Jólahrollur
í hádeginu - spennusagnaupplestrarsería
12. - 23. desember 2005
Þjóðmenningarhúsið
stóð að upplestrardagskrá í anda hinna
hrekkjóttu jólasveina í hádeginu dagana
fyrir jól. Spennu-, lífsreynslu- og skáldsagnahöfundar
heimsóttu húsið einn af öðrum og lásu
hrollvekjandi frásagnir upp úr nýjum verkum
sínum. Þrátt fyrir óhugnaðinn í
lestrinum var andrúmsloft í bókasal afslappað
og nutu áhlýðendur kyrrðarinnar í amstri
aðventunnar.
Flestir fengu sér súpu í veitingastofunni að
lestrinum loknum og glugguðu í safnbúðina
að skoða bækur og annað forvitnilegt.
Þessi heimsóttu bókasal:
12. 12.: Súsanna Svavarsdóttir – Dætur
hafsins
13. 12.: Árni Þórarinsson – Tími
nornarinnar
14. 12.: Yrsa Sigurðardóttir - Þriðja táknið
15. 12.: Ævar Örn Jósepsson – Blóðberg
16. 12.: Þráinn Bertelsson - Valkyrjur
17. 12.: Hreinn Vilhjálmsson – Bæjarins verstu
18. 12.: Guðrún Eva Mínervudóttir - Yosoy
- Af líkamslistum og hugarvíli í hryllingsleikhúsinu
við Álafoss
19. 12.: Viktor Arnar Ingólfsson - Afturelding
20. 12.: Stefán Máni - Túristi
21. 12.: Reynir Traustason - Skuggabörn
22. 12.: Jón Hallur Stefánsson - Krosstré
23. 12.: Ingvar E. Sigurðsson las úr verki Arnaldar Indriðasonar
– Vetrarborgin
|
Hálf
öld frá afhendingu Nóbelsverðlauna Halldórs
Laxness - Hátíðardagskrá og sýningaropnun
10. desember 2005
Fjölbreytt
dagskrá var í bókasal allan daginn og fram
á kvöld laugardaginn 10. desember þegar haldið
var uppá það að hálf öld er liðin
frá því Halldór Laxness veitti Nóbelsverðlaununum
í bókmenntum viðtöku. Fjöldi gesta naut
flutnings listamannanna á tónlist og ljóðum
eða hlýddi á málþing. Í bókasal
opnaði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra
jafnframt sérstaka sýningu sem rifjar upp þennan
viðburð fyrir hálfri öld.
Dagskráin var á
þessa leið:
Kl. 11.00
Ég
býð þér dús, mín elskulega
þjóð
• Litli kór
Kársnesskóla tekur á móti gestum með
söng
• Þór Tuliníus leikari flytur þakkarræðu
Halldórs Laxness
• Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra
opnar sýninguna
• Flístríóið hittir Laxness
• Bjarni Ármannsson forstjóri Íslandsbanka
• Valur Brynjar Antonsson frá Nýhil
• Hlutverk og framtíðarsýn Gljúfrasteins.
Þórarinn Eldjárn stjórnarformaður
og Guðný Dóra Gestsdóttir framkvæmdastjóri
kynna
Kl. 13.00
Hvert örstutt
spor
• Kór Kársnesskóla
syngur og les upp undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur
Kl. 14.00
• Málþing
í samvinnu við Lesbók Morgunblaðsins
Jón Karl Helgason: Stemmning í Stokkhólmi
Bergljót Kristjándsdóttir: „Veðreiðahestur
með sorpvagn í eftirdragi"? Um viðtökur
við verkum Halldórs Laxness fyrir og eftir Nóbelsverðlaun
Stjórnandi málþings og umræðna er
Guðmundur Heiðar Frímannsson
Kl. 15.00
Hjá
lygnri móðu
• Ragnhildur Gísladóttir
og Davíð Þór Jónsson
Kl. 16.00
Myndin af
Halldóri Laxness
• Myndlistarsýning
í forsal Þjóðleikhússins, túlkun
17 listamanna á Halldóri Laxness
Kl. 17.00
Bráðum
kemur betri tíð
• KK spilar og syngur
fyrir gesti
Kl. 18.00
Láttu
aungvan mann segja þér
• Flís hittir
Laxness. Flístríó Davíðs Þórs
Jónssonar, Valdimars Kolbeins Sigurjónssonar og Helga
Svavars Helgasonar
Kl. 20.00
Unglingarnir
í skóginum
• Nýhil hópurinn:
Haukur Már Helgason
Kristín Eiríksdóttir
Valur Brynjar Antonsson
Örvar Þóreyjarson Smárason
Óttar Martin Norðfjörð
Ófeigur Sigurðsson
Eiríkur Örn Norðdahl
• Böðvar Yngvi Jakobsson flytur ljóð afturábak
• Dóri DNA flytur rímur og rapp
Leikstjóri dagskrár er Viðar Eggertsson, dagskráin
er á vegum Gljúfrasteins - húss skáldsins.
Þjóðleikhúsið
stendur að sérstakri auka-hátíðarsýningu
á verki Ólafs Hauks Símonarsonar, Halldór
í Hollywood, um kvöldið, vildarkjör fyrir þá
sem framvísa kynningarmiða um myndlistarsýninguna
Myndin af Halldóri Laxness. |
Lokaúthlutun
Kristnihátíðarsjóðs - sýningin
Hin forna framtíð opnuð
1. desember 2005
Lokaúthlutun styrkja
úr Kristnihátíðarsjóði fór
fram við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu
1. desember sl. Stjórn Kristnihátíðarsjóðs
opnaði við það tækifæri sýningu
sem ber heitið „Hin forna framtíð" í
bókasal hússins. Á sýningunni má
sjá sýnishorn af árangri fornleifarannsóknanna
sem sjóðurinn styrkir ásamt kynningu á
fjölda annarra rannsókna á menningar- og trúarlífi
þjóðarinnar.
Kristnihátíðarsjóður hefur gefið
út rit þar sem finna má m.a. stuttar lýsingar
á flestum verkefnum sem sjóðurinn hefur styrkt.
Kristnihátíðarsjóður var stofnaður
til að minnast þess að 1000 ár voru liðin
frá því að kristinn siður var lögtekinn
á Íslandi.
Sýningin í
bókasal stendur frá 1. – 7. desember.
|
Ný
þemasýning opnuð í Leiklistarstofu
22. nóvember 2005
Sýning
til að minnast þess að öld er liðin frá
fæðingu Lárusar Ingólfssonar, leikara, leikmynda-
og búningateiknara, revíusöngvara og -dansara,
(1905-1981) var opnuð með viðhöfn þriðjudaginn
22. nóvember sl. Margir góðir gestir úr
leikhúsinu heiðruðu samkomuna, nutu veitinga og rifjuðu
upp kynni sín af Lárusi undir ræðuhöldum
og spilun á nokkrum upptökum ríkissjónvarpsins
með leik og söng Lárusar.
Sýnd er hönnun Lárusar, búningar, teikningar
og málverk. Leikminjasafn Íslands setur sýninguna
upp. (Sjá nánar undir “Sýningar”
á forsíðu).
|
Aðalfundur
Þjóðræknisfélags Íslendinga
– menningardagskrá í bókasal
19. október 2005
Aðalfundur
Þjóðræknisfélags Íslendinga
(ÞFÍ) var haldinn í Þjóðmenningarhúsinu
miðvikudaginn 19. október. Að fundi loknum hófst
vegleg menningardagskrá í bókasal. Almar Grímsson
formaður félagsins setti dagskránna. Ávarp
flutti Walter Sopher forseti Icelandic National League of North
America. Sveinn Sveinsson kvikmyndagerðarmaður hjá
+Film sýndi myndbrot úr Leiðin til Gimli og
úr Íslendingarnir í Norður Dakóta.
Evelyn Thorvaldsson frá Lögbergi Heimskringlu ávarpaði
samkomuna og Snorraverkefni liðins árs voru kynnt af
þeim Almari Grímssyni, Eric Stefanson og Ástu
Sól Kristjánsdóttur með fulltingi þátttakenda
í verkefnunum. Tindatríóið skemmti gestum
með ljúfum tónum. Eftir kynningu á útnefningu
heiðursfélaga flutti heiðursgesturinn Magnus Olafson
lokaávarp dagskrárinnar.
Að lokinni dagskrá bauð menntamálaráðherra
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir félaginu
og fundargestum til móttöku.
|
Rithöfundurinn
Tom Egeland á slóðum handritanna
19. október 2005
Norski
rithöfundurinn Tom Egeland, höfundur spennubókarinnar
Við enda hringsins, sem er nýkomin út
hjá JPV útgáfu, kom til landsins til að
kynna bók sína og heimsótti við það
tækifæri Handritasýningu Stofnunar Árna
Magnússonar hér í Þjóðmenningarhúsinu.
Gísli Sigurðsson fræðimaður veitti Egeland
leiðsögn um sýninguna.
Egeland hefur sérstakan áhuga á handritunum
og Snorra Sturlusyni þar sem atburðarás næstu
bókar hans; framhalds Við enda hringsins, leiðir
aðalpersónuna á slóðir Snorra í
leit að týndum handritum.
|
Vísinda-
og tæknimálaráðherra Indlands heimsækir
Þjóðmenningarhúsið
19. október 2005
Kapil
Sibal, vísinda- og tæknimálaráðherra
Indlands, var í opinberri heimsókn á Íslandi
í boði Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur
menntamálaráðherra dagana 19. og 20. október.
Ráðherrann skoðaði sýninguna Handritin
með leiðsögn Vésteins Ólasonar forstöðumanns
Stofnunar Árna Magnússonar. Að því
búnu var haldið til Hringborðsstofu þar sem
menntamálaráðherra Íslands og vísinda-
og tæknimálaráðherra Indlands undirrituðu
samninga um menningar og vísindasamstarf Íslands og
Indlands að viðstöddum fjölmiðlum.
Heimsókninni lauk með hádegisverði í
boði menntamálaráðherra. Jón K. B.
Sigfússon matreiðslumeistari Matar og menningar, veitingastofu
Þjóðmenningarhússins, sá um matseldina.
|
Umhverfis
jörðina á 80 dögum
14. október 2005
Þetta
októbersíðdegi var boðið uppá létta
dagskrá í bókasal í tengslum við
haustsýningu JAM-hópsins, félags íslenskra
listbókbindara, á íslensku bókbandi.
Veitingastofa Þjóðmenningarhússins, Matur
og menning, hafði á boðstólum gúllassúpu
og rauðvín m.m. á tilboðsverði.
Á haustsýningunni eru meðal annarra bækur
sem nýkomnar eru heim úr alþjóðlegri
bókbandskeppni í Frakklandi. Frakkar minnast þess
nú að 100 ár eru liðin frá andláti
hins mikla vísindaskáldsöguhöfundar Jules
Verne og af því tilefni fengu þátttakendur
í keppninni allir ritið Umhverfis jörðina
á 80 dögum sem bókbandsverkefni. Þaðan
var þema dagskrárinnar fengið.
Tónlistarmennirnir Hjörleifur Valsson
fiðluleikari og Ástvaldur Traustason harmónikuleikari
fluttu lög frá ýmsum heimshornum, Sigurður
Skúlason leikari las kafla úr bókinni
Umhverfis jörðina á 80 dögum og bókbindarinn
Ragnar Gylfi Einarsson úr JAM-hópnum
varpaði ljósi á það sem er efst á
baugi í bókbandi hér á landi í
dag.
Skemmtileg stemning myndaðist yfir veitingum og ljúfri
dagskrá í fullsetnum salnum á meðan rökkur
seig yfir.
|
Sýning
á vinningstillögu um tónlistarhús og ráðstefnumiðstöð
framlengd
6. október - 3.
nóvember 2005
Vinningstillaga
Portus um tónlistarhús, ráðstefnumiðstöð
og hótel við Reykjavíkurhöfn verður áfram
til sýnis í Þjóðmenningarhúsinu.
Nú þegar hefur hátt á þriðja
þúsund manns lagt leið sína í Þjóðmenningarhúsið
að skoða þær þrjár tillögur
sem valið stóð um. Vegna þess mikla áhuga
sem tillögunum er sýndur hefur verið ákveðið
að myndband, módel og kynningarspjöld um vinningstillöguna
verði sýnd áfram. Allir hafa aðgang að
kynningunni án þess að greiða aðgangseyri.
Nú er um að gera að nota tækifærið
og öðlast innsýn í þá breyttu
ásýnd miðbæjarins sem tillagan boðar!
|
Sýning
á tillögum um byggingu tónlistarhúss og
ráðstefnumiðstöðvar við Austurhöfnina
í Reykjavík
22. september til 5.
október 2005
Nú
stendur yfir í Þjóðmenningarhúsinu
sýning á vinningstillögu um byggingu tónlistarhúss
og ráðstefnumiðstövar við Austurhöfnina
ásamt skipulagi aðliggjandi svæða, einnig eru
sýndar þær tillögur sem lentu í öðru
og þriðja sæti.
Í Bókasal
gefur á að líta vinningstillögu Portus
Group, listrænn hönnuður hennar er
Ólafur Elíasson og listræna ráðgjöf
veitti Vladimir Ashkenazy.
Í stofu hins Íslenska
Bókmenntafélags á þriðju hæð
er tillaga Fasteignar/Klasa og í
stofu í kjallara er tillaga frá Viðhöfn.
Ókeypis aðgangur
er að sýningum hússins til 5. október af
þessu tilefni. |
Sýning
á íslensku bókbandi opnuð
9. september 2005
Þjóðmenningarhúsið
heldur áfram samstarfi sínu við JAM hópinn,
félag bókbindara. Haustsýning hópsins
á íslensku bókbandi var opnuð 9. september
í hjarta hússins, bókasalnum sem áður
var lestrarsalur Landsbókasafnsins. Sýnt er íslenskt
bókband gert með gamla laginu, eins og það
var unnið á 17. og 18. öld. Jafnframt má
sjá þar nútímabókband og nokkur
verk frá nýlegum sveinsprófum nemenda í
bókbandi. Sýningin er einstaklega glæsileg og
sýnir hversu vel bókbindurum tekst til við að
tengja gamla handverkið og nútíma hugsun í
hönnun.
Tekur sýningin við af sumarsýningu
sem JAM hópurinn stóð fyrir með norrænu
nútímabókbandi. |
Patti
Smith skákmót í Þjóðmenningarhúsinu
5. september 2005
Rokkskáldið
Patti Smith heldur tónleika hér á landi 6.
september. Hún var í morgun viðstödd skákmót
sem skákfélagið Hrókurinn stóð
að henni til heiðurs í Þjóðmenningarhúsinu.
Patti Smith hafði sérstakan áhuga á að
sjá skákborðið sem Þjóðmenningarhúsið
varðveitir og þeir Fischer og Spassky tefldu við á
heimsmeistaraeinvígi sínu 1972.
Á skákmótinu áttust við ungir skákmenn,
stelpur og strákar, sem tefldu af stórhug við
mikla hrinfningu viðstaddra.
|
Tónleikar
Kammersveitar Reykjavíkur í bókasal
2. september 2005
Kammersveit Reykjavíkur
hóf tónlistarár sitt með tónleikum
í bókasal undir heitinu Ravel á Þingvöllum.
Á efnisskrá voru eingöngu verk eftir Ravel
en með tónleikunum vildi Kammersveitin vekja athygli
á því að Ravel var á ferð á
Íslandi fyrir réttum hundrað árum og sendi
þá póstkort til Frakklands frá Þingvöllum.
Fram komu auk Kammersveitarinnar
Sesselja Kristjánsdóttir mezzósópran,
Elísabet Waage einleikari á hörpu og Pétur
Gunnarsson rithöfundur sem leiddi gesti um menningarheim Frakka
og Íslendinga á árum Ravels og gat sér
til um tilefni heimsóknar hans hingað til lands. |
Menningarnótt
í Þjóðmenningarhúsinu
20. ágúst
2005
Margt
var um manninn í salarkynnum Þjóðmenningarhússins
á menningarnótt. Sýningar og fundarsalir stóðu
opnar til kl. 20 um kvöldið en fjölbreytt dagskrá
hófst strax við opnun kl. 11 og lauk ekki fyrr en tíu
tímum síðar. Á dagskránni var bæði
afþreying og fræðsla; í boði var leiðsögn
og erindi um efni sýninga, leiðsögn arkitekts um
húsið, stuttmyndir eftir Pál Steingrímsson
um samspil náttúru og þjóðar að
ógleymdum hinum árvissu stofutónleikum sem
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson hélt ásamt
góðum gestum. Veitingastofan Matur og menning stóð
undir nafni með glæsilegu tilboði og góðri
stemmningu í veitingasal.
|
Norræn
ráðstefna um sögu læknisfræðinnar
opnuð í bókasal
10. ágúst
2005
Opnuð
var í Þjóðmenningarhúsinu norræn
ráðstefna um sögu læknisfræðinnar,
haldin dagana 10. – 13. ágúst 2005.
Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar
hér á landi stendur að ráðstefnunni
og flytur fjöldi fræðimanna erindi um rannsóknir
sínar á fjölbreyttustu hliðum lækninga
fyrr á öldum. Sérstaklega má geta þess
að íslendingasögurnar hafa undanfarið verið
rannsakaðar með tilliti til þess sem þar má
ráða í lækningar á söguöld.
Við setningu ráðstefnunnar flutti Atli Þór
Ólason formaður félags áhugamanna um sögu
læknisfræðinna ávarp og afhenti fullrúum
Augustinus fonden heiðurspening félagsins fyrir myndarlegt
framlag til viðhalds Nesstofu. Þá flutti Sigurbjörn
Sveinsson formaður læknafélagsins ávarp
og lýsti ráðstefnuna opna. Jóhanna Bergmann
leiðsögumaður Þjóðmenningarhússins
kynnti gestum húsið og að lokum fjallaði Sverrir
Tómasson vísindamaður hjá Stofnun Árna
Magnússonar um lækningar út frá ýmsum
handritum. Um kynningu sá Vilhelmína Haraldsdóttir
læknir.
Tónlistarmennir Jóel Pálsson saxofónleikari
og Eyþór Gunnarsson píanóleikari spunnu
í kringum ljúf þjóðleg lög viðstöddum
til yndisauka.
Að erindum loknum bauðst gestum leiðsögn um Handritasýninguna.
|
Hádegistónleikar
í bókasal
12. og 19 júlí
2005
Tríóið
Drýas hélt hádegistónleika í
bókasal Þjóðmenningarhússins þriðjudagana
5., 12. og 19. júlí.
Í Drýas
eru þær Herdís Anna Jónasdóttir
sópran, Þorbjörg Daphne Hall selló og Laufey
Sigrún Haraldsdóttir píanó. Stunda þær
allar tónlistarnám við Listaháskóla
Íslands. Í sumar starfa þær sem skapandi
sumarhópur hjá Hinu Húsinu.
Á efnisskránni voru aðeins
íslensk verk, m.a. sönglög eftir Atla Heimi Sveinsson,
Hjálmar H. Ragnarsson og Jórunni Viðar, þjóðlög
í útsetningum Hafliða Hallgrímssonar og
Jónasar Tómassonar og verk eftir Hreiðar Inga
Þorsteinsson. |
Norrænu
barnabókaverðlaunin afhent
29. júní
2005
Ragnheiður Gestsdóttir,
rithöfundur og myndlistarmaður, hlaut Norrænu barnabókaverðlaunin
2005 fyrir höfundarferil sinn sem rithöfundur og myndlistarmaður,
með sérstakri áherslu á unglingabókina
Sverðberann sem út kom fyrir síðustu
jól.
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráðherra afhenti
verðlaunin við hátíðlega athöfn í
bókasal á norrænni ráðstefnu Nordisk
skolebibibliotekarforening, sem veita verðlaunin.
|
Norrænt
bókband 2005 - opnun sumarsýningar í bókasal
10. júní
2005
Sýningin
Norrænt bókband 2005, sumarsýning í bókasal
Þjóðmenningarhússins, var opnuð með
viðhöfn þann 10. júní. Forseti Íslands
herra Ólafur Ragnar Grímsson opnaði sýninguna
en ávörp fluttu einnig Guðrún Garðarsdóttir
staðgengill forstöðumanns Þjóðmenningarhússins
fyrir hússins hönd og Svanur Jóhannesson bókbindari
fyrir hönd JAM-hópsins sem stendur að sýningunni
hér á landi.
Sýningin er hin glæsilegasta og ber hugmyndaauðgi
og handverki bókbindara á Norðurlöndunum
í dag fagurt vitni. Á sýningunni er áttatíu
og eitt verk eftir jafnmarga bókbindara. Um fjórðungur
verkanna hefur hlotið heiðursútnefningu sérstakrar
dómnefndar með tilliti til tækni, efnisvals og
hönnunar. Auk þess eru skissur að nokkrum verkanna
sýndar á veggjum veitingastofunnar Matur og menning.
Sýningin fer um öll Norðurlöndin og verður
í Þjóðmenningarhúsinu til 22. ágúst.
Á meðan sýningin
er í Þjóðmenninarhúsinu geta gestir
til gamans veitt besta bókbandinu að eigin mati atkvæði
sitt á vefsíðu sem opin er í sýningarsalnum.
Félagsskapur íslenskra bókbindara sem kallar
sig JAM-hópinn stendur að sýningunni fyrir Íslands
hönd. Hópurinn hefur staðið að fjölda
námskeiða, sýninga og nú síðast
norrænu samstarfi til þess að stuðla að
varðveislu gamla handverksins í bókbandi og miðla
því til komandi kynslóða. |
Alþjóðleg
víóluráðstefna var haldin í Þjóðmenningarhúsinu
2. - 5. júní
2005
Víólufélag
Íslands hélt 33ju alþjóðlegu víóluráðstefnuna
hér í Þjóðmenningarhúsinu.
Víóluleikarar á öllum stigum tóku
þátt í ráðstefnunni sem var opin
áhugafólki jafnt sem atvinnu-tónlistarmönnum.
Ráðstefnan var fjögurra daga tónlistarhátíð
með tónleikum, “master class” námskeiðum
og fyrirlestrum frá morgni til kvölds. Á dagskránni
var frumflutningur nokkurra verka fyrir víólur.
Þátttakendur og gestir voru einstaklega ánægðir
með gæði dagskrárinnar, alla skipulagningu
og hversu húsið hentar vel fyrir samkomur af þessu
tagi.
|
Foreldraverðlaun
Heimilis og skóla afhent í Þjóðmenningarhúsinu
17. maí 2005
Landssamtök foreldra,
Heimili og skóli, afhentu foreldraverðalun sín
í 10. sinn við hátíðlega athöfn
í Þjóðmenningarhúsinu. Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra
afhenti verðlaunin og flutti ávarp. Nemendur úr
Nýja tónlistarskólanum léku fyrir gesti.
Séra Bjarni Karlsson sóknarprestur í Laugarnessókn
hlaut verðlaunin að þessu sinni fyrir frábær
störf í þágu barna, foreldra og skóla
í Laugarneshverfi. Hann fékk verðlaunagrip sem
hannaður var af Óðni Bolla Björgvinssyni ásamt
viðurkenningarskjali.
Þrenn hvatningarverðlaun voru veitt starfsmönnum
skóla fyrir vel unnin störf og ein dugnaðarforkaverðlaun
voru veitt foreldri. Sjá nánar á heimasíðu
samtakanna: www.heimiliogskoli.is
|
Sýningin
Fyrirheitna landið var opnuð laugardaginn 7. maí
7. maí 2005
Ný
sýning í sýningarsölum á annarri
hæð, austanmegin, var opnuð við hátíðlega
athöfn laugardaginn 7. maí. Sýningin nefnist
Fyrirheitna landið og segir frá ferðum fyrstu Vestur-Íslendinganna;
mormónanna sem settust að í Utah, en nú
í ár eru liðin 150 ár frá því
að þeir settust að í Vesturheimi, fyrstir Íslendinga.
Dagskráin við opnun var á þessa leið:
Guðrún Garðarsdóttir staðgengill forstöðumanns
bauð gesti velkomna, þakkaði aðstandendum sýningarinnar
vel unnin störf og kynnti flytjendur.
Davíð Oddsson utanríkisráðherra ávarpaði
gesti og lýsti sýninguna opna.
Þessir fluttu einnig ávörp fyrir hönd aðila
sem koma að efni sýningarinnar með einum eða
öðrum hætti:
Almar Grímsson formaður Þjóðræknisfélags
Íslendinga
David A. Ashby f.h. Íslendingafélagsins í Utah
Andrés Sigurvinsson f.h. bæjarstjórnar Vestmannaeyja
Valgeir Þorvaldsson forstöðumaður Vesturfarasetursins
Ólafur Kjartan Sigurðarson söng nokkur lög
þar sem horft er heim til ættjarðarinnar frá
fjarlægu landi. Jónas Ingimundarson lék undir
á flygil.
Ástæða er til að þakka ræðumönnum
fyrir fróðleg og hnitmiðuð ávörp
og tónlistarmönnunum fyrir frábæran flutning
hinna tregablöndnu ættjarðarsöngva.
Að athöfninni lokinni nutu gestir sýningarinnar
og þáðu veitingar.
|
Hvað
gerði Hallgrím að skáldi?
24. apríl 2005
Sunnudaginn
24. apríl bauð Þjóðmenningarhúsið
til dagskrár í töluðu máli og tónum
um Hallgrím Pétursson (1614-1674) sem nú er
skáld mánaðarins í bókasal.
Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur flutti erindi
þar sem hún leitar svara við spurningunni hvað
gerði Hallgrím að skáldi. Hún
lagði áherslu á uppvaxtarár hans í
Skagafirði, jafnt í Gröf á Höfðaströnd
sem á Hólum í Hjaltadal með vísun
í aukna þekkingu á staðnum sem fornleifauppgröftur
þar er að leiða í ljós. Unglingsár
Hallgríms á erlendri grund skoðaði hún
einnig og afdrifarík kynni hans af Guðríði
Símonardóttur. Þau deildu kjörum til æviloka
en numið var staðar við lát yngsta barns þeirra
hjóna, Steinunnar, og brottflutning skáldsins og fjölskyldu
hans af Suðurnesjum í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd.
Steinunn fangaði athygli gestanna með fjölbreyttri
og áhugaverðri nálgun sinni á þessari
stóru spurningu, sem ætíð er forvitnileg
þegar stórskáld eiga í hlut. Steinunn
dró niðurstöðuna saman í einni setningu;
það var lífið sjálft sem gerði Hallgrím
að skáldi.
Bára Grímsdóttir, söngkona, kvæðamaður
og tónskáld og Chris Foster gítarleikari og
þjóðlagasöngvari fluttu nokkur kvæði
og sálma Hallgríms. Var söngur Báru einstaklega
hljómfagur og tær og gítarundirleikurinn léttur
og leikandi svo unun var á að hlýða.
Viðstaddir áttu saman einstaklega ánægjulega
stund þennan sólríka eftirmiðdag á
nýkviknuðu sumri.
|
Þjóðmenningarhúsið
tók þátt í dagskránni Ferðalangur
á heimaslóð 2005
21. apríl 2005
Á sumardaginn fyrsta
ár hvert taka ferðaþjónustuaðilar í
Reykjavík höndum saman um að opna dyr sínar
fyrir höfuðborgarbúum svo eftir sé tekið.
Að þessu sinni bauð Þjóðmenningarhúsið
ókeypis aðgang að öllum sýningum auk
sérstakrar kvikmyndasýningar á stuttmyndum
Páls Steingrímssonar; Þjóðin
og náttúran.
Fjölmargir lögðu leið sína í húsið
í tilefni dagsins og nutu sýninganna og ljúffengra
veitinga á veitingastofunni Matur og menning.
|
Aftur
til steinsins
19. apríl 2005
Þjóðmenningarhúsið
tók þátt í byrjunardegi viku bókarinnar
þriðjudaginn 19. apríl með leikandi dagskrá
í kringum nýútkomna ljóðabók
Njarðar P. Njarðvík, Aftur til steinsins:
Njörður las fyrsta ljóðabálkinn í
bók sinni og nefnist hann Undir regnboga og skírskotar
til Bifrastar og goðheima Ása og Vana. Vésteinn
Ólason forstöðumaður Árnastofnunar hugleiddi
tengsl ljóðsins við Snorra Eddu og Sigríður
Albertsdóttir bókmenntafræðingur ræddi
skáldaferil Njarðar P. Njarðvík og nálgaðist
efnið út frá persónulegum kynnum sínum
af Nirði sem fyrrum kennara síns. Inn á milli
mælenda söng Davíð Ólafsson bassi nokkur
lög við undirleik Ólafs Vignis Albertssonar, þar
á meðal lög eftir Njörð sjálfan.
Ýmis tilbrigði við epli Iðunnar voru á
boðstólum á vegum veitingastofunnar Matur og menning
á meðan á dagskrá stóð.
Verslun Þjóðmenningarhússin bauð bókina
til sölu á sérstöku afsláttarverði
í samvinnu við JPV útgáfu og er óhætt
að segja að hún hafi rokið út.
|
Passíusálmarnir;
tónlistin, myndlistin og skáldið
24. mars 2005
Á
skírdag bauð Þjóðmenningarhúsið
til dagskrár í umsjón Smára Ólasonar
tónlistarfræðings um Gömlu lögin við
Passíusálmana. Dagskráin var haldin í
risi Þjóðmenningarhússins; á sýningu
Þjóðminjasafnsins þar sem meðal annars
gefur að líta fjölda kirkjugripa frá liðnum
öldum en umgjörðin hæfði efninu afar vel.
Smári takti sögu laganna sem áður fyrr voru
einatt sungin við Passíusálmana á föstunni.
Hallgrímur gaf sjálfur upp fjölda tilvísana
um lög við sálmana, og voru þau flest upprunnin
í Þýskalandi á 16. öld. Smári
studdi umfjöllun sína með myndum og tóndæmum
af hljóðritunum sem varðveittar eru með söng
fólks sem alið var upp við þessa gömlu
sönghefð. Gestir skoðuðu jafnframt nýopnaða
sýningu um Hallgrím Pétursson, sem er skáld
mánaðarins í bókasal.
Dagskránni var afar vel tekið og gáfu gestir sér
góðan tíma í húsinu.
|
Hallgrímur
Pétursson er skáld mánaðarins – sýningin
opnuð
18. mars 2005
Sýning
um ævi og kveðskap Hallgríms Péturssonar
var opnuð við hátíðlega athöfn í
bókasal föstudaginn 18. mars. Sýningin er hluti
samstarfsverkefnisins Skáld mánaðarins en að
þessu sinni settu fulltrúar Stofnunar Árna Magnússonar
sýninguna upp en Landsbókasafnið lánaði
útgáfur og handrit. Skólavefurinn opnaði
að venju vefsíður sínar um skáldið
við sama tækifæri. Að auki er skáldinu
gerð skil að Skriðuklaustri á vegum Stofnunar
Gunnars Gunnarssonar.
Við opnunina bauð Guðrún Garðarsdóttir
staðgengill forstöðumanns gesti velkomna og þakkaði
aðilum samstarfsins framlag þeirra. Því næst
flutti Margrét Eggertsdóttir fræðimaður
hjá Stofnun Árna Magnússonar ávarp um
Hallgrím og efni sýningarinnar. Magnea Tómasdóttir
söng hluta úr fjórum Passíusálmum
og lék Guðmundur Sigurðsson undir á orgel.
Smári Ólason útsetti gömlu sálmalögin
fyrir rödd og orgel. Var flutningur þeirra afar áhrifamikill
og fallegur.
Athöfnin var hin ánægjulegasta
og gaman hve margir gestir nutu hennar með aðilum samstarfsins.
|
Komið,
sláið um mig hring – vel heppnuð dagskrá
um skáld mánaðarins Davíð Stefánsson
6. mars 2005
Vorilmur
lokkaði vitin sunnudaginn 6. mars þegar Þjóðmenningarhúsið
bauð til samverustundar undir yfirskriftinni Komið,
sláið um mig hring – ljóðlínunnar
góðkunnu úr einu kvæðanna sem Davíð
orti á Ítalíu.
Gunnar Stefánsson, dagskrárgerðarmaður hjá
RÚV, fjallaði á lipran og skemmtilegan hátt
um Davíð á yngri árum, sér í
lagi Ítalíuför hans og áhrif hennar á
skáldskap hans. Saman við umfjöllun Gunnars fléttuðust
nokkur sönglög við ljóð Davíðs
frá þessum árum sem Ólafur Kjartan Sigurðarson,
bariton, söng með glæsibrag við óaðfinnanlegan
undirleik Jónasar Ingimundarsonar.
Veitingastofan Matur og menning lagði sitt af mörkum og
jók á ánægju gesta með ítalskum
smáréttum af ýmsum toga.
Þjóðmenningarhúsið þakkar þeim
fjölmörgu sem lögðu leið sína í
húsið af þessu tilefni.
|
Íslenskur
tónlistararfur í Þjóðmenningarhúsinu
á Vetrarhátíð
20. febrúar 2005
Sunnudaginn
20. febrúar efndi Þjóðmenningarhúsið
til dagskrár í tengslum við þemasýninguna
Íslenskur tónlistararfur.
Njáll Sigurðsson rakti sögu hljóðritunar
á Íslandi á skemmtilegan hátt og spilaði
fjölmörg tóndæmi. Hann endaði yfirferðina
á Silfurplötum Iðunnar – þeim
merka áfanga í sögu hljóðritunar.
Félagar í Kvæðannafélaginu Iðunni
kváðu nokkrar stemmur.
Árni Heimir Ingólfsson flutti erindi
undir yfirskriftinni Tvísöngur á Íslandi
í aldanna rás. Söngvararnir Örn
Arnarson og Skarphéðinn Þór
Hjartarson sungu hljómfagran tvísöng
af ýmsum toga og vörpuðu þannig skæru
ljósi á þróunina sem Árni Heimir
rakti af list.
Bókasalurinn var fullsetinn þessa eftirmiðdagsstund
á síðasta degi Vetrarhátíðar
í Reykjavík.
|
Safnanótt
í Þjóðmenningarhúsinu
18. febrúar 2005
Þjóðmenningarhúsið
tók þátt í Safnanótt ásamt
öðrum söfnum og sýningasetrum í Reykjavík.
Sýningar og viðhafnarstofur voru opnar frá kl.
18 til 24 og boðið uppá einstaka dagskrá fyrir
unnendur náttúru og sögu þjóðarinnar:
Þjóð og náttúra: Páll
Steingrímsson kvikmyndagerðarmaður og heiðursverðlaunahafi
íslensku kvikmyndaakademíunnar 2004 sýndi sex
mismunandi stuttmyndaglefsur í bókasal allt kvöldið.
Sögupersónur myndanna voru, auk mannsins, dýrin
í kringum okkur - íslenski hundurinn, hesturinn, lundinn,
æðarfuglinn, gæsin og selurinn. Páll fangar
í myndunum samspil manns og náttúru á
sinn varfærna og næma hátt þar sem virðingin
fyrir viðfangsefninu er í fyrirrúmi og nutu gestir
þeirra svo sannarlega, sumir gátu ekki slitið sig
frá tjaldinu og sáu rennslið þrisvar sinnum!
Kálfskinn, fjaðrir og sortulyng: Á handritasýningunni
fengu allir að skrifa með fjaðurstaf á kálfskinnsbút
með bleki soðnu af sortulyngi. Svanhildur Gunnarsdóttir
safnkennari Árnastofnunnar aðstoðaði
og fræddi gesti og skein áhuginn úr hverju andliti
eins og myndin sýnir!
Leiðsögumenn voru á rölti um aðrar sýningar
og veitingastofan Matur og menning bauð uppá
rauðvín og osta, heitt súkkulaði og köku
og fleira á sérstöku tilboðsverði.
Gestir nýttu sér kvöldið til hins ýtrasta,
nutu sýninganna, dagskrárinnar og veitinganna í
afslöppuðu andrúmslofti og víst er að
Safnanótt verður endurtekin að ári.
|
Opnun
sýningarinnar Skáld mánaðarins –
Davíð Stefánsson
21. janúar 2005
Davíð
Stefánsson (1895-1964) er tekinn við titlinum Skáld
mánaðarins í bókasal Þjóðmenningarhússins
og á fræðsluvefnum Skólavefurinn.is. Var
sýningin í bókasal og vefgátt Skólavefsins
opnuð við hátíðlega athöfn á
fæðingardegi skáldins, 21. janúar, þegar
liðin voru 110 ár frá fæðingu þess.
Guðrún Garðarsdóttir, starfandi forstöðumaður,
bauð gesti velkomna og rifjaði upp minningar sínar
tengdar skáldinu. Þvínæst flutti Guðmundur
Andri Thorsson ávarp þar sem hann dró fram helstu
einkenni skáldins að eigin mati. Ávarp Guðmundar
var birt í heild sinni í Lesbók Morgunblaðsins
22. janúar.
Ekki er unnt að minnast skáldskapar Davíðs
án þess að í hug komi sá fjöldi
laga sem til er við ljóð hans. Við opnunina léku
þeir Gunnar Gunnarsson og Sigurður Flosason af innlifun
spuna í kringum sálm Davíðs Á
föstudaginn langa (Ég kveiki á kertum mínum),
lag Guðrúnar Böðvarsdóttur.
Gestir nutu ljúfra veitinga frá
veitingastofu hússins, Matur og menning, á meðan
þeir hlýddu á dagskránna og skoðuðu
sýninguna sem sett var upp með stakri natni af starfsfólki
Þjóðdeildar Landsbókasafns Íslands
– Háskólabókasafns.
|
Skáld
mánaðarins heimsækir Varmárskóla
14. janúar 2005
Föstudaginn
14. janúar sl. heimsótti Jóhann Hjálmarsson,
skáld mánaðarins, 6. bekk ÁJH í
Varmárskóla, Mosfellsbæ. Jóhann las nokkur
ljóð fyrir börnin og sagði þeim frá
skáldaferli sínum. Börnin spurðu Jóhann
útí líf hans og störf. Þótti
þeim gaman að heyra að Jóhann væri nágranni
þeirra, búsettur í Mosfellsbæ eins og
þau.
Heimsóknin var
liður í fræðslustarfi Þjóðmenningarhússins
í tengslum við sýningaröðina Skáld
mánaðarins sem er samvinnuverkefni Þjómenningarhússins,
Skólavefsins ehf., Stofnunar Gunnars Gunnarssonar á
Skriðuklaustri og Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns.
Á myndinni sést Jóhann
umvafinn hressum krökkum í 6. ÁJH.
|