Íslendingar
Á sýningunni er úrval af myndum úr samnefndri bók eftir þau Unni Jökulsdóttur rithöfund og Sigurgeir Sigurjónsson ljósmyndara sem kom út árið 2004 og tilnefnd var til Íslensku bókmenntaverðlaunanna sama ár.
Unnur og Sigurgeir einsettu sér að fanga þjóðarsálina í myndum og texta og fóru vítt og breitt um landið í tvö ár, heimsóttu fólk, spjölluðu við það og tóku myndir. Þau komust að því að í landinu búa tvær þjóðir, fólkið í borginni og fólkið úti á landi; fólkið sem býr á annesjum eða heiðabýlum, í afskekktum dölum og fáförnum fjörðum. Þetta fólk er fasttengt landinu og náttúrunni, umhverfið hefur mótað það og meitlað. Það var þetta fólk sem fangaði hug þeirra og varð þeirra viðfangsefni.
Leiðsögumaður Þjóðmenningarhússins hefur fengið Þjóðfræðistofu til liðs við sig varðandi nálgun og viðfangsefni fyrir nemendur út frá sýningunni. Þjóðfræðistofa vinnur nú að rannsókn á mótun þjóðernisímynda og sjálfsmynda og eru nemendur beðnir að taka þátt í þeirri rannsókn. Stefnt er að sýningu og útgáfu bókar um efnið á næstu misserum.
Nemendur fá í hendur blýant og klemmuspjald með blaði sem á eru þrjár spurningar frá Þjóðfræðistofu. Leiðsögumaður spallar við nemendurna um efni sýningarinnar og rannsóknarinnar og þeir skoða sýninguna og punkta hjá sér hugleiðingar sem kvikna út frá spurningunum. Síðan er nemendum boðið að deila hugleiðingum sínum með hópnum. Mælst er til þess að kennarinn taki hluta úr kennslustund í að fjalla betur um spurningarnar eftir heimsóknina og nemendurnir vinni ítarlegri svör sem Þjóðfræðistofa fær til úrvinnslu. Lögð er áhersla á að nemendurnir vinni svör sín upp í tölvu því þá er hægt að senda þau á netfang Þjóðfræðistofu um leið og þau nýtast í yfirferð og námsmati í skólanum.
Það er með ánægju sem Þjóðmenningarhúsið býður kennurum og nemendum að sjá áhugaverða sýningu og um leið taka þátt í mikilvægri rannsókn sem skilar sýnilegum afrakstri; bók og sýningu um efni sem mikið er í umræðunni þessi misserin; ímynd.
Spurningar Þjóðfræðistofu:
1) Hvað dettur þér fyrst í hug þegar þú heyrir orðið: Íslendingar?
2) Hver telur þú vera helstu þjóðareinkenni Íslendinga?
3) Fannst þér ljósmyndasýningin Íslendingar samræmast vel þessum hugmyndum? (Útskýrið).
|