Eldri fréttir 2004

Aðventudagskrá Þjóðmenningarhússins - eitthvað fyrir alla

11. desember 2004

Ókeypis aðgangur og fjölbreytt dagskrá var fyrir alla fjölskylduna laugardaginn 11. desember í Þjóðmenningarhúsinu. Jólamarkaður var opnaður í anddyri hússins og verður hann opinn alla daga til jóla. Þar er hægt að fá handgerð kóngakerti, jólakort Þjóðmenningarhússins, tónlist, kort og bækur, járnlist, konfekt og annað til jólanna.

Dagskráin samanstóð af leiðsögnum um sýningar fyrir börn og fullorðna, lestri fyrir börn, opnun sýningarinnar Silfurplötur Iðunnar og utandyra lék lúðrasveitarkvintett Tónlistarskólans á Seltjarnarnesi jólalög.

Silfurplötur Iðunnar - tónlistararfur Íslendinga kynntur í Þjóðmenningarhúsinu

11. desember 2004

Kvæðamannafélagið Iðunn og Smekkleysa, í samvinnu við Þjóðmenningarhúsið, standa að sýningu um Silfurplötur Iðunnar sem opnuð var laugardaginn 11. desember og var dagskráin við opnun hluti af aðventudagskrá Þjóðmenningarhússins. Kvæðamenn Iðunnar kváðu nokkrar stemmur og kynntu sögu hljóðritunarinnar á silfurplöturnar, leitinni að kvæðamönnum og höfundum og fleira.

Markar þetta upphafið að kynningu á tónlistararfi Íslendinga í Þjóðmenningarhúsinu.

Myndlistarmaður mánaðarins - ný sýningarröð í Þjóðmenningarhúsinu

10. desember 2004

Skólavefurinn og Þjóðmenningarhúsið hafa tekið höndum saman um kynningu á Myndlistarmanni mánaðarins . Í því felst umfjöllun um listamann á Skólavefnum með sýnishornum og verkefnum sem honum tengjast og yfirlitssýning í Þjómenningarhúsinu á verkum hans. Markmiðið er að gera myndlistina aðgengilega skólabörnum og almenningi almennt.

Bragi Ásgeirsson er fyrsti myndlistarmaður mánaðarins. Bragi hefur í rúmlega hálfa öld verið einn af máttarstólpum íslensks lista- og menningarlífs, bæði með beinum hætti sem sjálfstæður myndlistarmaður og þá hefur hann um árabil skrifað um myndlist í Morgunblaðið og kennt upprennandi myndlistarmönnum.

Yfirlitssýning með verkum Braga var opnuð föstudaginn 10. desember og gerðu margir velunnarar myndlistarinnar sér ferð í Þjóðmenningarhúsið af því tilefni.

Lokadagskrá hátíðarhalda vegna heimastjórnarafmælisins

6. desember 2004

Í tilefni loka heimastjórnarafmælisins var efnt til dagskrár í bókasal Þjóðmenningarhússins. Guðrún Garðarsdóttir, staðgengill forstöðumanns, bauð gesti velkomna og kynnti dagskrána. Forsætisráðherra Halldór Ásgrímsson flutti ávarp. Fór hann meðal annars yfir dagskrá hátíðarinnar frá ársbyrjun. Forsætisráðherra lét einnig herma að komið yrði á fót nefnd sem skyldi fjalla um mögulegar breytingar á stjórnarskránni.

Í lokin fjallaði pallborð prófessoranna Bjargar Thorarensen, Gunnars Helga Kristinssonar og Ólafs Þ. Harðarsonar um efnið þróun framkvæmdavalds gagnvart löggjafarvaldi. Umræðunni stjórnaði Ólafur Teitur Guðnason blaðamaður. Í inngangsorðum pallborðsins kynnti ráðherra norrænna samstarfsmála Valgerður Sverrisdóttir m.a. norræna skýrslugerð um lýðræði á Norðurlöndum.

Að dagskrá lokinni var móttaka fyrir gesti inni á sýningunni Heimastjórn 1904 þar sem af þessu tilefni var sett var upp viðbót við sýninguna með bréfum Hannesar Hafstein og öðrum skjölum sem varða kosningabaráttu hans 1903.

Ferðalög skáldskaparins

3. desember 2004

Föstudaginn 3. desember var dagskrá í bókasal helguð skáldi mánaðarins Jóhanni Hjálmarssyni.

Gauti Kristmannsson flutti erindi um Jóhann, ljóð hans og ljóðaþýðingar. Þá kynnti Guðmundur Emilsson tónverk fyrir hljómsveit og kór eftir bandaríska tónskáldið William Harper, samið við ljóðið Marlíðendur úr svonefndum Eyrbyggjuþríleik Jóhanns. Jóhann las ljóðið og fluttur var kafli úr verkinu af hljómdiski. Að lokum spjallaði Silja Aðalsteinsdóttir við skáldið og opnaði fyrir umræður.

Viðstaddir áttu saman ánægjulega stund þar sem ferðalög skáldskaparins voru rakin tungumála og tjáningarforma á milli.

Úthlutun úr Kristnihátíðarsjóði 2004

1. desember 2004

Kristnihátíðarsjóður úthlutaði við athöfn í bókasal fé úr sjóðnum til verkefna sem tengjast menningar- og trúararfi þjóðarinnar og fornleifarannsóknum. Meðal viðstaddra voru forseti Íslands Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra, fulltrúar ríkisstjórnar og ráðuneyta og styrkþegar.

Skáld mánaðarins lásu úr nýjum verkum í hádeginu

25. nóvember 2004  

Skáld mánaðarins Jóhann Hjálmarsson, Matthías Johannessen, Vilborg Dagbjartsdóttir, Þórarinn Eldjárn og Sjón lásu úr verkum sínum í veitingastofunni í Þjóðmenningarhúsinu í hádeginu þennan fimmtudag. Áheyrendur gátu fengið sér súpu eða aðrar veitingar á meðan hlýtt var á lesturinn og tónlistina sem leikin var á þverflautu og fiðlu á milli höfunda.

Heiðursstund fyrir Hauk Tómasson, verðlaunahafa Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2004

17. nóvember 2004

Hópur íslenskra tónlistarmanna og Íslandsdeild Norðurlandaráðs í samvinnu við Þjóðmenningarhúsið gengust fyrir dagskrá til heiðurs Hauki Tómassyni tónskáldi, handhafa tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2004, hér í Þjóðmenningarhúsinu miðvikudaginn 17. nóvember sl.

Haukur hlaut verðlaunin fyrir tónlistina við óperuna „Fjórði söngur Guðrúnar” og voru þau afhent við hátíðlega athöfn á þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi 2. nóvember sl.

Í rökstuðningi dómnefndar sagði m.a.: „Í verki Hauks Tómassonar, Fjórði söngur Guðrúnar, er gríðarleg spenna milli nútímalegra og nýskapandi þátta og gömlu bókmenntahefðarinnar sem höfundurinn sækir til Eddunnar. Hrynjandi Eddukvæðanna endurspeglast í takti tónlistarinnar og blóðhefndarfrásögnin er sögð í hljómum og laglínum.”

Dagskrá

Hátíðarávarp; Jónína Bjartmarz, formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs

Tónlist eftir Hauk Tómasson:

Spring Chicken (2001)
Grímur Helgason, klarínett

Árni Heimir Ingólfsson flutti erindi um tónlist Hauks

Langur skuggi (2002)
fyrir strengjakvartett
Auður Hafsteinsdóttir, fiðla
Greta Guðnadóttir, fiðla
Þórunn Ósk Marínósdóttir, lágfiðla
Sigurður Bjarki Gunnarsson, selló

Matthías Johannessen las ljóð sitt, Fögnuð

Fögnuður (2004) frumflutningur
Tileinkað Þorgerði og Hamrahlíðarkórunum
Hamrahlíðarkórinn , Þorgerður Ingólfsdóttir stjórnaði

Að dagkrá lokinni voru bornar fram veitingar fyrir gesti og flutningsmenn tónlistar og talaðs máls. Voru hlutaðeigendur og gestir einstaklega ánægðir með þessa kvöldstund, Hauki til heiðurs.

Aðalfundur ÞFÍ - menningardagskrá

6. nóvember 2004

Aðalfundur Þjóðræknisfélags Íslendinga var haldinn í Þjóðmenningarhúsinu. Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum hófst vegleg menningar- og fræðsludagskrá. Meðal fjölbreyttra dagskráratriða má nefna ávörp Poul Sveinbjorn Johnson frv. ræðismanns í Chicago og Stefan J. Stefanson frá Gimli sem var heiðursgestur fundarins. Þá kynnti Steinþór Guðbjartsson ritstjóri nýjar áherslur hjá blaðinu Lögberg - Heimskringla. Þátttakendur í Snorri West verkefninu sögðu frá reynslu sinni og Bjarni Jónsson kynnti leikgerð sína á “Hýbýli vindanna”, sem frumsýnd verður í Borgarleikhúsinu í janúar. Valgeir Þorvaldsson flutti kveðju frá Veturfarasetrinu á Hofsósi.

Að dagskrá lokinni bauð Þjóðmenningarhúsið viðstöddum kynningu á húsinu og helstu sýningum.

Að lokum bauð utanríkisráðherra til móttöku.

Skáld mánaðarins Jóhann Hjálmarsson – opnun sýningarinnar

5. nóvember 2004

Skáld nóvember og desember mánaða er Jóhann Hjálmarsson (f. 1939). Sýning á verkum hans var opnuð í bókasal föstudaginn 5. nóvember og var fjölmenni viðstatt dagskrá af því tilefni.

Guðrún Garðarsdóttir skrifstofustjóri steig í pontu fyrir hönd Þjóðmenningarhúss og bauð gesti velkomna og greindi frá dagskránni. Þröstur Helgason bókmenntafræðingur og umsjónarmaður Lesbókar Morgunblaðsins flutti erindi um verk Jóhanns. Jóhann las þvínæst eitt ljóða sinna. Tríó Carls Möller lék svo af einstöku næmi tónlist Carls við ljóð úr bókinni “Hljóðleikar”. Carl lék sjálfur á flygil, Guðmundur Steingrímsson á trommur og Jón Rafnsson á kontrabassa. Hjalti Rögnvaldsson leikari las ljóðin upp með undirleik hljómsveitarinnar og gerði það ákaflega vel eins og við var að búast af Hjalta. Að lokum kynnti Ingibjörg Gísladóttir frá Þjóðdeild Landsbókasafn – Háskólabókasafns efni sýningarinnar fyrir viðstöddum.

Meðal gesta var dagskrárgerðarfólk frá menningarþættinum Mósaík en fjallað verður um Jóhann sem skáld mánaðarins í þættinum 16. nóvember.

Skáld mánaðarins er samstarfsverkefni Þjóðmenningarhúss, Landsbóksafns – Háskólabókasafns, Skólavefjarins ehf (www.skolavefur.is) og Stofnunar Gunnars Gunnarssonar.

Tónleikar Kammersveitar Reykjavíkur

31. október 2004

Sunnudagskvöldið 31. október sl. hélt Kammersveit Reykjavíkur tónleika í bókasal Þjóðmenningarhússins.

Yfirskrift tónleikanna var Haustkyrrðin í lífi og náttúru enda verkin þrjú á efnisskránni öll einstaklega hugljúf og falleg:

Sveinbjörn Sveinbjörnsson - Píanótríó í e-moll
Jón Leifs - Variazioni pastorali op. 8 fyrir strengjakvartett við stef eftir Ludwig van Beethoven
F. Schubert - Strengjakvintett í C-dúr op. 163

Tónleikarnir voru mjög vel sóttir og voru bæði gestir og tónlistarfólkið ánægt með kvöldið, hljómsveitin fyrsta flokks og salurinn afar vel fallinn til tónlistarflutnings.

Þetta voru fyrstu tónleikar Kammersveitarinnar í Reykjavík á þessum vetri.

Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness afhent í Þjóðmenningarhúsinu

27. október 2004

Verðlaunin hlaut Gerður Kristný fyrir skáldsöguna Bátur með segli og allt. Dröfn Þórisdóttir útgáfustjóri Vöku-Helgafells var formaður dómnefndar og afhenti hún Gerði verlaunin við hátíðlega athöfn. Meðal gesta voru frú Auður Laxness og Þorgerður Katrín Gunnardsóttir menntamálaráðherra.

 

Heilbrigðisráðherra Kína skoðaði handritasýninguna

13. október 2004

Heilbrigðisráðherra Kína Gao Qiang kom í opinbera heimsókn til landsins í boði Heilbrigðisráðuneytisins. Hann kom ásamt fylgdarliði sínu í Þjóðmenningarhúsið þar sem hann skoðaði Handritin, sýningu Stofnunar Árna Magnússonar, með leiðsögn Jóhönnu Bergmann, leiðsögumanns hússins.

Skáksamband Íslands efndi til viðburðar í Þjóðmenningarhúsinu

7. október 2004

Skáksamband Íslands efndi til blaðamannafundar í bókasal Þjóðmenningarhússins þar sem forseti sambandsins, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, kynnti stefnumörkun sambandsins undir kjörorðinu “Finnur fjórir”. Ólympíusveit Íslands sem keppir á Ólympíuskákmótinu á Spáni var einnig kynnt ásamt nýjasta stórmeistara landsins og fyrstu konunni í þeim hópi, Lenku Ptacnikovu. Að því búnu tefldi Lenka fjöltefli við landslið stúlkna í skák og Guðlaug Þorsteinsdóttir, fyrrum Norðurlandameistari í skák, tefldi fjöltefli við Norðurlandameistara grunnskólasveita í skák 2004, Rimaskóla og Laugalækjaskóla.

Íslensku barnabókaverðlaunin afhent í Þjóðmenningarhúsinu

30. september 2004

Brynhildur Þórarinsdóttir tók við Íslensku barnabókaverðlaununum við hátíðlega athöfn í bókasal Þjóðmenningarhússins. Verðlaunin hlaut hún fyrir bók sína Leyndardómur ljónsins en dómnefnd var sammála um að handritið bæri af öðrum sem send voru inn í keppnina. Edda miðlun og útgáfa stendur að keppninni og veitir verðlaunin.

Ráðgátan um Gunnar Gunnarsson

26. september 2004

Einar Már Guðmundsson rithöfundur hélt erindi sem hann nefnir Ráðgátan um Gunnar Gunnarsson í tengslum við sýninguna Skáld mánaðarins sem nú er Gunnar Gunnarsson.

Einar Már fjallaði almennt um Gunnar og skáldverk hans en hann vinnur um þessar mundir að kvikmyndahandriti eftir skáldsögu Gunnars, Svartfugl.

Fjölmennt var í bókasal af þessu tilefni og gáfu gestir sér góðan tíma til að skoða sýninguna um Gunnar Gunnarsson að loknu fræðandi og skemmtilegu erindi Einars Más.

Gunnar Gunnarsson er skáld mánaðarins

10. september 2004

Föstudaginn 10. september var opnuð sýning á verkum Gunnars Gunnarssonar í bókasal Þjóðmenningarhússins. Sýningin er hluti af samstarfsverkefni um Skáld mánaðarins sem Þjóðmenningarhúsið, Skólavefurinn, Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn og Þjóðminjasafnið hafa staðið að síðustu vetur. Við opnunina varð Gunnarsstofnun formlegur samstarfsaðili að verkefninu og laugardaginn 11. september var opnuð lítil sérsýning um Gunnar skáld á Skriðuklaustri.

Við opnun frumflutti Sigrún Hjálmtýsdóttir við undirleik Önnu Guðnýjar Halldórsdóttur hluta úr Söngvasinfóníu Áskels Mássonar sem hann byggir á Sonnettusveig Gunnars Gunnarssonar. Guðríður Sigurðardóttir forstöðumaður Þjóðmenningarhússins flutti ávarp um skáldið Gunnar og verk hans og Skúli Björn Gunnarsson forstöðumaður Stofnunar Gunnars Gunnarssonar fræddi gesti um hlutverk og starf stofnunarinnar.

Að lokum var gestum boðið að skoða sýninguna sem sett er upp af þjóðdeild Landsbókasafns – Íslands Landsbókasafns. Að auki var vefgátt Skólavefsins um Gunnar opnuð og aðgengileg gestum á sýningunni.

Forsætisráðherra Finna boðið í Þjóðmenningarhúsið

7. ágúst 2004

Matti Vanhanen, forsætisráðherra Finnlands, kom þann 7. ágúst sl. í opinbera heimsókn til Íslands ásamt Merja Vanhanen, eiginkonu sinni. Vanhanen hjónin og fylgdarlið komu við það tækifæri í Þjóðmenningarhúsið og nutu leiðsagnar Vésteins Ólasonar forstöðumanns Stofnunar Árna Magnússonar um sýninguna Handritin.

Að því búnu bauð Halldór Ásgrímsson starfandi forsætisráðherra gestunum til hátíðarkvöldverðar í bókasal Þjóðmenningarhússins.

Varaforseti kínverska þingsins kemur í Þjóðmenningarhúsið

10. júlí 2004

Wang Zhaoguo varaforseti kínverska þingsins var í opinberri heimsókn í boði Halldórs Blöndals foseta Alþingis Íslendinga dagana 9. – 12. júlí sl. Af því tilefni kom hann ásamt fylgdarliði sínu, íslenskum þingmönnum og embættismönnum í Þjóðmenningarhúsið. Skoðaði varaforsetinn og fylgdarlið hans sýninguna Handritin undir leiðsögn Vésteins Ólasonar forstöðumanns Stofnunar Árna Magnússonar. Að því búnu var efnt til hátíðarkvöldverðar í bókasal Þjóðmenningarhússins í boði forseta Alþingis.

Norski krónprinsinn og eiginkona hans heimsækja Þjóðmenningarhúsið

28. júní 2004

Hákon krónprins Noregs og eiginkona hans Mette-Marit krónprinsessa komu í opinbera heimsókn til Íslands í boði Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands dagana 27.-30. júní 2004. Liður í dagskránni fyrir hina tignu gesti var heimsókn í Þjóðmenningarhúsið þar sem Guðríður Sigurðardóttir forstöðumaður tók á móti þeim og forsetahjónunum. Skoðuðu gestirnir Handritasýningu Stofnunar Árna Magnússonar undir leiðsögn dr. Vésteins Ólasonar forstöðumanns.

Menntamálaráðherra Slóvakíu skoðar handritin

22. júní 2004

Martin Fronc menntamálaráðherra Slóvakíu heimsótti Þjóðmenningarhúsið ásamt Andrej Sokolik sendiherra Slóvakíu og konu hans frú Sokolikova og fylgdarliði. Guðríður Sigurðardóttir forstöðumaður tók á móti gestunum og fór yfir sögu Þjóðmenningarhússins. Sigurgeir Steingrímsson aðstoðarforstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar veitti hinum góðu gestum leiðsögn um sýninguna Handritin.

Opnun sumarsýningar í bókasal Þjóðmenningarhúss

11. júní 2004

Föstudaginn 11. júní var sýningin Eddukvæði opnuð í bókasal Þjóðmenningarhúss. Á sýningunni eru fjölbreyttar útgáfur af eddukvæðunum allt frá elstu útgáfum og sjaldgæfum myndskreyttum útgáfum til nýlegra fjöldaframleiddra vasaútgáfa fyrir ferðamenn. Margar glæsilegar bækur með eddukvæðunum hafa komið út í gegnum tíðina á fjölda tungumála og listamenn, fræðimenn og annað áhugafólk sótt í kvæðin innblástur og fróðleik.

Við opnunina flutti Guðríður Sigurðardóttir forstöðumaður Þjóðmenningarhússins stutt ávarp og Hjalti Rögnvaldsson leikari las kvæðabálkinn Alvísmál upp fyrir viðstadda. Ingibjörg Gísladóttir frá Þjóðdeild Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, kynnti að því búnu útgáfurnar sem á sýningunni eru.

Sýningin stendur út ágústmánuð.

Bókmenntaklúbbur Hana-nú flutti dagskrá um Sjón - skáld mánaðarins

23. maí 2004

Við upphaf dagskrár bauð Guðríður Sigurðardóttir forstöðumaður Þjóðmenningarhússins gesti velkomna og hafði orð á því hve skemmtilegt það væri að Sjón laðaði alla aldurshópa í Þjóðmenningarhúsið. Þakkaði hún Sjón fyrir mjög ánægjulega samvinnu en sýningu á verkum hans sem skáld mánaðarins er senn að ljúka.

Dagskráin sem hópurinn flutti var á þessa leið:

  1. Bland í poka. Ýmis ljóð flutt einkum elstu ljóð skáldsins.
  2. Ljóð sem tengjast draumum á einhvern hátt.
  3. Fröken Birgitta í fjölbýlishúsinu.
  4. Skáldsagan Skugga Baldur - viðureign séra Baldurs og tófunnar.

Dagskránni stýrði Ásdís Skúladóttir leikstjóri og var hún jafnframt kynnir. Soffía Jakobsdóttir leikkona valdi ljóðin og æfði dagskráratriði. Þeir sem fram komu og fluttu verk skáldsins eru:

  • Kristján Guðmundsson
  • Elísabet Sveinsdóttir
  • Hrafnhildur Bergsveinsdóttir
  • Inga Gísladóttir
  • Hólmfríður Bjarnadóttir
  • Auður Jónsdóttir
  • Sigurður Jóelsson
  • Hanna Aðalsteinsdóttir
  • Jóna Sveinsdóttir
  • Aðalbjörg Jónsdóttir
  • Þórdís Guðjónsdóttir
  • Ingibjörg Óskarsdóttir
  • Sigurður Flosason
  • Ásta Díana Stefánsdóttir

Var dagskráin afar vel undirbúin og flutt. Sjón þakkaði Hana-nú fyrir og sagðist hrærður yfir því að hafa fengið að njóta þess að hlusta á hópinn og þakkaði þeim og öllum viðstöddum fyrir þessa stund.

Skyndipróf í draumráðningum

16. maí 2004

Svo nefndist dagskrá í bókasal sunnudaginn 16. maí um þátt drauma í skrifum Sjóns, skálds mánaðarins. Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur sem gert hefur fræðilega úttekt á verkum skáldsins flutti inngang þar sem hún sýndi fram á þátt draumsins í skrifum skáldsins frá upphafi. Sjón las upp nokkur ljóða sinna og bæði tóku þau þátt í líflegum umræðum með þátttakendum sem Guðríður Sigurðardóttir forstöðumaður Þjóðmenningarhússins stýrði.

Forseti Eistlands heimsótti Þjóðmenningarhúsið

4. maí 2004

Forseti Eistlands Arnold Rüüter og eiginkona hans Ingrid voru í opinberri heimsókn á Íslandi í boði forseta Íslands dagana 4. og 5. maí sl. Forsetarnir og fylgdarlið þeirra heimsóttu Þjóðmenningarhúsið og skoðuðu húsið í fylgd forstöðumanns Guðríðar Sigurðardóttur. Vésteinn Ólason forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar veitti gestunum leiðsögn um sýninguna Handritin.

Þór Magnússon minntist "gamla safnsins"

18. apríl 2004

Þór Magnússon fyrrverandi þjóðminjavörður rifjaði upp minningar af “gamla safninu” á sýningunni Þjóðminjasafnið – svona var það á rishæð Þjóðmenningarhússins sunnudaginn 18. apríl sl.

Þór byrjaði á að segja frá upphafsárum Þjóðminjasafnins, gekk svo með gestum um sýninguna og rifjaði upp sögur um einstaka gripi. Gerði Þór sérstaklega að umtalsefni hið svokallaða Vídalínssafn sem telur marga mestu dýrgripi sem þjóðin á. Hann sagði einnig frá æskuminningum sínum af heimsóknum á Þjóðminjasafnið síðasta árið sem það var til húsa í risi Þjóðmenningarhússins (1949-1950).

Að lokum gerði Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður grein fyrir grip sem safninu var gefinn við opnun sýningarinnar í desember sl.; forláta útskorið drykkjarhorn frá 1759 sem Þór kom einmitt auga á í forngripaverslun í Kaupmannahöfn á síðasta ári. Minjar og saga, félag velunnara Þjóðminjasafnsins, festi kaup á horninu og færði það safninu.

Margir gerðu sér ferð í Þjóðmenningarhúsið til þess að hlýða á Þór ausa af sínum sagnabrunni.

Sjón er skáld mánaðarins - opnun sýningar

16. apríl 2004

Skáldið, textahöfundurinn og rithöfundurinn Sjón er skáld mánaðarins í apríl og maí. Sýning með úrvali verka hans, ásamt ýmsu öðru forvitnilegu sem tengist fjölbreyttum ferli hans, var opnuð þann 16. apríl sl.

Við opnunina rakti Guðríður Sigurðardóttir forstöðumaður feril skáldins sem spannar nú þegar 26 ár. Þvínæst las Sjón ljóð sitt Sýnir úr samnefndri bók sem kom út árið 1978; svona yrkja menn 15 ára í Breiðholtinu sagði skáldið. Þá kynnti Skúli Thorarensen framkvæmdastjóri Skólavefsins umfjöllun um skáld mánaðarins á fræðsluvefnum skolavefurinn.is þar sem birtist meðal annars viðtal við Sjón, auk ljóða og sagna með skýringum, verkefnum og fleiru. Ingibjörg Gísladóttir frá Landsbókasafni – Háskólabókasafni skýrði efni sýningarinnar fyrir gestum. Að lokum flutti dansk-íslenska klezmer hljómsveitin Schpilkas eigin útsetningar á lögum með textum eftir Sjón.

Fjölmargir gestir úr ýmsum áttum heiðruðu Sjón með nærveru sinni þessa litríku eftirmiðdasstund og var glatt á hjalla í bókasalnum.

Vox feminae hélt opna æfingu í Þjóðmenningarhúsinu

1. apríl 2004

Kvennakórinn Vox feminae hélt æfingu sem var öllum opin undir stjórn Margrétar Pálmadóttur í Þjóðmenningarhúsinu fimmtudaginn 1. apríl.

Kórinn söng lög af fjölbreyttri efnisskrá sinni, íslensk þjóðlög og sönglög samin eða rituð fyrir kvennakóra. Einnig söng kórinn verk af efnisskrá af fyrirhuguðum tónleikum Vox Feminae í Salnum í Kópavogi þann 2. maí. Þá söng kórinn tvær þulur eftirTheodóru Thoroddssen en hún er eitt fjögurra skálda mánaðarins í Þjóðmenningarhúsinu um þessar mundir.

Inga Bachmann söng einsöng með kórnum. Píanóleikari var Arnhildur Valgarðsdóttir.

Æfingin var öllum opin og í raun var um fullgilda tónleika að ræða sem gerður var góður rómur að.

Skáld mánaðarins: aldamótaskáld, tónlist og talað mál

28. mars 2004

Þann 28. mars sl. var dagskrá um skáld mánaðarins í bókasal Þjóðmenningarhússins.

Guðríður Sigurðardóttir forstöðumaður Þjóðmenningarhússins bauð gesti velkomna og kynnti flytjendur. Þá sagði Þórunn Valdimarsdóttir sagnfræðingur og rithöfundur frá Matthíasi Jochumssyni ungum en hún hefur unnið að ævisögu Matthíasar um nokkurt skeið. Að lokum söng Ólafur Kjartan Sigurðarson lög við ljóð aldamótaskálda við undirleik Jónasar Ingimundarsonar.

Segja má að einstök stemning hafi myndast meðal gesta þessa eftirmiðdagsstund og að enginn hafi farið ósnortinn frá þessum viðburði í bókasal.

Vetrarhátíð í Þjóðmenningarhúsi

22. febrúar 2004

Þjóðmenningarhúsið tók þátt í Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar með því að bjóða gestum leiðsögn um sýningar. Gísli Sigurðsson fræðmaður hjá Stofnun Árna Magnússonar fylgdi gestum um sýninguna Handritin og Sigrún Kristjánsdóttir, fagstjóri safnfræðslu Þjóðminjasafns Íslands, sá um leiðsögn á sýningunni Þjóðminjasafnið – svona var það.
Ánægjulegt er hve framtakinu var vel tekið.

Sýningin Heimastjórn 1904 opnuð við hátíðlega athöfn

3. febrúar 2004

Þjóðmenningarhúsið minnist aldarafmælis heimastjórnar með sýningunni Heimastjórn 1904.

Dagskrá við opnun hófst með því að Guðríður Sigurðardóttir forstöðumaður Þjóðmenningarhúss bauð gesti velkomna og Salóme Þorkelsdóttir formaður sjórnar Þjóðmenningarhússins flutti ávarp. Þá söng Ólafur Kjartan Sigurðsson nokkur ættjarðarlög við undileik Jónasar Ingimundarsonar. Að því búnu ávarpaði Davíð Oddsson forsætisráðherra gesti og opnaði sýninguna.

Sýningin dregur upp mynd af þeim breytingum sem urðu við flutning framkvæmdavaldsins til Íslands og sýnir framfarir og framkvæmdir sem einkenndu þennan tíma í lífi þjóðarinnar. Árni Páll Jóhannsson hannaði sýninguna og handrit skrifaði Helgi Skúli Kjartansson sagnfræðingur.

Skólavefurinn ehf. hefur gert fræðslu- og margmiðlunarefni um sjálfstæðisbaráttuna og heimastjórnartímann sem er aðgengilegt á sýningunni. Efnið er hugsað sem fræðslubrunnur sem sækja má í fróðleik og skemmtiefni með myndskreyttum ljóðum, hreyfimyndum og fleira.

Þjóðmenningarhúsið stendur að sýningunni í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands.

Fjögur Aldamótaskáld í bókasal

23. janúar 2004

Opnuð hefur verið ný sýning í sýningarröðinni Skáld mánaðarins. Yfirskrift hennar er Aldamótaskáld og eru verk fjögurra skálda sem uppi voru þegar 20. öldin gekk í garð kynnt á sýningunni og á fræðsluvefnum skólavefurinn.is. Skáldin eru Matthías Jochumsson, Ólöf frá Hlöðum, Steingrímur Thorsteinsson og Theodóra Thoroddsen.

Skáldskapur aldamótaskáldanna gefur innsýn í tíðarandann við viðtöku heimastjórnar fyrir hundrað árum. Sýningin á verkum aldamótaskáldanna hefur þannig skírskotun í sýninguna Heimastjórn 1904 sem opnuð verður 3. febrúar kl. 15.

Guðríður Sigurðardóttir forstöðumaður Þjóðmenningarhússins flutti ávarp við opnunina þar sem hún rakti æviágrip skáldanna. Skúli Thorarensen framkvæmdastjóri Skólavefsins skýrði umfjöllunina um skáldin á fræðsluvefnum og Ingibjörg Gísladóttir þjónustustjóri hjá Þjóðdeild Landsbókasafns – Háskólabókasafns gerði grein fyrir sýningunni í bókasal og sést hún á myndinni. Þau Vilborg Dagbjartsdóttir og Hjalti Rögnvaldsson lásu ljóð að eigin vali eftir skáldin.

Hátíðarhöld vegna aldarafmælis heimastjórnar 2004

12. janúar - 1. febrúar 2004

Þess er minnst með ýmsum hætti á árinu að öld er nú liðin frá því að heimastjórn komst á og fyrsti ráðherrann tók til starfa á Íslandi 1. febrúar 1904.

Mánudaginn 12. janúar afhenti Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, skrifborð frá ráðherratíð Hannesar Hafstein til varðveislu í Þjóðmenningarhúsinu en skrifborðið hafði verið í landbúnaðarráðuneytinu um árabil. Markar afhending borðsins upphaf hátíðarhaldanna vegna aldarafmælisins.

Mánudaginn 26. janúar opnaði forsætisráðherra Davíð Oddsson heimasíðu um heimastjórnina. Auk ritgerða um heimastjórnartímann og aðdraganda hans er á síðunni ítarleg umfjöllun um dagskrá afmælisársins. Slóðin er www.heimastjorn.is .

Þann 1. febrúar var efnt til hátíðardagskrár í bókasal Þjóðmenningarhússins. Í ávarpi sínu minntist Davíð Oddsson forsætisráðherra tímamótanna sem heimastjórnin markaði. Dagskránni var sjónvarpað beint af RÚV.