Kynningarmyndband um Þjóðmenningarhúsið á íslensku og ensku
21. desember 2011
Tímaritaútgáfan Land og saga, sem einnig gefur út efni á ensku undir merkjum Icelandic Times, hefur útbúið myndband til kynningar á Þjóðmenningarhúsinu. Myndbandið er vistað á YouTube ásamt fleiri kynningarmyndböndum sem fyrirtækið hefur gert um ýmsar menningarstofnanir. Til að horfa á myndböndin um Þjóðmenningarhúsið má smella hér fyrir íslensku útgáfuna: Þjóðmenningarhúsið – og hér fyrir kynningu á ensku: The Culture House.
|
Jólatónleikar hljómsveitarinnar ADHD
18. desember 2011
Hinir árlegu jólatónleikar hljómsveitarinnar ADHD í Þjóðmenningarhúsinu voru haldnir sunnudaginn 18. desember. Þetta var í þriðja sinn sem ADHD heldur tónleika í bókasal hússins á aðventunni og eru tónleikarnir orðnir ómissandi í aðdraganda jólanna fyrir aðdáendur hljómsveitarinnar og hljómsveitarliða sjálfa en þeir eru ekki af verri endanum: Óskar Guðjónsson á saxófón, Ómar Guðjónsson á gítar og bassa, Davíð Þór Jónsson á hljómborð og píanó og Magnús Trygvason Eliassen á trommur.
Hljómsveitin gaf út aðra hljómplötu sína í sumar og heitir hún einfaldlega ADHD2. Platan er á lista Kraums tónlistarsjóðs yfir bestu hljómplötur ársins 2011. |
Jólahátíð UNIMA: Brúðuleikhús og jólaball
17. desember 2011
Laugardaginn 17. desember héldu Samtök brúðuleikara á Íslandi (UNIMA) sína árlegu jólahátíð, og var hún að þessu sinni haldin til styrktar Fjölskylduhjálp Íslands og Mæðrastyrksnefnd.
Hátíðin fór fram í bókasal Þjóðmenningarhússins og hófst með brúðuleiksýningunni Vetrarævintýrið um selinn Snorra. Sýningin sú er fyrir börn á öllum aldri og hefur notið fádæma vinsælda. Sagan gerist langt norður í Íshafinu þar sem selurinn Snorri lendir í ýmsum ævintýrum á ísbreiðunni. Brúðustjórnendur eru Helga Steffensen og Gígja Hólmgeirsdóttir. Að sýningunni lokinni var slegið upp jólaballi þar sem jólasveinar skemmtu sér og börnunum og sungið var og dansað í kringum jólatré.
Veitingastofa hússins var opin á meðan á hátíðinni stóð og þar var gátu gestir keypt sér hressingu.
Miðaverð var 1.000 kr en fullorðnir í fylgd með börnum fengu frían aðgang.
Allur ágóði af jólahátíðinni rann til Fjölskylduhjálparinnar og Mæðrastyrksnefndar; listamennirnir tóku ekkert fyrir vinnu sína og Þjóðmenningarhúsið lét aðstöðu í té án endurgjalds.
|
Kertasníkir kemur - jólatónleikar The Heavy Experience, Sudden Weather Change og Muck
15. desember 2011
Hljómsveitirnar The Heavy Experience, Sudden Weather Change og Muck, sem allar gefa út tónlist sína undir merkjum Kimi records, héldu jólatónleika í bókasal Þjóðmenningarhússins fimmtudagskvöldið 15. desember.
Sudden Weather Change er fjögurra fjörugra drengja hljómsveit frá Reykjavík, hvers hljómur er hávær og ærslafullur. Rafgítarar í ellefu yfir mótórískum trumbuslætti. Eftir hljómsveitina liggja fjórar útgáfur en breiðskífan Stop! Handgrenade In The Name of Crib Death ‘nderstand? leit dagsins ljós árið 2009. Sama ár hlaut hljómsveitin nafnbótina „bjartasta vonin“ á Íslensku tónlistarverðlaununum. SWC er yfirhlaðin af nýju efni enda vinna þeir drengir hörðum höndum að breiðskífu númer tvö ásamt óhljóðaverkamanninum Ben Frost, en með honum hafa drengirnir áður gert fjögurra laga stuðskífuna Varrior.
MUCK skipa fjórar ungar og áhugasamar sálir um ómstríði og málmsmelli. Frá dagrenningu hljómsveitarinnar árið 2007 hafa drengirnir leitast við að hækka staðal öfgamúsíkur á Íslandi sem þeir hafa og gjört. Við sjóndeildarhringinn er útgáfa á öndvegisverkinu Slaves, breiðskífu sem beðið er eftir með eftirvæntingu.
Hljómsveitin The Heavy Experience leikur dýnamíska ókunngerða tónlist, nokkurs konar samruna saxófónsknúins niðs, kúrekatónlistar og árbakkablús. Guðdómlegur dómsdags blús! Hljómsveitin skartar fimm valinkunnum einstaklingum reykvísku grasrótarsenunnar. Með eina útgáfu að baki og eina undir belti hefur The Heavy Experience í hvívetna hlotið samróma vegsömun tónleikagesta, áheyrenda og fjölmiðla.
|
Utanríkisráðherrar Íslands og Palestínu í Þjóðmenningarhúsinu
15. desember 2011
Utanríkisráðherrar Íslands og Palestínu héldu sameiginlegan blaðamannafund í Þjóðmenningarhúsinu 15. desember þar sem tilkynnt var um formlega viðurkenningu Íslands á sjálfstæði og fullveldi Palestínu og um upptöku stjórnmálasambands milli ríkjanna. Fundurinn var öllum opin og nokkur fjöldi fólks var viðstaddur til að fagna þessum tímamótum.
Dr. Riad Malki utanríkisráðherra Palestínu og fylgdarlið hans kom í stutta opinbera heimsókn til Íslands 14. desember. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra funduðu með Dr. Malki m.a. um samskipti Íslands og Palestínu, efnahagsuppbyggingu í Palestínu og leiðir til þess að endurvekja friðarferlið fyrir botni Miðjarðarhafs. Eins ræddu ráðherrarnir umsókn Palestínu um aðild að Sameinuðu Þjóðunum og yfirlýstan stuðning Íslands við hana.
|
Vetrartónleikar tónlistardeildar Listaháskóla Íslands 2011
1. - 15. desember 2011
Tónlistardeild Listaháskólans hélt sína árlegu vetrartónleika dagana 1. - 15. desember. Alls voru 11 tónleikar á dagskrá, flestir hér í Þjómenningarhúsinu en einnig voru tónleikar í Sölvhóli, tónleikasal Listaháskólans við Sölvhólsgötu.
Tónleikarnir voru próf nemenda sem stunda nám í hljóðfæraleik eða söng og var efnisskrá þeirra afar fjölbreytt. Fram komu alls 36 nemendur af öllum námsárum og fluttu um 20 mínútna langa efnisskrá hver, en tveir til fimm nemendur komu fram á hverjum tónleikum.
Aðgangur var ókeypis og allir hjartanlega velkomnir. Tónleikarnir voru jafnframt í beinni útsendingu á vef Listaháskólans.
|
150 ár frá fæðingu Hannesar Hafstein: dagskrá í Bókasal
4. desember 2011
Í tilefni af því að sunnudaginn 4. desember voru liðin 150 ár frá fæðingu Hannesar Hafstein, ráðherra, var efnt til athafnar til að minnast hans hér í Þjóðmenningarhúsinu þann dag.
Dagskráin hófst með ávarpi forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur. Tónlistarflutningur var í höndum nema í Listaháskóla Íslands sem fluttu lög við ljóð eftir Hannes Hafstein. Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur, flutti erindi um Hannes og Arnar Jónsson, leikari, flutti ljóð eftir hann. Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur, steig í pontu og fjallaði um skáldið Hannes Hafstein.
Kynnir var Þórunn Clausen, leikkona.
Athöfnin var öllum opin.
|
Útgáfutónleikar: Kristjana Stefáns og Svavar Knútur
2. desember 2011
Söngkonan Kristjana Stefáns og söngvaskáldið Svavar Knútur héldu útgáfutónleika í Þjóðmenningarhúsinu föstudagskvöldið 2. desember í tilefni af því að hljómplata þeirra; Glæður, er komin út. Á plötunni er að finna fjórtán hugljúf lög, þar af þrjú frumsamin, en platan varð til upp úr samstarfi þessa músíkalska pars, sem undanfarin ár hefur haldið fjölda dúettatónleika við sívaxandi vinsældir. Til helstu perla sem skreyta Glæður má nefna hin sígildu íslensku sönglög Við gengum tvö, Í dag skein sól og Enn syngur vornóttin, en til alþjóðlegra stórsmella má nefna Abbalögin One of us og When all is said and done, auk hins sígilda lags hljómsveitarinnar Styx, Boat on the river.
Það er útgáfufyrirtækið Dimma sem gefur plötuna út.
|
Edda Heiðrún Backman sýnir í myndlistarsýningaröð í verslun og veitingastofu
1. desember 2011
Edda Heiðrún Backman er löngu landsþekkt leikkona og leikstjóri. Síðla árs 2008 ákvað hún að takast á við nýja listgrein og hóf að mála með pensil í munni af miklum áhuga og vaxandi listfengi. Á sýningunni hér í Þjóðmenningarhúsinu eru olíu- og vatnslitaverk eftir Eddu Heiðrúnu en hún hefur einnig spreytt sig á málun á gler og keramik. Verkin málar hún yfirleitt í MS-Setrinu og á Endurhæfingardeildinni á Grensási.
Fuglar hafa alltaf verið Eddu Heiðrúnu hugleiknir. Þeir eru hluti sköpunarverksins alls, en ekki síst himinsins, og þeir eru táknmynd frelsis og sjálfstæðis. Fuglar hafa sannarlega verið efniviður í myndlist og í bókmenntum allt frá því að maðurinn hóf að tjá sig í list sinni. Á sýningu Eddu Heiðrúnar hér í Þjóðmenningarhúsinu er spóinn í aðalhlutverki. Með sinn bogna gogg, langa háls og „spóaleggi“ birtist hann Eddu Heiðrúnu jafnvel í draumi sem köflótt vera sem hún hefur túlkað í myndinni Leikur í draumi. Á mörgum öðrum myndum sýnir hún umhyggju móðurinnar sem vaktar eggin sín og vakir yfir og kennir ungunum. Skopskynið kemur líka víða fram í vatnslitamyndum Eddu og þar ýtir miðillinn sjálfur undir hið óvænta og sjálfsprottna í myndunum. Ein myndanna sýnir þannig skarfa sem virðast syngja saman í kór og önnur sýnir spóa sem virðist njóta sín vel sem leikari á sviði.
Andspænis þessum verkum gleymir áhorfandinn því að listamaðurinn málaði þau með pensil í munni. Þau eru sannarlega vitnisburður um hæfileika Eddu Heiðrúnar, þrautseigju og sköpunarkraft.
Haustið 2009 hlaut Edda Heiðrún inngöngu í hin alþjóðlegu samtök The Association of Mouth and Foot Painters. Leiðbeinandi hennar og aðstoðarmaður við listmálun er Derek K. Mundell.
Sýningin var opnuð 1. desember. Nefnist hún Spóinn og stendur til 29. febrúar 2012. Enginn aðgangseyrir er að sýningunni og verkin eru til sölu. |
Tónleikar kammerhópsins Nordic Affect – Inn í ítalska stofu
27. nóvember 2011
„Inn í ítalska stofu“ var yfirskrift tónleika kammerhópsins Nordic Affect sem fram fóru í Bókasal Þjóðmenningarhússins 27. nóvember síðastliðinn. Á tónleikunum fluttu þær Halla Steinunn Stefánsdóttir, barokkfiðluleikari, og Guðrún Óskarsdóttir, semballeikari, verk eftir ítölsk barokktónskáld. Jafnframt beindi Halla Steinunn, sem er þáttastjórnandi Girnis, grúsks og gloría á Rás 1, kastaranum að akademíuhefð Ítalíu á barokktímanum. Á tónleikunum var því haldið þvers og kruss um Ítalíu, eða frá Bologna til Rómar, og tónskáldin sem áttu nótur á statívinu voru Corelli, Uccellini, Bertali, Händel, Vitali og Scarlatti.
Þetta voru síðustu tónleikar Nordic Affect á árinu 2011 en þess má geta að hópurinn hefur undirritað útgáfusamning við hollenska útgáfufyritækið Brilliant Classics sem mun í upphafi 2012 gefa út geisladisk með Nordic Affect með verkum eftir þýska tónskáldið Abel.
|
Lofað öll fögru tónleikaröðin: Gítartríó
27. nóvember 2011
Þriðju tónleikarnir í tónleikaröðinni Lofað öllu fögru sem fram fer í Þjóðmenningarhúsinu voru sunnudaginn 27. nóvember. Þá fluttu Þórarinn Sigurbergsson, Þröstur Þorbjörnsson og Svanur Vilbergsson verk fyrir þrjá klassíska gítara. Á efnisskránni voru meðal annars Four Moods eftir S. Rak, Rondo eftir P. Hindemith, Konsert í G dúr eftir A. Vivaldi og Fandango eftir L. Boccherini.
|
Nemendatónleikar Tónlistarskólans í Reykjavík - kammertónlist
26. nóvember 2011
Nemendur í Tónlistarskólanum í Reykjavík fluttu kammertónlist frá klassíska tímabilinu í Bókasal Þjóðmenningarhússins laugardaginn 26. nóvember. Meðal verka var strengjakvartett eftir Beethoven, píanókvintett eftir Mozart og sönglög með gítarundirleik eftir Carl Maria von Weber.
Tónlistarskólinn í Reykjavík bauð til sannkallaðrar kammertónlistarveislu en enginn aðgangseyrir var að tónleikunum og allir velkomnir.
|
Heimilisfriður – heimsfriður – Ljósaganga UN Women á Íslandi
25. nóvember 2011
Tuttugasti og fimmti nóvember er alþjóðlegur baráttudagur Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundu ofbeldi. Ljósaganga UN Women er orðin fastur liður á þessum degi en hann
markar jafnframt upphaf hins alþjóðlega 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi sem UN Women á Íslandi, ásamt öðrum félagasamtökum, eru í forsvari fyrir hér á landi.
Yfirskrift Ljósagöngunnar þetta árið var Heimilisfriður – heimsfriður og hófst hún að vanda við Þjóðmenningarhúsið. Gengið var saman að Sólfarinu við Sæbraut. Sérstakir ljósberar, tónlist, friðarsúlan og samhugur einkenndu gönguna líkt og undanfarin ár.
Ljósmynd frá UN Women á Íslandi (www.unwomen.is)
|
Viðurkenning Barnaheilla afhent í Bókasal
21. nóvember 2011
Barnaheill - Save the Children á Íslandi veita árlega viðurkenningu fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra í tengslum við afmæli barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þann 20. nóvember. Viðurkenningin er afhent til að vekja athygli á barnasáttmálanum og mikilvægi þess að íslenskt samfélag standi vörð um mannréttindi barna. Barnasáttmálinn er leiðarljós í öllu starfi samtakanna.
Í ár hlaut Herdís L. Storgaard viðurkenninguna. Hún hefur um árabil verið óstöðvandi í baráttu sinni fyrir bættum slysavörnum, ekki síst í þágu barna. Starf hennar hefur einkennst af stöðugri baráttu við að ná eyrum ráðamanna og annarra um mikilvægi slysavarna og staðfesta Herdísar hefur sannarlega skilað árangri. Á síðastliðnum tuttugu árum hefur slysum á börnum fækkað um helming, dauðaslysum á börnum hefur fækkað um 65% á tímabilinu, sem fyrst og fremst má þakka fækkun drukknuna hér á landi, og hugsunarháttur er gjörbreyttur.
Helgi Ágústsson, formaður Barnaheilla – Save the Children á Íslandi, og Vigdís Finnbogadóttir, fv. forseti Íslands, fluttu ávarp og Herdís ávarpaði samkomuna. Stefán Sverrisson, nemi í Lindaskóla afhenti viðurkenninguna ásamt Helga. Jóhanna Brynja Ruminy og María Emilía Garðarsdóttir, nemendur frá Tónskóla Sigursveins léku á fiðlu við undirleik Júlíönu Rúnar Indriðadóttur. Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri samtakanna stýrði athöfninni.
Ljósmynd: f. v.: Vigdís Finnbogadóttir, Herdís L. Storgaard, Petrína Ásgeirsdóttir og Helgi Ágústsson. Ljósmyndari Arnaldur Halldórsson.
|
Jónasarvaka 2011:
Grunnskólabörn lásu sjálfvalin ljóð Jónasar
16. nóvember 2011
Árleg Jónasarvaka var haldin í Bókasal Þjóðmenningarhússins á Degi íslenskrar tungu, miðvikudaginn 16. nóvember kl. 17.15. Að vökunni stóðu Menningarfélagið Hraun í Öxnadal og Þjóðmenningarhúsið.
Að þessu sinni var dagskráin unnin í samvinnu við grunnskóla en börn úr 11 skólum stigu á stokk og lásu sjálfvalin ljóð eftir Jónas Hallgrímsson og gerðu grein fyrir vali sínu og kynnum af Jónasi. Einar Clausen, tenór, söng lög við ljóð Jónasar við undirleik Skarphéðins Þórs Hjartarsonar. Markús Örn Antonsson, forstöðumaður Þjóðmenningarhússins, setti vökuna og bauð gesti velkomna og Tryggvi Gíslason, formaður Menningarfélagsins Hrauns í Öxnadal, kynnti.
Dagskráin var hin ánægjulegasta fyrir þátttakendur jafnt sem aðra viðstadda og fengu börnin kver um Jónas Hallgrímsson sem þakklætisvott fyrir þeirra framlag.
|
Einu sinni var... – barokktónleikar Nordic Affect
30. október 2011
Frönsk barokktónlist ómaði og stungið var inn nefi í einkasamkvæmi Parísarborgar á tónleikum Nordic Affect þann 30.október. Undir yfirskriftinni „Einu sinni var…“ lék hópurinn tónlist eftir m.a. gömbusnillinginn Marais, fiðluleikarann, dansarann og knipplingagerðarmanninn Leclair og einn helsta risa fransks tónlistarlífs á 18.öld, hann Rameau. Við tónlistina var fléttað frásögnum af salonhefð Frakklands á 17. og 18. öld.
Flytjendur á tónleikunum voru þrír meðlimir hópsins; þær Halla Steinunn Stefánsdóttir, fiðluleikari, Hanna Loftsdóttir, gömbuleikari, og Guðrún Óskarsdóttir sem lék á sembal. Um frásögn sá Halla Steinunn sem hefur haft umsjón með þáttunum Girni, grúsk og gloríur á Rás 1. Hópurinn er nýkominn úr tónleikaferð til Kaupmannahafnar þar sem hann lék innan Early Monday tónleikaraðarinnar.
Kammerhópurinn Nordic Affect hefur verið starfræktur frá árinu 2005 og komið fram innan veggja Þjóðmenningarhússins frá árinu 2007. Hópurinn er styrktur af Tónlistarsjóði menntamálaráðuneytisins og Menningarsjóði Reykjavíkurborgar. Eru þetta fyrri hausttónleikar hópsins af tvennum í Bókasal Þjóðmenningarhússins en í lok nóvember verður það ítölsk barokktónlist og akademíur þar í landi sem ráða för. |
Tónleikaröðin Lofað öllu fögru hélt áfram göngu sinni
30. október 2011
Aðrir tónleikarnir í tónleikaröðinni Lofað öllu fögru, sem fram fer hér í Þjóðmenningarhúsinu, voru haldnir sunnudaginn 30. október. Þá flutti klassíski gítarleikarinn Svanur Vilbergsson flytja tónlist af væntanlegum diski sínum Four Works, þar á meðal Sónötu eftir Antonio José og Tilbrigði eftir Giulio Regondi.
Svanur hefur haldið einleikstónleika víða um heim, m.a. í Bandaríkjunum, Hollandi, Spáni, Englandi, Belgíu og Írlandi. Honum er reglulega boðið að spila í Casa Eulalia tónleikaröðinni á Mallorca og á nútímatónlistarhátíðinni Klanken Festival í Maastricht. Nýverið frumflutti hann tónverk eftir spænska tónskáldið Mateau Malondra Flaquer sem er sérstaklega tileinkað Svani. Hann hefur komið fram í sjónvarpi í Bandaríkjunum og á Spáni og var valinn fyrir Íslands hönd til þátttöku í norsk-íslenska menningarverkefninu Golfstraumurinn. |
Tónlist eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson
29. október 2011
Sveinbjörn Sveinbjörnsson (1847-1927) var fyrsta tónskáld okkar Íslendinga. Laugardaginn 29. október hélt Tónlistarskólinn í Reykjavík tónleika með verkum hans hér í Þjóðmenningarhúsinu. Á dagskrá voru verk af ýmsum toga; þjóðlagaútsetningar, einleiksverk, kammerverk og sönglög. Allir flytjendur voru nemendur við Tónlistarskólann í Reykjavík. Að auki flutti dr. Bjarki Sveinbjörnsson stutt erindi um Sveinbjörn og tónlist hans.
Aðgangur var ókeypis og öllum heimill.
|
Tónleikaröðin Lofað öllu fögru hafin
25. september 2011
Þann 25. september hófst ný tónleikaröð í Þjóðmenningarhúsinu undir yfirskriftinni Lofað öllu fögru. Tónleikaröðin telur ferna tónleika sem eiga það allir sameiginlegt að innihalda tónlist skrifaða fyrir klassískan gítar, sem einleikshljóðfæri og í samspili við aðra. Listrænn stjórnandi er Svanur Vilbergsson gítarleikari en auk hans koma fram Karen Erla Karólínudóttir á flautu, Þórarinn Sigurbergsson og Þröstur Þorbjörnsson á gítar og Erla Dóra Vogler mezzosópran.
Á efnisskrá tónleikanna verður að finna mikið af suðrænni tónlist og þá sérstaklega frá Spáni. Meðal verka eru sönglögin Siete Canciones eftir Manuel de Falla, Histoire du tango eftir Astor Piazzolla fyrir flautu og gítar og Baiao de Gude eftir Bellinati fyrir gítartríó.
Fyrstu tónleikarnir voru haldnir sunnudaginn 25. september en þá fluttu Karen Erla Karólínudóttir og Svanur Vilbergsson tónlist eftir Poulenc, Ibert, Bartók og Piazzolla.
Sjá nánar á facebook: Lofað öllu fögru |
Kvartett Sunnu Gunnlaugs lék á tónleikum
16. september 2011
Jazzpíanistinn Sunna Gunnlaugs hitaði upp fyrir tónleikaför til Þýskalands og Austurríkis með tónleikum í Þjóðmenningarhúsinu föstudaginn 16. september. Með henni léku Óskar Guðjónsson á saxófón, Þorgrímur Jónsson á bassa og Scott McLemore á trommur.
Kvartettinn lék lög af síðasta diski Sunnu, The Dream, í bland við íslensk lög og eldri tónsmíðar Sunnu.
|
Ráðstefna um fjármálalæsi
9. september 2011
Stofnun um fjármálalæsi, ásamt efnahags- og viðskiptaráðuneyti, Samtökum atvinnulífsins og Samtökum iðnaðarins hélt ráðstefnu um fjármálalæsi í Þjóðmenningarhúsinu þann 9. september.
Ráðstefnunni var ætlað að stuðla að átaki um að bæta fjármálavitund í samfélaginu og finna leiðir sem best eru til þess fallnar að efla fjármálalæsi á Íslandi. Á meðal fyrirlesara var dr. Adele Atkinson, einn helsti sérfræðingur heims um fjármálalæsi, en hún vinnur við rannsóknir og stefnumótun á fjármálalæsi hjá OECD.
Mælendaskrá og efni fyrirlestra var á þessa leið:
Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, setti ráðstefnuna
Adele Atkinson, fjármálalæsissérfræðingur OECD: „Fjármálalæsi í heiminum“
Breki Karlsson, forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi: „Fjármálalæsi Íslendinga“
Stefán Jóhann Stefánsson, upplýsingafulltrúi Seðlabanka Íslands: „Fjármálalæsi og hagstjórn“
Þuríður Hjartardóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna: „Fá neytendur hlutlausar upplýsingar um fjármál?“
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins: „Atvinnulífið og fjármálalæsi“
Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja: „Góðar upplýsingar forsenda góðra ákvarðana“
Róbert R. Spanó, prófessor, forseti lagadeildar Háskóla Íslands: „Skýr lög sem forsenda upplýstra ákvarðana“
Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins: „Hvernig verða verðmæti til?“
Stefán Einar Stefánsson, formaður VR: „Fjármálalæsi og stéttarfélög“
Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða: „Lífeyrissparnaður – fyrirhyggja til efri ára“
Gylfi Magnússon, dósent í viðskiptafræðideild Háskóla Íslands: „Er hagkerfið ofar okkar skilningi?”
Kristján Ólafur Jóhannesson, forstöðumaður á lánasviði Fjármálaeftirlitsins: „Hæfniskröfur til stjórnenda fjármálafyrirtækja“
Fundarstjóri var Guðmundur Gunnarsson dagskrárgerðarmaður
Aðgangur var ókeypis og öllum opinn.
|
Lókal leiklistarhátíðin: Svörður fyrir Sálina eftir Aude Busson
4. september 2011
Sýningin Svörður fyrir Sálina eftir Aude Busson, sem var lokaverkefni hennar í Fræði og framkvæmd við Listaháskóla Íslands í vor, var sýnt á Lókal leiklistarhátíðinni í flokknum „Up and Coming” og fór sýningin fram í Bókasal Þjóðmenningarhússins. Verkið fjallar um tengsl einstaklingsins við hugtakið „heima” og hvötina að skapa sér þjóð og þjóðarímynd.
Ættjarðarást -
gef ekkert fyrir svoleiðis fínt kjaftæði
sagði sjómaðurinn ungi
og hellti í glasið…
(Vilborg Dagbjartsdóttir)
Höfundur og leikstjóri: Aude Busson. Aðstoðarleikstjóri: Viktoría Birgisdóttir.
Flytjendur: Anna Kolfinna Kuran, Gígja Jónsdóttir, Theódór Sölvi Thomasson, Þorleifur Einarsson og Þór Birgisson. Hljómsveit: Andri Freyr Hilmarsson, Ási Þórðarson, Georg Kári Hilmarsson, Guðný Valborg Guðmundsdóttir, Markús Bjarnason og Marteinn Sindri Jónsson. Búningahönnuður: Judith Amalía Jóhannsdóttir. Myndbandshönnuður: Emma Lindhal. Tónlist: Georg Kári Hilmarsson. Þýðendur: Helgi Sæmundur Helgason, Hinrik Þór Svavarsson, Kári Páll Óskarsson og Sigríður Jónsdóttir.
Verkið byggir Aude á Elektru eftir Euripides í þýðingu Helga Hálfdanarsonar, Vorher/Nachher eftir Roland Schimmelpfennig og á textum eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur, Benedict Anderson og Ernest Renan.
|
Kammertónleikar Kammertríós Kópavogs
31. ágúst 2011
Miðvikudaginn 31. ágúst voru haldnir kammertónleikar í Bókasal Þjóðmenningarhússins. Þar kom fram Kammertríó Kópavogs, sem er skipað þeim Martial Nardeau flautuleikara, Guðrúnu Birgisdóttur flautuleikara og Peter Máté píanóleikara, en þremenningarnir hafa starfað saman um árabil.
Á efnisskrá þeirra fyrir hlé voru tvö lífleg ensk tríó frá 19. öld eftir Samuel Wesley og John Clinton. Verkin gaf Kammertríóið út á hljómdisknum Tapað – fundið árið 2010.
Eftir hlé léku þau íslenska tónlist á léttum nótum og sóttu í þjóðararfinn: Hugleiðingu um íslenskt þjóðlag eftir Tryggva Baldvinsson, fimm íslensk þjóðlög í útsetningu Snorra Sigfúsar Birgissonar og lög eftir Emil Thoroddsen og Sigfús Halldórsson í útsetningum Atla Heimis Sveinssonar. Auk þess léku þau verkið Dropaspil eftir Þorkel Sigurbjörnsson.
Tónleikarnir voru vel sóttir og léttir og skemmtilegir að sögn viðstaddra.
|
Skúli Sverrisson / Secret Swing Society og Djangojazztríóið ásamt Sigríði Thorlacius
27. og 28. ágúst 2011
Tvennir tónleikar voru á dagskrá Jazzhátíðar í Reykjavík í Bókasal helgina 27. – 28. ágúst. Hinn virti og reyndi tónlistarmaður og tónskáld, Skúli Sverrisson, lék á einleikstónleikum á laugardeginum og daginn eftir spiluðu tvö eðalsveiflubönd, Secret Swing Society og Djangojazztríóið, tónlist eftir Duke Ellington, Django Reinhardt o.fl. Bæði nutu þau fulltingis Sigríðar Thorlacius, söngkonu.
|
Forseti Litháens í opinberri heimsókn – hringborðsumræður í Bókasal og handritasýningin skoðuð
26. ágúst 2011
Forseti Litháens, dr. Dalia Grybauskaitė, var í opinberri heimsókn hér á landi frá 25. til 27. ágúst. Á öðrum degi heimsóknarinnar voru liðin nákvæmlega 20 ár frá því að Íslendingar urðu fyrstir þjóða til að viðurkenna fullt sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna þriggja. Í heimsókn forseta Litháens var þeirra tímamóta minnst með ýmsum hætti, m.a. með sérstakri athöfn í Höfða að morgni föstudagsins 26. ágúst en þar undirrituðu utanríkisráðherrar Eystrasaltsríkjanna og Íslands samkomulag þessa efnis 26. ágúst 1991.
Síðar sama dag flutti forseti Litháens inngangserindi að hringborðsumræðum sem fram fóru hér í Þjóðmenningarhúsinu. Þátttakendur í umræðunum voru m.a. þingmenn, embættismenn, háskólafólk, fulltrúar félagasamtaka og fjölmiðla. Umræðunum stýrði Þóra Arnórsdóttir fréttamaður. Markús Örn Antonsson, forstöðumaður Þjóðmenningarhússins, tók á móti forsetanum við komuna í húsið.
Eftir hringborðsumræðurnar skoðuðu forseti Litháens og fylgdarlið handritasýninguna í Þjóðmenningarhúsinu undir leiðsögn Sigurgeirs Steingrímssonar fræðimanns á Árnastofnun. Í fylgdarliði forseta Litháens var Audronius Ažubalis, utanríkisráðherra landsins, auk embættismanna frá embætti forseta og utanríkisráðuneyti Litháens.
|
Dúett - Óskar Guðjónsson og Skúli Sverrisson
25. ágúst 2011
Turnarnir tveir í íslenskri spunatónlist; Óskar Guðjónsson, saxófónleikari, og Skúli Sverrisson, bassaleikari, fögnuðu útkomu nýrrar plötu með tónleikum í Þjóðmenningarhúsinu fimmtudagskvöldið 25. ágúst. Samvinna þeirra tveggja hefur áður gefið af sér hinn eftirminnilega geisladisk Eftir þögn sem kom út árið 2002.
Tónleikarnir voru hluti Jazzhátíðar Reykjavíkur, sem stendur til 3. september.
|
Gullaldarjazz með söngkonunni Ragnheiði Gröndal og Ylfingunum
21. ágúst 2011
Jazzhátíð Reykjavíkur 2011 fer fram á nokkrum tónleikastöðum, meðal annars Þjóðmenningarhúsinu. Hátíðin var sett á útisviði við Hörpu á Menningarnótt og fyrstu tónleikarnir hér í Bókasal voru haldnir daginn eftir. Þá steig hin fjölhæfa söngkona Ragnheiður Gröndal á stokk en hún hefur sungið sig inn í hug hjörtu þjóðarinnar með ýmis konar tónlist sem m.a. hefur verið gefin út á 6 sólóplötum söngkonunnar. Með henni lék jazzhljómsveitin Ylfingarnir, leidd af saxófónleikaranum Hauki Gröndal. Í júní vöktu tónleikar hljómsveitarinnar á Jazzhátíð Egilsstaða athygli og var góður rómur gerður að flutningi þeirra á jazz- og dægurlögum frá 3., 4. og 5. áratug síðustu aldar, en efnisskrá tónleikanna saman stóð einmitt af ýmsum lagasmíðum gullaldarinnar. Með Ragnheiði og Hauki léku Ásgeir Ásgeirsson á gítar, Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Pétur Grétarsson á trommur.
|
Verk Ragnhildar Jóhanns á nýrri sýningu í myndlistarsýningaröð hússins
20. ágúst 2011
Ragnhildur Jóhanns, myndlistarkona, sýnir ný verk í bland við eldri verk á nýrri sýningu í myndlistarsýningaröð í verslun og veitingastofu Þjóðmenningarhússins. Ragnhildur útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2010 og hefur vakið athygli fyrir verk sín unnin úr gömlum textum og ljóðabókum. Í þeim fléttast saman myndlist, bókmenntir og ljóðlist á nýstárlegan hátt.
Sýningin nefnist Orðabelgur og var opnuð á Menningarnótt og mun standa fram í nóvember. Hún er opin daglega frá kl. 11 til 17. Verkin eru til sölu.
Nánari upplýsingar um listakonuna eru á slóðinni: http://ragga.carbonmade.com/
|
Menningarnótt 2011
20. ágúst 2011
Þjóðmenningarhúsið var opið frá morgni og fram á kvöld á menningarnótt. Fjölbreyttar sýningar um list og menningu stóðu opnar. Barnafjölskyldur voru sérstaklega boðnar velkomnar á sýningarnar. Í boði var leiðsögn fyrir börn um sýninguna Óskabarn – æskan og Jón Sigurðsson, einnig skemmtilegt viðfangsefni fyrir börn á sýningunni Þúsund ár og handrit með sögum af skrímslum úr goðafræðinni og fleiru áhugaverðu fyrir fjölskyldur sem fræðast vildu um handritin. Ný myndlistarsýning var opnuð í verslun og veitingastofu hússins. Ragnhildur Jóhanns sýnir þar ný verk í bland við eldri undir titlinum Orðabelgur. Ennfremur kom blaðamaðurinn og rithöfundurinn Þorgrímur Gestsson í húsið og las upp úr Maður lifandi, nýendurútgefinni bók eftir föður sinn; Gest Þorgrímsson. Aðrar sýningar voru opnar, auk fundarstofa í vesturálmu sem jafnan eru fráteknar fyrir útleigu. Veitingastofan bauð uppá vöfflukaffi og létta rétti.
Stöðugur straumur fólks var í húsið, einkum síðdegis, og hafa jafnmargir ekki heimsótt Þjóðmenningarhúsið áður á einum degi. Erlendir ferðamenn nýttu sér leiðsögn um handritasýninguna á ensku en langflestir gestanna voru íslendingar á öllum aldri, ákveðnir í að njóta gestristni menningarstofnanna, listhópa og einstaklinga í miðbænum á þessum einstaka hátíðardegi; Menningarnótt. Þjóðmenningarhúsið þakkar fyrir komuna!
|
Íslenski safnadagurinn sunnudaginn 10. júlí
10. júlí 2011
Þjóðmenningarhúsið tók þátt í íslenska safnadeginum sem haldinn er annan sunnudag í júlí ár hvert. Slagorð dagsins er: fyrir fjölskylduna!
Markmiðið með íslenska safnadeginum er að vekja fólk til vitundar um mikilvægi faglegrar varðveislu og miðlunar hinna sameiginlegu verðmæta þjóðarinnar og jafnframt um þá einstöku leið til lifandi þekkingaröflunar og afþreyingar sem stofnanir í safnastarfi bjóða jafnt börnum sem fullorðnum.
Þjóðmenningarhúsið bauð fjölskyldum að uppgötva saman áhugaverðar hliðar á efni yfirstandandi sýninga með hjálp leiðsagnarhandrita, umhugsunarefnis eða þráða sem hægt er að rekja sig eftir í gegnum sýningarnar:
Þúsund ár – ný yfirlitssýning um íslenska myndlist, 1. áfangi - 19. öld til nútímans:
Nokkrir náttúruþræðir raktir um sýninguna.
Óskabarn- æskan og Jón Sigurðsson. Óskastund á sýningunni Óskabarn: Jón Sigurðsson barðist fyrir sjálfstæði Íslands og betra samfélagi. Hvað finnst þér mikilvægt að einkenni samfélagið okkar í framtíðinni?
Handritin – saga handrita og hlutverk um aldir. Leiðsagnarhandrit fyrir fjölskyldur með sögum af skrímslunum Fáfni og Miðgarðsormi. Finnið myndirnar.
Aðsókn var framar björtustu vonum þennan góðviðrisdag en hátt í 300 gestir komu á sýningarnar.
|
Zen samræður
30. júní 2011
Fimmtudaginn 30. júní kom Zen meistarinn Jakusho Kwong-roshi í Þjóðmenningarhúsið í fylgd Fríðu Bjarkar Ingvarsdóttur, bókmenntafræðings, og Andra Fannars Ottóssonar, zen-nemanda, til þess að ræða um lífið og tilveruna á opinni samkomu. Stundin var tileinkuð minningu Óskars Daian Ingólfssonar.
|
Þúsund ár – fyrsti áfangi; sýningin opnuð
22. júní 2011
Fyrsti áfangi sýningarinnar Þúsund ár var opnaður með viðhöfn miðvikudaginn 22. júní. Markús Örn Antonsson, forstöðumaður Þjóðmenningarhússins, ávarpaði gesti og greindi frá þeim breytingum sem nú verða á starfsemi í Þjóðmenningarhúsinu með nýrri grunnsýningu um þróun íslenskar myndlistar. Sýningin mun á komandi árum teygja sig um öll sýningarými í húsinu sem þá mun festa sig í sessi sem aðsetur yfirgripsmikillar yfirlitssýningar um myndlist í landinu allt frá myndlýsingum í handritum til samtímalistar. Halldór Björn Runólfsson, forstöðumaður Listasafns Íslands, og formaður sýningarnefndar steig því næst í pontu og kynnti hina nýju sýningu fyrir viðstöddum. Hann bindur vonir við að sýningin muni skýra og skerpa á almennri þekkingu á sögu myndlistariðkunar á Íslandi í gegnum liðið árþúsund.
Í þessum fyrsta áfanga sýningarinnar eru sýnd fjölbreytt verk úr safneign Listasafns Íslands frá 19. öld til nútímans, svo sem valin landslagsmálverk brautryðjendanna, abstraktmálverk og skúlptúrar frá miðri 20. öld og samtímalist í öllum sínum fjölbreytileika. Verkin bera með sér að landslagið og hið þjóðlega er áberandi í íslenskri myndlist þó að alþjóðlegir straumar setji svip sinn á verkin. Í síðari áföngum munu Þjóðminjasafn Íslands og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum koma að henni með verkum úr sinni vörslu.
Sýningin, eins og aðrar sýningar í húsinu, er opin frá kl. 11 til 17 dag hvern.
|
Tangókaffihús og Milonga að kvöldi þjóðhátíðardagsins
17. júní 2011
Tangóævintýrafélagið bauð upp á tangókaffihús í Þjóðmenningarhúsinu á 17. júní. Leikin var argentísk tangótónlist af diskum og hljómsveitin Fimm í tangó kynnti geisladisk sinn. Auk þess var tangóhreyfimyndum varpað á vegg og dansað. Síðar um kvöldið var haldið Milonga með tangóparinu Matias Facio og Claudia Rogowski. Þau sýndu tangó og slegið var upp dansleik.
Heimasíðu Tangóævintýrafélagsins er á þessari slóð: www.tangoadventure.com
Að venju voru sýningar í Þjóðmenningarhúsinu opnar á 17. júní og ókeypis aðgangur í tilefni dagsins.
|
Lokaverkefni frá Listaháskólanum: Svörður fyrir Sálina
22., 23. og 26. maí 2011
Leikverkið Svörður fyrir Sálina eftir Aude Busson var sýnt á þremur sýningum sem opnar voru almenningi hér í Þjóðmenningarhúsinu. Verkið var lokaverkefni hennar í Fræði og framkvæmd við Listaháskóla Íslands. Það fjallar um tengsl einstaklingsins við hugtakið „heima” og hvötina að skapa sér þjóð og þjóðarímynd.
Ættjarðarást -
gef ekkert fyrir svoleiðis fínt kjaftæði
sagði sjómaðurinn ungi
og hellti í glasið…
(Vilborg Dagbjartsdóttir)
Höfundur og leikstjóri: Aude Busson. Aðstoðarleikstjóri: Viktoría Birgisdóttir.
Flytjendur: Anna Kolfinna Kuran, Gígja Jónsdóttir, Theódór Sölvi Thomasson, Þorleifur Einarsson og Þór Birgisson. Hljómsveit: Andri Freyr Hilmarsson, Ási Þórðarson, Georg Kári Hilmarsson, Guðný Valborg Guðmundsdóttir, Markús Bjarnason og Marteinn Sindri Jónsson. Búningahönnuður: Judith Amalía Jóhannsdóttir. Myndbandshönnuður: Emma Lindhal. Tónlist: Georg Kári Hilmarsson. Þýðendur: Helgi Sæmundur Helgason, Hinrik Þór Svavarsson, Kári Páll Óskarsson og Sigríður Jónsdóttir.
Byggt á Elektru eftir Euripides, þýðing Helgi Hálfdanarson, og Vorher/Nachher eftir Roland Schimmelpfennig. Í verkinu eru textar eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur, Benedict Anderson og Ernest Renan.
|
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla afhent í Bókasal
24. maí 2011
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla voru afhent í sextánda sinn þann 24. maí og fór athöfnin fram hér í Þjóðmenningarhúsinu. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, afhenti verðlaunin sem í ár féllu Vinaverkefninu í Skagafirði í skaut. Verkefnið er samstarfsverkefni leik-, grunn- og framhaldsskóla í Skagafirði, frístundadeildar Sveitarfélagsins Skagafjarðar, íþróttahreyfingarinnar og foreldra í Skagafirði.
Auk Foreldraverðlaunanna sjálfra voru veitt ein hvatningarverðlaun og dugnaðarforkaverðlaun: Hvatningarverðlaun 2011 hlaut Foreldrafélagið Örkin hans Nóa, leikskólanum Nóaborg, fyrir framúrskarandi gott foreldrasamstarf. Dugnaðarforkaverðlaun 2011 voru veitt til Þórólfs Sigjónssonar og Guðnýjar Vésteinsdóttur, foreldra barna í Hallormsstaðaskóla, fyrir sjálfboðaliðastarf á tímum fjárskorts, og öfluga og virka þátttöku í skólastarfinu.
Að þessu sinni bárust 45 tilnefningar til verðlaunanna vegna 42 verkefna.
|
Myndlistarsýningaröð í verslun og veitingastofu: Náttúra og minningar
21. maí 2011
Diana Storåsen sýnir ljósmyndir á yfirstandandi myndlistarsýningu í verslun og veitingastofu Þjóðmenningarhússins. Diana fæst við fólk og minningar í ljósmyndum sínum. Hún skynjar minningar eins og litaðar kenndir sem mála myndir af liðnum tíma. Diana hefur einnig áhuga á upplifun okkar á náttúrunni – getur náttúran sýnt okkur hliðar á okkur sem við viljum ekki sjá? Hún leitast við að túlka náttúruna efnislega. Erum við partur af náttúrunni eða er náttúran partur af okkur?
Sýningin dregur fram hið flókna samband sem fólk í nútíma borgarsamfélagi á við náttúruna. Rómantískum hugmyndum okkar um náttúruna sem öruggt skjól er stillt upp á móti myndum af náttúrunni sem stað þar sem óvissa og hörmungar ríkja. Augliti til auglitis við náttúruna sjáum við okkur sjálf, en hvernig verður upplifun okkar af náttúrunni ef við getum ekki horst í augu við sjálf okkur? Sá sem hefur óhreina samvisku mun ekki leita skjóls í skógunum, skrifaði John Burroughts árið 1895. Diana mundi vilja orða þetta svona: Með óhreina samvisku göngum við inn í skógana.
Diana Storåsen útskrifaðist með BA-gráðu frá Myndlista- og handíðaskóla Ísland árið 1998. Hún nam við ljósmyndunar- og kvikmyndadeild Gautaborgarháskóla í Svíþjóð árin 2006 – 2008 og lærði hönnun við sama skóla árið 2001. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga, einkum á Norðurlöndunum.
|
Fyrirlestur um Vestur-Íslendinga og kanadíska frumbyggja
21. maí 2011
Laugardaginn 21. maí fluttu þær Lorena Sekwan Fontaine og Dr. Laurie K. Bertram erindi í Bókasal Þjóðmenningarhússins undir yfirskriftinni: Moccasintreyjur og elgskjöt: Saga kanadískra frumbyggja og Vestur-Íslendinga 1875 – 2000. Í fyrirlestrinum var fjallað um sambúð íslenskra landnema í Manitoba og frumbyggjanna/ indíánana þar. Sjónum var meðal annars beint að samskiptum þessara hópa á sviði fiskveiða, mægða og menningar. Fyrirlesturinn var á ensku, hann var ókeypis og öllum opinn og vel sóttur.
Lorena Sekwan Fontaine B.A., LL.B., LL.M er af indíánaættum. Hún hefur verið lektor við Frumbyggjafræðideildina í Winnipegháskóla og kennt við Frumbyggjaháskóla Kanada (First Nations University of Canada) og við Stjórnsýslusvið Queens háskóla. Lorena Fontaine er að skrifa doktorsritgerð við Manitobaháskóla og er sérsvið hennar málréttindi frumbyggja í Kanada. Hún telur að frumbyggjar geti lært mikið af Íslendingum hvað varðar málvernd. Lorena hefur unnið með ýmsum stjórnmálasamtökum frumbyggja sem talsmaður kvenna og ungs frumbyggjafólks. Hún hefur einnig verið lögfræðilegur ráðgjafi í ýmsum málum sem varða réttindi frumbyggja og brot á þeim í gegnum tíðina. Í fyrirlestrinum ræddi hún nokkuð um hvers eðlis þessi brot eru og hvaða afleiðingar þau hafa haft fyrir einstaklinga og samfélag.
Dr. Laurie K. Bertram er stundakennari við Torontoháskóla. Hún er sagnfræðingur sem rannsakar nú sögu íslenskra landnema í gegnum menningarlega tjáningu þeirra m.a. klæðaburð, munnmælasögur, drauga og álfatrú og ýmsa minjagripi. Hún vinnur nú að bók um þetta efni sem byggð er á doktorsritgerð hennar frá 2010.
|
Tvennir tónleikar á vegum Tónlistarskólans í Reykjavík
17. maí 2011
Þriðjudaginn 17. maí hélt Tónlistarskólinn í Reykjavík tvenna tónleika í Bókasal Þjóðmenningarhússins. Á fyrri tónleikunum léku nemendur fjölbreytta og skemmtilega kammertónlist eftir snillingana Telemann, Mozart, Castelnuovo-Tedesco, Beethoven og Schumann. Síðari tónleikarnir voru burtfararprófstónleikar Valdísar Þorkelsdóttur, trompetleikara. Á efnisskrá voru verk eftir Benjamin Britten, Halsey Stevens, George Friederic Händel, Giovanni B. Viviani og Victor Ewald. Fjölmargir hljóðfæraleikarar, og ein söngkona, engin önnur en Sigrún Hjálmtýsdóttir, stigu á stokk með Valdísi við flutning verkanna.
Ókeypis aðgangur var að tónleikunum og allir velkomnir.
|
Útskriftartónleikar LHÍ: Úlfhildur Þorsteinsdóttir, fiðla
14. maí 2011
Laugardaginn 14. maí kl. 14 voru útskriftartónleikar Úlfhildar Þorsteinsdóttur haldnir hér í Þjóðmenningarhúsinu en hún útskrifast með diploma í fiðluleik frá tónlistardeild Listaháskóla Íslands í vor. Ókeypis aðgangur var að tónleikunum og allir velkomnir.
Á efnisskrá voru verk eftir Helga Pálsson (1899-1964), Johann Sebastian Bach (1685-1750), Antonín Dvorák (1841-1904), Niccolo Paganini (1782-1840) og Johannes Brahms (1833-1897). Auk Úlfhildar komu píanóleikararnir Richard Simm og Jane Ade Sutarjo fram á tónleikunum, auk Þórðar Þorsteinssonar sem lék á selló.
Úlfhildur Þorsteinsdóttir (f. 1990) eignaðist sína fyrstu fiðlu þriggja ára gömul. Þá hófst fiðlunámið, fyrst hjá ömmu hennar, Ásdísi Þorsteinsdóttur, og síðar hjá Lilju Hjaltadóttur sem kenndi henni við Tónlistarskóla íslenska Suzukisambandsins og
síðar við Allegro Suzuki-tónlistarskólann. Úlfhildur hóf nám í Tónlistarskólanum í Reykjavík 2002 hjá Auði Hafsteinsdóttur og lauk þaðan framhaldsprófi vorið 2008. Þá um haustið hóf hún nám í Listaháskóla Íslands og hefur aðalkennari hennar þar verið Ari Þór Vilhjálmsson. Úlfhildur hefur tekið virkan þátt í hljómsveitar- og kammermúsíkstarfi í skólunum. Einnig hefur hún sótt námskeið, bæði hér heima og erlendis. Kennarar hafa verið m.a. Guðný Guðmundsdóttir, Sigurbjörn Bernharðsson, Elfa Rún Kristinsdóttir, Danwen Jiang, Petru Munteanu, Takaya Urakawa og Ida Bieler. Úlfhildur hefur og tekið virkan þátt í hljómsveitarstarfi
Sinfóníuhljómsveitar unga fólksins, Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Orkester Norden.
|
Útskriftartónleikar LHÍ: Inga Dóra Stefánsdóttir, messó-sópran
12. maí 2011
Fimmtudaginn 12. maí kl. 18 söng Inga Dóra Stefánsdóttir á útskriftartónleikum hér í Þjóðmenningarhúsinu en hún útskrifast sem messó-sópransöngkona frá tónlistardeild Listaháskóla Íslands í vor. Ókeypis aðgangur var að tónleikunum og allir velkomnir.
Inga Dóra söng ýmis lög eftir Árna Thorsteinson, Johann Sebastian Bach,
Richard Strauss, Leonard Bernstein, Jacques Offenbach, Fernando Obradors, Pyotr Ilyich Tchaikovsky, Franz Schubert, Gian Carlo Menotti og Modest Mussorgsky. Elísabet Einarsdóttir, sópran, kom einnig fram á tónleikunum og Selma Guðmundsdóttir lék undir á píanó.
Inga Dóra Stefánsdóttir er fædd 1981 og hóf söngnám í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar árið 1998. Kennari hennar var Dr. Þórunn Guðmundsdóttir og lauk hún framhaldsprófi vorið 2008. Með söngnáminu stundaði Inga Dóra nám við Kennaraháskóla Íslands og lauk þaðan B.ed. prófi vorið 2005. Haustið 2008 hóf Inga Dóra söngnám í Listaháskóla Íslands undir handleiðslu Elísabetar Erlingsdóttur. Í Listaháskólanum hefur Inga Dóra sótt einkatíma og masterklassa hjá Kristni Sigmundssyni, Gunnari Forshovfud, Christopher Underwood, og fjölda annarra.
|
Útskriftartónleikar LHÍ: Bergrún Snæbjörnsdóttir, horn
11. maí 2011
Miðvikudaginn 11. maí voru útskriftartónleikar Bergrúnar Snæbjörnsdóttur haldnir hér í Þjóðmenningarhúsinu en hún útskrifast með BMus-gráðu í hornleik frá tónlistardeild Listaháskóla Íslands í vor. Ókeypis aðgangur var að tónleikunum og allir velkomnir.
Á efnisskrá voru verk eftir Richard Strauss, Alfred Rasmussen, Olivier Messiaen og Victor Ewald auk frumflutnings á verki eftir Bergrúnu sjálfa. Verk Bergrúnar heitir The Stars and the Cycle og er skrifað fyrir brasskvintett. Það er byggt á skáldsögu Arthur C. Clarkes; The City and the Stars. Hljóðfæraleikarar við flutning verksins voru: Richard Simm, píanó, Finnbogi Óskarsson, túba, Harpa Jóhannsdóttir, básúna, Jóhannes Þorleiksson, trompet, og Valdís Þorkelsdóttir, trompet.
Bergrún Snæbjörnsdóttir (f. 1987) hóf sitt tónlistarnám við Grunnskóla Hofsóss, en
1997 byrjaði hún að spila á alt-horn við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og seinna á franskt horn undir handleiðslu Lilju Valdimarsdóttur. Haustið 2006 hóf Bergrún nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og lærði þar hjá Joseph Ognibene, sem kenndi henni einnig við Listaháskóla Íslands. Bergrún hefur sótt einkatíma og masterklassa hjá Ib-Lansky Otto, Froydis Ree Wekre og Radovan Vlatkovic, og lært hjá Randall Faust við Interlochen Arts Camp. Bergrún hefur spilað með Blásarasveit Reykjavíkur, Ungfóníu, Orkester Norden o.fl. Einnig fór hún í tónleikaferðalag með Björk Guðmundsdóttur árin 2007-2008. Bergrún hóf nám við Listaháskóla Íslands haustið 2008.
Bergrún er meðlimur brassgrúppnanna Wonderbrass, Moru, Yobo Häbeva og stuðhljómsveitanna Orphic Oxtra og Tenór Tvist. Hún hefur komið fram og tekið upp með hinu og þessu tónlistarfólki. Samhliða hljóðfæranáminu hefur Bergrún stundað tónsmíðanám undir leiðsögn Hróðmars Inga Sigurbjörnssonar.
|
Útskriftartónleikar LHÍ: Hafsteinn Þórólfsson, kvikmyndatónlist
8. maí 2011
Sunnudaginn 8. maí voru útskriftartónleikar Hafsteins Þórólfssonar úr tónsmíðum við tónlistardeild Listaháskóla Íslands haldnir hér í Þjóðmenningarhúsinu. Ókeypis aðgangur var að tónleikunum og allir velkomnir.
Flutt var verkið Þjóðsaga. Hafsteinn samdi bæði tónlist og texta en textahöfundur auk hans er Hannes Páll Pálsson. Einsöngshlutverk voru í höndum Ragnheiðar Árnadóttur, sóprans, og Hafsteins sjálfs, sem söng barítónrödd. Auk þess komu hljómsveit og kór fram á tónleikunum. Stjórnandi var Hörður Áskelsson.
Verkið er sprottið upp af áhuga höfundanna á þjóðsögum. Í leit sinni að sögu eða sögupersónu til að byggja á tónverk fundu þeir gamlan bónda sem nefndur er Barna-Þórður. Hann kemur fyrir í sögunni Systkinin í Ódáðahrauni úr Útilegumannasögum Jóns Árnasonar. Persóna Þórðar varð fyrir valinu vegna þess að sagan sem hann kemur fyrir í gerist á svæði sem er rómað fyrir anda, útilegumenn, álfa, tröll og allskyns vætti og býður auk þess uppá mikið skáldaleyfi.
Hafsteinn Þórólfsson lauk 8. stigi í söng frá Söngskóla Reykjavíkur vorið 2003. Hann hóf síðan nám við Guildhall School of Music & Drama og lauk þaðan mastersnámi í söng vorið 2005. Hann sótti því næst einkakennslu í popp -og söngleikjasöngtækni í Lundúnum og lauk því námi vorið 2006. Hafsteinn hóf tónsmíðanám í Listaháskóla Íslands haustið 2008 og útskrifast nú í vor með kvikmyndatónlist sem sérgrein. |
Trommuleikarinn Pétur Östlund: bókarkynning og tónleikar með kvintett Sigurðar Flosasonar
2., 3. og 4. maí 2011
Meistaratrommarinn Pétur Östlund kynnti nýútkomna bók sína hér í Þjóðmenningarhúsinu 2. maí, og lék á tónleikum ásamt kvintett Sigurðar Flosasonar 3. og 4. maí.
Pétur Östlund hefur um árabil kennt ungum og upprennandi trommuleikurum í Svíþjóð og á Íslandi list sína. Hann hefur tekið saman merkilegt safn æfinga í gegnum árin og loks er bókin - Hringir innan hringja - komin út. Henni fylgir DVD diskur með myndefni þar sem Pétur útskýrir efnið. Matthías Hemstock hefur borið hitann og þungann af útgáfu bókarinnar sem fáanleg er í Tónastöðinni og Hljóðfærahúsinu. Pétur var með opna kynningu á efni bókarinnar og sýnikennslu hér í Þjóðmenningarhúsinu mánudaginn 2. maí.
ReykjavíkJazz stóð fyrir tvennum tónleikum með Pétri Östlund og Kvintett Sigurðar Flosasonar í Bókasal þann 3. og 4. maí. Efnisskráin samanstóð af úrvali laga af geisladiskum Sigurðar Flosasonar, Gengið á lagið, Gengið á hljóðið og Leiðin heim.
Kvintettinn skipuðu: Pétur Östlund, trommur, Sigurður Flosason, altósaxófónn, Snorri Sigurðarson, trompet og flugelhorn, Eyþór Gunnarsson, píanó og Þorgrímur Jónsson, kontrabassi.
|
Opinber heimsókn: Forsetafrú Slóveníu skoðar handritasýninguna
4. maí 2011
Forseti Slóveníu dr. Danilo Türk og eiginkona hans frú Barbara Miklič Türk komu í opinbera heimsókn til Íslands þriðjudaginn 3. maí og dvöldu hér í tvo daga. Með forsetanum komu þrír ráðherrar í ríkisstjórn Slóveníu auk embættismanna. Þá fylgdi forseta Slóveníu viðskiptasendinefnd, með fulltrúum ríflega 20 slóvenskra fyrirtækja, og blaðamenn.
Heimsóknardagana heimsótti Barbara Miklič Türk, forsetafrú Slóveníu, m.a. Hönnunarsafn Íslands, vinnustofur ungra listamanna, Þjóðminjasafn Íslands, Listasafn Reykjavíkur í Hafnarhúsi og handritasýninguna hér í Þjóðmenningarhúsinu. Markús Örn Antonsson, forstöðumaður Þjóðmenningarhússins, tók á móti forsetafrúnni við komuna í húsið og Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, veitti henni leiðsögn um handritasýninguna.
|
Tónlistarskólinn í Reykjavík: Framhaldsprófstónleikar Arnheiðar Eiríksdóttur, mezzo- sóprans, haldnir í Bókasal
1. maí 2011
Arnheiður Eiríksdóttir, mezzo-sópran, söng á tónleikum í Þjóðmenningarhúsinu sunnudaginn 1. maí. Tónleikarnir voru hluti framhaldsprófs hennar frá Tónlistarskólanum í Reykjavík í vor. Aðgangur var ókeypis og allir velkomnir.
Á tónleikunum flutti Arnheiður, ásamt píanóleikaranum Láru S. Rafnsdóttur, sönglög eftir Jórunni Viðar, Pál Ísólfsson, Schubert, Fauré og lagaflokkinn A Charm og Lullabies eftir Benjamin Britten. Hún frumflutti einnig sönglögin A Walk in Woods og Flux eftir Guðrúnu Ingimundardóttur. Arnheiður fékk strengjakvartett í lið með sér til að flytja aríuna fallegu Es ist vollbracht úr Jóhannesarpassíu Bachs og tvo sóprana úr skólanum til að flytja með sér spilatríóið úr Carmen eftir Bizet.
Strengjakvartettinn skipuðu Sólveig Vaka Eyþórsdóttir, fiðla, Hildur Oddsdóttir, fiðla, Guðbjartur Hákonarson, víóla og Geirþrúður Guðmundsóttir, selló. Sópranarnir voru þær Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir og Helga Ragnarsdóttir. Einnig lék Þórgunnur á píanó í sönglaginu Sólbrúnir vangar eftir Oddgeir Kristjánsson og Áslaug Rún Magnúsdóttir lék þar á klarinett.
|
Útskriftartónleikar LHÍ: Vala Gestsdóttir, tónsmíðar
30. apríl 2011
Laugardaginn 30. apríl voru útskriftartónleikar Völu Gestsdóttur úr tónsmíðum við tónlistardeild Listaháskóla Íslands haldnir hér í Þjóðmenningarhúsinu. Ókeypis aðgangur var að tónleikunum og allir velkomnir.
Fyrir hlé voru eftirfarandi verk Völu flutt:
Vertu hér, Betty Boop, Strengjarinn og Brassarinn og Sestu-Dansaðu-Vertu. Einsöngvarar voru Þórunn Antonía Magnúsdóttir, söngkona, og Hafsteinn Þórólfsson, barítón.
Eftir hlé var verkið Völuspá í Tónmáli (2011) frumflutt. Um er að ræða tónverk fyrir einsöngvara, kór og hljómsveit í þremur samtengdum köflum sem lýsa sköpun heimsins, ragnarökum og endurrisi jarðar. Textinn er úr bók Þórarins Eldjárn, Völuspá, þar sem hann enduryrkir hin fornu kvæði á nútímamáli. Einsöngvarar voru Sólveig Samúelsdóttir, messó-sópran, og Hafsteinn Þórólfsson, barítón. Stjórnandi á tónleikunum var Úlfar Ingi Haraldsson.
Mikill áhugi var á tónleikunum og má segja að salurinn hafi vart rúmað alla sem hlýða vildu. Í tilefni af yrkisefni Völu var handritasýning Árnastofnunar höfð opin í hléi svo gestir gætu virt fyrir sér sjálfa Konungsbók Eddukvæða sem þar er til sýnis.
|
Viðurkenningar fyrir starf að umhverfismálum veittar í Þjóðmenningarhúsinu
28. apríl 2011
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, afhenti Þóru Ellen Þórhallsdóttur, grasafræðingi, Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti við athöfn í Bókasal Þjóðmenningarhússins. Við sama tækifæri fengu Farfuglaheimilin í Reykjavík afhentan Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, og nemendur Þjórsárskóla voru útnefndir Varðliðar umhverfisins.
Sjá nánar á vef umhverfisráðuneytisins: http://www.umhverfisraduneyti.is/frettir/nr/1793
|
Listaverkauppboð til styrktar Auðlind
19. apríl 2011
Auðlind - Náttúrusjóður og i8 gallerí efndu til listaverkauppboðs í Þjóðmenningarhúsinu þriðjudaginn 19.apríl. Allur ágóði uppboðsins verður nýttur við endurheimt og verndun votlendis á Íslandi. Þrjátíu og átta listamenn lögðu málefninu lið og gáfu verk. Árangur uppboðsins var framar vonum og seldust öll verkin.
Náttúrusjóðurinn Auðlind hefur að markmiði að efla og varðveita náttúruarfinn sem landið geymir; þann sameiginlega fjársjóð manna og málleysingja sem okkur ber að ávaxta og skila öflugum til niðja landsins. Starfsemi og stefna Auðlindar felst í því að styrkja endurheimt landgæða með höfuðáherslu á votlendi. Með því að færa vatnsbúskap til fyrra horfs getur náttúran sjálf töfrað fram gróðurfar, skordýra- og fuglalíf í takti við fyrri tíma og styrkt þannig vistkerfi, fjölbreytni og lífsgæði á Íslandi. Annað framtíðarátak Auðlindar er að leggja haferninum, lið og stuðla að lífbreytni, styrkari stofni og vistkerfi. Allt ber að sama brunni; að efla heilbrigði og fegurð íslenskrar náttúru. (Úr uppboðsskrá Auðlindar og i8 gallerís).
Ljósmynd: Hazelnut eftir Sigurð Guðmundsson
|
Básúnu- og túbutónleikar í Bókasal
16. apríl 2011
Laugardaginn 16. apríl léku nokkrir ungir og efnilegir tónlistarmenn á básúnur og túbu á tónleikum í Bókasal. Á efnisskrá voru m.a. verk eftir W. A. Mozart, A. Vivaldi og A. C. Jobim svo fátt eitt sé nefnt. Tónlistarfólkið var óhrætt við að flytja þekkt verk sem samin voru fyrir aðra hljóðfæraskipan, s.s. fiðlukonsert eftir Vivaldi, á blásturshljóðfærin. Auðvitað flutti hópurinn líka verk sérstaklega samin fyrir þessi hljóðfæri. Þess má geta að sviðsframkoma listafólksins var einkar lífleg og létt. Þau sem komu fram á tónleikunum voru:
Ari Hróðmarsson, básúna
Finnbogi Darri Guðmundsson, básúna
Haraldur Þrastarson, básúna
Harpa Jóhannsdóttir, básúna
Lai Tak Chun, túba
Li Ming Yeung, básúna
Aðgangur var ókeypis og allir velkomnir.
|
Skjöl tengd Jóni Sigurðssyni sýnd í Bókasal
16. apríl 2011
Þjóðskjalasafn Íslands varðveitir fjölbreytt safn skjala sem tengjast lífi og starfi Jóns Sigurðssonar. Sýnishorn af þessum skjölum má sjá á sýningu í Bókasal Þjóðmenningarhússins frá og með 16. apríl. Elst þeirra er gjafabréf föður hans á hluta í jörðinni Gljúfurá í Arnarfirði sem veitti Jóni síðar bæði kosningarrétt og kjörgengi til Alþingis. Þá gefur að líta skjöl sem tengjast daglegu lífi Jóns og afskiptum hans af stjórnmálum. Yngstu skjölin varða dánarbú Jóns. Þar á meðal er erfðaskrá Ingibjargar Einarsdóttur, ekkju Jóns, dagsett 12. desember 1879, með nafni hennar undir. Með erfðaskránni var stofnaður sjóðurinn Gjöf Jóns Sigurðssonar, sem enn gegnir hlutverki sínu.
Sýningin er sett upp í samvinnu Þjóðskjalasafns Íslands og Þjóðmenningarhússins í tilefni af því að í ár eru 200 ár liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar. Fyrir er í Þjóðmenningarhúsinu sýningin Óskabarn – æskan og Jón Sigurðsson, þar sem fjallað er um ævi og störf Jóns út frá sjónarhóli barna.
|
Ferðaljóð Heines á íslensku – útgáfunni fagnað
14. apríl 2011
JPV-útgáfa gefur ferðaljóð Heines; Þýskaland – Vetrarævintýri, nú út í þýðingu Einars Thoroddsens, læknis. Útgáfu bókarinnar var fagnað í Bókasal Þjóðmenningarhússins fimmtudaginn 14. apríl. Einar kynnti bókina og söngvararnir Diddú og Ágúst Ólafsson sungu lög Schumanns og Schuberts í þýðingu Einars.
Allir áhugasamir voru velkomnir á útgáfufagnaðinn.
|
Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins afhent í Bókasal
14. apríl 2011
Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins voru afhent við hátíðlega athöfn í Bókasal Þjóðmenningarhússins þann 14. apríl. Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti viðurkenningarnar. Verðlaun eru veitt í fjórum flokkum; Hvunndagshetju, Frá kynslóð til kynslóðar, Til atlögu gegn fordómum og Samfélagsverðlaununum sjálfum. Auk þess eru veitt heiðursverðlaun fyrir ævistarf.
Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins komu að þessu sinni í hlut Reykjadals í Mosfellsdal þar sem rekin er sumardvöl og helgardvöl um vetur fyrir fötluð börn. Ásmundur Þór Kristmundsson var valinn Hvunndagshetja vegna þess afreks síns að bjarga erlendum ferðamönnum sem höfðu fest bíl sinn í Krossá og hætta með því lífi sínu. Jón Stefánsson hlaut í ár verðlaun í flokknum Frá kynslóð til kynslóðar vegna kórstarfs síns í Langholtskirkju. Í flokknum Til atlögu gegn fordómum komu verðlaunin í hlut Listasmiðjunnar Litrófs sem starfar í Fella- og Hólakirkju. Þar er stuðlað að vináttu og sterkari tengslum milli barna af erlendum uppruna og íslenskra barna. Heiðursverðlaun Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins féllu Jennu Jensdóttur, kennara og rithöfundi, í skaut. Hún á langan og farsælan kennsluferil að baki og ritaði á þriðja tug barnabóka í félagi við mann sinn, Hreiðar heitinn Stefánsson.
|
Útgáfutónleikar Fimm í tangó
13. apríl 2011
Hljómsveitin Fimm í tangó gefur nú út sinn fyrsta geisladisk og af því tilefni efndi hún til tónleika og dansleiks í Þjóðmenningarhúsinu miðvikudagskvöldið 13. apríl.
Hljómsveitina Fimm í tangó skipa Ágúst Ólafsson, söngvari, Ástríður A. Sigurðardóttir, píanóleikari, Íris Dögg Gísladóttir, fiðluleikari, Kristín Lárusdóttir, sellóleikari og Vadim Fedorov, sem leikur á harmóniku.
Fimm í tangó lagði upp með finnska tangóa í nóvember 2007, útsetta af Haraldi Vigni Sveinbjörnssyni og Tatu Kantomaa, en hefur lagt aukna áherslu á frumsamda íslenska tangóa. Allir íslensku tangóarnir eru sérstaklega samdir fyrir Fimm í tangó og eru meðal annars eftir Harald Vigni, Hafdísi Bjarnadóttur, Steingrím Þórhallsson og Helga Rafn.
Frítt var inn á tónleikana og geisladiskurinn seldur á tilboðsverði. Bókasalurinn fylltist af fólki. Sumir dönsuðu tangó, aðrir sátu og nutu tónlistarflutningsins.
|
Ævintýri fyrir gítara og sögumann
10. apríl 2011
Á útskriftartónleikum Birgit Myschi úr Mennt og miðlun við Listaháskóla Íslands, sem fram fóru hér í Þjóðmenningarhúsinu sunnudaginn 10. apríl, var verk hennar Fátt er svo með öllu illt, - ævintýri fyrir gítartríó og sögumann, flutt af gítarnemendum úr Tónlistarskóla Árnesinga og Listaháskóla Íslands. Birgit leiddi gítarleikinn og Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson var í hlutverki sögumanns. Verkið samanstendur af íslenskum þjóðlögum, í útsetningu Birgit fyrir gítara, og söguþræði sem tengir lögin saman. Svanlaug Jóhannsdóttir samdi söguna.
Ævintýrið Fátt er svo með öllu illt verður gefið út á bók með geisladiski. Efnið er hugsað sem kennsluefni í tónlistarskólum og jafnvel víðar. Myndskreytingar í bókinni annaðist Sigríður Rún Kristinsdóttir.
Birgit Myschi fæddist 1964 í Kiel í Þýskalandi. Hún hóf sjálfsnám á gítar tólf ára gömul en formlegt gítarnám hófst tveimur árum síðar þegar gítarkennari flutti til bogarinnar. Birgit flutti búferlum til Íslands árið 1983. Hún hóf gítarnám á Íslandi í Tónlistarskóla Árnesinga hjá Michael Hillenstedt. Þaðan lá leiðin til Símons H. Ívarssonar og loks Páls Eyjólfssonar. Hún útskrifaðist frá Tónlistarskóla Árnesinga vorið 2007. Jafnhliða gítarnáminu stundaði Birgit nám á kontrabassa hjá Gunnlaugi T. Stefánssyni. Birgit hefur starfað sem gítarkennari við Tónlistarskóla Árnesinga sl. tíu ár. Hún hóf nám við Listaháskóla Íslands 2008 og lýkur BA-gráðu úr Mennt og miðlun nú í vor.
Allir voru velkomnir á tónleikana og aðgangur var ókeypis.
|
Tónleikar Ragnheiðar Gröndal
31. mars 2011
Söngkonan Ragnheiður Gröndal hélt tónleika í Þjóðmenningarhúsinu fimmtudagskvöldið 31. mars. Á tónleikunum söng hún og lék, ásamt hljómsveit, efni sem áformað er að komi út á nýrri breiðskífu hennar í maí.
Hljómsveitina skipuðu auk Ragnheiðar, sem söng og spilaði á píanó, þeir Guðmundur Pétursson á gítar, Róbert Þórhallsson á bassa og Birgir Baldursson á trommur.
Uppselt var á tónleikana en aðeins 100 sæti voru í boði.
|
Þematónleikar Tónlistarskólans í Reykjavík: Dansar
26. mars 2011
Síðustu þematónleikar Tónlistarskólans í Reykjavík í vetur voru haldnir í Þjóðmenningarhúsinu laugardaginn 26. mars kl. 14.00. Að þessu sinni var það dansinn sem réði ríkjum og margs konar dansar frá ýmsum tímum og löndum hljómuðu í flutningi nemenda Tónlistarskólans. Grieg, Bartók, Bach, Debussy, Chopin og Schumann voru meðal tónskálda. Leikin voru bæði einleiksverk á píanó og fiðlu og samspilsverkefni af ýmsum toga.
Ókeypis var á tónleikana og öllum heimill aðgangur.
|
Próftónleikar klarínettuleikarans Baldvins Ingvars Tryggvasonar
20. mars 2011
Sunnudagskvöldið 20. mars kl. 20.00 þreytti Baldvin Ingvar Tryggvason, klarínettuleikari, framhaldspróf sitt frá Tónlistarskólanum í Reykjavík með tónleikum í Þjóðmenningahúsinu. Hrefna Eggertsdóttir lék með honum á píanó. Á efnisskránni voru m.a. verk eftir Carl Maria von Weber, Paul Jeanjean, Joseph Horovitz og Andrè Messager. Einnig voru flutt sönglög eftir Louis Spohr þar sem samnemendur Baldvins, Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir og Arnbjörg Arnardóttir, sungu og léku með honum. Loks má geta þess að Baldvin lék verk fyrir einleiksklarínettu eftir föður sinn, Tryggva M. Baldvinsson, en verkið frumflutti Baldvin á tónleikum í síðasta mánuði.
Aðgangur var ókeypis og öllum heimill.
|
Tangómaraþon í Þjóðmenningarhúsinu
18. – 20. mars 2011
Tangófélag Reykjavíkur stóð fyrir tangómaraþoni hér í Þjóðmenningarhúsinu helgina 18. – 20 mars. Sérlegur maraþon DJ var Jörg Haubner frá Dresden í Þýskalandi, en Þórður, Snorri og Laura úr Tangófélaginu lögðu einnig hönd á plóg við val tónlistar. Jörg kenndi ennfremur, jafnt reyndum dönsurum sem minna vönum, í einum opnum danstíma á laugardeginum.
Dansinn hófst kl. 21 á föstudagskvöldið og stóð til tvö eftir miðnætti. Á laugardeginum var dansað frá hádegi og fram á rauða nótt – aðeins var gert hlé til þess að dansarar gætu fengið sér kvöldverð. Á sunnudeginum var svokallað brunchmilonga þar sem boðið var upp á kaffi og rúnstykki. Þá dunaði dansinn frá kl. 12 til 17.
Tangómaraþon er orðið að árlegum viðburði hjá Tangófélagi Reykjavíkur og var þetta í fyrsta sinn sem það var haldið í Bókasal Þjóðmenningarhússins.
|
Verðlaunaafhending í ritgerðasamkeppni grunnskólanema
19. mars 2011
Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar, í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið, efndi til ritgerðasamkeppni meðal nemenda í 8. bekk grunnskóla í tilefni af því að 200 ár eru liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar, forseta. Dómnefnd tilkynnti úrslit og mennta- og menningarmálaráðherra afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn hér í Þjóðmenningarhúsinu laugardaginn 19. mars. Börn úr Kór Kársnesskóla sungu, lesið var úr völdum ritgerðum og sýningin Óskabarn - æskan og Jón Sigurðsson var skoðuð með leiðsögumanni Þjóðmenningarhússins.
Dómnefnd var þannig skipuð að mennta- og menningarmálaráðuneytið og Samtök móðurmálskennara tilnefndu Kolbrúnu Sigurðardóttur, Sæmund Helgason og Steinunni Mar, en afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar tilnefndi Finnboga Hermannsson og Sólveigu Pétursdóttur, sem var formaður nefndarinnar. Þegar upp var staðið hafði dómnefnd valið 12 ritgerðir sem hún taldi verðskulda verðlaun. Nefndin fjölgaði verðlaunahöfum því um tvo, en skv. áður birtum reglum skyldi verðlauna tíu ritgerðir.
Allir skólar sem tóku þátt fá senda viðurkenningu og allir nemendur sem sendu inn ritgerðir fá skjal með sendibréfi frá Jóni Sigurðssyni. Þeir tólf nemendur sem unnu til verðlauna fá verðlaunaskjal og vegleg bókaverðlaun.
Fyrirhugað er samstarf við Ríkisútvarpið um flutning á verðlaunaritgerðunum. Einnig stendur til að birta þær á vefnum www.jonsigurdsson.is.
|
Forseta þýska Sambandsþingsins boðið í Þjóðmenningarhúsið
1. mars 2011
Dr. Norbert Lammert, forseti þýska Sambandsþingsins var í opinberri heimsókn á Íslandi 28. febrúar til 3. mars 2011 í boði forseta Alþingis, Ástu R. Jóhannesdóttur. Liður í dagskrá heimsóknarinnar var heimsókn í Þjóðmenningarhúsið þar sem forsetinn og fylgdarlið hans snæddi hádegisverð og þáði því næst leiðsögn forstöðumanns Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum um sýninguna Handritin.
|
Tvennir tónleikar á degi tónlistarskólanna
26. febrúar 2011
Dagur tónlistarskólanna var haldinn hátíðlegur um allt land laugardaginn 26. febrúar. Tónlistarskólinn í Reykjavík tók þátt í þessum degi með tvennum tónleikum í Þjóðmenningarhúsinu:
Á fyrri tónleikunum voru flutt verk eftir íslensk tónskáld, m.a. Jón Ásgeirsson, Þorkel Sigurbjörnsson, Árna Björnsson og Snorra Sigfús Birgisson. Nýtt verk eftir Tryggva M. Baldvinsson var frumflutt á tónleikunum. Einnig var aldarafmælis þriggja tónskálda minnst. Það eru þeir Áskell Jónsson, Sigursveinn D. Kristinsson og Oddgeir Kristjánsson. Verkin á tónleikunum voru fyrir einn til fimm flytjendur, sem allir voru nemendur Tónlistarskólans í Reykjavík.
Síðari tónleikarnir voru framhaldsprófstónleikar í söng. Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir söng einsöngslög og aríur úr ýmsum áttum. Meðleikari hennar var Hrefna U. Eggertsdóttir og auk þess léku samnemendur hennar, Baldvin Tryggvason og Arnbjörg Arnardóttir, með henni á klarínettu og píanó.
Allir voru velkomnir á tónleikana og aðgangur var ókeypis.
|
Karl Jóhann Jónsson sýnir málverk
25. febrúar 2011
Karl Jóhann Jónsson, myndlistarmaður, sýnir nú málverk í veitingasal og verslun Þjóðmenningarhússins undir titlinum Inni og úti í garði.
Karl Jóhann er fæddur árið 1968 og nam myndlist við Myndlistaskólann í Reykjavík og Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Hann lauk kennslufræðiréttindum frá Listaháskóla Íslands vorið 2007. Hann hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og sett upp margar einkasýningar undanfarin 17 ár. Einnig hefur Karl Jóhann vakið athygli fyrir myndskreytingar og hlaut hann Dimmalimm – íslensku myndskreytiverðlaunin 2010 fyrir bók sína Sófus og svínið.
Karl Jóhann lýsir verkum sínum með þessum orðum: „Málverk mín eru fyrir mér sviðsett dagsbókarform, þar sem ég blanda saman hversdagslegum hlutum sem vekja áhuga minn í nærumhverfinu, fólki, fjölskyldu og vinum saman við þá nostalgíu sem ég ber til málverka eftir ýmsa málara, m.a. Johannes Vermeer, Norman Rockwell, sem og ýmissa hollenskra og spænskra kyrralífsmálara. Ég mála ýmist með viðfangsefnin fyrir framan mig eða vinn eftir myndum sem ég hef tekið, jafnvel oft á símann minn, eitthvað áhugavert sem ég hef rekist á fyrir tilviljun.“
Sýning Karls Jóhanns er liður í myndlistarsýningaröð í verslun og veitingasal Þjóðmenningarhússins og mun standa í u.þ.b. þrjá mánuði.
|
Umfjöllun um nemendaheimsókn á sýninguna Óskabarn
17. febrúar 2011
Elín Lilja Jónasdóttir, ritstjóri og umsjónarmaður með vefsvæðinu Í dagsins önn hjá Námsgagnastofnun, fylgdist með heimsókn nemenda í 8. bekk Vatnsendaskóla á sýninguna Óskabarn – æskan og Jón Sigurðsson fyrr í vikunni. Elín Lilja skrifaði grein um skólaheimsóknina og er hana að finna á heimasíðu Námsgagnastofnunar www.nams.is undir vefsvæðinu Í dagsins önn.
Greinin er skemmtileg og veitir góða innsýn í nemendaheimsókn á sýninguna. Allir áhugasamir eru hvattir til að kynna sér greinina á ofangreindri vefslóð.
|
Safnanótt - fjölbreyttir viðburðir í Þjóðmenningarhúsinu
11. febrúar 2011
Þjóðmenningarhúsið var opið til miðnættis á Safnanótt, eins og vera ber. Dagskráin hér í húsinu var skemmtileg blanda af ýmsu efni og höfðaði til ólíkra hópa gesta, sem fundu fjölmargt við sitt hæfi. Sýningarnar lifnuðu með lifandi nærveru: Á handritasýningunni var það safnkennari Árnastofnunar, Svanhildur Gunnarsdóttir, sem leiðbeindi gestum við skrif á bókfell. Á sýningunni Óskabarn stóð leiðsögumaður Þjóðmenningarhússins, Jóhanna Bergmann, vaktina við logandi kerti og aðstoðaði börn við að innsigla hugsjónir sínar um betra samfélag. Höfundar þjóðsagnasafnsins Sjáðu svarta rassinn minn, Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir og Þórey Mjallhvít Heiðar- og Ómarsdóttir, lásu upp úr bók sinni inni á samnefndri sýningu. Inni á kvikmyndasýningunni spilaði gítartríó, skipað Birgit Myschi, Stefáni Hauki Gylfasyni og Jóni Gunnari Biering Margeirssyni, þjóðlög og alþýðulög í útsetningu Birgitar.
Þema Safnanætur var Íslendingurinn og hér í Þjóðmenningarhúsinu kom enginn annar en Jón Sigurðsson til greina enda er nýjasta sýningin í húsinu um hann og 200 ára afmælisár yfirstandandi. En þegar Jóni Sigurðssyni, sjálfstæðishetju, er brugðið upp sem spegli á nútímann, kemur í ljós að í dag er öll þjóðin í hlutverki Jóns Sigurðssonar; - að móta gott og réttlátt samfélag. Í þessu samhengi bauð Þjóðmenningarhúsið uppá erindi þar sem Jón Sigurðsson, lektor og fv. Seðlabankastjóri, talaði um þær hugmyndasögulegu forsendur, sem Jón hafði fyrir baráttunni á sinni tíð, og tengdi við deiglu nútímans.
Hápunktur kvöldsins var svo tangóball í Bókasalnum. Plötusnúðurinn Laura Valentino hitaði upp með vel völdum tangóum úr plötusafni sínu og Tangófélags Reykjavíkur og síðan hófu Fimm í tangó leik á finnskum og íslenskum tangóum. Tangófélagsfólk og meðlimir Tangóævintýrafélagsins stigu dans en flestir aðrir létu sér nægja að horfa og hlusta. Fimm í tangó eru: Ágúst Ólafsson, söngur, Ástríður A. Sigurðardóttir, píanó, Íris Dögg Gísladóttir, fiðla, Kristín Lárusdóttir, selló og Vadim Fedorov, harmónika.
|
Nína Margrét Grímsdóttir á Myrkum músíkdögum
30. janúar 2011
Á lokadegi Myrkra músíkdaga, sunnudaginn 30. janúar 2011, hélt Nína Margrét Grímsdóttir, píanóleikari, fyrirlestur og tónleika í Þjóðmenningarhúsinu undir yfirskriftinni Hin þrjú „P” íslenskrar tónlistarsögu.
Dagskráin hófst með kynningu Nínu Margrétar á helstu niðurstöðum úr doktorsritgerð sinni um píanóverk Páls Ísólfssonar, en hún lauk doktorsprófi frá City University of New York á síðasta ári. Eftir hlé flutti hún valin píanóverk frá rómantíska tímabilinu eftir Pál auk annarra kollega hans, þeirra Sveinbjörns Sveinbjörnssonar, Emils Thoroddsen, Þórarins Guðmundssonar, Sigurðar Þórðarsonar, Jóns Leifs, Björgvins Guðmundssonar, Markúsar Kristjánssonar auk sænska tónskáldsins Wilhelm Peterson-Berger. Flest verkanna eru afar sjaldheyrð og nokkur þeirra voru frumflutt á tónleikunum.
Gestum bauðst í framhaldinu að fagna þessari nýju viðbót við íslenskan tónlistararf með aðstandendum dagskrárinnar og kynna sér handrit og önnur verðmæti sem varðveitt eru í tónlistarstofu Þjómenningarhússins.
Dagskráin fór fram á ensku og var enginn aðgangseyrir innheimtur.
|
Sýningin Óskabarn – æskan og Jón Sigurðsson opnuð
15. janúar 2011
Laugardaginn 15. janúar var sýningin Óskabarn – æskan og Jón Sigurðsson opnuð við hátíðlega athöfn hér í Þjóðmenningarhúsinu. Sýningin er sett upp í tilefni af því að 17. júní 2011 eru 200 ár liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar. Sýningin er samstarfsverkefni Þjóðmenningarhússins og Afmælisnefndar Jóns Sigurðssonar og er opnun hennar fyrsti viðburðurinn af mörgum á afmælisárinu.
Markús Örn Antonsson, forstöðumaður Þjóðmenningarhússins, bauð gesti velkomna við opnun en ávörp fluttu: Salome Þorkelsdóttir, formaður stjórnar Þjóðmenningarhússins, Sólveig Pétursdóttir, formaður Afmælisnefndar Jóns Sigurðssonar og Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sem jafnframt opnaði sýninguna formlega. Bergþór Pálsson söng nokkur lög sem hæfðu tilefninu og kynnti þau. Undirleikari var Kjartan Valdimarsson.
Að dagskrá lokinni skoðuðu gestir sýninguna og þáðu veitingar.
|
|