JÓLAHROLLUR
í hádeginu
28. desember 2006
Annað
árið í röð stóð Þjóðmenningarhúsið
að upplestrardagskrá á aðventunni í
anda hinna hrekkjóttu jólasveina; Jólahrollur
í hádeginu. Höfundur eða staðgengill
hans komu og lásu kafla úr nýútkominni
spennusögu sinni. Lesturinn hófst kl. 12:15 alla dagana
og nýttu margir gestanna sér súputilboð
á veitingastofu Þjóðmenningarhússins.
Dagskráin var á þessa leið:
12. 12. Arnaldur Indriðason Konungsbók. Ingvar
E. Sigurðsson las.
13. 12. Ævar Örn Jósepsson Sá yðar
sem syndlaus er
14. 12. Stefán Máni Skipið
15. 12. Stella Blómkvist Morðið í Rockville.
Ólafía Hrönn Jónsdóttir las.
16. 12. Bragi Ólafsson Sendiherrann
17. 12. Einar Hjartarson Nehéz
18. 12. Steinar Bragi Hið stórfenglega leyndarmál
Heimsins
19. 12. Sigurjón Magnússon Gaddavír
20. 12. Árni Þórarinsson og Páll Kristinn
Pálsson Farþeginn.
21. 12. Bjarni Klemenz Fenrisúlfur
22. 12. Jökull Valsson Skuldadagar
23. 12. Yrsa Sigurðardóttir Sér grefur gröf
Gaman er að nefna að Konungsbók sú sem bók
Arnaldar Indriðasonar er nefnd eftir er engin önnur en
Konungsbók Eddukvæða, handrit frá um 1270
sem sýnt er á sýningunni Handritin hér
í Þjóðmenningarhúsinu. Af þessu
tilefni kom Arnaldur sjálfur í húsið á
Þorláksmessu og áritaði bók sína
við borð sem stillt var upp í námunda við
hina einu sönnu Konungsbók.
|
Glæsileg
sýningarbók Icelandic Fashion - Íslensk
tískuhönnun
14. desember 2006
Þjóðmenningarhúsið
hefur gefið út glæsilega sýningarbók
vegna yfirstandandi sýningar: Íslensk tískuhönnun.
Þessi fallega yfirlitsbók um íslenska tískuhönnun
er tilvalin jólagjöf fyrir áhugafólk um
hönnun og tísku.
Á sýningunni Íslensk tískuhönnun
er sýndur þverskurður tískuhönnunar
í íslenskri nútímamenningu. Þrjátíu
og átta úrvalsverk eftir tíu hönnuði
sýna fjölbreytni og sköpunarkraft íslenska
tískugeirans. Sýningarstjóri er þjóðverjinn
Matthias Wagner K og kemur hann að uppsetningunni með hið
næma auga gestsins og dregur fram sérkenni tískuhönnunar
á Íslandi. Að hans sögn felast þau
einkum í samþættingu andstæðna, áhrifum
frá landslaginu og þjóðlegum hefðum
og næmri tilfinningu fyrir tíðarandanum og lífsstíl
þeirra sem klæðast fatnaðinum. Hönnuðurnir
búa yfir listrænni fágun, fullkomnu valdi á
tækni, frumlegri sköpunargáfu og næmi á
fagurfræði.
Á sýningunni eru verk eftirtaldra hönnuða:
Anna Guðmundsdóttir
ásta créative clothes (Ásta Guðmundsdóttir)
Dóra Emilsdóttir
jbj design (Jóna Björg Jónsdóttir)
Path of Love (Ragna Fróðadóttir)
Rósa Helgadóttir
Spaksmannsspjarir
STEiNUNN (Steinunn Sigurðardóttir)
Þorbjörg Valdimarsdóttir
Matthias Wagner K og Guðrún Garðarsdóttir
eru ritstjórar bókarinnar. Hún er til sölu
hjá Þjóðmenningarhúsinu og hönnuðunum
sem verk eiga í bókinni.
|
Kvennakórinn
Vox feminae söng um allt hús
10. desember 2006
Kvennakórinn
Vox feminae hélt vel heppnaða tónleika í
Þjómenningarhúsinu í tilefni af útgáfu
á þriðja geisladiski sínum, Ave María.
Kórinn nýtti sér húsnæðið
vel og söng á ýmsum stöðum. Þær
hófu tónleikana á sýningunni Íslensk
tískuhönnun á rishæðinni, fikruðu
sig svo niður stigana og sungu á stigapallinum og enduðu
sönginn inní hinum eiginlega viðburðasal, bókasalnum,
þar sem Antonia Hevesi lék undir á flygil. Hanna
Björk Guðjónsdóttir sópran söng
með og Margrét J. Pálmadóttir stjórnaði.
Var það mál manna að tónleikarnir hefðu
verið yndislegir enda lögin flest samin heilagri guðsmóður
til dýrðar og hljómurinn einstaklega fagur í
salarkynnum Þjóðmenningarhússins.
Dagskráin var haldin í samvinnu Vox feminae og Þjóðmenningarhússins.
|
Aldarminning
Eysteins Jónssonar – málþing í
Þjóðmenningarhúsinu
12. nóvember 2006
Börn
Sólveigar Eyjólfsdóttur og Eysteins Jónssonar,
þau Eyjólfur, Sigríður, Jón, Þorbergur,
Ólöf Steinunn og Finnur, efndu til málþings
í Þjóðmenningarhúsinu um ævi
og störf Eysteins Jónssonar ráðherra, alþingismanns
og formanns Framsóknarflokksins þann 12. nóvember
sl. en hann hefði orðið 100 ára hinn 13. nóvember
2006.
Við upphaf málþingsins flutti Eyjólfur Eysteinsson
ávarp herra Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta
Íslands. Þá fluttu ávörp Halldór
Ásgrímsson fv. forsætisráðherra,
Steingrímur Hermannsson fv. forsætisráðherra,
Tómas Árnason fv. ráðherra, Vilhjálmur
Hjálmarsson fv. ráðherra, Sigurður Markússon
fv. formaður SÍS, Hjörleifur Guttormsson fv. ráðherra
og Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra og
formaður Framsóknarflokksins.
Gerður Steinþórsdóttir cand. mag. stýrði
málþinginu.
Afkomendur Eysteins og Sólveigar skemmtu gestum milli ávarpa,
einkum með tónlistarflutningi.
Fjöldi mynda úr ævi Eysteins og Sólveigar
var til sýnis á málþinginu og verða
þær síðan til sýnis í Eysteinsstofu
í Löngubúð á Djúpavogi, í
safni til minningar um þau Eystein og Sólveigu.
Húsfyllir varð á málþinginu og að
dagskrá lokinni gáfu gestir sér góðan
tíma til að njóta kaffiveitinga og spjalla saman.
Börnum Eysteins Jónssonar og Sólveigar Eyjólfsdóttur
langar að þakka öllum sem komu að málþinginu
og gerðu það þeim ógleymanlegt.
|
Fjölskyldudagur
á handritasýningu Árnastofnunar í Þjóðmenningarhúsinu
- ókeypis aðgangur
4. nóvember og
2. desember 2006
Þjóðmenningarhúsið
og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum
fræðum stóðu fyrir fjölskyldudegi á
sýningu Árnastofnunar, Handritin, þar sem kostur
gafst á að kynnast skrifaraiðn miðalda af eigin
raun.
Laugardagana 4. nóvember
og 2. desember kl. 14 til 17 fengu börn og fullorðnir að
meðhöndla það sem til þarf; fjaðurstafi
gerða af flugfjöðrum álfta, gæsa og arna,
bókfell úr kálfskinni og blek soðið
af sortulyngi, mó og víðileggjum. Áhugasamir
gátu skrifað með rúnaletri því
sýnt er hvernig stafrófið okkar er skráð
með rúnum.
Ofangreinda laugardaga var safnkennari Árnastofnunar í
skrifarastofu handritasýningarinnar og veitti aðstoð
og fræðslu sem alla jafna býðst skólahópum
á virkum dögum. Enginn sem kann að draga til stafs
er of ungur eða of gamall til að hafa gaman af kynnast þessari
fornu iðn, um það geta þeir gestir sem nutu
dagskrárinnar vitnað. |
Skarðsbók
postulasagna komið fyrir á handritasýningunni
– athöfn af því tilefni
27. október 2006
Þess
er nú minnst að 18. október voru liðin 40
ár síðan Jóhannes Nordal seðlabankastjóri
afhenti íslensku þjóðinni Skarðsbók
postulasagna sem íslenskir bankar höfðu keypt á
uppboði í London. Af þessu tilefni hélt
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum
fræðum athöfn í bókasal Þjóðmenningarhússins
föstudaginn 27. október sl.
Af sama tilefni var Skarðsbók postulasagna komið
fyrir á handritasýningu Árnastofnunar hér
í Þjóðmenningarhúsinu ásamt
því að gefin var út ritgerð þar
sem dr. Jóhannes Nordal segir frá tildrögum þess
að handritið var keypt. Ritgerð Jóhannesar er
prýdd fjölmörgum myndum úr Skarðsbók
og er til sölu í safnbúð Þjóðmenningarhússins.
Guðríður Sigurðardóttir forstöðumaður
Þjóðmenningarhússins og Vésteinn
Ólason forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar
í íslenskum fræðum fluttu stutt ávörp
við athöfnina. Auk þess flutti Ólafur Halldórsson
handritafræðingur erindi um rannsóknir sínar
á Skarðsbókar postulasagna.
|
Þjóðræknisþing
haldið í Þjóðmenningarhúsinu
19. október 2006
Hið
árlega þjóðræknisþing Þjóðræknisfélags
Íslendinga var haldið í Þjóðmenningarhúsinu
ásamt aðalfundi félagsins og móttöku
fyrir þinggesti. Þetta var í þriðja
sinn sem þingið er haldið í Þjóðmenningarhúsinu
og er vilji til þess að samvinna hússins og Þjóðræknisfélagsins
styrkist á komandi árum enda deila aðilar áhuga
á kynningu og fræðslu um sögu og menningu
Vesturíslendinga og ber nýlega undirritaður samstarfssamningur
Þjóðmenningarhússins og Þjóðræknisfélagsins
vitni um það.
Þingið hófs með ávarpi formanns, Almars
Grímssonar, og því næst steig Stephan
V. Benediktson í pontu og talaði um olíuiðnað
en hann er eigandi og framkvæmdastjóri fyrirtækis
í þeirri grein. Jafnframt talaði hann um tengsl
sín við Ísland en Stephan er dóttursonur
Stephans G. Stephanssonar. Þær Ásta Sól
Kristjánsdóttir og Ragnheiður Diljá Gunnarsdóttir
kynntu Snorra- og Snorri West ungmennaskiptaverkefnin og
að því búnu flutti Jón Aðalsteinn
Hermannsson tölu um vesturför Jóns Jónssonar
frá Mýri. Hugurinn var hvíldur með tónlistarflutningi
Önnu Sigríðar Helgadóttur og Reynis Jónassonar
en þá fór Ólafur B. Thors yfir sögu
Vesturfarasetursins, tíu árum eftir stofnun þess.
Botninn var sleginn í þingið með afhendingu
heiðursviðurkenningar Þjóðræknisfélagsins
2006 sem féll Vesturfarasetrinu í skaut.
|
Bókalist
frá Berlín – sýning opnuð
17. október 2006
Sýning
á bókum Berlínar-forlagsins Edition Mariannenpresse
var opnuð við hátíðlega athöfn í
bókasal Þjóðmenningarhússins 17.
október. Með sýningunni sem kallast Berlin
Excursion er boðið til skoðunarferðar um þann
geira menningarlífs Berlínar sem getur af sér
sérstæðar bækur, sannkölluð listaverk,
því um er að ræða sérstaklega
hannaðar bækur sem flestar eru unnar í samvinnu
höfundar og myndlistarmanns og gefnar út í mjög
takmörkuðu tölusettu upplagi.
Við opnunina fluttu Hr. Johann Wenzel sendiherra Þýskalands,
Hannes Schwenger útgefandi Mariannenpresse og Guðríður
Sigurðardóttir forstöðumaður Þjóðmenningarhússins
ávörp. Á myndinni er Hannes Schwenger.
Ánægjulegt var að sjá við opnuna bæði
myndlistarfólk og rithöfunda og aðra þá
sem áhuga hafa á vandaðri útgáfu
og hönnun og vonandi að sýningin bæti við
blæ í litróf menningarlegra samskipta höfuðborganna
Reykjavíkur og Berlínar.
|
Forseti
norska stórþingsins skoðar sýningar
13. október 2006
Forseti
norska stórþingsins, Thorbjørn Jagland, var
hér á landi ásamt eiginkonu sinni í
opinberri heimsókn í boði forseta Alþingis,
Sólveigar Pétursdóttur. Komu þau við
það tækifæri að skoða sýningar
í Þjóðmenningarhúsinu.
|
Þjóðmenningarhúsið
tók þátt í pólskri menningarhátíð
1. október 2006
Tvennir
tónlistarviðburðir á pólskri menningarhátíð
28. september – 1. október fóru fram í Þjóðmenningarhúsinu
á sunnudag.
Úrslit réðust
í tónlistarsamkeppni sextán ungra tónlistarmanna
sem komist höfðu áfram eftir áheyrnarpróf
sem haldin voru í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.
Til mikils var að vinna því sigurvegarinn, sem
reyndist vera Snorri Hallgrímsson sem nemur gítarleik
hjá Þórarni Sigurbergssyni við Tónlistarskóla
Garðabæjar, fékk að launum ferð fyrir tvo
með Heimsferðum til Kráká í Póllandi.
Dómnefnd skipuðu virtir tónlistarmenn, þeir
Adrzej Kleina fiðluleikari í Sinfóníuhljómsveit
Íslands, Peter Maté píanóleikari og
Martial Nardeau þverflautuleikari.
Við verðlaunaafhendinguna
var leikinn píanókvintett nr. 1 eftir hið kunna
pólska tónskáld Grazyna Bacewicz (1909-1969),
en þetta var í fyrsta sinn sem verkið var flutt
á Íslandi. Kvintettinn skipuðu Zbigniew Dubik
og Ewa Tosik-Warszawiak á fiðlu, Svava Bernharðsdóttir
á lágfiðlu, Pawel Panasiuk á selló
og Örn Magnússon á píanó. Myndin
sýnir hljóðfæraleikarana taka við lófaklappi
að flutningnum loknum.
Úrslitatónleikarnir
voru haldnir í samstarfi Ewu Tosik-Warsawiak, pólskrar
menningarhátíðar og Þjóðmenningarhússins.
Um
kvöldið voru jazztónleikar Jagodzinski tríósins.
Tríóið skipa hinir mikilsmetnu tónlistarmenn
(talið frá vinstri á mynd) Andrzej Jagodzinski
píanóleikari, tónskáld og stofnandi
hljómsveitar, Adam Cegielski kontrabassaleikari og Czeslaw
Bartkowski trommuleikari. Tríóið ferðast heimshorna
á milli og heillar unga jafnt sem aldna með einstakri
túlkun sinni á verkum tónskáldsins Chopin.
Þeir hafa nýlega gefið út nýja plötu
í "Chopin" seríu sinni sem notið hefur
vinsælda og viðurkenninga í heimalandinu og léku
þeir af sannri list á tónleikunum í Þjóðmenningarhúsinu.
Tónleikarnir voru
í samstarfi pólskrar menningarhátíðar,
Jazzhátíðar Reykjavíkur og Þjóðmenningarhússins. |
Háttsettir
gestir frá Kína
21. september 2006
Chen
Zhili, varaforsætisráðherra og æðsti
yfirmaður mennta- og vísindamála í Kína
heimsótti Þjóðmenningarhúsið
þann 21. september. Ráðherrann og fylgdarlið
skoðaði sýningar í húsinu með leiðsögn
forstöðumanns og leiðsögumanns Þjóðmenningahússins
og snæddi því næst hádegisverð
í húsinu.
|
Samstarfssamningur
Þjóðmenningarhússins og Þjóðræknisfélags
Íslendinga
21. september 2006
Almar
Grímsson stjórnarformaður Þjóðræknisfélags
Íslendinga og Guðríður Sigurðardóttir
forstöðumaður Þjóðmenningarhússins
undirrituðu samstarfssamning Þjóðmenningarhússins
og Þjóðræknisfélags Íslendinga
fimmtudaginn 21. september. Markmið samkomulagsins er að
auka fræðslu og kynningu á sögu og menningu
íslenskra landnema í Vesturheimi. Til þess að
ná þessu markmiði munu aðilar styðja við
starfsemi hvors annars.
|
Myndbandstónverk
Ólafar Arnalds Eins og sagt er tekið til sýningar
1. september 2006
Á
dagskrá Þjóðmenningarhússins á
menningarnótt var meðal annars sýning myndbandstónverksins
Eins og sagt er eftir Ólöfu Arnalds. Nú
hefur Þjóðmenningarhúsið tekið verkið
til áframhaldandi sýningar vegna eindregins áhuga
og eftirspurnar gesta.
Í verkinu flytur Ólöf frumsamda tónlist
og syngur á átján tungumálum í
níu myndrömmum samtímis svo úr verður
alþjóðleg tónkviða.
Ólöf gerði heimildamynd um söfnun textanna
í New York borg sumarið 2005. Þar tók hún
viðtöl við fólk af ólíku þjóðerni
og kynnti sér viðhorf þess til uppruna síns,
tónlistar og móðurmálsins. Textarnir í
verkinu eru í raun samdir af þessu fólki nema
íslenski textinn sem er úr ljóði eftir
föður Ólafar, Einar S. Arnalds.
Verkið var frumsýnt í Íslensku Óperunni
í maí sl. sem útskriftarverkefni Ólafar
í tónsmíði og nýmiðlum frá
Listaháskóla Íslands. Ólöf flutti
verkið síðar í Tjarnarbíói og
Jónas Sen tónlistargagnrýnandi Morgunblaðsins
skrifaði lofsamlega um verkið í Morgunblaðið
21. júní sl. Jónas lýsti verkinu meðal
annars með þessum orðum: “Það var
litríkt en fókuserað og skapaði mergjað
andrúmsloft. Ég man ekki eftir neinu svipuðu á
öllum mínum ferli sem gagnrýnandi. Óneitanlega
var hugmyndin frábær.”
Heimilidarmyndin er sýnd viðstöðulaust ásamt
myndbandstónverkinu og standa sýningar yfir í
Þjóðmenningarhúsinu til og með 22. september
næstkomandi.
|
Menningarnótt
í Þjóðmenningarhúsinu
19. ágúst
2006
Þjóðmenningarhúsið
stóð að glæsilegri dagskrá á
menningarnótt og er hún tíunduð hér
að neðan. Húsið stóð opið frá
kl. 11 til 23 og auk sýninga og góðra veitinga
voru tónleikar, myndbandstónverk, upplestur og sýnikennsla
í boði fyrir þá fjölmörgu gesti
sem heimsóttu húsið þennan dag.
Aðalsteinn
Ásberg Sigurðsson, skáld og tónlistarmaður,
hélt árlega stofutónleika
sína í bókasal og var það í
6. sinn sem slíkir tónleikar voru á dagskránni.
Ljóð og vísnatónlist var ráðandi
á tónleikunum sem voru fernir talsins og aldrei eins,
en alltaf fjölskylduvænir og efnið bæði
gamalt og nýtt.
Á tónleikum
kl. 16:00 og 17:00 komu Guðrún Gunnarsdóttir
söngkona og Gunnar Gunnarsson píanóleikari fram
ásamt Aðalsteini.
Á tónleikum
kl. 18:00 komu þau Kristjana Stefánsdóttir
söngkona og Sigurður Flosason saxófónleikari
fram ásamt Aðalsteini og Gunnari Gunnarssyni.
Á tónleikum
kl. 20:00 komu allir listamennirnir fram: Aðalsteinn
Ásberg, Guðrún Gunnarsdóttir, Gunnar Gunnarsson,
Kristjana Stefánsdóttir og Sigurður Flosason.
Kl. 11 - 23: 
Eins og sagt er.
Myndbandstónverk eftir Ólöfu Arnalds sýnt
viðstöðulaust.
Í verkinu flytur
Ólöf tónlist og syngur á átján
tungumálum í níu myndrömmum samtímis
svo úr verður alþjóðleg tónkviða.
Ólöf var á staðnum og spjallaði við
gesti og kynnti heimildaöflun sína og heimildamenn.
Ath. Vegna áhuga og eftirspurnar verður verk Ólafar
sýnt áfram til 22. september.
Kl. 16 – 18:
Íslensk tískuhönnun
Jóna Björg
Jónsdóttir sem hannar og framleiðir jbj design
fatalínuna var við á sýningunni og
kynnti aðferðirnar sem hún notar við efnisvinnsluna.
Jóna Björg hefur náð undraverðum árangri
í þæfingu þar sem að hún notar
ávallt ull og silki saman í fatnaðinn.
16:30 og 17:30:
Fyrirheitna landið
Lesið upp úr
ferðasögu Þórðar Diðrikssonar sem
tókst á hendur ferðalag frá Suðurlandi
til Utah-fylkis á árunum 1855-1856 og settist að
í fyrirheitna landinu.
Handritin - sýning
Árnastofnunar
Hin einstæðu
handrit, þjóðargersemarnar, á fallegri og
fræðandi sýningu.
VERSLUN
Tilboð í verslun
: 10% afsláttur af fjölskylduglösum
VEITINGASTOFA
Léttar menningarlegar
veitingar, tilboð á vel smurðu brauði og drykkjum. |
Góðir
gestir að skoða Íslenska tískuhönnun
3. ágúst
2006
Guðríður
Sigurðardóttir forstöðumaður Þjóðmenningarhússins
tók á móti hópi kvenna sem fæst
við handíðir og staddur var hér á landi
í tilefni af því að margar þeirra
áttu verk á textílsýningu sem sett var
upp á Akureyri. Í hópnum voru meðlimir
alþjóðlegra samtaka þeirra sem fást
við þæfingu, vefnað, spuna, litun og útsaum.
Textílútfærsla íslensku hönnuðanna
hefur eflaust orðið þessum gestum innblástur
því hún er afar nýstárleg og vönduð
um leið og hún byggir á gömlum hefðum
í iðninni.
Á myndinni eru Guðríður Sigurðardóttir
forstöðumaður og Elaine Mehmet sendiherrafrú
(Bretland) ásamt hópnum.
|
Þjóðmenningarhúsið
var viðkomustaður Grikklandsforseta og föruneytis hans
7. júlí
2006
Á
dagskrá opinberrar heimsóknar Karolos Papoulos Grikklandsforseta
var heimsókn í Þjóðmenningarhúsið
þar sem sýningar voru skoðaðar. Vésteinn
Ólason forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar
veitti leiðsögn um Handritasýningu stofnunarinnar
og Guðríður Sigurðardóttir forstöðumaður
Þjóðmenningarhússins gekk með gestunum
um sýninguna Íslensk tískhönnun ásamt
hönnuðinum Steinunni Sigurðardóttur sem á
verk á sýningunni.
Við sama tækifæri undirrituðu Valgerður
Sverrisdóttir, utanríkisráðherra Íslands,
og Theodoros Kassimis, aðstoðarutanríkisráðherra
Grikklands, tvísköttunarsamning milli landanna.
Grikklandsforseti var hér á landi í boði
forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar.
|
Sýningin
Íslensk tískuhönnun opnuð með viðhöfn
29. júní
2006
Þjóðmenningarhúsið
iðaði af lífi við opnunina á sýningunni
þar sem sjá má þverskurð tískuhönnunar
í íslenskri nútímamenningu. Forsætisráðherra
Geir H. Haarde opnaði sýninguna og ræddi meðal
annars ný menntunartækifæri sem íslenskum
nemendum byðist nú í listrænni hönnun.
Lýsti hann ánægju með að almenningi
á Íslandi gæfist kostur á að sjá
þessa sýningu í Þjóðmenningarhúsinu,
en hann opnaði íslenska listahátíð
í Köln á síðasta ári þar
sem voru verk allra hönnuðanna sem nú sýna
verk sín í húsinu. Forsætisráðherra
fagnaði því hve íslenskir hönnuðir
standa framarlega í grein sinni. Þakkaði ráðherra
sýningarstjóranum Matthias Wagner K fyrir uppsetningu
sýningarinnar og túlkun hans á íslenskri
tískuhönnun þar sem lögð er áhersla
á þætti sem okkur hafa ef til vill ekki verið
augljósir, eins og sú tenging hönnunar og náttúru
sem er samtvinnuð sýningunni. Hann fullvissaði viðstadda
um að þeir ættu í vændum glæsilega
sýningu í glæsilegum húsakynnum. Ávörp
fluttu einnig forstöðumaður Þjóðmenningarhússins
Guðríður Sigurðardóttir og sýningarstjórinn
Matthias Wagner K sem bæði voru afar ánægð
sem samvinnuna við alla þá sem að sýningunni
koma. Ávarp Matthiasar er birt
í heild sinni hér >>.
Viðstaddir skoðuðu að því búnu
fatnaðinn og þá umgjörð sem hann er settur
í á sýningunni við hjóminn af saxófónleik
og gestaglaumi. Fullyrða má að almenn hrifning hafi
ríkt meðal gestanna.
Í kjölfar opnunarinnar verður gerð sýningarskrá
með texta og ljósmyndum af sýningunni.
Sjá nánari upplýsingar um sýninguna
og hönnuðina sem þar eiga verk undir sýningar
á forsíðu.
|
Hádegiserindi
og sýningaropnun í bókasal
28. júní
2006
Á
miðvikudaginn 28. júní hélt Sumarliði
R. Ísleifsson sagnfræðingur hádegiserindi
í bókasal Þjóðmenningarhússins
í tilefni af opnun sýningar þar um skrif erlendra
manna um Ísland og Íslendinga fyrr á öldum.
Sýningin nefnist Í spegli Íslands
og tekur til skrifa allt frá 16. öld. Sumarliði
kallaði erindi sitt aftur á móti Carta Marina
og ímyndir Íslands.
Carta Marina er Norðurlandakort eftir Svíann Olaus Magnus,
gert í Róm á fyrri hluta 16. aldar og er eftirmynd
þess á sýningunni ásamt fleiri Íslandskortum
frá síðari öldum. Olaus Magnus dró
ekki aðeins upp mynd af Norðurlöndunum heldur greindi
frá ýmsu sem hann taldi sig vita um þau. Sumarliði
skoðaði í erindi sínu þær hugmyndir
sem Olaus hafði um Ísland, hvernig þessar hugmyndir
hafa enst og hvort sjá megi þær í umfjöllun
um Ísland í samtímanum. Jafnframt velti Sumarliði
fyrir sér spurningunni um hvernig hugmyndirnar um Ísland
urðu til.
Góður rómur var gerður að erindinu og
spunnust nokkrar umræður um efnið. Að því
búnu skoðuðu gestirnir sýninguna og þáðu
veitingar.
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
setur sýninguna upp í bókasal og byggir hún
á Íslandslýsingum, ferðabókum og
myndum. Sýningin stendur til 13. ágúst nk.
|
Foreldraverðlaun
Heimilis og skóla afhent í Þjóðmenningarhúsinu
16. maí 2006
Foreldraverðlaun
Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra, voru afhent
við hátíðlega athöfn í risi Þjóðmenningarhússins.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra
afhenti verðlaunin sem þau Ingibjörg Einarsdóttir
og Baldur Sigurðsson hlutu fyrir frumkvöðlastarf
og óeigingjarna vinnu í þágu Stóru
upplestrarkeppninnar. Myndinni hér til hliðar
sýnir þau ásamt Maríu Kristínu
Gylfadóttur formanni Heimilis og skóla og Þorgerði
Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra.
Auk Foreldraverðlaunanna voru veitt tvenn hvatningarverðlaun
og ein dugnaðarforkaverðlaun. Sjá nánar um
verðlaunin á heimasíðu Heimilis og skóla;
www.heimiliogskoli.is.
|
Sýning
um Snorra Hjartarson opnuð
22. apríl 2006
Sýning
í minningu Snorra Hjartarsonar og lífsstarfs hans
var opnuð við hátíðlega athöfn þegar
100 ár voru liðin frá fæðingu hans þann
22. apríl 2006. Rithöfundasamband Íslands sá
um dagskrána við opnun þar sem Hjörtur Pálsson
flutti erindi um skáldið, Þorleifur Hauksson og
Ragnheiður Steindórsdóttir lásu kvæði
eftir Snorra og Gunnar Guðbjörnsson og Jónas Ingimundarson
fluttu sönglög við kvæði hans. Eins og nöfnin
gefa tilefni til að ætla var um einstaklega vandaða
og ánægjulega dagskrá að ræða
sem hinir fjölmörgu gestir gerðu að góðan
róm.
Sýningin ber titilinn Það gisti óður
- Snorri Hjartarson 1906-2006 og að henni standa ættingjar
Snorra Hjartarsonar í samvinnu við Þjóðmenningarhúsið.
Í tilefni tímamótanna kemur út ný
heildarútgáfa á verkum Snorra Hjartarsonar
hjá Eddu útgáfu.
|
Fjölskyldugaman
á sumardaginn fyrsta
20. apríl 2006
Opið
hús var í Þjóðmenningarhúsinu
á sumardaginn fyrsta undir formerkjum Ferðalangs á
heimaslóð:
Náttúrulífsmyndir
Páls Steingrímssonar Þjóð
og náttúra voru sýndar viðstöðulaust
allan daginn. Þessar hrífandi og nærgætnu
stuttmyndir um hestinn, hundinn, selinn, gæsina, lundann og
æðarfuglinn eru til þess fallnar að þjappa
fjölskyldunni saman og stórar og smáar fjölskyldur
heimsóttu húsið til að njóta þeirra.
Auk kvikmyndasýningarinnar
voru sýningarnar Handritin, Fyrirheitna landið og Þjóðminjasafnið
- svona var það opnar öllum án aðgangseyris.
|
Tónleikar
Kammerkórs Suðurlands með verkum eftir Gunnar Reyni
1. apríl 2006
Laugardaginn 1. apríl stóð Smekkleysa ehf að
tónleikum í bókasal Þjóðmenningarhússins
til heiðurs tónskáldinu Gunnari Reyni Sveinssyni
en nýlega kom út geisladiskurinn Til Máríu
með trúarlegum verkum eftir hann.
Flytjendur á tónleikunum voru félagar úr
Kammerkór Suðurlands ásamt einsöngvurunum
Hallveigu Rúnarsdóttur, Hrólfi Sæmundssyni
og Önnu Sigríði Helgadóttur. Kári
Þormar lék undir á píanó en þau
ásamt Sverri Guðjónssyni eru einnig flytjendur
tónlistarinnar á diskinum. Að auki lék
Símon H. Ívarsson tvö lög eftir Gunnar Reyni
á gítar.
Gunnar Reynir var að sjálfsögðu viðstaddur
þessa heiðursstund ásamt fjölda gesta sem
naut ljúfra tónsmíðanna í afar vönduðum
flutningi listamannanna.
|
Safnanótt
24. febrúar 2006
Þá
er hin mikla hátíð safna og sýningarsetra
"safnanótt" að baki en föstudagskvöldið
24. febrúar voru sýningar vítt og breytt um
borgina opnar frá kl. 19 - 01 og ókeypis inn.
Þjóðmenningarhúsið tók þátt
í þessum viðburði með opnu húsi,
huggulegum veitingum í veitingastofunni og tónlistardagskrá
í hjarta hússins, bókasalnum. Þar stigu
á stokk tónlistarnemar á lokastigi við
Tónlistarskólann í Reykjavík og sungu
og léku næturljóð eftir Mozart. Síðla
kvölds komu fram listamenn sem hafa lifað sig inní
andrúmsloftið við hirð Loðvíks XIV
og fluttu þau barokk tónlist, sungu og stigu dans íklædd
búningum tímabilsins.
Að
auki var sérstök listsýning opnuð fyrr um
daginn, eða kl. 17, þar sem getur að líta verk
sem listamennirnir tengja við norðrið - ímyndir
norðursins sem er yfirskrift mikillar ráðstefnu
sem haldin var á vetrarhátíð og Þjóðmenningarhúsið
tengdist með þessum hætti. (Sjá nánar
undir “sýningar” á forsíðu).
Ekki má gleyma því að skrifarastofa var
rekin á handritasýningu Árnastofnunar hér
í húsinu, þar sem gestum og gangandi gafst kostur
á að reyna sig við skriftir með fjaðurstaf.
|
Ný
sérvara til sölu í safnbúðinni
24. febrúar 2006
Þjóðmenningarhúsið
kynnir með ánægju nýja sérvöru
sem boðin er til sölu í safnbúðinni:
Glös frá Stella design með hinni íslensku
fjölskyldu sem þema. Serían heitir fjölskyldan
mín og er gerð til að brjóta upp hversdagsleikann
á heimilinu. Hönnuður sækir innblástur
í þjóðbúninginn okkar, torfbæinn,
kindina og sveitina fögru sem tengja okkur fortíðinni
og rótum okkar. Glösin eru seld stök á kr.
840 eða í pari á kr. 1590 og fylgja fallegar umbúðir
í líki torfbæjar glösunum.
Safnbúðin er
opin á sama tíma og sýningar eða daglega
frá kl. 11 til 17. |
Sýningin
Mozart-óperan á Íslandi opnuð á
afmælisdegi tónskáldsins
27. janúar 2006
Þess
er nú minnst um víða veröld að 250 ár
eru liðin frá fæðingu Mozarts þann 27.
janúar sl. Þjóðmenningarhúsið
og Leikminjasafn Íslands tóku höndum saman um
að minnast þessa merka tónlistarsnillings með
sýningu í bókasal þar sem brugðið
er upp mynd af sögu Mozart-óperunnar á íslensku
leiksviði.
Við opnun sýningarinnar á sjálfan afmælisdaginn
ávörpuðu Guðrún Garðarsdóttir
f. h. Þjóðmenningarhússins og Jón
Viðar Jónsson f. h. Leikminjasafnins gesti stuttlega.
Að því búnu hófs dagskrá sem
var á þessa leið: Halldór Hauksson fjallaði
um óperur Mozarts og stöðu hans í óperusögunni
og Sveinn Einarsson spjallaði um íslenskar uppfærslur
á óperum tónskáldsins. Inn í
spjall Sveins fléttaðist tónlist af geisladiskum
og frábær flutningur einsöngvaranna Auðar
Gunnarsdóttur og Ólafs Kjartans Sigurðarsonar
á ýmsum brotum úr óperum Mozarts. Jónas
Ingimundarson lék með á píanó.
Á sýningunni eru meðal annars búningar
úr uppfærslum á Mozart-óperum, þar
á meðal kápa Don Giovanni, hönnun Unu Collins,
og á myndinni sést Ólafur Kjartan Sigurðarson
grandskoða hönnunina ásamt fríðum flokki
fljóða.
|
Nágrannar
Halldórs Laxness í Nóbelsheimi
21. janúar 2006
Bekkurinn
var þéttsetinn á dagskrá sem Árni
Bergmann rithöfundur tók saman um þá rithöfunda
sem voru samferða Halldóri Laxness upp á Nóbelsverðlaunapall
á sjötta áratug síðustu aldar. Arnar
Jónsson leikari las sýnishorn úr íslenskum
þýðingum á verkum flestra verðlaunahöfundanna,
þ.m.t. nokkur ljóð sem Árni þýddi
af þessu tilefni.
Rithöfundarnir voru (fyrir utan Halldór): Bertrant Russel,
Pär Lagerkvist, François Mauriac, Winston Churchill,
Ernest Hemmingway, Juan Ramón Jimenéz, Albert Camus,
Boris Pasternak og Salvatore Quasimodo.
Árni fjallaði um þá menningarstefnu og þau
pólitísku sjónarmið sem birtast kunnu í
vali Sænsku akademíunnar, ennfremur ræddi hann
um rithöfundana sjálfa og hvað þeir höfðu
helst til bókmennta að leggja sem og til þeirra
mála sem helst brunnu á samtíðarmönnum
þeirra. Einnig vék hann að tengslum Halldórs
Laxness við suma þessa samferðamenn hans, einkum þá
Hemmingway og Pasternak.
Nokkrar umræður spunnust um efnið að loknu erindinu
enda varpaði Árni mörgum áhugaverðum
flötum upp.
Veitingastofa Þjóðmenningarhússins, Matur
og menning, sá um að gestum gafst kostur á að
fá sér kaffihressingu og léttar veitingar á
meðan á dagskránni stóð.
Efnt var til dagskrárinnar í tengslum við sýningu
sem opnuð var í Þjóðmenningarhúsinu
á Nóbelsdaginn 10. desember sl. í tilefni þess
að þá voru fimmtíu ár liðin frá
því að Nóbelsverðlaunin voru afhent
Halldóri Laxness. Gljúfrasteinn – hús
skáldsins setti sýninguna upp.
|