|
|
Hringborðsstofan
Hringborðsstofu
prýða málverk af íslensku landslagi eftir
danska nítjándu aldar málara. Verkin eru úr
stofngjöf til Listasafns Íslands en það var
sett á fót í Kaupmannahöfn árið
1884 með verkum sem einkum danskir listamenn gáfu til
stofnunar þess.
Verkin eru:
Við Þingvelli,
1872 eftir August G. Sciöth
Geysir, 1847 eftir C. F. Emanuel Larsen
Eyjafjörður, 1882 eftir Christian Blache
Geitá og landið í kring, 1871 eftir Frederik
Theodor Kloss
|
Stofa
Hannesar Hafstein
Hannes
Hafstein (1861-1922) varð fyrsti ráðherra
Íslands er þjóðin fékk heimastjórn
1904 og er einn af helstu stjórnmálaskörungum
20. aldar. Hann var einnig mikilsvirt ljóðskáld
sem gjarnan orti krafti og karlmennsku lof. Á sýningunni
getur að líta embættisskjöl sem tengjast ráðherraferli
hans og muni sem minna á tímamóta framkvæmdir
sem hann hafði forystu um. Þar eru einnig ljóðabækur
Hannesar, tímaritið Verðandi sem Hannes var einn
útgefanda að og ýmsir persónulegir hlutir
úr fórum hans, svo sem innsigli, embættissverð,
skemmtilegt danskort frá menntaskólaárunum,
drykkjarmál frá Konungskomunni 1907 og margt fleira.
|
Stofa
Jóns Sigurðssonar
Jón
Sigurðsson forseti (1811-1879) var mikilvirkur og glöggur
fræðimaður sem ruddi braut nýjum rannsóknum
og var forvígismaður um útgáfu heimildarrita
um sögu lands og þjóðar. Þekktastur
er hann sem forystumaður í stjórnfrelsisbaráttunni
á 19. öld. Fæðingardagur hans, 17. júní,
er þjóðhátíðardagur Íslendinga.
Á sýningunni getur að líta myndir og muni
sem minna á líf hans og starf. Þar eru bækur
og tímarit sem Jón gaf út, sendibréf
og önnur skrif með eigin hendi hans, penni Jóns,
blekstæði og ferðapúlt, innsigli hans með
einkunnarorðunum “Eigi skal víkja”, silfurskjöldurinn
með áletruninni frægu “Óskabarn Íslands,
sómi þess, sverð og skjöldur” og margt
fleira.
|
Tónlistarstofan
Sýning
í tónlistarstofu bregður ljósi á
íslenska tónlistarsögu með aðstoð
ljósmynda, handrita, bóka og muna. Þar eru einkar
falleg nótnaskinnblöð frá miðöldum,
gamlar sálmabækur, handskrifaður Grallari og hljóðfæri
eins og íslenskt langspil og flautur Sveinbjarnar Egilssonar.
Einnig er þar að finna frumhandrit þjóðsöngsins
“Ó, guð vors lands” með eigin hendi Sveinbjarnar
Sveinbjörnssonar tónskálds. Ennfremur má
sjá upptökutæki frá öndverðri
20. öld, ljósmyndir frá óperum og hljómleikum
og margt fleira.
|
Leiklistarstofan
Á
sýningu í leiklistarstofunni er brugðið upp
svipmyndum úr íslenskri leiklistarsögu. Þar
eru handrit að leikritum frumherja eins og Sigurðar Péturssonar,
Matthíasar Jochumssonar og Indriða Einarssonar. Þar
eru hinar heillandi leiksviðs- og búningateikningar Sigurðar
Guðmundssonar málara auk leikbúninga frá
honum. Ennfremur leikmundir og líkön af leikmyndum sem
notaðar hafa verið á sýningum í Leikfélagi
Reykjavíkur og Þjóðleikhúsinu auk
ýmiss konar ljósmynda og prentmáls.
|
|