti Eistlands, Toomas Hendrik Ilves, og eiginkona hans, frú Evelin Ilves, voru í opinberri heimsókn á Íslandi 10. og 11. júní í boði forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar. Síðdegis hinn 10. júní heimsóttu forsetarnir Þjóðmenningarhúsið, þar sem Markús Örn Antonsson, forstöðumaður, tók á móti þeim. Handritasýning Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum var skoðuð í fylgd dr. Guðrúnar Nordal forstöðumanns stofnunarinnar. Jafnframt var haldið í Bókasal málþing undir heitinu Tveir áratugir frá sjálfstæði: Eistland í samfélagi þjóðanna (Two Decades from Independence – Estonia in the International Community). Þar flutti forseti Eistlands fyrirlestur, svaraði spurningum og tók þátt í umræðum. Málþingið var öllum opið.
|
Vestnorræn kvennaráðstefna í boði forseta Alþingis
7. júní 2010
Vestnorræn ráðstefna um stöðu og völd kvenna í stjórnmálum og atvinnulífi á Vestur-Norðurlöndunum var haldin í Bókasal Þjóðmenningarhússins. Ráðstefnan var í boði Ástu R. Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, og var opin öllum áhugasömum.
Þrjú þemu voru rædd á ráðstefnunni:
1. Skiptir máli að hafa konur jafnt sem karla á löggjafarsamkundum og í stjórnum fyrirtækja?
2. Mögulegar og sértækar leiðir til að jafna völd karla og kvenna í stjórnmálum og atvinnulífinu.
3. Ábyrgð karlmanna og samfélagsins í að stuðla að og tryggja jafnrétti kynjanna.
Frummælendur komu frá Vestur-Norðurlöndunum öllum; Íslandi, Færeyjum og Grænlandi og voru jafnt úr röðum fólks innan stjórnmála sem atvinnulífs.
Fundarstjóri var Ólína Þorvarðardóttir, formaður Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins.
|
Horft á Reykjavík – málþing
5. júní 2010
Laugardaginn 5. júní var málþingið Horft á Reykjavík haldið í Þjóðmenningarhúsinu á vegum ReykjavíkurAkademíunnar og ÍNOR í samstarfi við Reykjavíkurborg. Málþingið var vel heppnað og skemmtilega uppbyggt; með samspili fræða og lista. Markmiðið með málþinginu var að beina sjónum að Reykjavík; ímynd hennar og sjálfsmynd borgarbúa í tengslum við þá umræðu sem staðið hefur yfir um ímynd landsins.
Dagskráin var á þessa leið:
Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi, setti málþingið.
Íris Ellenberger: Borg fyrir heilbrigða, sjálfstæða og hamingjusama kynslóð
Anna Rakel Róbertsdóttir Glad, Hilda Björg Stefánsdóttir og Katla Rós Völudóttir: Hommar meiga líka singja fyrir Jesús
Sumarliði Ísleifsson: Af samspili innri og ytri ímynda, drambi, hæðni og vanmetakennd
Sæborg: Atlantis
Hildigunnur Sverrisdóttir: Að nema stað
Sigurður Gunnarsson kynnti að lokum kvikmyndasögusýninguna ÍSLAND::KVIKMYNDIR sem nú stendur yfir hér í Þjóðmenningarhúsinu.
Viðar Hreinsson stjórnaði málþinginu. |
Frá hliðum helvítis til hirða Evrópu - tónlist og bókmenntir 18. aldar
2. júní 2010
Kammerhópurinn Nordic Affect kom fram á Listahátíð í Reykjavík með tónleikum í Þjóðmenningarhúsinu 2. júní. Ísland átti stefnumót við meginlandið í efnisskrá tónleikanna því tónlistararfi Evrópu á 18. öld var fléttað saman við bókmenntir frá Íslandi á sama tíma. Hópurinn bauð uppá spennandi veislu í tónum og tali þar sem tónasnilld 18. aldar, mataruppskriftir, ljóð og fjallgöngur komu við sögu.
Flytjendur voru þær Halla Steinunn Stefánsdóttir barokkfiðla, Georgia Browne barokkþverflauta, Hanna Loftsdóttir barokkselló, Guðrún Hrund Harðardóttir barokkvíóla og Guðrún Óskarsdóttir semball. Um upplestur sá útvarpsmaðurinn og sagnfræðingurinn Guðni Tómasson.
|
Afhending foreldraverðlauna Heimilis og skóla
1. júní 2010
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra voru afhent í 15. sinn við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu þann 1. júní. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra afhenti verðlaunin.
Handhafar Foreldraverðlaunanna 2010 eru Vinafjölskyldur í Vesturbæjarskóla, verkefni Margrétar Gylfadóttur, Sesselju Ólafsdóttur og Maríu Helenu Sarabia, foreldra í Vesturbæjarskóla.
Auk Foreldraverðlaunanna sjálfra voru veitt ein hvatningarverðlaun og tvenn dugnaðarforkaverðlaun: Hvatningarverðlaun 2010 hlaut Foreldrafélag Hvassaleitisskóla; Inga Ívarsdóttir formaður foreldrafélagsins og Linda B. Ólafsdóttir fulltrúi í skólaráði, fyrir verkefnið Vinir í Hvassó. Dugnaðarforkaverðlaun 2010 voru tvenn og voru veitt Borghildi Jósúadóttur fyrir ötult foreldrastarf í framhaldsskólum og Önnu Margréti Sigurðardóttur fyrir framúrskarandi störf í þágu foreldrasamstarfs í Fjarðabyggð.
Að auki var Sigurveigu Sæmundsdóttur þakkað fyrir óeigingjarnt starf í þágu samtakanna, en Sigurveig hefur verið í dómnefnd fyrir Foreldraverðlaun Heimilis og skóla um langt árabil.
Tilnefningar til verðlaunanna voru 38 talsins að þessu sinni.
|
Christina Sunley höfundur Freyjuginningar kynnti bók sína
31. maí 2010
Bókafélagið Ugla og Þjóðræknisfélag Íslendinga efndu til dagskrár hér í Þjóðmenningarhúsinu í tilefni af heimsókn bandaríska rithöfundarins Christina Sunley hingað til lands. Christina las upp úr bók sinni; Freyjuginningu, sagði frá tilurð hennar og tengslum sínum við Ísland og svaraði fyrirspurnum.
Christina Sunley er af íslenskum ættum. Bók hennar; The Tricking of Freya, sem kom út 2008, fékk mjög góðar viðtökur gagnrýnenda vestan hafs og var gefin út í íslenskri þýðingu Þórdísar Bachmann fyrir síðustu jól undir heitinu Freyjuginning. Þar er skyggnst inn í íslenskan menningarheim frá sjónarhóli fólksins sem yfirgaf Ísland undir lok nítjándu aldar en varðveitti íslenska menningu fjarri ættjörðinni. Sögusvið bókarinnar er Ísland og Íslendingaslóðir í Kanada.
Christina fer víða um landið í þessari heimsókn og ræðir bók sína einnig hjá ReykjavíkurAkademíunni og að Skriðuklaustri í Fljótsdal og á Amtsbókasafninu á Akureyri. Sjá nánar á vef Þjóðræknisfélagsins: www.inl.is
Dagskráin fór fram bæði á íslensku og ensku en Christina hefur á síðustu árum lagt sig fram við að læra íslensku.
|
Róttækur rithöfundur í heimsókn
30. maí 2010
Rithöfundurinn Susan Abulhawa talaði á samstöðufundi hér í Þjóðmenningarhúsinu sunnudaginn 30. maí á vegum útgáfufyrirtækisins Forlagsins og Félagsins Ísland – Palestína. Susan var stödd hér á landi í tilefni af útgáfu skáldsögu hennar Morgnar í Jenin í íslenskri þýðingu. Susan kynnti bók sína, efni hennar og þá heimildavinnu og reynslu sem að baki henni býr en þar er lýst átakamikilli sögu palestínskrar fjölskyldu í gegnum þrjár kynslóðir og hefst sagan á fimmta áratug síðustu aldar. Einnig ræddi hún um störf sín í þágu fólksins í Jenín. Sjálf er Susan barn palestínskra flóttamanna.
Susan var ákaflega vel tekið af viðstöddum gestum.
|
Útskriftartónleikar nemenda Listaháskólans
17. apríl til 29. maí 2010
Tónlistardeild Listaháskólans hélt stóran hluta sinna árlegu útskriftartónleika að vori í Þjóðmenningarhúsinu. Tónleikarnir voru lokapróf nemenda sem hafa stundað nám í hljóðfæraleik, söng eða tónsmíðum og var efnisskrá þeirra afar fjölbreytt. Oftast var um að ræða kvöldtónleika og var öllum heimill aðgangur á meðan húsrúm leyfði.
Þau sem útskrifuðust með tónleikum í Bókasal Þjóðmenningarhússins voru: Þorgerður Edda Hall, selló, Árni Freyr Gunnarsson, píanó, Karl Jóhann Bjarnason, selló, Eyrún Ósk Ingólfsdóttir, söngur, Kristín Bergsdóttir, tónsmíðar, Hildur Heimisdóttir, selló, Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir, harmonikka, Kristinn Freyr Kristinsson, gítar, Gunnar Karel Másson, tónsmíðar og Högni Egilsson, tónsmíðar.
Þessi tónleikaröð festir Bókasalinn enn frekar í sessi sem fallega og hljómgóða umgjörð um nýja jafnt sem klassíska kammertónlist.
|
Ný sýning: Kúlan bregður á leik
21. maí 2010
Bryndís Bolladóttir, textílhönnuður, sýnir nýjustu hönnun sína; kúluna, í verslun og veitingastofu Þjóðmenningarhússins. Sýningin er hluti af myndlistarsýningaröð þar sem íslenskir listamenn sýna verk sín.
Kúlan er unnin úr þæfðri íslenskri ull. Hún bregður sér í ólík hlutverk, s.s. snaga, leikfangs, hitaplatta, skrauts, kolls og hljóðdempunarverks.
Bryndís er fædd árið 1973. Hún er stúdent af listnámsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti og útskrifaðist úr textíldeild Listaháskóla Íslands árið 1999. Hún hefur einnig sótt námskeið við Konstfack listaháskólann í Svíþjóð.
Sjá nánari upplýsingar um verk Bryndísar á vef hennar: www.bryndisbolladottir.com
Sýningin stendur frá 21. maí og fram í ágústmánuð.
|
Jóhannesarvaka
9. maí 2010
Hátíðardagskrá Forlagsins og Þjóðmenningarhússins, sem haldin var sunnudaginn 9. maí hér í Bókasalnum til heiðurs Jóhannesi úr Kötlum, var einstaklega vel sótt og vel heppnuð. Efnt var til dagskrárinnar í tilefni af útkomu nýrrar bókar með úrvali ljóða Jóhannesar. Í úrvalinu eru ljóð úr öllum bókum Jóhannesar fyrir fullorðna, bæði frumsamin og þýdd, og gefa þau breiða mynd af margslungnum ljóðheimi skáldsins. Silja Aðalsteinsdóttir sá um útgáfuna og ritar inngang.
Á Jóhannesarvökunni var höfundarverki Jóhannesar úr Kötlum gerð skil í tali og tónum. Fram komu meðal annarra Svanur Jóhannesson, Arnar Jónsson, Olga Guðrún Árnadóttir, Silja Aðalsteinsdóttir, Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Páll Eyjólfsson, Vilborg Dagbjartsdóttir og Þorsteinn frá Hamri. Gestir kunnu vel að meta ávörpin, upplesturinn og söngvana og þáðu kaffiveitingar að dagskrá lokinni.
|
Ignacio Rodes – einleikur á gítar
2. maí 2010
Hinn heimsfrægi spænski gítarleikari Ignacio Rodes lék á einleikstónleikum í Þjóðmenningarhúsinu sunnudaginn 2. maí. Aðgangur var ókeypis, en tónleikarnir voru samvinnuverkefni Listaháskóla Íslands, Erasmus- verkefnisins, spænsku ræðismannsskrifstofunnar á Íslandi og Þjóðmenningarhússins.
Á tónleikunum lék Ignacio 20. aldar verk eftir nokkra samlanda sína undir yfirskriftinni: Gítarinn á tímum ljóðskáldsins Miguel Hernández (1910 - 1942).
Ignacio Rodes er almennt talinn einn af fremstu gítarleikurum sinnar kynslóðar í heiminum og hefur hvarvetna hlotið einróma lof gagnrýnenda fyrir leik sinn. Það voru þakklátir gestir sem yfirgáfu salinn að tónleikunum loknum.
Þess má geta að Ignacio kenndi opinn masterklass í Listaháskólanum daginn áður, laugardaginn 1. maí.
|
Söguslóðaþing 2010 - sögumaður og/eða sýndarveruleiki?
29. apríl 2010
Árlegt málþing Samtaka um sögutengda ferðaþjónustu (SSF) í samvinnu við Nýsköpunarmiðstöð Íslands var haldið í Þjóðmenningarhúsinu 29. apríl. Fjallað var um mögulegt samspil lifandi sagnamennsku og margmiðlunartækni við þróun menningar- og söguferðaþjónustu á Íslandi. Belgískur sérfræðingur í margmiðlunarþróun, með mikla reynslu af stórum Evrópuverkefnum á sviði menningarferðaþjónustu, flutti erindi á ráðstefnunni auk úrvalsfyrirlesara frá Íslandi sem vörpuðu ljósi á það nýjasta í miðlun sögu og sagna með ýmsum miðlum eða milliliðalaust úr munni sagnamanns.
Dagskráin var á þessa leið:
Ávarp: Berglind Hallgrímsdóttir, Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
Segðu mér sögu: Rögnvaldur Guðmundsson, formaður SSF.
Interactive Storytelling and Virtual Reality for Heritage Tourism: Daniel Pletinckx, margmiðlunarfyrirtækinu Visual Dimensions, Oudenaarde í Belgíu.
Margmiðlunartækni í menningarferðaþjónustu á Íslandi: Hringur Hafsteinsson, Gagarín ehf.
Snjallsögumaðurinn. Sálfvirk leiðsögn fyrir snjallsíma: Leifur Björn Björnsson, Locatify ehf.
Let´s talk storytelling: Anna Bergljót Thorarensen, leikhópnum Kraðak.
Sagnamennska í leikskóla og grunnskóla: Berglind Ósk Agnarsdóttir, leikskólakennari og sagnaþulur.
Sagan um Auði: Vilborg Davíðsdóttir, rithöfundur.
Samantekt: Skúli Björn Gunnarsson, Skriðuklaustri.
|
Barnamenningarhátíðin liðin en lifir þó
26. apríl 2010
Þjóðmenningarhúsið tók þátt í barnamenningarhátíðinni 19. – 25. apríl 2010. Hátíðin var skipulögð af Höfuðborgarstofu og fór fram út um allan bæ. Þema hátíðarinnar var forvitni sem ætíð er jú hægt að svala hérna í Þjóðmenningarhúsinu. Í tilefni hátíðarinnar voru sýningar hússins klæddar í barnvænan búning. Áfram verður hægt að ganga að efni fyrir börn á sýningunum, þó hátíðinni sé formlega slitið:
Barnakvikmyndir í fullri lengd í sérhönnuðu umhverfi á kvikmyndasögusýningunni ÍSLAND :: KVIKMYNDIR. (Í samstarfi við Kvikmyndamiðstöð Íslands).
Orð úr lausavísum óþekktra höfunda til þess að raða að vild. (Orðin eru ísskápsseglar og ísskápar eru á staðnum!).
Margt forvitnilegt um sambúð manns og dýranna okkar, bæði villtra dýra og húsdýra, má sjá í náttúrulífsmynd Páls Steingrímssonar; Þjóðin og náttúran.
Leiðsagnarhandrit býðst um sýninguna Handritin með sögunni af Sigurði Fáfnisbana og þeirri sem segir frá veiðiferð Þórs að ná Miðgarðsorminum. Einnig eitthvað óvænt um söguhetjur Íslendingasagnanna.
Á ljósmyndasýningunni Íslendingar er hægt er að taka þátt í rannsókn Þjóðfræðistofu á því hvað okkur finnst um þjóðina okkar. Einnig er þar spæjaraleikurinn Komdu upp um hann afa minn! sem felst í því að leita að vísbendingum á myndunum.
|
Veiting viðurkenninga á Degi umhverfisins
25. apríl 2010
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, afhenti Sigrúnu Helgadóttur Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu á Degi umhverfisins. Þetta var í fyrsta sinn sem sú viðurkenningin er afhent. Umhverfisráðherra veitti viðurkenninguna í tilefni af tuttugu ára afmæli umhverfisráðuneytisins í ár.
Sigrún Helgadóttir hefur helgað starfskrafta sína umhverfismálum, ekki síst við að miðla fræðslu til barna og ungmenna en einnig hefur hún lagt mikla áherslu á mikilvægi þess að auka skilning almennings á náttúru og umhverfi.
Einnig afhenti Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, Þóru Hirst, gæðastjóra prentsmiðjunnar Odda, Kuðunginn fyrir framlag fyrirtækisins til umhverfismála á liðnu ári.
Í máli Sigþrúðar Jónsdóttur, formanns valnefndar Kuðungsins, kom fram að fyrirtækið hefði árum saman unnið eftir ákveðinni umhverfisstefnu, það hefði tekið upp umhverfisstaðla og unnið að því að lágmarka neikvæð áhrif starfseminnar á umhverfi og heilsu. Á síðasta ári hlaut fyrirtækið hina norrænu umhverfisvottun, Svaninn.
Við sama tilefni útnefndi umhverfisráðherra nemendur í 10. bekk Hvolsskóla Varðliða umhverfisins. Verkefnasamkeppnin Varðliðar umhverfisins er samstarfsverkefni umhverfisráðuneytisins, Landverndar og Náttúruskóla Reykjavíkur og er haldin árlega meðal nemenda í 5.-10. bekk í grunnskólum landsins.
Nemendur Hvolsskóla voru útnefndir Varðliðar umhverfisins fyrir faglega skýrslu um umhverfisáhrif vegna framkvæmda við Landeyjahöfn. Í skýrslunni leitast nemendur við að varpa ljósi á umfang framkvæmdanna og áhrif þeirra á umhverfið með því að flétta viðfangsefnið inn í stærðfræði, eðlisfræði og náttúrufræði.
|
Í ljósi næsta dags – Sigurður A. Magnússon; sýningin opnuð
24. apríl 2010
Margir góðir gestir voru saman komnir í bókasal Þjóðmenningarhússins laugardaginn 24. apríl til að fagna opnun sýningarinnar Í ljósi næsta dags - Sigurður A. Magnússon. Á sýningunni eru störf Sigurðar í gegnum árin dregin fram með munum, myndum og texta með áherslu á feril hans sem rithöfundar, gagnrýnanda, þýðanda og baráttumanns.
Markús Örn Antonsson forstöðumaður Þjóðmenningarhússins setti samkomuna með ávarpi og kynnti aðra ræðumenn en það voru Dr. Gauti Kristmannsson dósent í þýðingarfræðum, Dr. Ástráður Eysteinsson prófessor í bókmenntafræðum, Jóhanna K. Eyjólfsdóttir framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International og Pétur Gunnarsson rithöfundur og formaður Rithöfundasambands Íslands. Hvert þeirra um sig fjallaði um þá hlið Sigurðar sem að þeim hefur snúið ef svo má að orði komast; Gauti um þýðandann Sigurð, Ástráður um höfundinn, Jóhanna um baráttumanninn og Pétur um þátt Sigurðar í sameiningu samtaka rithöfunda í eitt eftir áralangan klofning í þeirra röðum. Rósa Guðný Þórsdóttir leikkona las texta eftir Sigurð sem Gauti og Ástráður völdu.
Ólafur J. Engilbertsson hjá Sögumiðlun ehf (www.sogumidlun.is) hannaði sýninguna og sýningarskrána. Sýningin stendur til 15. janúar 2011.
|
Málþing Einkaleyfastofu á Alþjóðlega hugverkaréttardeginum
21. apríl 2010
Einkaleyfastofa boðaði til málþings hér í Þjóðmenningarhúsinu í tilefni af Alþjóðlega hugverkaréttardeginum 21. apríl. Þema dagsins var Innovation – Linking the World og eftirfarandi aðilar fluttu erindi undir þeirri yfirskrift:
Hilmar Janusson, framkvæmdastjóri rannsóknar- og þróunarsviðs Össurar
Einar Stefánsson, prófessor og yfirlæknir
Helga Valfells, framkvæmdarstjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins
Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdatjóri Mentors
Einar Mäntylä, yfirm aður hugverkasviðs Orfs Líftækni
Stefán Stefánsson, deildarstjóri einkaleyfadeildar Actavis
Ásta Valdimarsdóttir, forstjóri Einkaleyfastofu, setti málþingið en fundarstjóri var Ásdís Magnúsdóttir frá Árnason Faktor. Þingið var öllum opið og bauð Einkaleyfastofa viðstöddum að þiggja veitingar að því loknu.
|
Mozart plús ... Schnittke
27. mars 2010
Kammersveit Reykjavíkur hélt tónleika með ofangreindri yfirskrift í Bókasal Þjóðmenningarhússins laugardaginn 27. mars.
Á efnisskránni voru tvö verk eftir meistarann Wolfgang Amadeus Mozart; Óbókvartett í F dúr og Píanókvartett í Es dúr, ásamt verkinu Moz-Art eftir snillinginn Alfred Schnittke og Píanókvartett sama tónskálds sem byggir á æskuverki Gustav Mahlers. Þannig tefldi Kammersveitin saman hinum klassíska Mozart og einu helsta tónskáldi 20. aldarinnar, Alfred Schnittke, þar sem hann sækir í smiðju hjá hinum miklu meisturum Mahler og Mozart. Sebastiano Brusco, píanóleikari, sem býr og starfar í Róm, var gestur Kammersveitarinnar á tónleikunum.
Kammersveitina skipuðu á þessum tónleikum: Una Sveinbjarnardóttir, fiðla, Matthías Nardeau, óbó, Guðrún Hrund Harðardóttir, víóla, Sigurgeir Agnarsson og Margrét Árnadóttir, selló, Richard Korn, kontrabassi, Katie Buckley, harpa, Guðrún Óskarsdóttir, semball, og Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó.
Tónleikarnir heppnuðust frábærlega vel og fór vel um flytjendur og gesti í Bókasalnum.
|
Ársfundur Náttúrufræðistofnunar Íslands 2010
19. mars 2010
Ársfundur Náttúrufræðistofnunar Íslands var haldinn í Þjóðmenningarhúsinu föstudaginn 19. mars. Fundurinn hófs á ávarpi Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra og því næst fór Jón Gunnar Ottósson forstjóri Náttúrufræðistofnunar yfir starfsemi liðins árs í samanburði við fyrri ár og ræddi ýmis brýn mál fyrir stofnunina og málefnin sem hún sinnir. Fulltrúi náttúrustofa, Jón Ágúst Jónsson, ávarpaði samkomuna og það gerði einnig formaður Hins íslenska náttúrufræðafélags, Árni Hjartarson. Eftir hlé voru svo flutt fimm fræðileg erindi:
Miðhálendið – vistgerðarannsóknir veita nýja sýn, Sigurður H. Magnússon og Borgþór Magnússon
Verðmætar vistgerðir og mikilvæg fuglasvæði við rætur Hofsjökuls, Kristinn H. Skarphéðinsson og Guðmundur A. Guðmundsson
Þeir koma rétt upp til að æxlast – líffræðileg fjölbreytni sem felst í fungu Íslands, Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir
Tegundafjölbreytni á sjávarbotni á Íslandsmiðum, Guðmundur Guðmundsson
Verndargildi eldvirkra svæða á Íslandi – Krafla og Gjástykki, Kristján Jónasson og Sigmundur Einarsson
Að fundi loknum bauð Náttúrufræðistofnun Íslands viðstöddum til móttöku.
|
Úrslit kynnt í Safnanæturleiknum
15. mars 2010
Dregið hefur verið í Safnanæturleiknum sem fólst í því að fá stimpil og svara spurningum á nokkrum viðkomustöðum á Safnanótt. Spurningin hér í Þjóðmenningarhúsinu laut að sýningunni ÍSLAND::KVIKMYNDIR. Áttu gestir að finna nafn leikstjóra nýrrar kvikmyndar sem aukið var við sýninguna í tilefni af framlengingu hennar til hausts.
Um 500 manns tóku þátt í þessum skemmtilega leik, enda vinningarnir sérlega veglegir. Vinningshafarnir í Safnanæturleiknum voru:
1. verðlaun: Boð á Safnanótt í Berlín 28. ágúst, flug með Iceland Express og 100.000 kr í gjaldeyri frá MP-banka: Steinunn Björk Bragadóttir
2. verðlaun: Út að borða fyrir tvo á Dill Restaurant í Norræna húsinu: Ársæll Jóhannsson
3. verðlaun: Geirfuglskerti frá Landnámssýningunni 871 +/- 2: Þórdís Erlingsdóttir
|
Ó, sjúka líf – ljósmyndir eftir Melkorku Huldudóttur
15. mars 2010
Opnuð hefur verið ný sýning í myndlistarsýningaröð í verslun og veitingastofu Þjóðmenningarhússins. Melkorka Huldudóttir (f. 1972) sýnir ljósmyndir úr seríu sem heitir Ó, sjúka líf.
Sýningin dregur upp myndir af ástandi úr móki milli svefns og vöku, martröðum og draumum.
Melkorka útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2002. Hún notar alla mögulega miðla í listsköpun sinni en vinnur mikið undir áhrifum tölvuleikja og kvikmynda. Í verkum sínum fjallar hún mikið um veilur ýmis konar og oft er togstreita og drungi undirliggjandi.
Sýningin stendur fram í maímánuð og er aðgengileg án þess að borga aðganseyri. Hún er opin á afgreiðslutíma eða frá kl. 11 til 17 alla daga vikunnar.
|
Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins afhent við hátíðlega athöfn
11. mars 2010
Slysavarnafélagið Landsbjörg hlaut Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins 2010 sem afhent voru við hátíðlega athöfn hér í Þjóðmenningarhúsinu fimmtudaginn 11. mars. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti verðlaunin og Ari Edwald, forstjóri 365, afhenti verðlaunafé að upphæð ein milljón króna. Þetta var í fimmta sinn sem Fréttablaðið veitir Samfélagsverðlaunin en auk sjálfra aðalverðlaunanna eru þau veitt í fjórum flokkum:
Hvunndagshetjan í ár er André Bachmann. Einkum er hann heiðraður fyrir framgöngu sína við að halda á hverju ári jólaskemmtun fyrir fatlaða þar sem vinsælustu skemmtikraftar þjóðarinnar koma fram.
Verðlaun í flokknum Frá kynslóð til kynslóðar féllu í skaut Gauraflokksins í Vatnaskógi en drengjum með ADHD býðst þar sumarbúðadvöl í sérstökum flokki fyrir kraftmikla stráka.
Í flokknum Til atlögu gegn fordómum hlaut Hugarafl verðlaunin. Í Hugarafli starfa saman á jafnréttisgrundvelli notendur geðheilbrigðisþjónustunnar sem eru í bata og fagfólk.
Heiðursverðlaunin hlaut Jón Böðvarsson sagnfræðingur, kennari og sögumaður fyrir ómetanlegt framlag sitt við að kynna Íslendingasögur fyrir samborgurum sínum.
Til Samfélagsverðlaunanna koma til greina félagasamtök og einstaklingar sem hafa unnið framúrskarandi mannúðar- eða náttúruverndarstarf.
|
Í Árnasafni – dagskrá um Jón Helgason
2. mars 2010
Þriðjudaginn 2. mars var dagskrá í Bókasal um skáldið og fræðimanninn Jón Helgason. Dagskráin nefndist Í Árnasafni og var í umsjón Guðrúnar Ásmundsdóttur, leikkonu, sem einnig samdi efnið út frá góðum heimildum og heimildarmönnum. Guðrún var sögumaður og lesarar með henni voru Þorsteinn frá Hamri og Jón Júlíusson. Um tónlistarflutning sáu Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari, Pamela De Sensi flautuleikari og Ástríður Alda píanóleikari.
Dagskráin var haldin á vegum félagsstarfs Blindrafélagsins í samvinnu við Þjóðmenningarhúsið en var öllum opin og var ánægjulegt hversu margir höfðu áhuga á þessari skemmtilegu fléttudagskrá um mikinn fræðimann en ekki síður skáld og mannvin.
|
Samkoma í minningu Neil Bardals, ræðismanns
25. febrúar 2010
Fimmtudaginn 25. febrúar stóð Þjóðræknisfélag Íslendinga fyrir samkomu hér í Þjóðmenningarhúsinu til að minnast heiðursfélaga síns, Neils Ófeigs Bardal. Neil lést í Winnipeg eftir erfið veikindi hinn 13. febrúar. Hann var einn öflugasti baráttumaður fyrir auknum samskiptum milli Íslands og afkomenda íslenskra landnema í Norður Ameríku og naut mikillar virðingar fyrir störf sín í þessa þágu bæði vestan hafs og hér á landi.
Minningarorð fluttu Almar Grímsson, forseti Þjóðræknisfélagsins, Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, Guðrún Jónsdóttir, ættingi Neils Bardal og þeir Eiður S. Guðnason og Svavar Gestsson, fyrrv. ræðismenn Íslands í Winnipeg. Tónlist fluttu Hjörleifur Valsson, fiðluleikari, Elín Elísabet Einarsdóttir sem söng og lék á gítar, Elín Ósk Óskarsdóttir, söngkona og Hjörtur Ingvi Jóhannsson, píanóleikari.
Að dagskrá lokinni var viðstöddum boðið uppá kaffi og meðlæti.
|
Það sem hverfur
14. febrúar 2010
Ragnheiður Gröndal, Sigurður Flosason, Egill Ólafsson, Kjartan Valdemarsson og Matthías Hemstock komu fram í Þjóðmenningarhúsinu sunnudagskvöldið 14. febrúar. Þau fluttu nýja tónlist Sigurðar Flosasonar við eyðibýlaljóð Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar. Tónleikarnir voru haldnir í tilefni af útkomu geisladisksins Það sem hverfur og vetrarjazzi í Reykjavík. Geisladiskurinn kom út í nóvember og hlaut mjög góða dóma. Þetta er dramatísk tónlist þar sem jazz, popp, sígild tónlist og þjóðleg stef renna saman og skapa bræðing sem hæfir efninu vel. Ragnheiður Gröndal og Egill Ólafsson sungu, Sigurður Flosason lék á ýmis blásturshljóðfæri, Kjartan Valdemarsson spilaði á flygil og hljómborð og Matthías Hemstock sá um trommurnar, trommuheila og náttúruhljóð.
Tónleikarnir heppnuðust í alla staði vel og voru ágætlega sóttir.
|
Glæsileg Safnanótt í Þjóðmenningarhúsinu
12. febrúar 2010
Þjóðmenningarhúsið var opið á Safnanótt eins og önnur 35 söfn og sýningarstaðir í Reykjavík og nágrenni föstudagskvöldið 12. febrúar. Sýningar, veitingastofa og verslun voru opnar frá kl. 19 til 24 og gestum boðið að njóta og taka þátt í skemmtilegum uppákomum og viðburðum:
ÓÞEKKTUR HÖFUNDUR - í Bókasal.
Gestum Þjóðmenningarhússins gafst færi á að endurraða íslenskri hugsun liðinna alda að eigin skapi. Safnað hafði verið orðum úr hundruðum lausavísna óþekktra höfunda gestum til skapandi notkunar. Dagskrárgerð: Þorvaldur Þorsteinsson myndlistarmaður og rithöfundur.
ÍSLENDINGAR – er nýopnuð sýning þeirra Sigurgeirs Sigurjónssonar og Unnar Jökulsdóttur á ljósmyndum úr samnefndri bók. Unnur var á sýningunni um stund til skrafs um myndirnar og bókina. Tvær vinkonur hennar kíktu við og saman spiluðu þær nokkur lög á harmónikkurnar sínar.
ÍSLAND::KVIKMYNDIR - 11. skjárinn. Frumsýning.
Sýningin ÍSLAND::KVIKMYNDIR hefur verið framlengd til hausts. Á Safnanótt var 11. skjánum aukið við sýninguna. Þar eru sýnd valin brot úr kvikmyndunum The Good Heart, Sólskinsdreng, Sveitabrúðkaupi og Brúðgumanum. Á sýningunni var VÍNBAR og ýmsir úr kvikmyndageiranum litu inn. Í samstarfi við Kvikmyndamiðstöð Íslands.
ÓLÖF ARNALDS – sólótónleikar
Hin mæta söngkona, lagahöfundur og hljóðfæraleikari Ólöf Arnalds lék og söng fyrir gesti á tónleikum síðla kvölds og var vel fagnað í lok þeirra.
Safnanóttin í Þjóðmenningarhúsinu var hin ánægjulegasta og tókst með ágætum. Margir gesta létu í ljós þakklæti fyrir fjölbreytta dagskrá og greinilegt var að fólk á öllum aldri fann eitthvað við sitt hæfi. Margir gleymdu sér við orðapúsl í Bókasal eða við að hlýða á kunnugleg sönglög í harmónikkuútsetningu sem tríóið Dragspilsdrottningarnar lék inni á sýningunni Íslendingar. Þjóðmenningarhúsið var einn viðkomustaða í Safnanæturleiknum sem margir höfðu ánægju af að taka þátt í. Veitingastofan framreiddi góðgæti allt kvöldið og allir sýningarsalir auk fundarstofa voru opnir til miðnættis. Aðsókn var með besta móti miðað við fyrri Safnanætur en þessi var sú 5. í röðinni.
|
Tilnefningar til Edduverðlaunanna tilkynntar í Bókasal
5. febrúar 2010
Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían tilkynnti um tilnefningar til Edduverðlaunanna á blaðamannafundi hér í Þjóðmenningarhúsinu. Viðstaddir voru, auk blaðamanna, margir hinna útnefndu. Edduverðlaunin verða svo afhent í Háskólabíói 27. febrúar.
Sjá útnefningar hér>>.
|
Ljósmyndasýningin Íslendingar opnuð
2. febrúar 2010
Ljósmyndasýningin Íslendingar, með úrvali af myndum úr samnefndri bók eftir þau Unni Jökulsdóttur rithöfund og Sigurgeir Sigurjónsson ljósmyndara, var opnuð þriðjudaginn 2. febrúar. Markús Örn Antonsson forstöðumaður Þjóðmenningarhússins ávarpaði gesti við opnunina og það gerði einnig Unnur Jökulsdóttir sem útskýrði vinnuna og hugmyndina að baki bókinni og sýningunni. Bæði ræddu þau væntanlegar heimsóknir skólanema á sýninguna en leiðsögumaður Þjóðmenningarhússins hefur komið á samstarfi við Þjóðfræðistofu um nálgun nemenda á efni sýningarinnar. Hugmyndin er að hugleiðingar nemendanna nýtist í rannsókn Þjóðfræðistofu á mótun þjóðernisímynda og sjálfsmynda en stofan stefnir að sýningu og útgáfu bókar um efnið á næstu misserum.
Bókin Íslendingar kom út árið 2004 og var gefin út á fjórum tungumálum; íslensku, ensku, þýsku og frönsku. Hún hlaut afar góðar viðtökur bæði hér á landi sem og erlendis og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna sama ár.
Unnur og Sigurgeir einsettu sér að fanga þjóðarsálina í myndum og texta og fóru vítt og breitt um landið í tvö ár, heimsóttu fólk, spjölluðu við það og tóku myndir. Þau komust að því að í landinu búa tvær þjóðir, fólkið í borginni og fólkið úti á landi; fólkið sem býr á annesjum eða heiðabýlum, í afskekktum dölum og fáförnum fjörðum. Þetta fólk er fasttengt landinu og náttúrunni, umhverfið hefur mótað það og meitlað. Það var þetta fólk sem fangaði hug þeirra og varð þeirra viðfangsefni.
Sýningin stendur til 16. janúar 2011.
|
Tónleikar: Ólöf Arnalds frumflutti lög af væntanlegri plötu
23. janúar 2010
Laugardagskvöldið 23. janúar hélt söngkonan Ólöf Arnalds tónleika hér í Þjóðmenningarhúsinu. Hún frumflutti efni af væntanlegri plötu sinni; Innundir Skinni. Davíð Þór Jónsson lék með Ólöfu á tónleikunum en hann og Skúli Sverrisson sjá um hljóðfæraleikinn á Innundir Skinni ásamt Ólöfu og fleirum. Þetta voru einu tónleikar hennar til kynningar á nýju plötunni að sinni en stefnt er að því að platan komi út í vor.
Húsfyllir var á tónleikunum og andrúmsloftið bæði heimilislegt og hátíðlegt.
|
Úrslit teiknisamkeppni í tengslum við sýningarlok Að spyrja Náttúruna – saga Náttúrugripasafnsins
16. janúar 2010
Sýningin Að spyrja Náttúruna – saga Náttúrugripasafnsins hefur runnið sitt skeið á enda. Síðustu sýningarhelgina voru úrslit kynnt og verðlaun veitt í samkeppni Náttúrufræðistofnunar Íslands um bestu teikninguna af tígrisdýri. Alls hlutu átta börn viðurkenningu í tveimur aldursflokkum; 6 til 7 ára og 8 ára og eldri. Ísar Hugi Gestsson Fanndal fékk 1. verðlaun í yngri hópnum og 2. – 4. verðlaun hlutu Páll Rúnar Sigurðsson, Máni Hrafn Bergmann Maronsson og Eva Rut Ástþórsdóttir. Í eldri hópnum tók Kornelía Þöll Bjarnadóttir við 1. verðlaunum og 2. – 4. verðlaun fengu Arnar Sigurvinsson, Arnaldur Ólafsson og Ingólfur Geirdal. Vinningshafarnir mættu allir hingað í Þjóðmenningarhúsið ásamt aðstandendum sínum og veittu verðlaunum viðtöku úr hendi Birtu Bjargardóttur frá Náttúrufræðistofnun. Alls bárust 131 teikning í samkeppnina. Að athöfn lokinni þáðu viðstaddir veitingar í boði hússins.
Sýningin Að spyrja Náttúruna – saga Náttúrugripasafnsins reyndist sérlega skemmtileg fyrir leikskólanemendur og nemendur yngsta stigs grunnskóla sem flykktust á sýninguna í skipulögðum heimsóknum. Á þessum fáu mánuðum sem sýningin stóð yfir heimsóttu yfir 3.000 nemendur hana í fylgd kennara sinna og glímdu við nokkrar léttar rannsóknarspurningar um dýrin og teiknuðu uppáhaldsdýrið sitt. Allir vinningshafarnir í teiknisamkeppninni, utan einn, sáu sýninguna með bekknum sínum.
Sjá má vinningsmyndirnar á vef náttúrufræðistofnunar: http://www.ni.is/frettir/nr/1150
|
|