Stekkjarstaur
kom fyrstur, svo hver af öðrum
12. - 24. desember 2003
Börnin
létu sig ekki vanta þegar Stekkjarstaur kom við í
Þjóðmenningarhúsinu að hitta þau. Þau
voru forvitin um hagi hans og fylgdust grannt með því
hvernig honum gekk að beygja hnén, en eins og allir vita getur
hann orðið ansi stirður í leggjunum þar sem hann
stendur úti við stekkinn og sætir lagi að sjúga
ærnar.
Þvörusleikir, sá
fjórði, átti í erfiðleikum með að
finna Þjóðmenningarhúsið, svo að á
meðan börnin biðu var nægur tími til að
spila og syngja jólalög. Hermes, tónlistarstjóri,
fékk aðstoð við undirspilið hjá tveimur
stúlkum úr Breiðagerðisskóla. Þær
heita Sigrún Ellertsdóttir og Jana Eir Víglundsdóttir
og spiluðu báðar á klarinett með glæsibrag.
Hver af öðrum koma þeir, jólasveinarnir,
allt til jóla og líta inn í Þjóðmenningarhúsið
klukkan 10:30 virka daga en 14 um helgar og segja börnunum sögur
af sér og sínum. Þjóðminjasafn Íslands
hefur veg og vanda af heimsóknum þeirra. |
Opnun
sýningarinnar Þjóðminjasafnið - svona var
það
6. desember 2003
Sýning Þjóðminjasafns Íslands í
tilefni af 140 ára afmæli þess á árinu
2003 var opnuð við hátíðlega athöfn þann
6. desember í Þjóðmenningarhúsinu þar
sem Þjóðminjasafnið var til húsa á
árunum 1908-1950. Guðríður Sigurðardóttir,
forstöðumaður Þjóðmenningarhússins
bauð gesti velkomna og kynnti dagskrána sem hófst með
ávarpi Margrétar Hallgrímsdóttur, þjóðminjavarðar.
Sverrir Kristinsson, formaður Minja og sögu, vinafélags
Þjóðminjasafnsins, afhenti þjóðminjaverði
gjöf félagsins í tilefni afmælisins, forláta
drykkjarhorn frá 1759 sem Þór Magnússon fyrrverandi
þjóðminjavörður hafði nýlega fundið
í fornverslun í Kaupmannahöfn. Á meðan forvörður
Þjóðminjasafnsins kom horninu fyrir í sýningarskáp
fluttu Ólöf Íris Sigurjónsdóttir og Hjörleifur
Hjartarson nokkur íslensk lög fyrir gesti. Að lokum flutti
menntamálaráðherra, Tómas Ingi Olrich, ávarp.
Hann lýsti sýninguna opna og tilkynnti jafnframt að
nýr vefur Þjóðminjasafns Íslands færi
í loftið sama dag.
|
Opnun
sýningar um Jóhannes úr Kötlum, skáld
desembermánaðar
Þriðjudaginn 2. desember var opnuð
sýning í bókasal Þjóðmenningarhússins
á verkum Jóhannesar úr Kötlum (1899-1972). Er
Jóhannes skáld desembermánaðar í sýningarröðinni
Skáld mánaðarins.
Við opnunina flutti Guðríður Sigurðardóttir,
forstöðumaður Þjóðmenningarhússins,
ávarp þar sem hún rakti ævi og störf skáldsins
í stuttu máli. Þá las Hjalti Rögnvaldsson,
leikari, ljóð eftir Jóhannes að eigin vali. Skúli
Thorarensen framkvæmdastjóri Skólavefsins kynnti umfjöllun
um skáld mánaðarins á fræðsluvefnum
skolavefurinn.is. Listamennirnir Sigrún Hjálmtýsdóttir,
Valgeir Guðjónsson og Jón Ólafsson fluttu tónlist
við ljóð Jóhannesar úr Kötlum. Að
lokum gaf Ingibjörg Gísladóttir, bókasafnsfræðingur
hjá Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni,
yfirlit yfir efni sýningarinnar í bókasal.
Gerður var góður rómur að dagskránni
og sýningunni en fjöldi manns lagði leið sína
í Þjóðmenningarhúsið til að njóta
hennar.
|
Upplestur
og tónlist í Þjóðmenningarhúsi
Sunnudaginn 16. nóvember,
á degi íslenskrar tungu, efndi Þjóðmenningarhúsið
til dagskrár helgaðri skáldi mánaðarins,
Matthíasi Johannessen.
Flutt
voru lög við ljóð Matthíasar, þar á
meðal lag Páls Ísólfssonar við ljóðið
Hanna, sem Matthías orti til konu sinnar. Þetta fallega lag
hefur aðeins verið flutt einu sinni áður opinberlega,
en þá söng Þuríður Pálsdóttir
lagið í útvarpssal. Að þessu sinni söng
Guðrún Jóhanna Jónsdóttir við undirleik
Ólafs Vignis Albertssonar.
Guðrún Jóhanna
söng einnig þrjú lög eftir föður sinn,
Jón Ásgeirsson. Komu þau öll út á
geisladiski árið 2000. Eitt laganna gaf Jón Matthíasi
í afmælisgjöf þegar hann varð sextugur. Matthías
sendi Jóni síðan ljóðið Júlíkvöld
við Skerjafjörð og samdi Jón lag við ljóðið
og gaf eiginkonu sinni í afmælisgjöf. Var flutningur
Guðrúnar Jóhönnu og Ólafs Vignis einstaklega
vandaður og fagur.
Sigurður Skúlason leikari las ljóð
að eigin vali og kafla úr nýjustu skáldsögu
Matthíasar, Vatnaskil dagbókarsaga, af sinni alkunnu snilld.
Skáld mánaðarins er samvinnuverkefni Þjóðmenningarhússins,
Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns
og Skólavefsins ehf.
|
Nemendaheimsókn
á sýninguna Skáld mánaðarins
Þann 17. nóvember
sl. komu tveir bekkir úr Flensborgarskóla í Hafnarfirði
í nemendaheimsókn, í fylgd kennara síns Símonar
Jóns Jóhannssonar, til þess að hitta skáld
mánaðarins í október og nóvember, Matthías
Johannessen. Matthías las uppúr verkum sínum fyrir
nemana og svaraði spurningum þeirra um skáldskap sinn,
lífsviðhorf og samfélagssýn.
Að umræðum loknum skoðuðu
nemarnir húsið og handritasýninguna með leiðsögn
safnkennara. |
Skáld
mánaðarins heimsækir nemendur í Varmárskóla
Miðvikudaginn
12. nóvember sl. heimsótti Matthías Johannessen,
skáld mánaðarins, 5. bekk ÁJH í Varmárskóla.
Matthías las nokkur ljóð fyrir börnin og sagði
þeim frá uppvexti sínum á hernámsárunum
í Reykjavík. Nokkur barnanna lásu eigin ljóð
fyrir Matthías og afhentu honum afrit til eignar. Börnin voru
líka einkar ötul við að spyrja Matthías útí
líf hans og störf. Matthías hafði á orði
eftir heimsóknina að hann fylltist bjartsýni við
að hitta svona myndarleg börn.
Heimsóknin var liður í fræðslustarfi
Þjóðmenningarhússin í tengslum við
sýningarröðina Skáld mánaðarins sem
er samvinnuverkefni Þjómenningarhúss, Skólavefsins
ehf. og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns.
|
Málþing
í tengslum við sýninguna Hvað er heimsminjaskrá
UNESCO?
Þann 5. nóvember sl. var haldið
málþing, á sænskri menningarviku, í tengslum
við sýninguna Hvað er heimsminjaskrá UNESCO? Margrét
Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður,
er formaður samráðsnefndar um samning UNESCO frá
1972 um menningar- og náttúruarfleifð heimsins og setti
hún málþingið og stýrði því.
Heiðursgestur og frummælandi var Birgitta Hoberg, ráðgjafi
samráðsnefndar og sérfræðingur sænska
þjóðminjavarðarembættisins, sem kom til landsins
í boði sænska sendiráðsins. Að því
búnu flutti Ragnheiður H. Þórarinsdóttir
fulltrúi menntamálaráðuneytis erindi um samninginn
um heimsminjar frá 1972 og aðra UNESCO sáttmála
um menningararfinn. Ræddi hún um stefnu ráðuneytisins
og næstu skref. Að því búnu ræddi
Sigurður Líndal, fulltrúi Þingvallanefndar, um
þróun þinghalds, einkenni laga og lagahugtakið
á miðöldum út frá ríkjandi samfélagsskipan.
Varpaði hann ljósi á sérstöðu Alþingis
á Þingvöllum. Jón Gunnar Ottóson, forstjóri
Náttúrufræðistofnunar Íslands, tók
í erindi sínu dæmi af náttúruminjum
á Íslandi sem eru verðmætar á heimsmælikvarða,
bæði jarðfræðilegum og úr lífríki
landsins, og benti á svæði sem eru einstök. Í
framhaldi af því talaði hann stuttlega um Þingvelli
og Skaftafell út frá náttúrufari á
heimsmælikvarða. Að lokum talaði Ragnar Frank Kristjánsson,
þjóðgarðsvörður í Skaftafelli, um
væntanlega tilnefningu Skaftafells á heimsminjaskrá
út frá náttúrufræðilegu og menningarsögulegu
sjónarhorni.
Málþingið var vel sótt og einstaklega fróðlegt
og er öllum sem áhuga hafa á merkum minjum bent á
að koma á sýninguna um heimsminjaskránna sem
stendur til áramóta hér í Þjóðmenningarhúsinu.
Að málþingi stóðu sömu aðilar og
að samnefndri sýningu, sjá næstu frétt.
|
Sýningaropnun
Hvað er heimsminjaskrá UNESCO?
1. nóvember, 2003
Laugardaginn 1. nóvember
sl. var sýningin Hvað er heimsminjaskrá UNESCO? opnuð
við hátíðlega athöfn.
Á sýningunni er
heimsminjaskrá UNESCO kynnt. Ennfremur er fjallað um tilnefningu
Þingvalla og væntanlega tilnefningu Skaftafells á heimsminjaskrá.
Að sýningunni
standa auk Þjóðmenningarhússins; Þjóðminjasafn
Íslands, sem annaðist sýningarstjórn, Þjóðgarðurinn
á Þingvöllum, Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun
Íslands, Landmælingar Íslands, Húsafriðunarnefnd
ríkisins, Fornleifavernd ríkisins og Örnefnastofnun
Íslands.
Við opnunina flutti Margrét
Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður
ávarp fyrir hönd sýningarnefndar.
Sýningin stendur til áramóta. |
Setningarhátíð
sænskrar menningarviku í Þjóðmenningarhúsinu
Þann
1. nóvember var sænsk menningarvika sett í bókasal
Þjóðmenningarhússins. Sveinn Einarsson, formaður
stjórnar sænsk-íslenska samstarfssjóðsins,
ávarpaði gesti og Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra,
setti menningarvikuna. Kynnt var úthlutun sænsku menningarverðlaunanna
og Berit Oscarsson, varaformaður stjórnar sænsk- íslenska
samstarfssjóðsins og fyrrv. þingmaður, ávarpaði
gesti. Inn á milli ávarpa var söngur, tónlist
og upplestur í flutningi listamanna.
|
Ráðherrar
frá Kína og Slóvakíu skoða handritin
Fimmtudaginn 23. október komu ráðherrar
menntamála og heilbrigðismála með gesti sína
í Þjóðmenningarhúsið.
Menningarmála-ráðherra Kína, Sun Jiazheng, var
í opinberri heimsókn á Íslandi dagana 22.-25.
október, í boði Tómasar Inga Olrich, menntamálaráðherra.
Liður í dagskrá heimsóknarinnar var sýning
Stofnunar Árna Magnússonar, Handritin, hér í
Þjóðmenningarhúsinu. Skoðuðu ráðherrarnir
og föruneyti þeirra sýninguna undir leiðsögn
Gísla Sigurðssonar fræðimanns stofnunarinnar.
Heilbrigðisráðherra Slóvakíu, Rudolf Zajac,
heimsótti Þjóðmenningarhúsið einnig
þennan dag í boði Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra.
Að loknum hádegisverði ráðherranna og embættismanna
þeirra í stofu Jóns Sigurðssonar veitti leiðsögumaður
Þjóðmenningarhússins, Jóhanna Bergmann,
gestunum leiðsögn um handritasýninguna.
|
Væntanlegar
sýningar
Í undirbúningi
er opnun tveggja nýrra sýninga í Þjóðmenningarhúsinu.
Þann 1. nóvember
kl. 16 verður opnuð sýning sem ber yfirskriftina Hvað
er heimsminjaskrá UNESCO?
Á sýningunni er heimsminjaskrá UNESCO kynnt. Ennfremur
er fjallað um tilnefningu Þingvalla og væntanlega tilnefningu
Skaftafells á heimsminjaskrá.
Sýningin stendur til áramóta.
Miðvikudaginn 5. nóvember
kl. 15 - 17 verður, í tengslum við sýninguna, haldið
málþing með sömu yfirskrift.
Þann 6. desember verður opnuð afmælissýning
Þjóðminjasafns Íslands, í tilefni
þess að í ár eru 140 ár liðin frá
stofnun þess. Opnaður verður gluggi inn á sýningu
Þjóðminjasafnsins frá fyrri hluta síðustu
aldar, þegar safnið var til húsa á rishæð
Þjóðmenningarhússins. Sýningin byggir á
Leiðarvísi Matthíasar Þórðarsonar,
þáverandi þjóðminjavarðar, frá
gömlu sýningunni. Leiðarstef sýningarinnar eru
ljósmyndir úr þeirri bók. Um leið og litið
er til aldargamallar sýningargerðar, gefst tækifæri
til þess að bera þá sýn sem þar kemur
fram saman við þær hugmyndir sem lagðar eru til grundvallar
við gerð nýrra sýninga Þjóðminjasafsins
sem áformað er að opna 2004. Fjallað verður um
sögu safnsins, þýðingu þess fyrir íslenskt
samfélag og menningu um leið og varpað er ljósi
á þær breytingar sem orðið hafa á safnastarfi
í tímans rás.
|
Matthías
Johannessen er Skáld mánaðarins
Október, 2003
Föstudaginn 10. október
var opnuð sýning á verkum Matthíasar Johannessen
í sýningarröðinni Skáld mánaðarins
í bókasal Þjóðmenningarhússins.
Þar eru til sýnis nokkur sýnishorn af störfum
hans sem ljóðskáld, leikritaskáld og rithöfundur.
Ljósmyndir frá lífi hans og starfi prýða
sýninguna.
Við opnunina flutti Guðríður Sigurðardóttir
forstöðumaður Þjóðmenningarhússins
ávarp, þar sem hún rakti feril skáldsins. Þá
las Matthías Johannessen óbirt ljóð. Ingibjörg
Gísladóttir bókasafnsvörður við Þjóðdeild
Landsbókasafnsins og Skúli Thorarensen framkvæmdastjóri
Skólavefsins ehf. kynntu efni sýningarinnar, annars vegar
í sýningarskápunum og hins vegar á fræðsluvefnum
skólavefurinn.is.
Sýningin stendur til 25. nóvember.
|
Varnarmálaráðherra
Rússlands skoðar handritin
Október, 2003
Sergei B. Ivanov, varnarmálaráðherra
Rússlands, ásamt Halldóri Ásgrímssyni
utanríkisráðherra og fylgdarliði embættismanna,
var gestur Þjóðmenningarhússins þann 5.
október.
Guðríður Sigurðardóttir forstöðumaður
Þjóðmenningarhúss tók á móti
gestunum og Vésteinn Ólason forstöðumaður Stofnunar
Árna Magnússonar veitti leiðsögn um sýninguna
Handritin.
|
Ráðstefnugestir
í Þjóðmenningarhúsinu
Október, 2003
Laugardaginn 4. október
heimsóttu þátttakendur á ráðstefnu
norrænna rithöfunda- og tónskáldasafna Þjóðmenningarhúsið.
Að loknum hádegisverði í veitingastofu kynnti Guðríður
Sigurðardóttir forstöðumaður gestunum samstarfsverkefnið
Skáld mánaðarins og þýðingu þess
fyrir Þjóðmenningarhúsið. Þáði
hún bók að gjöf frá hópnum.
Að því búnu veitti Gísli Sigurðsson
fræðimaður hjá Stofnun Árna Magnússonar
ráðstefnugestunum leiðsögn um sýninguna Handritin.
|
Skemmtun
í bókasal
September, 2003
Sunnudaginn
21. september var dagskrá í bókasal Þjóðmenningar-hússins,
helguð Jóni Helgasyni, sem er skáld mánaðarins
í september og fram til 7. október. Dagskráin var
að mestu unnin í samvinnu Sólveigar dóttur Jóns
og Þórunnar sonardóttur hans og sett fram í
"kvöldvökustíl" með lestri og söng.
Afkomendur Jóns lásu úr bréfum sem hann skrifaði
fjölskyldunni á ýmsum tímum, allt frá
því að börnin voru lítil.
Ljóð Jóns
Helgasonar voru sungin af Skólakór Kársness undir
stjórn Þórunnar Björnsdóttur og Kór
Menntaskólans í Reykjavík undir stjórn Marteins
H. Friðrikssonar. Auk þess söng Bergþór Pálsson
einsöng og tvö ljóð voru sungin í almennum
söng með þátttöku gestanna. Dagskráin
var fjölsótt og gaf gestum nýja og persónulega
sýn á skáldið, fræðimanninn og fjölskyldumanninn
Jón Helgason.
|
Sýningarlok:
Landnám og Vínlandsferðir og Íslandsmynd í
mótun - áfangar í kortagerð
September, 2003
Sýningarnar Landnám
og Vínlandsferðir og Íslandsmynd í mótun
- áfangar í kortagerð hafa runnið sitt skeið
á enda innan veggja Þjóðmenningarhússins.
Hlutar sýninganna verða sendir á sýningarstaði
á landsbyggðinni.
Sýningin Landnám
og Vínlandsferðir var opnuð vorið 2000 á rishæð
Þjóðmenningarhússins þegar húsið
var opnað eftir gagngerar breytingar. Sýningin var hluti af
dagskrá Reykjavíkur menningarborgar Evrópu árið
2000 og styrkt af Landafundanefnd.
Sýningin Íslandsmynd í mótun
- áfangar í kortagerð var opnuð 8. nóvember
2002 en hún var unnin í samvinnu Landsbókasafns Íslands
- Háskólabókasafns, Landmælinga Íslands
og Seðlabanka Íslands.
|
Vetrarstarf
í Þjóðmenningarhúsi
Skáld mánaðarins hefur göngu sína á
ný
September, 2003
Jón Helgason (1899-1986)
er fyrsta Skáld mánaðarins í bókasal Þjóðmenningarhússins
í vetur. Var sýning á verkum Jóns opnuð
miðvikudaginn 10. september. Forstöðumaður Þjóðmenningarhússins
Guðríður Sigurðardóttir rakti feril skáldsins,
Ögmundur Helgason fostöðumaður handritadeildar Landsbókasafns
Íslands - Háskólabókasafns sagði frá
kynnum sínum af Jóni Helgasyni, Skúli Thorarensen
kynnti efni Skólavefsins um Jón Helgason á heimasíðunni
www.skolavefurinn.is og Ingibjörg Gísladóttir frá
þjóðdeild Landsbókasafnsins gaf gestum yfirlit
yfir sýninguna í bókasalnum. Þar eru til sýnis
nokkur verk með ljóðum Jóns og þýðingum,
og sýnishorn af störfum hans sem fræðimanns. Ljósmyndir
frá lífi hans og starfi prýða sýninguna.
Sýningin stendur til 7. október.
|
Sellóleikur
í bókasal Þjóðmenningarhússins
September, 2003
Nemar í selló-
og bassaleik frá Katalóníu á Spáni
heimsóttu Þjóðmenningarhúsið 10. september
ásamt tónlistarkennurum, foreldrum og tónskáldinu
Snorra Birgissyni. Hópurinn lék þrjú verk í
bókasalnum, þar af eitt eftir Snorra Birgisson, sem stjórnaði
flutningnum.
Um nemendaskipti er að ræða og í
tengslum við þau fer hópur íslenskra nema í
hljóðfæraleik til Katalóníu og æfir
með þarlendum listamönnum. |
Menningarnótt
í Reykjavík
Ágúst, 2003
Þjóðmenningarhúsið
var þátttakandi í menningarnótt 16. ágúst.
Húsið var opið frá morgni til kvölds og heimsótti
fjöldi manns hinar fjölbreytilegu sýningar með sýningu
stofnunar Árna Magnússonar, Handritin – saga handrita
og hlutverk um aldir, í öndvegi.
Bókasalur Þjóðmenningarhússins
fylltist í þrígang þegar Anna Pálína
og Aðalsteinn Ásberg, ásamt þeim Gunnari Gunnarssyni
píanóleikara og Gunnari Hrafnssyni bassaleikara, héldu
sína rómuðu Stofutónleika þar. Þau
hafa sem kunnugt er einstakt lag á að ná til breiðs
aldurshóps í flutningi sínum á vísnalögum
og ljóðum eins og tónleikar þeirra í Þjóðmenningarhúsinu
báru fagurt vitni.
|
Dr.
Philippe Busquin heimsótti Þjóðmenningarhúsið
14. ágúst, 2003
Dr. Philippe Busquin, yfirmaður vísinda-
og tæknimála í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins
heimsótti Þjóðmenningarhúsið þann
14. ágúst ásamt Tómasi Inga Olrich menntamálaráðherra.
Skoðaði dr. Busquin sýninguna Handritin undir leiðsögn
Vésteins Ólasonar forstöðumanns Stofnunar Árna
Magnússonar. A myndinni eru dr. Vésteinn Ólason forstöðumaður
Stofnunar Árna Magnússonar og Guðríður Sigurðardóttir
forstöðumaður Þjóðmenningarhússins
ásamt dr. Philippe Busquin. |
Ráðstefnugestir
í Þjóðmenningarhúsi
Ágúst, 2003
Nokkrir gestafyrirlesarar á ráðstefnu Íslensku
menntasamtakanna um menntun á 21. öldinni skoðuðu sýningar í Þjóðmenningarhúsinu
mánudaginn 4. ágúst. Sýningar Þjóðmenningarhússins
vöktu mikla athygli gestanna. Á myndinni með gestunum
eru Vésteinn Ólason forstöðumaður Stofnunar
Árna Magnússonar sem veitti gestum leiðsögn um
sýningu stofnunarinnar Handritin og Guðríður Sigurðardóttir
forstöðumaður Þjóðmenningarhússins.
Neðst til hægri er aðalfyrirlesari ráðstefnunnar
hinn heimsþekkti sálfræðingur dr. Howard Gardner
prófessor við Harvard háskóla í Boston.
|
Forseti Þýskalands heimsækir
Þjóðmenningarhúsið
Júlí, 2003
Forseti
Þýskalands, dr. Johannes Rau og eiginkona hans, frú
Christina Rau, komu í opinbera heimsókn til Íslands
í boði forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar,
dagana 1. - 2. júlí. Liður í dagskrá heimsóknarinnar
var heimsókn í Þjóðmenningarhúsið.
Forsetahjónin skoðuðu Handritasýningu Stofnunar
Árna Magnússonar undir leiðsögn dr. Vésteins
Ólasonar forstöðumanns. Auk þess voru þeim
sýndir þjóðbúningar frá Þjóðminjasafni
Íslands. Í bókasal Þjóðmenningarshússin
hlýddu forsetar Þýskalands og Íslands ásamt
eiginkonum og fylgdarliði á fyrirlestur um notkun vetnis í
orkuframleiðslu á vegum fyrirtækisins Nýorku.
|
Íslendingasögur á erlendum
tungumálum
Júní, 2003
Bókasalur Þjóðmenningarhússins
er helgaður ritmenningu Íslendinga. Í bókasalnum
hefur nú verið sett upp sumarsýning sem ber yfirskriftina
Íslendingasögur á erlendum málum. Sýningunni
er ætlað að gefa gestum innsýn í þennan
einstaka bókmenntaarf um leið og athygli þeirra er vakin
á því að fjölmargar útgáfur
Íslendingasagna eru til á erlendum málum.
Sumarsýningin er samvinnuverkefni
Þjómenningarhúss og Landsbókasafns Íslands
– Háskólabókasafns sem setur upp sýninguna
í bókasal Þjóðmenningarhúss.
Sumarsýningin stendur út ágústmánuð.
|