|
|
Upphitun fyrir Myrka músíkdaga – Styrktartónleikar með gítarverkum
26. janúar 2012
Tónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar hófst með styrktartónleikum sem haldnir voru hér í Þjóðmenningarhúsinu í hádeginu fimmtudaginn 26. janúar. Allur ágóði rann í Minningarsjóð Kristjáns Eldjárns gitarleikara, en sjóðurinn veitir framúrskarandi tónlistarmönnum viðurkenningar í formi peningaverðlauna. Eingöngu voru flutt verk fyrir klassískan gítar og efnisskráin var á þessa leið:
Hróðmar Sigurbjörnsson: Tilbrigði fyrir tvo gítara (1982) 6´
Kjartan Ólafsson: Tilbrigði við jómfrú (1984) 9´ / Tilbrigði við tuttugu ár (2004) 7´
Mateu Malondra Flaquer: Café Noir at Grave´s (2008 ) 5´30
Jón Gunnar Biering Margeirsson: Rondóður (2010) 4´ / Dreymi þig um allt og allt (2011) 4´
Elín Gunnlaugsdóttir: El Viento fyrir sópran og gítar (2011) 4´
Flytjendur voru Grétar Geir Kristinsson, Jón Gunnar Biering Margeirsson, Kristinn H. Árnason, Kristinn Freyr Kristinsson, Páll Eyjólfsson og Svanur Vilbergsson, gítarleikarar, og Marta Guðrún Halldórsdóttir, sópran.
www.myrkir.is
www.darkmusicdays.is
www.eldjarn.net
|
Tilboð frá veitingastofunni á Hópkaup.is í dag
23. janúar 2012
Veitingastofa Þjóðmenningarhússins býður gestum uppá súputilboð í dag á vefnum Hópkaup.is. Þar er hægt að kaupa tilboðið, aðeins í dag, en innleysa það síðar, eða allt fram til 24. júlí. Tilboðið jafngildir 51% afslætti af súpu, brauði og kaffi eða tei.
Veitingastofan er opin frá kl. 11 til 17 virka daga.
Sjá á hopkaup.is
|
Kynningarmyndband um Þjóðmenningarhúsið á íslensku og ensku
21. desember 2011
Tímaritaútgáfan Land og saga, sem einnig gefur út efni á ensku undir merkjum Icelandic Times, hefur útbúið myndband til kynningar á Þjóðmenningarhúsinu. Myndbandið er vistað á YouTube ásamt fleiri kynningarmyndböndum sem fyrirtækið hefur gert um ýmsar menningarstofnanir. Til að horfa á myndböndin um Þjóðmenningarhúsið má smella hér fyrir íslensku útgáfuna: Þjóðmenningarhúsið – og hér fyrir kynningu á ensku: The Culture House. |
Jólatónleikar hljómsveitarinnar ADHD
18. desember 2011
Hinir árlegu jólatónleikar hljómsveitarinnar ADHD í Þjóðmenningarhúsinu voru haldnir sunnudaginn 18. desember. Þetta var í þriðja sinn sem ADHD heldur tónleika í bókasal hússins á aðventunni og eru tónleikarnir orðnir ómissandi í aðdraganda jólanna fyrir aðdáendur hljómsveitarinnar og hljómsveitarliða sjálfa en þeir eru ekki af verri endanum: Óskar Guðjónsson á saxófón, Ómar Guðjónsson á gítar og bassa, Davíð Þór Jónsson á hljómborð og píanó og Magnús Trygvason Eliassen á trommur.
Hljómsveitin gaf út aðra hljómplötu sína í sumar og heitir hún einfaldlega ADHD2. Platan er á lista Kraums tónlistarsjóðs yfir bestu hljómplötur ársins 2011. |
Jólahátíð UNIMA: Brúðuleikhús og jólaball
17. desember 2011
Laugardaginn 17. desember héldu Samtök brúðuleikara á Íslandi (UNIMA) sína árlegu jólahátíð, og var hún að þessu sinni haldin til styrktar Fjölskylduhjálp Íslands og Mæðrastyrksnefnd.
Hátíðin fór fram í bókasal Þjóðmenningarhússins og hófst með brúðuleiksýningunni Vetrarævintýrið um selinn Snorra. Sýningin sú er fyrir börn á öllum aldri og hefur notið fádæma vinsælda. Sagan gerist langt norður í Íshafinu þar sem selurinn Snorri lendir í ýmsum ævintýrum á ísbreiðunni. Brúðustjórnendur eru Helga Steffensen og Gígja Hólmgeirsdóttir. Að sýningunni lokinni var slegið upp jólaballi þar sem jólasveinar skemmtu sér og börnunum og sungið var og dansað í kringum jólatré.
Veitingastofa hússins var opin á meðan á hátíðinni stóð og þar var gátu gestir keypt sér hressingu.
Miðaverð var 1.000 kr en fullorðnir í fylgd með börnum fengu frían aðgang.
Allur ágóði af jólahátíðinni rann til Fjölskylduhjálparinnar og Mæðrastyrksnefndar; listamennirnir tóku ekkert fyrir vinnu sína og Þjóðmenningarhúsið lét aðstöðu í té án endurgjalds.
|
|